Morgunblaðið - 04.03.2000, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 71
BRÉF TIL BLAÐSINS
Eyðibýlastefna/
byggðastefna
Frá Guðrúnu Benediktsdóttur:
I viðtali við Ara Teitsson, stjórn-
arformann Bændasamtaka íslands, í
Degi hinn 18. febrúar sl. lýsir hann
yfir að það sé eðlilegt að þeir sem
leggi meira til að metta markaðinn
fái greitt meira úr ríkissjóði. Furðu-
leg er staðhæfing formanns bænda-
samtakanna í ljósi þess að staðreynd
er að ofmettun/offramleiðsla á
kindakjöti hefur ríkt hér á landi um
langt skeið til stórtjóns fyrir þjóðina.
Engin ástæða er til að styrkja þá
sem mestri offramleiðslu hafa valdið
umfram aðra og mál að linni. Er
stórbændum engin vorkunn að sitja
eftirleiðis við sama borð og aðrir
bændur hvað varðar styrki úr ríkis-
sjóði. Setja ætti þak á greiðslur rík-
isins til sauðfjárbænda og færi það
þak eftir því hvað ríkið ákveður á
hverjum tíma að styrkja búgreinina.
Mætti hugsa sér ákveðinn ærgilda-
fjölda. Allir sauðfjárbændur hefðu
styrk frá ríki og frelsi til að framleiða
að því marki. Framleiðslu umfram
það bæru bændur sjálfir ábyrgð á.
Þeir sem ekki fylltu að beingreiðslu-
þakinu fengju greitt í hlutfalli við
framleiðslu sína. Með nýjum búvöru-
samningi er tækifæri til lagfæringar.
Arið 1995 náðist sá mikilvægi áfangi
fyrir bændur með lítinn fullvirðisrétt
að þeir fengu sama verð og aðrir
bændur fyrir sömu vöru í afurðastöð
(sláturhúsi). Áður var rétturinn á
innanlandsmarkaði háður fullvirðis-
rétti.
Hver atlagan af annarri hefur ver-
ið gerð að bændum sem eru með lítið
greiðslumark til að ýta þeim út af
markaðnum. Var það fyrst gert 1995
þegar ákveðið var að aðeins þeim
bændum sem hefðu 180 ærgildi eða
meira skyldi úthlutað þeim fram-
leiðslurétti sem losnaði. Þeir sem
minna greiðslumark höfðu fengu
ekkert.
í skýrslu úr landbúnaðarráðu-
neytinu síðastliðinn vetur var gerð
tillaga um að fella niður allar bein-
greiðslur til bænda sem voru með
innan við 120 ærgildi. Sem betur fer
náði sú tillaga ekki fram að ganga.
Nú lýsir Ari Teitsson því yfir að
eðlilegt sé að þeir sem meira fram-
leiða - „metta markaðinn" - eigi að
fá meira í sinn hlut frá ríkinu. Of-
framleiðsla er vaxandi eða 25% mið-
að við innanlandsmarkað og þá á að
verðlauna stórbændurna, þá sem
mestri offramleiðslu valda, með
meiri ríkisstyrk.
Tvískinningurinn ríður ekki við
einteyming. Hafðar eru úti allar
klær til að losna við sauðfjárbændur
úr stéttinni og ríkisfé notað til að
kaupa af þeim greiðslumark jarða
þeiira, fækka þeim á sama tíma og
kvartað er og kveinað hástöfum yfir
byggðaflóttanum.
Fáheyrt er að stéttarfélag skuli
leynt og ljóst reyna að fækka í sinni
eigin stétt.
Huga ætti að hvernig samfélag við
viljum sjá í sveitum landsins. A að
mismuna bændum áfram með því að
styrkja þá enn meira sem hafa ár-
lega, jafnvel í áratugi, fengið stærstu
sneiðarnar af kökunni sem til skipta
hefur verið? Við þurfum ekki að
spyrja um framhaldið. Um blómleg-
ar byggðir og framfarir í sveitum
landsins verður ekki að ræða.
Byggðin gisnar æ meira, þjónusta
snarminnkar og mannlíf verður
snauðara.
Hvers vegna mega þeir bændur
sem minni bú hafa ekki fá að vera í
friði?
GUÐRÚN BENEDIKTSDÓTT-
IR, Háaleitisbraut 54, Rvk.
Verðdæmi á Queemdýnu með grind:
Verð áður kr.
Nú kr. 79.900
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Rubinstein
Áhrifarík „andlitslyfting''
án skurðaðgerðar i
UTSOLUSTADIR:
Revkjavík og nágrenni:
Andorra 1 iafnarfirði,
Bylgjan Kópavogi,
Snyrtiviiruv. C.læsibæ
Hygea l.atigavegi,
Sara Bankastr.vti,
Ársól lifstalandi,
Fína Moslellsbæ,
Hygea Kringlunni,
Libía Mjódd,
Sigurboginn I.augax egi.
Landið:
Bjarg Akranesi, Hilma Htisavik,
lljá Maríu-Amaró Akurevri
Krisma Isafirói, Miðbær Vestmeyjum.
POLAH Be VI IA
Tilboðsdagar
Vantar þig gott krem? Allar
þekkjum við þá notalegu
tilfinningu, sem fylgir notkim
góðra krema t.d. í
morgunsárið eða eftir
erilsaman dag. l-'ace Sculptor
gefur loforð um árangur:
Þéttari húð, skarpari útlínur, grynnri hrukkur og
andlitslyfting. Besta sönnun um góðan árangur eru
móttökumar sem Face Sculptor vömmar hafa fengið.
Konur eru yfir sig hrifnar. Nú er komið næturkrem í
línunni og einnig eye patch.
POLAR BEAUTY
Verðsprengja á miðjum vetri
Taska með Face Sculptor kremi 30 ml, serumi 30 ml,
augnkremi 5 ml, blýanti, augnhreinsi 50 ml,
augnháralit og serumi 5 ml.
Vara að verðmæh kr. 11.000, tilboðsverð nú kr. 6.920.
Einnig Polar Beauty tilboð: Taska, Power A 50 ml
krem, Glycolic lotion 15 ml, hreinsir 5 ml, varalitur,
Spect. farði 10 ml og húðmjólk 30 ml.
Vara að verðmæti kr. 8.400, tilboðsverð nú kr. 5.400.
Takmarkað magn.