Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 28
ERLENT
28 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
yfir sér glæsibrag velmegandi stór-
borgar í Evrópu.
Vissulega býr verulegt hlutfall
þjóðarinnar enn við bág kjör, þau
bágu kjör minna hins vegar meira á
aðstæður í Suður-Evrópu en í þró-
unarríkjum. Þessi velmegun er líka
ein helsta ástæða þess að stór hluti
þjóðarinnar er tregur til að for-
dæma Pinochet. Menn viðurkenna
að margt ljótt hafi átt sér stað í
skjóli hennar en þakka henni jafn-
framt þau lífskjör, sem fólk býr við.
I augum margra er Pinochet eins
konar landsfaðir.
Skammast sín fyrir
ímynd landsins
Handtaka Pinochets virðist hafa
farið í taugarnar á mörgum frekar
en að valda þeim reiði. Nokkrir við-
mælendur minntu á að Chile hefði
búið við mikla einangrun á alþjóða-
vettvangi, sem hefði bitnað á öllum.
Menn skammast sín fyrir þá ímynd
að vera vanþróað „bananaiýðveldi"
þar sem herforingjar í glæsilegum
búningum, ofhlöðnum heiðursorð-
um, fara með völd. Sú ímynd á að
mati Chilebúa við um nágrannaríki
þeirra norðar í álfunni fremur en
Chile, þar sem aðstæður eru mun
evrópskari og löng lýðræðishefð til
staðar.
„Erlendis er Pinochet það fyrsta
sem flestum dettur í hug þegar
minnst er á Chile. Við erum af-
greidd sem einræðisríki," segir
einn viðmælandi, ungur háskóla-
menntaður maður. Þessi hópur vill
loka þessum kafla sögunnar og
horfa fram á við.
„Við munum berjast
fyrir réttlæti“
Ekki geta þó allir gleymt hinu
liðna. í bakhúsi í miðborg Santiago
hafa aðsetur samtök ættingja
þeirra þúsunda er hurfu á tímum
herforingjastjómarinnar, flestir á
fyrstu árunum eftir valdatöku hers-
ins.
Hópur kvenna sat þar hljóður og
fylgdist með útsendingu af heim-
komu Pinochets. Þegar ég kom þar
inn var ég kysstur á báða vanga og
þakkað fyrir að sýna baráttu þeirra
áhuga. Allar bera þær í barmi sér
myndir af horfnum ættingjum:
mökum, systkinum og börnum.
Vivian Diaz, leiðtogi samtakanna,
gengur um og hughreystir konum-
ar; verið er að undirbúa mótmæli
fyrir utan La Moneda, forsetahöll-
ina. „Ég trúi því ekki að hann sé
veikur,“ segir ein yngsta konan í
hópnum með þjósti, hún missti föð-
ur sinn. „Hann þarf engan hjólastól,
þetta er allt sjónarspil."
Afsíðis situr gömul kona, hrörleg
með vinalegt bros. Á hennar spjaldi
era fimm myndir. Hún segist heita
Carmen Vivanco og hefur staðið í
eldlínu baráttunnar lengur en flest-
ar aðrar. Carmen bendir á mynd-
irnar: Eiginmaður hennar, sonur,
bróðir, mágkona og systursonur.
Allt hvarf þetta fólk á valdatíma
Pinochets og hefur ekki heyrst frá
síðan. „Mér finnst ég svo máttlitil
og getulaus," segir Carmen þar sem
hún horfir á mannfjöldann fagna
fyrir utan hersjúkrahúsið sem flog-
ið var með Pinochet á. „Við munum
berjast fyrir réttlæti," skýtur yngri
kona inn í. „Við munum halda áfram
að mótmæla þangað til að réttlæt-
inu hefur verið fullnægt."
Málið látið niður
falla í kyrrþey?
Margir efast þó um að Pinochet
verði látinn svara til saka í Chile.
Lögfræðingar hans munu benda á
að í Evrópu hafi yfirvöld eftir langa
yfirlegu komist að þeirri niðurstöðu
að Pinochet væri ekki sakhæfur af
heilsufarsástæðum. Það sama hljóti
að gilda í Chile. Þar að auki nýtur
Pinochet friðhelgi sem öldunga-
deildarþingmaður en í þá stöðu
skipaði hann sig sjálfur ævilangt.
Jafnvel þótt hann verði sviptur
þingmennsku hefur Edvardo Frei,
fráfarandi forseti, í undirbúningi
frumvarp um að hann muni halda
forréttindum sínum, launum og
friðhelgi.
Sumir fréttaskýrendur í Chile
telja nær öraggt að gert hafi verið
samkomulag á bak við tjöldin um að
láta málið niður falla í kyrrþey.
Stuðningsmenn August-
os Pinochets fögnuðu
ákaft komu hans til
Chile í gær. Steingrim-
ur Sigurgeirsson er
í Santiago og fylgdist
með heimkomu Pin-
ochets og viðbrögðum
við henni.
IBÚAR Chile era allajafna ró-
legt og yfírvegað fólk, á mæli-
kvarða spænskumælandi
þjóða, sem lætur ekki auð-
veldlega koma sér úr jafnvægi. Það
var því vart við því að búast að
fagnaðarlæti eða mótmæli vegna
heimkomu Augusto Pinochets
myndu fara úr böndunum.
Það fer ekki á milli mála að Pin-
ochet nýtur enn mikillar virðingar
og vinsælda í Chile. Allt frá því að
tilkynnt var að Jack Straw, innan-
ríkisráðherra Bretlands, hafði
ákveðið að leyfa Pinhochet að halda
heim, eftir að honum hafði verið
haldið í stofufangelsi í rúma sextán
mánuði, hafa stuðningsmenn Pin-
ochets verið ósparir við að láta
ánægju sína í ljós. Ákaft var fagnað
í Pinochetsstofnuninni, sem hefur
aðsetur í myndarlegu húsi við ró-
lega götu í Viticura, glæsihverfi í
útjaðri Santiago. Á fjölmörgum
götuhornum birtust skyndilega
sölumenn er gengu á milli bifreiða
og buðu ökumönnum að kaupa fána,
þar sem auk chileska þjóðfánans
var að finna mynd af Pinochet og
upphrópanir honum til stuðnings.
Eftir því sem leið á daginn fjölg-
aði bifreiðunum, sem skreyttar
voru fánum, og margir teygðu sig út
um glugga þeirra, veifuðu fánum á
meðan bílstjórar þeyttu flautur og
keyrðu hring eftir hring um götur
borgarinnar. Litlir fánar vora festir
á ljósastaura á helstu breiðstrætum
Santiago og minnti andrúmsloftið
helst á að Chile hefði unnið þokka-
lega mikilvægan knattspyrnuleik.
„Bretar rændu Pinochet“
Fjölskylda Pinochets virðist fyrst
og fremst vera fegin. í hádeginu á
fimmtudag söfnuðust börn hans og
aðrir nánir ættingjar saman á
„Coco“, besta sjávarréttaveitinga-
húsi Santiago, til að halda upp á að
Pinochet hefði lagt af stað. Fagnað-
arlætin vora hins vegar á lágu nót-
unum og urðu aðrir matargestir lít-
ið varir við hópinn.
Alfonso Marques de La Plata,
forstöðumaður Pinochetstofnarinn-
ar og fyrrum ráðherra, var hins
vegar ekki að skafa utan af hlutun-
um er hann ræddi við Morgunblaðið
í gær. „Ég er himinlifandi yfir því
að þessari óréttlátu og ólögmætu
stöðu hefur verið hnekkt. Bresk
stjórnvöld rændu í raun Pinochet."
De La Plata sagði erfitt að spá
um hvort réttað yrði yfir Pinochet í
Chile. „Það er pólitískt mál. Margir
mundu ekki hver staðan var. Her-
inn batt á sínum tíma enda á félags-
lega tilraunastarfsemi er hafði leitt
til upplausnar. Sósíalistar hafa
aldrei gleymt því. Þeir vilja hefnd.“
Hann sagðist hins vegar telja að
Ricardo Lagos, sem brátt tekur við
embætti forseta, væri gáfaður mað-
ur sem myndi horfa til framtíðar en
ekki fortíðar. „Við höfum of miklu
að tapa.“
De La Pata var í hópi þeirra er
fögnuðu Pinochet er Boeing 707-vél
chileska flughersins lenti á herhluta
Santiago-flugvallar skömmu fyrir
hádegi að staðartíma. „Við komum
þangað vinir hans, helstu yfirmenn
hersins, flotans, flughersins og lög-
AP
Stuðningsmenn Augustos Pinochets fögnuðu honum þegar hann var fluttur með þyrlu á hcrsjúkrahús í
Santiago í gær. Hann kom þá aftur til Chile eftir að hafa verið í stofufangelsi í Bretlandi í 16 mánuði.
Telja að gert hafi verið
samkomulag á bak við
tjöldin um að láta málið
niður falla í kyrrþey
reglunnar til að sýna honum að við
stæðum með honum. Við vildum að
hann sæi að hann myndi aldrei
standa einn.“
Hvað heilsu öldungadeildarþing-
mannsins varðar segist hann hafa
heimsótt Pinochet þrívegis til Bret-
lands og séð hvernig heilsu hans
hefði greinilega hrakað daglega.
„Þetta er maður sem ávallt hefur
verið kraftmikill og unnið af hörku.
Þú getur ímyndað þér hvaða áhrif
það hafði að loka hann inni í litlu
húsi þar sem hann gat ekkert gert.“
Flestum virðist standa á sama
Flestum virðist þó standa alveg á
sama og þeir láta allt húllumhæið í
kringum Pinochet fram hjá sér
fara. Það er algengt viðkvæði þegar
fólk er spurt álits á Pinochet-mál-
inu að það vilji helst gleyma því.
Menn rifja upp hversu eldfimt
ástandið hafi verið á valdatíma
Salvadors Allendes, efnahagur
landsins í upplausn og stjórnmála-
deilur harðar. „Lýðræðið var komið
út á ystu nöf í Chile. Stjórnmálaafl,
sem einungis hafði hlotið um þriðj-
ung atkvæða í kosningum, ætlaði að
kollvarpa stjórnarskránni og koma
á marx-lenínísku stjórnskipulagi,“
sagði maður einn sem rætt var við.
Kona með áratugalanga reynslu í
utanríkisþjónustu Chile lýsti því
hvernig fjölskyldu hennar, foreldr-
um og átta systkinum, hefði einung-
is verið skammtaður einn kjúkling-
ur á viku undir lok Allende-tímans.
„Fólk var farið að henda korni í
hermenn á götum úti, kalla þá hæn-
ur og hæðast að þeim fyrir að þora
ekki að grípa í taumana."
Mikil velmegnn
Stór hluti þjóðarinnar ber greini-
lega virðingu fyrir hinni „styrku“
og öguðu stjórn herforingjanna.
Ekki síst þakka menn henni að hafa
útrýmt spillingu og staðið vel að
Æðsti yfirmaður hers Chile, Ricardo Izurieta, fylgir Augusto Pinochet
(fyrir miðju) úr flugvél hans við komuna til flugvallar í Santiago í gær.
stjórn efnahagsmála. Maður þarf
ekki að dveljast lengi í Chile til að
skynja þá miklu velmegun sem
meirihluti þjóðarinnar býr við.
Tveggja stafa hagvöxtur ár eftir ár
um langt skeið hefur skilað sér til
margra. Háhýsi hafa sprottið upp
eins og gorkúlur, og borgin hefur
Margir efast um að Pin-
ochet verði saksóttur