Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 39

Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ VIKU m LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 39 Eldri foreldrar eignast frekar stúlku New York. Reuters. POR sem bíða með að eignast börn kunna þar með að auka líkurnar á að þau eignist dóttur, að því er niðurst öður rannsóknar benda til. Ennfremur virðist þessi tilhneig- ing „sterkari meðal þeirra sem ekki eru hvitir á hörund en þeirra sem eru hvítir,“ að því er segir í skýrslu dr. Marks Nicolichs, og samstarfsfólks hans, hjá fyrirtæk- inu Exxon líftæknivísindum í New Jersey í Bandaríkjunum. Niður- stöðumar birtast í marshefti túna- ritsins Fertility and Sterility. Niðurstöðuraar kunna að út- skýra þær breytingar sem virðast vera að verða á hlutfallinu á milli Ijölda nýfæddra drengja og ný- fæddra stúlkna í Bandaríkjunum. Enn fæðast fleiri drengir en stúlk- ur, en svo virðist sem breyting sé að verða þar á, stúlkum í vil. Kann þetta að stafa af tilhneigingu fólks til að eignast böra siðar á ævinni, þótt rannsóknin sýni ekki fram á augljós tengsl þaraa á milli. Nicolich tjáði Reuters að sam- drátturinn hefði verið lítill. Um það bil 51,4% nýbura í byijun fimmta áratugsins voru drengir, 51,3% í byijun sjöunda áratug- arins og 51,22% i byijun þess tíunda. Kannaðar vora fæðinga- PRN Mömmumar verða eldri en ald- ur karlanna er einnig ráðandi. skýrslur frá 1964-1988 til þess að reyna að koma auga á hvað gæti valdið samdrættinum. f ljós kom að tveir þættir, hærri aldur for- eldra og léttari nýburar hjá þeim sem ekki eru hvítir á hörund, juku líkur á að nýburinn væri stúlka. Aldur föður hefur tvöfalt meiri áhrif en aldur móður hjá þeim sem eru hvítir á hörund, að því er höf- undar skýrslunnar segja, en hjá þeim sem ekki eru hvítir á hörund virðist aldur föður og móður hafa álíka mikil áhrif á það hvors kyns nýburinn er. Nákvæm tengsl milli aldurs foreldra og kyns nýbura eru enn óljós. Nicolich sagði að aðrar rannsóknir hefðu einnig bent til þess að eldri foreldrar eignist frekar stúlkur, en ekki sé rétt að segja neitt um þetta í ljósi niðurstaðna rannsóknarinnar. Yngri karlmenn bregðast síður við heilsuleysi í sandinn“ KARLMENN tefla á tvær hættur með því að virða að vettugi vísbend- ingar um slæmt heilsufar, að því er fram kemur í nýrri könnun sem BBC greindi frá nýverið. Hátt í þriðjungur manna undir fertugu gerir ekkert til að bæta úr heilsu- leysi, og vonar bara að sjúkdómur- inn „hverfi af sjálfu sér,“ sam- kvæmt könnun Konunglega breska lyfjafræðingafélagsins (RPSGB). Þá leiddi könnunin ennfremur í ljós, að um helmingur karla undir fertugu fór sjaldan í lyfjabúðir til að fá ráðgjöf eða meðferð við minni- háttar kvillum á borð við flensu, hálsbólgu, eyrnaverk og húðsjúk- dóma. I niðurstöðum könnunarinn- ar sagði að það væri „dæmigert fyr- ir karlmenn að stinga höfðinu í sandinn,“ frekar en leita aðstoðar fagfólks. Roger Odd, fulltrúi RPSGB, sagði niðurstöðurnar sýna að karl- menn hirtu greinilega lítið um að nýta sér þjónustu lyfjafræðinga. . Dr. Mike Kirby, heimilislæknir sem sérhæfir sig í karlasjúkdómum, sagði að ef ekkert væri að gert kynnu einkenni alvarlegri sjúkóma að fara framhjá mönnum, og minni líkur væru á að næðist að með- höndla þá á frumstigi þegar auka- verkanir meðferðar væru ekki eins alvarlegar. I könnuninni kom í ljós að um helmingur karla undir fertugu, sem teldu sig haldna óverulegum kvilla, Allt í þessu fína. PRN myndi sjá sjálfur um meðferð, þrjá- tíu af hundraði myndu ekki gera neitt í málinu, 22% leita til lyfja- fræðings, fimmtán prósent myndu spyrja vini eða ættingja ráða, fimm prósent leita til læknis eða hjúkrun- arfræðings og sami fjöldi leita ráða á Netinu eða í bókum. Dr. Kirby sagði: „Karlar segja sem svo, ef ég geri ekkert í málinu þá batnar þetta. Konur eru líklegri til að ræða hlutina." land Bandaríkin Ítalía Danmörk Kína Ástralía Pólland Netsíminn* 18,60 kr. 20,43 kr. 17,66 kr. 44,21 kr. 21,98 kr. 27,38 kr. Frjáls fjarskipti** 23,00 kr. 27,00 kr. 23,00 kr. 90,00 kr. 23,00 kr. 40,00 kr. Landsnet* 19,91 kr. 20,36 kr. 17,81 kr. 55,05 kr. 27,35 kr. 32,00 kr. Íslandssími*** 29,75 kr. 31,90 kr. 25,50 kr. 99,90 kr. 56,10 kr. 45,50 kr. Nánari upplýsingar um verðskrá Netsímans er að finna á www.netsimi.is. Við þetta verð baetast innanlandsgjöld. Nota þarf sérstakan tækjabúnað (símLykil). Býður enn sem komið er ekki þjónustu við almenning. f---------------------------------- Hríngdu í síma 575 1100 og skráðu símanúmerið þitt. Opið allan sólarhringinn! z j 0 Eftir það velur þú 1100 í stað 00 í hvert skipti sem þú hríngir til útlanda. Þannig sparar þú stórfé. S I IVI I l\l l\l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.