Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 76
76 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
-X i i —
MORGUNBLAÐIÐ
FOLKIFRETTUM
Kvikmyndin „The Wonder Boys“ með Michael Douglas frumsýnd vestanhafs
Undursamlegt
hvernig lífíð og list-
. in fléttast saman
Leikarinn Michael Douglas, sonur gamla
hörkutólsins Kirk Douglas og leikkon-
unnar Diana Dill, er sannkölluð ofur-
stjarna í Hollywood. Einkalíf hans hefur
verið í sviðsljósinu að undanförnu og í
samtali við Alex Preston segir hann frá
kynnum sínum af ástinni og nýjustu mynd
sinni „The Wonder Boysu.
MICHAEL Douglas fékk
sín fyrstu Óskarsverð-
laun aðeins 30 ára að
aldri, fyrir að framleiða
Gaukshreiðrið. Meðal kvikmynda
sem hann hefur komið fram í eru
hinar eftirminnilegu „Basie Inst-
inct“, „Falling Down“ og „Wall
Street“ og myndin sem skaut honum
á stjörnuhimininn „Romaneing the
Stone“.
í sinni nýjustu mynd, sem
frpmsýnd var vestanhafs í síðustu
viku, „Wonder Boys“ leikur Douglas
formfastan og miðaldra prófessors í
ensku sem missir tökin á tilverunni
þegar eiginkonan yfírgefur hann og
ástkona hans (Frances McDormand)
tilkynnir honum að hún sé ófrísk .
Michael, sem fær allt að 1.420 mil-
ljónir króna íyrir hverja mynd, við-
urkennir sposkur á svip að þessi grá-
glettna gamanmynd eigi margt
sameiginlegt með einkalífí hans
sjálfs. En það eru einmitt þessir
þættir í lífi hins 55 ára gamla leikara
sem eru mest í sviðsljósinu þessa
dagana og jafnvel hafa varpað
skugga á leikferil hans. Douglas batt
nýverið enda á 22 ára hjónaband sitt
og Diandra Luker en stuttu síðar
iiár leikarinn upp bónorð sitt við
þrítuga kærustuna, leikkonuna
Catherine Zeta-Jones. En þau hafa
verið nánast óaðskiljanleg síðan á
kvikmyndahátíðinni í Deauville árið
1998. Skötuhjúin tilkynntu nýlega að
þau ættu von á sínu fyrsta barni í júlí
og sögusagnir herma að þau muni
ganga í það heilaga í september.
Þessar fréttir veita Douglas annað
tækifæri til að bregða sér í föður-
hlutverkið sem hann tekur fegins
hendi því hann eyddi mestum sínum
tíma á uppvaxtarárum sonar síns
Camerons, sem nú er tvítugur, fyrir
framan kvikmyndavélarnar.
Sá hana í sjónvarpi og strengdi
þess heit að hitta hana
„Já, það er dagsatt að við Cather-
ine séum að fara að gifta okkur,“
segir Michael og stoltið leynir sér
ekki. „Við erum bæði mjög ánægð. I
skýjunum!"
- Hvernig kynntist þú Cntherine?
„Ég sá kvikmyndina „Zorro“
heima hjá einhverjum og framkoma
Catherine í henni sló mig út af lag-
inu. Ég sá hana og sagði: Vá, hver er
þetta? Hún er ótrúleg! Catherine er
ein fallegasta og hæfíleikaríkasta
kona sem ég hef á ævi minni séð og
ég strengdi þess heit að hitta hana.“
Skömmu síðar var Douglas staddur í
Evrópu að leggja lokahönd á kynn-
ingu myndarinnar „A Perfect Murd-
er“ og þar kom tækifærið. „Ég fór á
kvikmyndahátíðina í Deauville og sá
á dagskránni að „Zorro“ yrði sýnd.
Ég bað kynningarfulltúann minn um
að athuga hvort Catherine væri við-
stödd hátíðina. Ég bað hann um að
komast að því hvort hún væri ein-
sömul og hvort hún gæti snætt með
mér kvöldverð. Heppnin var mér
hliðholl og hann komst að því að hún
væri á leið til hátíðarinnar og hún
væri einsömul. Það var kokkteilboð
fyrir matinn og þar spurði ég Cath-
erine hvort ég gæti setið hjá henni
við kvöldverðarborðið og hún jánk-
aði því mjög kurteislega og þannig
hófst þetta.“
Douglas segir að eftir það hafi
hlutirnir gerst hratt. „Mér fannst
hún yndisleg. Þetta gerðist í septem-
ber fyrir ári. Eitt af því sem ég tók
strax eftir í sambandi við Catherine,
að fegurð hennar undanskilinni, var
hversu vingjamleg og látlaus hún
var.“
- Hvernig baðstu hennar?
„Ég bað hennar um árþúsunda-
mótin. Ég veit að það er kvöld sem
ég mun aldrei gleyma. Og já, þegar
ég ætlaði að fara biðja hennar fann
ég ekki hringinn,“ bætir hann við
hlæjandi.
- Hvernig fórstu að týna hringn-
um?
„Ég veit það ekki (hlær). Ég var á
leið til Swansea um jólaleytið, sem er
heimabær Catherine í Wales, og við
ætluðum þaðan til Colorado.
Ég tók þess vegna hringinn með
mér frá New York. Ég var á hótel-
herberginu mínu að taka til nokkra
hluti til ferðarinnar og var hringur-
inn þar á meðal þegar Catherine
gekk inn í herbergið með foreldrum
sínum. Ég flýtti mér að breiða yfir
hringinn svo þau sæju hann ekki.
Stuttu síðar lögðum við af stað til
Colorado og þá byrjaði martröðin.
Þegar við komum þangað leitaði ég í
farangrinum, en fann ekki hringinn.
Ég var viss um að einhver hefði stol-
ið honum úr farangursgeymslunni á
leiðinni og var ég kominn í mjög mik-
ið uppnám, þá hringdi ég á hótelið
þar sem við höfðum dvalið og spurði
Leikfélag ML
sýnir Þrek og tár
Leikferð
um Suð-
urland
LEIKFÉLAG Menntaskólans að
Laugarvatni frumsýnir í dag Þrek
og Tár eftir Ólaf Hauk Símonar-
sson í leikstjórn Ingunnar Jens-
dóttur. Ingunn hefur þrisvar áður
sett upp leikrit með nemendum
ML, ávallt við góðan orðstír. Þetta
leikrit Ólafs Hauks er eflaust
mörgum kunnugt eftir sýningar í
Þjóðleikhúsinu 1995 við miklar
í leikritinu á stóran
þátt í uppfærsiunni og sér Malcom
Holloway um hljómsveitarstjórn
og útsetningu hennar.
Æfingar leikhópsins byrjuðu í
janúar og er fyrsta sýningin í
tengslum við árshátíð skólans í
dag. Að sögn Hafdísar Ásgeirs-
-tíl^ttur, formælanda leikhópsins,
er um viðamikla sýningu að ræða
-fýnsældir.
^Tónlistin
þar sem 50 manns koma að sýn-
ingunni á einn eða annan hátt.
Sögusvið leikritsins er vestur-
bær Reykjavíkur í kringum 1960
og fjallar um upprifjun ungs
manns á þeim árum er hann ólst
þar upp. Fylgst er með ferðalagi
um land minninganna þar sem allt
getur gerst. Fjölskylda mannsins
er ákaflega söngelsk og hrærist í
tónlist þessara tíma sem ómar í
margvíslegum myndum í gegnum
verkið.
Leikfélag ML mun ferðast um
Suðurland og sýna á eftirtöldum
stöðum; mánudaginn 6. mars kl.
21 á Laugarvatni, 8. mars kl. 21 í
Þingborg, 10. mars kl. 21 á Kirkju-
bæjarklaustri, 11. mars kl. 21 í Vík
í Mýrdal, 12. mars kl. 17 og 21 í
Gunnarshólma. Síðasta sýning
verður á Flúðum 13. mars kl. 21.
Reuters
„Það er nokkuð skondið að ég hafði strengt þess heit að lenda aldrei í
sambandi við leikkonu en það gleymdist allt um leið og ég hitti Cather-
ine,“ segir Douglas sem hér er ásamt unnustunni.
hvort þau höfðu fundið lítð box. Það
höfðu þau og ég andaði léttar.“
Aldurinn er afstæður
- Hvernig líst þér á það að verða
aftur pabbi?
„Það er frábært, eins og annað
tækifæri. Það er alveg yndislegt
vegna þess að nú þarf ég ekki að
hugsa um tvennt í
einu, starfsferilinn
og fjölskylduna. Nú
gengur fjölskyldan
fyrir.“ Douglas á
soninn Cameron frá
fyrra hjónabandi.
„Ég held að ég verði
góður pabbi. Ég var
ekki til staðar fyrir
son minn Cameron.
Ég var að reyna að
leggja grunninn að
starfsferlinum þá og varð lítið úr for-
eldrastai'fmu."
- í nýjustu mynd þinni, „Wonder
Boys“ virðist listin herma eftir raun-
veruleikanum.
„Að því leyti að undir lok myndar-
innar kemur barn inn í líf persónu
minnar? Ég hafði ekki ráðgert að
vera með neinar opinberar tilkynn-
ingar í sambandi við barnið þar til
fjölmiðlarnir blönduðu sér í málið.
Það var aldrei mín ætlun. Ég hafði
gert samning um að leika í „Wonder
Boys“ áður en ég hitti Catherine en
það er undarlegt hversu listin og lífið
geta blandast saman.“
- Hvað um hinn 30 ára aldurs-
mun?
„Heyrðu! Þetta eru nú ekki nema
25 ár (hlær). Svona aldursmunur
hverfur nokkuð hratt í tilhugalífinu.
Það er bara hlutur sem maður hugs-
ar ekki um lengur. Ég held að aldur
frægra manna sé alltaf undir smá-
sjánni. En aldursmunurinn er ekk-
ert að angra mig, hann er afstæður.
Við höfum áhuga á sömu hlutunum
og við elskum hvort annað og það er
það sem skiptir máli. Ég held að það
hafi komið mér skemmtilega á óvart
að verða ástfanginn. Ég bjóst ekki
við því að það gerðist. Það er nokkuð
skondið að ég hafði strengt þess heit
að lenda aidrei í sambandi með leik-
konu en það gleymdist allt um leið og
ég hitti Catherine."
- Er ásókn fjölmiðlanna ykkur til
ama?
„Það er hreint óskiljanlegur hlut-
ur sem gerist þegar tveir leikarar
byrja að slá sér upp. Þeir verða allt í
einu að þessu risastóra fyrirbrigði
sem er miklu umfangsmeira en þess-
ar tvær manneskjur. Allir missa
stjórn á sér í sambandi við þetta.“
Vill fjölbreytt hlutverk
-„Wonder Boys“ er ólíkt þínum
fyrri hlutverkum. Hvað fékk þig til
þess að taka það hlutverk að þér?
„Ég hef ávallt reynt að kanna ný
svæði sem leikari og reynt fynr mér
í fjölbreyttari hlutverkum. Ég hef
nýlokið við að leika tvö hlutverk í
dekkri kanntinum. Persónur mínar í
„A Perfect Murder" og „The Game“
voru fágaðir, vel klæddir, ríkisbubb-
ar. Ég hef verið svo lánsamur að
áhorfendur hafa veitt mér það svigr-
úm að leika mismunandi hlutverk.
Það eina sem ég vil er að taka þátt í
góðri kvikmynd. Margir leikarar
vilja halda í ímyndina og láta endur-
skrifa myndina til þess að þjóna
henni. Ég veit að ef myndin er góð þá
hagnast allir á því.“
- Ég hef frétt að þú hafir bætt á
þigmörgum kílóum fyrir hlutverkið.
„Já, ég varð að
bæta á mig 12 kíló-
um, svq ég át eins og
svín. Ég át mexík-
anskan mat og pits-
ur í öll mál.
Það hefur verið
erfitt að ná þyngd-
inni aftur niður. Það
er liðið ár og ég er
enn fjórum kflóum
frá takmarkinu.“
- Pú ert búinn
búinn að setja upp nýja vefsíðu.
Finnst þér að vefsiðurnar þínar
hjálpi þér að halda utan um þær sög-
ur sem sagðar eru um þig?
„Já. Vefsíðan mín, sem er ekki sett
upp í gróðaskyni, gerir mér kleift að
tala um mörg af þeim málefnum sem
mér finnst vera mikilvæg eins og af-
vopnun, og útbreiðslu kjarnorku-
vopna. Þetta hefur einnig gert mér
kleift að stofna aðdáendaklúbb þar
sem fólk borgar ákveðið ársgjald.
Klúbburinn hefur allar upplýsingar
um mig og myndirnar af afmælis-
veislunni okkar... minnar og Cather-
ine... allar þær myndir sem gula
pressan vildi en fékk ekki.
Ég er að nota þetta sem tækifæri
því pressan vill aldrei deila neinu
með nokkrum. Hún vill stela hluta af
lífi þínu, elta þig um allt, taka myndir
af þér, og selja þær til allra og aldrei
láta þig fá neitt til baka. Þarna get ég
einnig talað um málefni sem eru mér
og Catherine kær og aflað peninga
til góðgerðarmála."
- Er Basic Instinct II í bígerff!
„Nei. Ég veit ekki hvar þær sögu-
sagnh' spruttu upp. Ég verð alla
vega ekki viðriðinn hana. Það eru
nokkrar aðrar myndir sem ég á að
vera með í pokahorninu en það er
líka uppspuni. Ég veit ekki hvert
mitt næsta verkefni verður.“
- Faðir þinn sagði, þegar hann sá
þigí fyrsta skipti íleikriti, aðþú haf-
ir staðið þig hræðilega. Hvernig
jafnar fólk sig á svona umsögn ?
„Hann sagði mér það reyndar
ekki“ segir Douglas og hikar bros-
andi áður en hann heldur áfram.
„Hann sagði það við vin sinn. En ég
var hræðilegur. Ég fór með ræðu
sendiboða í Ys og Þys út af engu og
því miður þurfti ég að koma inn á
sviðið frá sætaröðunum, ekki langt
frá þeim stað sem faðir minn sat. Eg
var svo taugaóstyrkur og talaði svo
hratt að enginn skildi hvað ég var að
segja. Að sýningunni lokinni kom
faðir minn að hitta mig og sagði hann
við vin sinn sem komið hafði með
honum: „Hann var hræðilegur. Ég
þakka Guði að ég þurfi ekki að óttast
að hann verði leikari.““
Höfundur er blaðamaður
hjá umboðsskrifstofunni
Bang í Bretlandi.
Pressan vill aldrei
deila neinu með
nokkrum. Hún vill
stela hluta af lifi
þínu, elta þig um allt,
taka myndir af þér,
og selja þær til allra
og aldrei láta þig
fá neitt til baka