Morgunblaðið - 04.03.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 35
LISTIR
Kristnihátíð í Kjalarnesprófastsdæmi á morgun
Fjölbreytt dagskrá
í TILEFNI þúsund ára kristni á ís-
landi stendur Kjalarnesprófasts-
dæmi fyrir hátíð í Mosfellsbæ á
morgun, sunnudag, sem er æsku-
lýðsdagur þjóðkirkjunnar. Hátíðin
er samstarfsverkefni sveitarstjórna
og sóknarnefnda í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós og verður haldin í
íþróttahúsinu að Varmá.
Menningardagskráin hefst kl.
13.00 og stendur til kl. 17.00.
Á dagskrá er tónlist, myndlist,
leiklist, ávörp, guðsþjónusta, sögu-
sýning, kaffí og terta. Einnig er
menningardagskrá í Lágafells-
kirkju kl. 20.00 með orgeltónleikum
og fyrirlestri um orgelsmíði á ís-
landi.
I Iþróttamiðstöðinni að Varmá
verður dagskrá sem hér segir: Kl.
13.00 hefst menningardagskrá í sal
I, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
undir stjórn Sveins Þ. Birgissonar;
myndlistarsýning barna úr leikskól-
um, Varmárskóla, Gagnfræðaskóla
Mosfellsbæjar, Klébergsskóla og
Ásgarðsskóla; nemendur Tónlistar-
skóla Mosfellsbæjar leika á hljóð-
færi; barnakór Varmárskóla, Klé-
bergsskóla og Ásgarðsskóla syngur
undir stjórn Guðmundar Omars
Oskarssonar; minningar úr Kjalar-
nesþingi - myndasýning; tölvur og
netsamband við umheiminn; skátar
standa heiðursvörð. Hornakall á
norræna bronslúðra: Þorkell Jóels-
son og Sveinn Þ. Birgisson. Kynnir
verður Þórunn Lárusdóttir leik-
kona.
Hátíðardagskrá hefst í sal II kl.
14. Setning: Jónas Sigurðsson for-
seti bæjarstjórnar. Ávörp: Forseti
fslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, og Sólveig Pétursdóttir
kirkjumálaráðherra. Kl. 14.30 verð-
ur síðan guðsþjónusta í sal II.
Predikun: Séra Gunnar Kristjáns-
son prófastur. Séra Sigurður Sig-
urðarson vígslubiskup þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti, séra Jóni
Þorsteinssyni, séra Kristínu Þór-
unni Tómasdóttur héraðspresti og
Þórdísi Ásgeirsdóttur djákna.
Tvö verk eftir Jónas Þóri
Börn úr leikskólum í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós ásamt hátíðar-
kór Kjalarnesprófastsdæmis syngja
við undirleik hljómsveitar. Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson
syngja einsöng. Stjórnandi er Jónas
Þórir. Við guðsþjónustuna verða
Liður í hátfðinni er myndlistarsýning barna, þar sem finna má þessa
mynd eftir Söndru Gunnarsdóttur sem er í fímmta bekk Varmárskóla.
Sigpain Bergþór
Hjálmtýsdóttir Pálsson
frumflutt tvö tónverk eftir Jónas
Þóri, „Ur Hávamálum. Hugleiðing",
sem samið er við erindið Deyr fé, og
kristnihátíðarljóð, „Á krossgötum“
við ljóð eftir Lárus Þórðarson.
Einsöngvarar verða Bergþór
Pálsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Konsertmeistari er Szymon Kuran.
Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur
undir á píanó.
í hljómsveitinni er 21 hljóðfæra-
leikari. Kórinn samanstendur af
kórum úr Kjalarnesprófastsdæmi
og nefnist Hátíðarkór Kjalarnes-
prófastsdæmis.
Jónas Þórir hefur samið mörg lög,
m.a. fyrir Spaugstofuna, Egil Olafs-
son, leikhús o.fl. Hann hefur verið
organisti í átján ár og er nú organ-
isti Lágafellssóknar.
Um tónlistina sagði
Jónas Þórir að hún
væri í anda Jóns
Leifs. Sjálfur sagðist
hann vera alinn upp
við tónlist, en faðir
hans er fiðluleikari í
Sinfóníuhljómsveit-
inni.
Kl. 15.30 verður
Kirkjukaffí í sal III.
Mosfellsbakarí býður
upp á 1000 manna há-
tíðartertu og Mjólk-
ursamsalan býður upp
á ávaxtasafa.
Kl. 16.00 hefjast
Menningardagskrá og
leikir í sal II og í gamla íþróttasaln-
um, ýmsar uppákomur með tónlist í
fyrirrúmi. Nemendur úr söng- og
fiðludeild Tónlistarskóla Mosfells-
bæjar syngja og leika; furðuleikhús
- „Frá goðum til Guðs“, leikir og
leikþáttur í gamla íþróttasalnum,
hoppkastalar, Karlakórinn Stefnir
og Karlakór Kjalnesinga syngja.
Lokaorð: Ásgeir Harðarson, for-
maður framkvæmdanefndar.
I Lágafellskirkju stendur dagská
frá kl. 20-21. Björgvin Tómasson
orgelsmiður flytur erindi um sögu
orgelsins og orgelsmíði á íslandi og
Jónas Þórir leikur m.a. verk eftir
Johann Sebastian Bach. Séra Jón
Þorsteinsson flytur ritningarorð og
bæn.
Af Holmes o g
fleiri en
einum Watson
ERLEADAR
BÆKIJR
Spennusaga
„SPANKING WATSON"
eftir Kinky Friedman. Faber and
Faber 1999.216 sfður.
KINKY Friedman kallar sig
bandarískur rithöfundur kómískra
spennusagna. Hann segist búa í litlu
grænu hjólhýsi einhverstaðar í hæð-
um Texas þegar hann er ekki að fá
sér te um borð í Queen Elisabeth II
og hefur sent frá sér þó nokkrar
bækur þar sem hann sjálfur er í að-
alhlutverki en sú nýjasta heitir
„Spanking Watson“. Hún kom fyrir
skemmstu út í vasabroti hjá Faber
og Faber-útgáfunni og segir af því
þegar Kinky setur sig í einskonar
Sherlock Holmes-hlutverk vegna
knýjandi þarfar fyrir að stríða lesb-
íu á hæðinni fyrir ofan og fær
nokkra aldarvini sína til þess að taka
að sér hlutverk Watsons, hins
trygga og dygga en jafnframt
ímyndunarsnauða aðstoðarmanns
súperspæjarans.
Le Petomane
í upphafi erum við minnt á söguna
um Holmes og Watson þar sem þeir
lágu uppi á heiði og virtu fyrir sér
stjörnum prýddan himininn. Látum
okkur nú sjá hversu snjallir við er-
um að draga ályktanir, segir Holm-
es. Hvað er það sem þú sérð? Ég sé
stjörnurnar á fallegum sumarhimni,
segir Watson. Hvað segja ályktun-
arhæfileikarnir þér? spyr Watson á
móti. Þeir segja mér, svarar Holm-
es, að einhver hefur stolið tjaldinu
okkar.
Gamansemin í sögunni er nokkuð
í þessa veru, næsta pínleg fyrir alla
nema Kinky Friedman. Hann er
piparsveinn sem býr með kettinum
sínum og á við hann langar samræð-
ur um allt milli himins og jarðar.
Það má vel vera að við séum öll
skáldsagnapersónur í öfugsnúnu
gamanstykki sem er ekki sérlega
mikið sótt, er ein af athugasemdum
Friedmans, sem einnig talar um að
uppáhalds Frakkinn hans sé Le Pet-
omane en sá skemmti með ótrúleg-
um viðrekstrum á Moulin Rouge á
árunum 1892 til 1914. Kinky á eins-
konar vinkonu er heitir Stefanía og
hún átti föður sem gaf henni ungri
heilræði sem hún hefur ætíð síðan
haldið í heiðri: Aldrei að panta
margarítu á kínverskum veitinga-
stað.
Lesbian á efri hæðinni
Þannig er að lesbían í íbúðinni
fyrir ofan Kinky Friedman veldur
honum einstöku hugarangi'i. Hún er
með þróttmikla danstíma fyrir aðrar
lesbíur sem veldur því að steypan í
loftinu í eldhúsinu hjá honum er far-
in að detta niður í kaffibollann hans.
Hann fær menn til þess að múra upp
í loftið, en það vill svo til að þeir eru
tengdir mafíunni. Friedman fær þá
hugmynd að bregða lítillega á leik.
Hann lýgur því að vinum sínum,
heldur ólánlegum hópi karlmanna,
að lesbían, sem heitir Winnie Katz,
hafi fengið morðhótun og að þeir
þurfi að komast að því hver sendi
hana og er tilgangurinn sá að hún fái
engan frið fyrir þeim, en brátt kem-
ur í Ijós að svo virðist sem einhver
vilji drepa Winnie í alvörunni.
Inn í endaleysu þessa blandast
aragrúi persóna og dularfull mafíu-
saga en allt kemur það einhvern
veginn heim og saman í spaugskrif-
um Friedmans. Hann veður úr einu í
annað án þess að taka nokkurn
skapaðan hlut alvarlega og það má
hafa gaman af sumum athugasemd-
um hans en öðrum ekki eins og
gengur. Sem dæmi má nefna litla
ritgerð um miðbik sögunnar um
vandræðamenn af gyðingaættum;
Jesú var sá fyrsti en síðan komu
menn eins og Spinoza, Freud, Karl
Marx og Groucho Marx en á síðari
tímum Jack Ruby, Lenny Bruce,
Abbie Hoffman og Joseph Heller.
Fyrir þá sem hafa yndi af svolítið
fráánlegum húmor og kaldhæðni og
gæjastælum er „Spanking Watson"
svosem ágætis stundarafþreying en
það er ekki margt sem maður minn-
ist hennar fyrir.
Arnaldur Indriðason
M-2000
Á sýningunni í Borgarskjalasafni Reykjavíkur kennir ýmissa grasa úr lífi barna og unglinga á 20. öld.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Ungt fólk í Reykjavík á 20. öld
Laugardagur 4. mars.
Safnhús Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15. Kl. 14.
Mundu mig ég man
Þig
Sýning á vegum Borg-
arskjalasafns Reykja-
víkur um líf ungs
fólks í Reykjavík á 20.
öld. Sýningin er margþætt
og samanstendur af ljós-
myndum, skjölum og alls
kyns öðrum gögnum. Fjallað
verður um tengsl borgarinnar við
börn á mismunandi tímum með til-
liti til leikvalla, skóla, félagslífs,
heilbrigðismála o.fl. Aðgangur
Djass á
Jómfrúnni
í TILEFNI af Góugleði veit-
ingahúsa í Reykjavík verður
leikinn djass á veitingahúsinu
Jómfrúnni við Lækjargötu í
dag, laugardag, kl. 16-18.
Fram kemur tríó Þóris Bald-
urssonar Hammond-orgelleik-
ara.
Aðgangur er ókeypis.
www.rvk.is/borgarskjala-
Kringlan kl. 14.
Forskot á sæluna
í viðburðamiðstöð Menning-
arborgarinnar í Kringlunni mun
Ríkisútvarpið, í sam-
vinnu við Kvikmynda-
safn Islands og Ljós-
myndasafn Reykjavíkur, kynna
Fögnuð - margmiðlunarvef, sýn-
ingar og útvarpsþætti sem fjalla á
einn eða annan hátt um fagnaðar-
stundir íslendinga á 20. öld.
Laugardalshöll
Laugardagur og sunnudagur
Alþjóðlegt frjálsíþróttamót
fþróttafólags Reykjavíkur
Á frjálsíþróttamóti ÍR munu Ól-
ympíuverðlaunahafar, heimsmet-
hafar, Evrópumethafar og meistar-
ar ásamt fremstu frjáls-
íþróttamönnum Norðurlanda etja
kappi við skærustu stjörnur okkar
íslendinga, meðal annars Völu
Flosadóttur og Jón Arnar Magnús-
son. Rúmlega 100 krakkar, 14 ára
og yngri, úr ÍR taka þátt í setning-
arathöfn mótsins.
Laugardag 4. mars kl. 14.00 og
18.00 er opið mót 15-16 ára.
Sunnudag 5. mars kl. 10.00-
16.00 er opið mót 14 ára og yngri.
Mótinu lýkur með alþjóðlegu
keppninni á sunnudagskvöld kl.
20.00-22.30.
MUNDU mig ég man þig - Ungt fólk
í Reykjavík á 20. öld er sýning sem
opnuð verður í dag, laugardag, kl. 14
á vegum Borgarskjalasafns Reykja-
víkur á 6. hæð Safnahúss Reykjavík-
ur að Tryggvagötu 15. Sýningunni er
ætlað að draga fram lifandi svip-
myndir af lífi bama og unglinga á öld
breytinga og framfara í Reykjavík.
Sýningunni er skipt upp eftir aldri
bamanna og er fjallað um líf bam-
anna frá því eftirlit hefst með barns-
hafandi konum og þar til ungmennin
verða sjálíráða. A henni em jafnt not-
uð skjöl borgaryfirvalda og skjöl frá
bömunum og unglingunum sjálfum.
Þar kennir ýmissa grasa, en tugir
einstaklinga hafa gefið eða lánað efni
á þessa sýningu. Til að endurvekja
hughrif liðinna tíma verða einnig not-
aðar Ijósmyndir, tónlist, kvikmyndir
frá skólastarfi og munir af öðm tagi.
„I skjölum Reykjavíkurborgar má
sjá hversu mikla áherslu borgaryfir-
völd lögðu á málefni bama og ungl-
inga. Þar er til dæmis fjallað um upp-
byggingu skólakerfisins, leikvelli og
öryggi bama, heilbrigðisvarnir, æsk-
ulýðsstarf, hættur borgarinnar fyrir
unglinga, félagslíf, o.s.frv. í skjölun-
um má oft sjá framtíðarsýn fyrr á
tímum varðandi böm og ungmenni
og framsýnar tillögur sem miðast við
að komandi kynslóðir eigi bjarta og
gæfuríka framtíð," segir í kynningu.
I bekkjarklöddum er til dæmis
hægt að sjá hvemig ömmur okkar og
afar mættu í skólann. Þar er einnig
að finna athugasemdir um brot
þeirra sem vom sendir til skólastjór-
ans eða vísað úr kennslustund. Um-
fjöllun um lýsisgjafir, vítamíngjafir,
skólatannlækningar og sólböð í skól-
um skipa jafnframt sinn sess, en rík
áhersla var lögð á heilsufar og heil-
brigði skólabarna. Vandi tengdur
unglingadrykkju er tekinn til um-
fjöllunar og mikilvægi æskulýðs-
starfs og fyrirbyggjandi aðgerða, svo
sem félagsmiðstöðva og rekstrar
vinnuskóla fyrir unglinga.
Borgarskjalasafnið varðveitir
einnig nokkuð af skjölum barna og
unglinga. Þar á meðal em minninga-
bækur, ástarbréf og önnur sendibréf,
vinnubækur, stílabækur, ritgerðir
um atvik í samtímanum og framtíðar-
sýn.
Sýningartextar era bæði á ís-
lensku og ensku. Sýningin mun
standa til 15. maí og er opin alla daga
kl. 13-17 og einnig á fimmtudögum tO
kl. 21.00. Aðgangur er ókeypis.
ókeypis.
safn