Morgunblaðið - 04.03.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 31
LISTIR
Spýtustrák-
urinn Gosi
✓
I dag verður frumsýnd brúðuleiksýning um Gosa eftir
Helgu Arnalds í Samkomuhúsinu á Akureyri. Það eru
brúðuleikhúsið Tíu fíngur og Leikfélag Akureyrar sem
standa sameiginlega að sýningunni. Hávar Sigurjóns-
son ræddi við Helgu um sýninguna og samstarfið við
Leikfélag Akureyrar.
Morgunblaðið/Kristján
Gosi í góðum höndum Helgu Amalds.
Morgunblaðið/Kristján
Gosi í slæmum félagsskap.
„ÞETTA er brúðusýning með
blandaðri tækni,“ segir Helga Arn-
alds um sýninguna sem nýtir sér
öll tiltæk meðul leikhússins. Helga
hefur um nokkurra ára skeið rekið
brúðuleikhúsið Tíu fingur og sýnir
yfirleitt ein með brúður sínar við
alls kyns aðstæður en sjaldnast í
til þess gerðu leikhúsi.
Leikhús úr engu
„Eg er orðin svo vön þvi að búa
til leikhús úr engu að í fyrstu ætl-
aði ég að beita sömu aðferð hér í
Samkomuhúsinu á Akureyri. En
það gengur ekki að búa leikhúsið
til þegar maður stendur á miðju
sviði með allt til alls í kringum sig.
Eg hef því óspart nýtt alla tækni-
möguleika, bæði ljós og hljóð og
svo hef ég tvo ágæta aðstoðar-
menn í sýningunni, sviðsmanninn
Þórarin Blöndal og hvíslarann
Herdísi Jónsdóttur, sem nú gegna
allt öðrum hlutverkum því þau
leika mörg hlutverk með grímur
og stjórna brúðum,“ segir Helga.
Sýningin á Gosa er samvinnu-
verkefni milli Leikfélags Akureyr-
ar og Tíu fingra og eru fyrirhugað-
ar 20 sýningar í Samkomuhúsinu
nyrðra. „Eftir það á ég sýninguna
og hef hugsað mér að bjóða hana
til sýninga á höfuðborgarsvæðinu
frá næsta hausti. Ég þarf að ein-
falda hana talsvert svo ég geti
leikið hana ein og án tæknimanna.
Þeir Kristján Edelstein tónlistar-
maður og Ingvar Björnsson ljósa-
meistari leggja sýningunni mikið
til og hafa nóg að gera meðan á
henni stendur. Tæknilega er sýn-
ingin mjög flókin og á tímabili
hafði ég svolitlar áhyggjur af því
að tæknin væri að vaxa okkur yfir
höfuð en þetta hefur allt náðst í
gott jafnvægi."
Helga segist heppin með sam-
starfsfólkið sitt. „Eg hef líka haft
einn reyndasta leikstjóra landsins
með mér, hann Þórhall Sigurðs-
son, en hann er þaulkunnugur
brúðuleikhúsi og leikstýrði t.d.
sýningunni Bannað að hlæja með
Leikbrúðulandi fyrir nokkrum ár-
um.“ í fyrra leikstýrði Þórhallur
Helgu í sýningunni Ketils saga
Flatnefs sem notið hefur mikilla
vinsælda hvarvetna sem Helga
hefur sýnt hana.
Skemmtilegl
ævintýri
Sagan af spýtustráknum Gosa
eftir ítalska höfundinn C. Collody
er vel þekkt ævintýri sem Helga
segist hafa farið frjálsum höndum
um. „Sagan birtist upphaflega sem
vikuleg framhaldssaga í dagblaði
og er firnalöng. Hún gerist á
mörgum stöðum og býður upp á
mikla möguleika. Eg hef kosið að
leggja áherslu á samband Gosa við
pabba sinn, hvernig Gosi þroskast
frá því að vera uppi á móti öllu
sem pabbi hans vill og til þess að
bjarga lífi hans í lokin. A þeirri
leið lendir Gosi í ýmsum hættum
og það er refurinn sem er skúrk-
urinn í sýningunni okkar, hann
birtist aftur og aftur og reynir að
tæla Gosa til fylgilags við sig til að
græða á honum. Ég held að lang-
flestir krakkar skilji samhengið
þarna á milli án þess að það þurfi
að vera á kostnað ævintýrsins, því
fyrst og fremst er sagan stórkost-
lega skemmtilegt ævintýri," segir
Helga.
Takmarkaður
sýningafjöldi
Hún bætir því við að undirtónn-
inn sé sá að allar gjörðir manns
hafi afleiðingar, góðar eða slæmar
eftir atvikum, „...bæði fyrir mann
sjálfan og þá sem manni þykir
vænt um“.
Sem áður sagði verða sýningar á
Gosa í Samkomuhúsinu á Akureyri
og verður sýnt þar daglega fram
til 15. mars en þá lýkur sýningum.
„Við verðum með tvær sýningar á
dag á skólatíma á virkum dögum
fyrir nemendur Grunnskóla á
Norðurlandi en þær tvær helgar
sem um ræðir verða sýningar fyrir
almenning." Það er því rétt að
bregða skjótt við fyrir þá sem vilja
tryggja sér sæti á Gosa. Sýningin
er 40 mínútur að lengd til að falla
að stundaskrá nemenda sem ein
kennslustund. Að sögn þeirra
barna sem þegar hafa fengið að
sjá sýninguna á forsýningum hefði
þeim ekki þótt verra að sýningin
væri talsvert lengri og betri með-
mæli er vart hægt að hugsa sér.
„Píanóleikari
tónleikasalarins“
Morgunblaðið/Kristinn
ítalski pianólcikarinn Domenico Codispoti heldur tónleika í Tíbrár-
tónleikaröðinni í Salnum í Kópavogi í dag og Ieikur á Isafirði á morgun.
ITALSKI pianóleikarinn Domenico
Codispoti leikur verk eftir Schu-
mann, Janácek og Chopin á tónleik-
um í Salnum, Tónlistarhúsi Kópa-
vogs, í dag kl. 16 og í Hömrum á
Isafirði á morgun, sunnudag, kl. 17.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
vinnu við Stofnun Dante Alighieri á
íslandi og Tónlistarfélag ísafjarðar
en tónleikarnir í Salnum eru í Tí-
brá, röð 1.
Áður en hann settist við flygilinn
í Salnum til að æfa sig í gærmorgun
gaf Codispoti sér smástund til að
tala við blaðamann Morgunblaðs-
ins, með dyggri aðstoð Thors Vil-
hjálmssonar, forseta Stofnunar
Dante Alighieri á íslandi, sem túlk-
aði samtalið.
Sálarnauð og Ieit að hinum
innri manni
Sameiginlegan þráð í öllum verk-
unum á efnisskránni segir Codisp-
oti vera ákveðna sálarnauð, óvissu
og leit að hinum innri manni.
Fyrst á efnisskránni er Davids-
biindlertiinze op. 6 eftir Schumann.
Þar segir píanóleikarinn að spili
sarnaii æskan og hin rómanti'ska
hetja í leit að sínu eigin sjálfi, en
verkið endi í spurn og gefi ekki
ákveðið svar.
Sónata 1.10.1905 „Á götunni" eft-
ir Janácek var upphaflega í þremur
þáttum en tónskáldið ákvað á síð-
ustu stundu að sleppa þriðja þættin-
um og brenndi handritið. Janácek
fleygði raunar einnig fyrstu tveim-
ur þáttunum að loknum frumflutn-
ingi, en flytjandinn hafði afritað
verkið og bjargaði þvf frá glötun.
Verkið er skrifað í minningu tékk-
neska verkamannsins Frantisék
Pavlik, sem lét lífið í óeirðum við
háskólabygginguna í Brno 1. októ-
ber 1905. Yfirskrift fyrri þáttarins
er Hugboð og hins síðari Dauði.
„Verkið endar í angist,“ segir Cod-
ispoti.
Lokaverkið á tónleikunum er
Sónata í h-moll op. 58 eftir Chopin,
sú síðasta af þremur píanósónötum
tónskáldsins. Verkið er samið 1844
þegar Chopin var á hátindi ferils
sins en sama ár lést faðir hans. I
tónleikaskrá segir að upphaf fyrsta
þáttar minni um margt á verk
Chopins frá fyrri tíð. Annað stefið
sé með því fegursta sem frá hendi
hans kom og hljómræn blæbrigði
þáttarins ótrúleg. „Annar þáttur-
inn, Scherzo, er sveipaður töfrum,
þriðji þátturinn eins konar eintal,
draumkennt næturljóð og loks
hefðbundið Rondo, en á því lýkur
verkinu á einkar glæsilegan máta,“
ritar Jónas Ingimundarson í tón-
leikaskrá. Undir þetta tekur
Codispoti, segir sónötuna hefjast í
mikilli angist cn Ijúka í hetjumóði.
Margverðlaunaður og eftir-
sóttur konsertpíanisti
Domenico Codispoti er fæddur í
Catanzaro í Calabriahéraði á Suð-
ur-ftalíu árið 1975. Hann lærði hjá
í'talska pi'anóleikaranum Bruno
Mezzena í Pescara og útskrifaðist
með láði úr Tónlistarháskóla
Pescara, þar sem hann hlaut jafnan
hæstu einkunnir. I fréttatilkynn-
ingu kemur fram að Codispoti er
þegar margverðlaunaður og eftir-
sóttur konsertpi'anisti í Evrópu og á
Ítalíu. „Undanfarið hefur hann ver-
ið mjög virkur í tónleikahaldi á Ital-
íu og víðar um Evrópu. Hann fær
jafnan góða dóma gagnrýnenda og
ekki síður áheyrenda," segir enn-
fremur í fréttatilkynningunni.
Tónlistin tungumál
án landamæra
Codispoti hefur aðeins leikið inn
á einn geisladisk, enda hefur hann
verið kallaður „píanólcikari tón-
leikasalarins" vegna hins góða sam-
bands sem hann nær við áheyrend-
ur sína. Hann segir tónlistina
tungumál án landamæra, hún hjálpi
fólki að ná saman, óháð þjóðerni og
tungu, og skapi þegar best lætur
samvitund með þeim sem hlusta.
„Það er svo heillandi að fara milli
landa og hitta fólk og geta talað við
það á sama máli í ólíku umhverfi
við ólíkar aðstæður. Jafnvel þó að
þetta séu gjörólíkir staðir og fólk
sem fæst við ólika hluti, reyni ég að
ná sambandi við það þannig að það
skapi eitthvað sameiginlegt - og að
lokum er fólk jafnvel farið að
spyija sömu spurninganna. Þá er
tilganginum náð,“ segir píanóleik-
arinn.
Yerk
Hauks Dórs
í Grafar-
vogskirkju
SÝNINGIN Föstudagurinn langi er
yfirskrift sýningar á verkum Hauks
Dórs sem opnuð verður í Grafar-
vogskirkju á morgun, sunnudag.
Myndir Hauks eru af pínu og
dauða Krists. Túlkun listamannsins
er hvorki hátíðleg né kurteisleg;
segir í fréttatilkynningu, en hún er í
anda tjáningarfullrar myndlistar-
hefðar sem hófst með þýska lista-
manninum Grúnewald, sem dró upp
næstum óhugnanlega mynd af lík-
amlegum þjáningum Krists.
Ennfremur segir: „Fyrir Hauki
Dór er Kristur staðgengill okkar
allra á krossinum, því er angist hans
og niðurlæging meir en við getum
nokkurn tímann ímyndað okkur.
Gagnvart slíkri angist og niðurlæg-
ingu dugir ekki hófstilla og yfirveg-
un hefðþundinna myndlistar, heldur
einungis bernskt og einlægt mynd-
mál tilfinninganna.“
Djasskvöld
Múlans
GUITAR Islancio leikur á djass-
kvöldi Múlans í Sölvasal Sólons ís-
landus annaðkvöld, sunnudagskvöld,
kl. 21.
Tilóið skipa Gunnar Þórðarson á
gítar, Björn Thoroddsen einnig á gít-
ar og Jón Rafnsson kontrabassaleik-
ari. Þeir leika djass í léttari kantin-
um og í anda Django Reinhardt.