Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 43
f
MORGUNBLAÐIÐ
lu nemur mörfflim milljónum króna
Morgunblaðið/RAX
Línunicnn splæsa saman rafmagnsvír sem síðan er dreginn í staurana í
heimtauginni að bænuni Skagnesi í Mýrdal.
Geðdeildir
sjúkrahúsanna
í Reykjavík
menn RARIK að ljúka við að tengja
sveitabæina og vinnuhópur var í mýr-
inni við Brekkur að reisa nýja staura
og voru bjartsýnir á að þeim tækist að
ljúka viðgerð fyrir nóttina og að raf-
magn kæmist þá að vestan inn á kerfið
í Mýrdalnum á nýjan leik. Gekk það
eftir, luku þeir verkinu í gærkvöldi.
Eftir er þó að vinna að frágangi enda
var sumt gert til bráðabirgða svo
straumur kæmist sem fyrst á.
Við störf í Mýrdalnum, við Brekkur
og lagfæringar á heimtaugum, voru þá
20 starfsmenn RARIK, frá Borgar-
nesi, Selfossi og Hvolsvelli, auk
tveggja björgunarsveitarmanna sem
voru að berja klaka af línum. Höfðu
þeir unnið hvíldarlítið frá því aðfara-
nótt fimmtudags. Þá unnu 6-8 starfs-
menn RARIK frá Höfn í Homafirði að
því að koma rafmagni á bæi í Álftaveri
og Meðallandi.
Til skoðunar að leggja í jörð
Rafmagnsveitur ríkisins verða fyrir
umtalsverðum kostnaði við viðgerðir á
raílínunum í Vestur-Skaftafellssýslu.
Fjöldi manna er þar við störf, auk þess
sem kaupa þarf að vélavinnu, efni í
staura og línur og keyra dísilvélar.
Kiistján Jónsson segir ekki búið að
meta kostnaðinn en segir ljóst að hann
nemi allmörgum milljónum króna.
Raflínur hafa oft brotnað vegna
óveðurs og ísingar í Mýrdalnum og fólk
er orðið vant þeirri röskun á daglegu iífi
sem það hefur í för með sér. Sumar lín-
umar hafa rofnað á 6 til átta ára fresti.
Kristján Jónsson rafmagnsstjóri
segir að á hverju ári séu lögð
hundruð kílómetra af línum í jörð.
Áhersla hefur verið lögð á staði þar
sem tjón hafa verið tíð vegna ísingar,
mest á Norðurlandi en einnig nokkuð á
Suðurlandi. Reynslan af því sé góð,
mikið hafi dregið úr truflunum og
rekstarkostnaður lækkað. Mýrdalur-
inn hefur hins vegar ekki verið talinn
mikið ísingarsvæði. Kristján segir að
sú reynsla sem fáist af tjóninu nú verði
notuð við mat á því hvar næst skuli
bera niður. Mýrdalurinn komi vissu-
lega til skoðunar í því efni.
Kristján segir að einkum séu sveita-
línur með 19 kílóvolta spennu lagðar í
jörðu. Mun dýrara sé að grafa niður
flutningslínur, eins og línuna frá
Hvolsvelli til Víkur, en það komi vissu-
lega einnig til skoðunar í ljósi fenginn-
ar reynslu.
HÖRÐ viðbrögð hafa orðið
við tillögum um 100 millj-
óna króna skerðingu á
fjárframlögum til geð-
deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur á ár-
sgrundvelli. Margir hafa að vonum
lýst miklum áhyggjum sínum af þeirri
fyrirætlan. Fyllsta aðhalds hefur ver-
ið gætt undanfarin ár í rekstri geð-
deilda sjúkrahúsanna í Reykjavík og á
sl. ári tókst að halda þeim báðum inn-
an þess fjárhagsramma
sem áætlanir gerðu ráð
fyrir. Á undanfömum
árum hefur sólarhrings-
innlögnum fækkað, legu-
tími styst og umtalsverð
aukning orðið á nýtingu
dagdeilda. Eins og fram
kom í grein í Morgun-
blaðinu 29. febrúar sl.
var rúmum fækkað á
geðdeild SHR á árinu
1997 og vaktahlutfall
lækkað. Spamaðar- og
aðhaldsaðgerðir hafa
verið árvissar á geð-
deildunum undanfarin
ár sem og í öðrum þátt-
um í rekstri sjúkrahús-
anna. í kjölfar þess að
Reykjavíkurborg dró sig alfarið út úr
rekstri SHR hefur það ekki komið á
óvart, að ríkið, sem nú er eigandi
beggja sjúkrahúsanna, vilji freista
þess að ná fram hagræðingu með
skýrari verkaskiptingu og aukinni
skilvirkni í rekstri. Hugmyndir um
100 milljóna króna samdrátt í starf-
semi geðdeildar SHR hefðu hins veg-
ar þýtt að meginhluta af starfsemi
deildarinnar hefði verið hætt í núver-
andi mynd. Slík breyting hefði ekki
verið í neinu samræmi við hlutverk
SHR sem aðalbráðasjúkrahúss lands-
manna. I ljósi þessa vom settar fram
tillögur sem vora m.a. kynntar í
Morgunblaðinu 23. febrúar sl. Tillög-
urnar gerðu ráð fyrir að á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur yrði áfram öflug mót-
tökugeðdeild, en að leitað yrði frekari
hagræðingar með aukinni samvinnu
geðdeildanna, samnýtingu á aðstöðu
og mannafla, sem gæti að auki leitt til
bættrar þjónustu við sjúklinga.
Geðdeild SHR
SHR er deildaskipt sjúkrahús og
því augljóst að geðdeild gegnir þar
mikilvægu hlutverki enda teljast geð-
lækningar eitt af þremur meginsvið-
um læknisfræðinnar, þ.e. auk lyf- og
handlækninga. Sú staðreynd að SHR
er aðalbráðasjúkrahús landsmanna
með öfluga sjúkra- og slysamóttöku
hefur það í för með sér að við sjúkra-
húsið verður að vera móttökugeð-
deild. Ekki hafa enn komið fram áætl-
anir um endanlega verkaskiptingu
sjúkrahúsanna í Reylqavík, enda
vandasamt verk og sameiningarferlið
verður eflaust flókið. Hugmyndir um
háskólasjúkrahús þar sem þjónustu-
og fræðasvið spanna bæði sjúkrahús-
in er að mörgu leyti áhugaverð. Við
slíkar skipulagsbreytingar er þó
nauðsynlegt að faglegar forsendur fái
sem mest ráðið um innra skipulag
þjónustunnar. Við upphaf hugsan-
legrar sameiningar sjúkrahúsanna
væri því óráðlegt að gera óafturkræf-
ar breytingar á aðstöðu og umfangi í
þjónustu geðdeildanna, sérstaklega ef
slíkar breytingar hefðu í för með sér
lakari aðstöðu til bráðamóttöku geð-
sjúkra.
Aukið samstarf
og hagræðing
Það er augljóst að nýta þarf tak-
markaða fjármuni heilbrigðisþjónust-
unnar sem best til hagsbóta fyrir
sjúklingana. Þó rekstrarleg sjónar-
mið séu þýðingarmikil mega þau
aldrei verða ráðandi varðandi þá þjón-
ustu semhægt er að veita sjúklingum.
Æskilegast væri að aukin skilvirkni
og hagræðing leiddi til aukinna fram-
laga til bættrar þjónustu. Geðdeildir
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspít-
ala era mjög sambærilegar að því er
varðar bráðaþjónustu og móttöku en
aðstaða til sértækrar- og stoðþjón-
ustu er með nokkuð ólíkum hætti.
Þannig hefur geðdeild SHR á að skipa
öflugum deildaskiptum dagspítala á
Hvítabandi við Skólavörðustíg en
undanfarið hafa sjúkra-
húsin lagt aukna áherslu
á að veita þjónustu á
dagdeildum. Mjög góð
aðstaða er til iðjuþjálf-
unar í geðdeildarbygg-
ingu á Landspítala og
þar er einnig góð aðst-
aða til móttöku á göngu-
deild en takmörkuð
göngudeildaraðstaða
hefur háð starfsemi geð-
deildar SHR. Á Klepps-
spítala er þýðingarmikil
aðstaða til starfsþjálfun-
ar í Bergiðjunni og gæti
sú aðstaða nýst betur
báðum deildum, einkan-
lega til nauðsynlegrar
eflingar á endurhæfingu
geðsjúkra. í Gunnarsholti á Rangár-
völlum er vistheimili fyrir vímuefna-
sjúklinga. Erfitt hefur reynst að koma
við nægilegri faglegri þjónustu vegna
fjarlægðar og svo hins að aukinn fjöldi
yngri vímuefnaneytenda krefst
bættrar aðstöðu til endurhæfingar. Á
Arnarholti á Kjalarnesi hefur ein
Fyrir sextán árum
tóku föst fjárlög við
af daggjaldakerfí sjúkra-
húsanna, segir Hannes
Pétursson, og hafa
að mati margra runnið
sitt skeið á enda.
þriggja sjúkradeilda verið lokuð und-
anfarin ár vegna fjárskorts. í Arnar-
holti vistast m.a. einstaklingar sem
vegna líkamlegra kvilla þyrftu á vist-
un að halda á hjúkranardeildum fyrir
aldraða. Hugsanlega mætti bæta nýt-
ingu Arnarholts veralega með sam-
starfi geðdeildanna og um leið auka
möguleika á faglegri þjónustu og öfl-
ugri endurhæfingu sjúklinga.
Áhersluatriði
íþjónustu
Aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu
hér á landi er með því besta sem ger-
ist og þýðingarmikið að svo verði
áfram. Lögð hefur verið áhersla á
bráðaþjónustu sem opin er á báðum
geðdeildunum allan sólarhringinn,
allan ársins hring. Ennfremur hefur
verið lögð aukin áhersla á þjónustu á
göngu- og dagdeildum í samræmi við
þarfir sjúklinga. Eftir sem áður era
innlagnir á sólarhringsdeildir oft eina
raunhæfa úrræðið og því nauðsynlegt
að sú aðstaða skerðist ekki frekar en
orðið er.
Á undanförnum 2-3 áram hefur
heilbrigðisráðherra stutt sérstakt
átak til að efla starfsemi barna- og
unglingageðdeildarinnar. í kjölfar
ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um úr-
bætur vegna heilbrigðisþjónustu fyrir
unglinga er verið að ganga frá úrbót-
um á unglingadeild BUGL við Dal-
braut sem mun efla bráðamóttöku
deildarinnar. í því sambandi er stofn-
að til aukins samstarfs við Barna-
verndarstofu en einnig hefur verið
rætt um að efla samstarf við SÁÁ
vegna þeirrar skörunar sem er á þjón-
ustu umræddra stofnana. Áukin
áhersla á geðheilbrigðisþjónustu fyrir
börn er einnig í samræmi við aukinn
skilning á áhættuþáttum geðsjúk-
dóma almennt, m.a. hjá fullorðnum,
og nauðsyn þess að greina þá sem'
fyrst og meðhöndla til að reyna að
koma í veg fyrir langvarandi veikindi.
Einnig er mjög brýnt að efla sam-
skipti geðdeildanna við heilsugæsluna
og aðra þá aðila sem fást við geðheil-
brigðisþjónustu utan sjúkrahúsanna.
Þar má m.a. nefna samtökin Geðhjálp
og Geðvemdarfélagið.
Geðheilsa, forvarnir
og fræðsla
Eiginlegar orsakir flestra geðsjúk-
dóma era enn lítt þekktar en era í
flestum tilvikum taldar flókið samspil
líffræðilegra og sálfélagslegra þátta
eins og í flestum örðum sjúkdómum.
Vegna þessa er erfitt að koma við eig-
inlegum forvörnum í mörgum tilvik--
um en þvi meiri ástæða til að efla vit-
und og skilning almennings á
geðsjúkdómum. Landlæknir efndi
nýlega til átaks í þessu sambandi og
varð áþreifanlega vart við aukna þjón-
ustueftirspurn á bráðaþjónustum og
göngudeildum geðdeildanna í kjölfar
þess. Alþjóða heilbrigðisstofnunin og
Evrópusambandið leggja áherslu á
bætta geðheilsu og forvarnir gegn
geðsjúkdómum á komandi misserum.
Heilbrigðisráðuneytið hefur sent full-
trúa sinn á fundi þessara aðila en víða
í nágrannalöndunum hafa verið gerð-
ar ráðstafanir í þessum efnum m.a. til
að bæta greiningu og meðferð þung-
lyndis, draga úr fordómum og bæta
félagslega stöðu geðsjúkra. Það er
sérstakt ánægjuefni að Geðhjálp hef-
ur nú nýverið ráðið tvo fræðslufull-
trúa í þessu sambandi og era miklar
væntingar bundnar við þeirra störf.
Mjög þýðingarmikið er að efla
fræðslu um geðsjúkdóma og geðheil-
brigði í skólum og á vinnustöðum eins
og m.a. hefúr komið fram í grein
Kristins Tómassonar, yfirlæknis hjá
Vinnueftirliti ríkisins, í Mbl. 25. febr-
úar sl.
Lokaorð
Stjórnendur geðdeilda sjúkrahús-*
anna höfðu bent á að 100 milljóna
króna samdráttur væri óraunhæfur
og lögðu þunga áherslu á að geðdeild
SHR yrði áfram starfrækt. Á þessi
sjónarmið var fallist og jafnframt yrði
stefnt að 40-50 milljóna króna hag-
ræðingu í rekstri með þeim hætti að
ekki kæmi til skerðingar á þjónustu.
Þetta verður m.a. gert með aukinni
samnýtingu á aðstöðu og mannafla,
tilfærslu á starfsemi og aukinni
áherslu á bráða- göngu- og dagdeild-
arstarfsemi. Slíkar áherslubreytingar
era í samræmi við þá þróun sem hefur
átt sér stað og miðast að þvi að geta
veitt hverjum einstaklingi þá meðferð
sem best henta hverju sinni. Fyrir
sextán áram tóku föst fjárlög við af <
daggjaldakerfi sjúkrahúsanna og hafa
að mati margra rannið sitt skeið á
enda. í grein sem Anna Lilja
Gunnarsdóttir, forstöðumaður þróun-
ar- og hagdeildar Ríkisspítala, skrif-
aði í Morgunblaðið nú nýlega er lagt
til að tekið verði upp blandað fjár-
mögnunarkerfi, þ.e. að hluta föst fjár-
lög en einnig að hluta breytilegar fjár-
veitingar. Það er flestum orðið löngu
ljóst að nauðsynlegt er að fjármagn
fylgi sjúklingingum a.m.k. upp að
vissu marki þannig að tryggt sé að
sjúkrahúsin geti veitt nauðsynlega
þjónustu án þess að slíkt leiði sjálf-*
krafa til hallareksturs stofnana með
tilheyrandi aðhaldsaðgerðum seinni
hluta árs, eins og verið hefur nánast
árvisst í rekstri sjúkrahúsanna í
Reykjavík.
Höfundur er læknir, prófessor igeð-
læknisfræði við læknadeild Háskóla •,
íslands.
Morgunblaðið/RAX
tir á Giljum og Guðrún Einarsdóttir á Suður-Götum hituðu kaffi og súpu á gasi
agnsleysinu, en sögðust ekki hafa lent í neinum teljandi erfiðleikum.
n. Þetta væri þó erfitt verk.
t þetta skrítið, enda vanar
; þefað mikið af sér.
isar leiðir til að bjarga sér
eru með sérstaka mótora við
mjaltavélarnar en þeir eru oft of litlir. Þá hafa
þeir möguleika á að tengja haugsugur inn á
mjaltakerfin en svo stóð á á Litlu-Heiði að
haugsugan var ekki heima við og þurfti því að
handmjólka.
Hannes
Pétursson