Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 47
alla helgina!
MORGUNBLAÐIÐ__________________________________________________LAUGARDAGUR 4, MARS 2000 47
MARGMIÐLUN
Hringlanda-
háttur Microsoft
EKKI ER gott að henda reiður á
því hvert stefnir í útgáfum á Wind-
ows-stýrikerfinu, enda hafa stjórar
Microsoft skipt nokkrum sinnum
um skoðun á síðustu árum. Sem
stendur eru þrjár útgáfur af Wind-
ows á markaði, 98, 2000 og CE, og
eiga fátt sameiginlegt nema nafnið
og útlitið. I vændum er einföldun á
framleiðslulínunni.
Alla tíð hafa Microsoft-menn
farið frjálslega með heiti Windows-
notendaskilanna og síðar stýrikerf-
isins út á við, en sé gáð undir
húddið má sjá að þar er merkingin
raunhæfari. Þannig leysti Wind-
ows 95 Windows 3.x af hólmi, en ef
menn kíktu á útgáfunúmerið í
kerfislykli í stjómborði mátti sjá
að þar stóð 4. Síðan komu fleiri út-
gáfur og nú síðast Windows 98,
sem er 4.10 ef gáð er á sama stað.
Eins er því farið með NT, því í
stað útgáfu 4.5 kemur Windows
NT 5, sem kallast Windows 2000 á
markaðsmáli.
2000-nafnið er reyndar þannig
til komið að fyrir nokkrum árum
ákváðu Microsoft-stjórar að láta
renna saman í einn flaum heimilis-
stýrikerfið, Windows 9x, og skrif-
stofustýrikerfið, Windows NT. Sú
útgáfa átti að heita Windows 2000
og eftir það væri fyrirtækið aðeins
með eina gerð af stýrikerfi fyrir
borðtölvur á sinni könnu sem
myndi einfalda mjög alla starfsemi
þess. Þegar nær dró áttuðu menn
sig á því að þetta væri hægara sagt
en gert, ekki síst þar sem þarfir
heimilisnotenda og fyrirtækja eru
mjög ólíkar og þótt hinir fyrr-
nefndu geti sætt sig við óstöðugt
stýrikerfi til að keyra leiki og
þvælast á Netinu, myndu fyrirtæki
ekki vilja nema stýrikerfi sem
aldrei þyrfti að hugsa um. Því var
ákveðið að halda aðskilnaðinum
áfram og vinna hófst við tvær nýj-
ar gerðir, Neptúnus og Ódysseif.
Varla voru menn þó komnir af
stað fyrr en mannabreytingar urðu
í æðstu stjórn stýrikerfisdeildar
Microsoft og í kjölfarið var ákveðið
að hætta við að hætta við að láta
kerfin tvö renna saman. Betaþróun
nýrrar gerðar Internet Explorer
var frestað og ákveðið að slaufa
Neptúnusi og Ódysseif, en leggja
hins vegar allt kapp á að smíða út-
gáfu af Windows, Whistler, byggða
á NT-kjarnanum sem leysa myndi
af hólmi Windows 98 og 2000.
Reyndar er væntanleg ný útgáfa
af Windows 98 og kallast Windows
Me, eða Windows Millennium
Edition, þúsaldarútgáfa. Það verð-
ur þó ekki nýtt stýrikerfi, heldur
svonefnd kommuútgáfa, viðhalds-
útgáfa, af Windows 98 (Windows
4.x) og kemur út síðsumars. Einnig
er væntanleg viðhaldsútgáfa af
Windows 2000, svokallaður þjón-
ustupakki, sem kemur út fljótlega.
Vinna við Whistler markast af
breyttum áherslum í þróunarferli
hugbúnaðar innan Microsoft því
auka á uppfærsluhraða og sveigj-
anleika ekki síst í ljósi þess að
TOLVUKAUPAU
FuJflSU
Nældu þér f kaupauka með 500MHz
Pentium III töh/urisafii BT.Gildirtil
SIEMENS 9. mais eða á meðan birgðir endast
• 4 bls á min I svörtu
• 2,5 bls á min I lit
• 720 pát prentun.
• 2ja hylkja prentarí
I Ijósmyndagæðum.
Pappír og skemmti-
legur hugbúnaður frá
Corel fylgir með. VCr
SideWinder 3D Pro
Precision & Fiight Sim 2000
• A-4 Myndlesarafiötur
• 600 X1200 pát upplausn
• 19200 páthugbúnaðar
upplausn
• 36 bita litadýpt
> Prentaraportstengdur
> Myndvinnslu og textainnlestursforrit fylgja
Gildir með Fujitsu
Siemens 500MHz. Gíkfir
til 9. mars eða á meðan
birgðir endast
Genius
Vivid
Pro II
15% afsláttur af fylgihlutum (dýnum, dýnuhlífum, koddum o.fl.) þegar keypt er rúm.
Stöðug afturför
Windows 2000/NT 5 var fjögur ár í
smíðum. Þannig á alfaútgáfa af
Whistler að vera tilbúin þegar í
apríl og fyrsta beta að koma út í
júlí. Þegar eru menn farnir að
prófa frumgerðir stýrikerfisins
innan Microsoft, en það á að vera
tilbúið í byrjun næsta árs.
Þegar að því kemur á sérstök
heimilisútgáfa af Whistler að leysa
Windows Me af hólmi. Einnig
verða fáanlegar Server, Advanced
Server og Datacenter útgáfur, en
stýrikerfið verður hægt að fá í 32
bita og 64 bita útgáfum. Ari síðar
kemur svo enn ný útgáfa sem kall-
ast nú Blackcomb. Lengra undan
er svo enn ein útgáfan af Windows
sem Microsoft kallar næstu kyns-
lóð stýrikerfisins, NGWS, en fátt
er um það vitað sem stendur, utan
hluti þess verður á vefnum. Að
sögn hyggst Microsoft kynna það á
sérstökum fundi í maí næstkom-
andi.
Þó fjölmörg fyrirtæki hafi ef-
laust beðið eftir nýrri útgáfu af
Windows NT telja markaðsfræð-
ingar að menn eigi eftir að fara sér
hægt við uppfærsluna. Þeir spá því
að um fjórðungur fyrirtækja eigi
eftir að Ienda í vandræðum með
þann hugbúnað sem þau nota í dag
við það að skipta yfir í Windows
2000, en einnig muni mörg fyrir-
tæki bíða eftir viðhaldsútgáfum,
ekki síst eftir að spurðist að í Win-
dows 2000 séu 63.000 böggar eða
ófrágengin atriði varðandi virkni
eða stöðugleika.
Af þessum 63.000 atriðum teljast
21.000 böggar og stór hluti þeirra
alvarlegir að mati Microsoft og um
27.000 áminningar til forritara eru
enn í frumkóðanum. Að sögn
Microsoft hefur enginn hugbúnað-
ur verið prófaður eins rækilega og
Windows 2000, enda tóku 750.000
þátt í betaprófunum
Leikjaserían Cool Boarders varð
nýlega einum leik stærri, sökudólg-
arnir eru hópur manna innan
leikjafyrirtækisins Idol Minds, er
framleiðir seríuna. Leikur fyrir
PlayStation.
COOL BOARDERS eitt vakti mikla
athygli í leikjaheiminum. Þrátt fyrir
afar fáar hreyfingar og takmörkuð
gæði grafíkur leiksins sló hann í
gegn og hóf snjóbrettaleikjaæði fyr-
ir PlayStation. Idol Minds ákvað að
fylgja vel á eftir og gaf út CB2 og
CB3, leiki sem áttu töluverðri vel-
gengni að fagna og ruddu veginn
fyrir nýjasta sköpunarverk fyrir-
tældsins: Cool Boarders 4.
í raun hefur ekki margt breyst
frá síðasta leik. Spilendur geta nú
valið um alvöru atvinnumenn á snjó-
bretti og brettin sem þeir nota í
raun og veru, einnig er hægt að búa
til sína eigin persónu og sitt eigið
bretti. Fötin hafa batnað mjög á
milli leikja og þó að þau séu enn Ijót
eru að minnsta kosti engir bleikir
þröngir stuttermabolir lengur.
Stór villa hefur orðið við að stað-
setja trén í sumum brautunum því
oft klessa spilendur aðeins á loft
þegar reynt er að komast framhjá
þeim.
Stjóm leiksins er afar slök og var
að mati greinarhöfundar betri í
fyrsta leiknum. Þetta er sérstaklega
vandamál í half-pipe-braut leiksins
þar sem varla er hægt að komast
upp veggina, hvað þá gera einhver
trikk.
Grafíkin er lítið sem ekkert
breytt frá Cool Boarders 3 og er
þess vegna enn léleg. Snjórinn er að
sögn Idol Hands ótrúlega breyttur
og vel gerður en fæstir sjá einhvem
mun í raun og vem. Allar hreyfingar
era afar illa gerðar og þá sérstak-
lega afturábak og áfram-heljar-
stökk. Einnig era öll grip illa teikn-
uð og óraunveruleg, sérstaklega þau
sem hægt er að „tvíka“ mikið.
Hljóð leiksins er fáránlegt. Grein-
arhöfúndur hefur stundað snjó-
brettarennsli undanfarin 5-6 ár og
hefúr aldrei heyrt neitt sem líkist
hljóðunum sem snjórinn gefúr frá
sér í leiknum. Eins er farið með
tónlistina; einhvers konar þýsk
teknóblanda sem vafi er á að nokkur
íslenskur „rider“ hlusti á.
Cool Boarders 4 er leikur sem
enginn ætti að gera sér ferð til að
prófa. Ef viðkomandi er einhvem tí-
mann að labba framhjá PlayStatiop-^
spilakassa sem kostar ekki neitt í er
kannski í lagi að taka einn leik ef
það er slökkt á tónlistinni. Annars
borgar sig að labba beint framhjá.
Ingvi M. Árnason
Frábær tilboð á rúmum, náttborðum, kommóðum
og klæðaskápum.
Opið: laugardag 10-17
VANTAR R\iM(M
FYR R FLE R RUM
LYSTADÚN
SNÆIAHD
Skútuvogi 11* Sími 568 5588
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - 5: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500