Morgunblaðið - 04.03.2000, Page 25

Morgunblaðið - 04.03.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 25 Telur matvöruverslun á Netinu eiga framtíð fyrir sér Halldór Páll Gíslason, fram- kvæmdastjóri Mata ehf., og Árni Þór Arnason, framkvæmdastjóri Aust- urbakka hf., héldu einnig erindi á að- alfundinum. I máli sínu fjallaði Hall- dór um matvöruverslun á Netinu, og taldi hann hana eiga framtíðina fyrir sér, en líklega aðeins hjá vissum hópum. Hann sagði að í grunninn væru til tvær tegundir netverslunar með matvæli. Annars vegar pöntuðu viðskiptavinir matvæli gegnum Net- ið og sæktu svo pöntunina sjálfir, og hins vegar væri pöntunum ekið upp að dyrum hjá viðskiptavinunum. Halldór fjallaði um netfyrirtækið Shoplink.com í Bandaríkjunum, sem væri af síðarnefndu gerðinni og starfar á Boston-svæðinu en breiðist jafnframt hratt út. Hann sagði að markhópur þess fyrirtækis væri hjón eða pör þar sem báðir einstakl- ingamir vinna úti, hafa tekjur yfir meðallagi ásamt þekkingu og vilja til að nýta sér þjónustuna. Hins vegar gerir fyrirtækið meira en að afgreiða matvæli. Jafnframt sér fyrirtækið um ýmsa snúninga fyrir viðskiptavini sína, eins og t.d. að fara með föt í hreinsun, filmur í framköllun og skó í viðgerð. Hann sagði að reynslan hefði sýnt að þetta væri sá þáttur sem viðskiptavinum þætti mest um verður, enda færi mikill tími í þessa hluti hjá venjulegu fólki þegar allt væri talið saman, og fólk væri fegið að vera laust við þessa snúninga. Lítill munur á umfjöllun um viðskipti og íþróttir Árni Þór Árnason fór í gegnum þann feril sem verslunarfyrirtæki þarf að fara í gegnum hyggi það á skráningu á almennum hlutabréfa- markaði, en nú er unnið að undir- búningi skráningar Austurbakka hf. á Verðbréfaþingi íslands. Ráðherra styður til- lögurnar VIÐSKIPTARÁÐHERRA, Val- gerður Sverrisdóttir, lýsti í gær stuðningi við tillögur Fjármálaeftir- litsins um að verðbréfakaup sem fela í sér brot á verklagsreglum verð- bréfafyrirtækja verði látin ganga til baka þar sem því verður við komið. Eins og fram hefrn- komið telur Fjármálaeftirlitið að í því sambandi kunni að þurfa að taka tillit til þess hvort viðskiptin hafi átt sér stað með samþykki stjórnenda viðkomandi fyrirtækis. Bankaráð Búnaðarbanka mun á næstu dögum taka þessi tilmæli Fjármálaeftirlitsins til umfjöllunar. Valgerður lýsti ánægju sinni með viðbrögð Búnaðarbankans við fyrri tilmælum Fjármálaeftirlitsins og sagði að samkvæmt bréfi sem henni hefði borist mundi bankaráð fara að þeim og hefði m.a. bannað kaup í óskráðum félögum. „Þessu máli er ekki lokið og ég mun fylgjast með viðbrögðum bankaráðs Búnaðarbankans við hin- um nýju tilmælum og hvernig á þeim verður tekið.“ með í framtíðinni, og velt fyrir sér hverjir myndu taka við stjórn fyrir- tækisins. Hann sagði tilgang skrán- ingar m.a. vera þann að geta betur nýtt sóknarfæri í framtíðinni. Ámi ræddi um þann mun sem er á fremur lokuðu rekstrarumhverfi fjölskyldufyrirtækis, hvað upplýs- ingagjöf og gagmýni utanaðkom- andi aðila varðar, og hlutafélaga á al- mennum hlutafjármarkaði. Hann kvaðst stundum ekki gera mikinn greinarmun á umfjöllun um viðskipti og íþróttir. Ef árangur væri ekki góður væri í báðum tilvikum oft tal- að um að reka stjórnandann, hvort heldur það væri þjálfari eða forstjóri fyrirtækis. „Það þýðir hins vegar ekki að mikla það fyrir sér, heldur verður að taka þessu eins og það er,“ sagði Ámi. Hann nefndi einnig að sér fyndist að stundum hefðu þeir sem fjölluðu um rekstrarárangur og atvik í við- skiptalífinu, bæði hjá fjölmiðlum og fjármálafyrirtækjum, fremur litla innsýn í það sem þeir fjölluðu um, og stundum væri umræða á heldur lágu plani. Á fundinum voru þrír einstakling- ar sæmdir gullmerki Samtaka versl- unai-innar/FIS fýrir störf sín að verslunarmálum. Þessir voru þeir Rolf Johansen frá Rolf Johansen & Co., Rafn Johnson frá Heimilistækj- um og Kristján Skarphéðinsson frá Amaro. Morgunblaðið/Ásdfs Haukur Þór Hauksson lagði til á aðalfundi Samtaka verslunarinnar/FIS að Alþingi setti á fót sérstaka þingnefnd um Evrópumál. hefðu 15,5 milljónir heimila í Evrópu verið tengdar Netinu, en talið væri að þau yrðu 57,5 milljón talsins árið 2003. Þetta væri meiri vöxtur en gert væri ráð fyrir í Bandaríkjunum. I máli hans kom einnig fram að megináherslan í starfsemi Ford hefði um árabil legið í því að selja kaupendum nýja bíla, og taka svo notaðan bíl upp í nýjan nokkrum ár- um síðar. „Við höfum staðið okkur ágætlega í þessu, en um helmingur kaupenda á Ford-bílum kemur aftur og kaupir bíl af sömu tegund þegar endumýjað er.“ Einnig hefði nokkur hluti viðskiptanna snúist um þjón- ustu, sölu varahluta og tryggingar. „Stóra tækifærið liggur hins veg- ar í því að vera í sambandi við kúnn- ann í gegnum allan notkunartímann. Hvemig getum við skapað verðmæti á þeim tíma. Það er það sem við höf- um eytt heilmiklum tíma og fjár- munum í að finna út úr. Við þurfum að bæta við ýmissi eigendaþjónustu við sem er mikilvæg fyrir viðskipta- vininn. Við verðum að halda stöðugu sambandi við hann og að sjálfsögðu að sjá til þess að Ford sé efst á lista þegar kominn er tími til að endur- nýja bílinn,“ sagði Þorgeir. Hann sagði að undirbúningur skráningar Austurbakka hf. hefði meðal annars falið í sér hlutafjára- ukningu árið 1995, aðlögun á bók- haldi og að fyrirtækið hefði verið „markaðssett" meðal aðila á fjár- magnsmarkaði. í þeim tilgangi hefði fyrirtækið kynnt sölutölur opinber- lega og gefið út kynningarbækling um starfsemi fyrirtækisins sem væri fátítt meða heildsölfyrirtækja hér- lendis. Einnig hefði fyrirtækið skilgreint þá vöruflokka sem það vildi höndla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.