Morgunblaðið - 22.03.2000, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
U ndirbúning’ur hafínn
að sölu Landssímans
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra hefur
falið framkvæmdanefnd um einkavæðingu að
hefja undirbúning að sölu Landssíma íslands hf.
Hreinn Loftsson, formaður framkvæmdanefndar
um einkavæðingu, segir að vart hafi orðið við mik-
inn áhuga á þessu máli að undanförnu.
Einkavæðingarnefnd
ekki sett tímamörk
í bréfi samgönguráðherra til nefndarinnar er
henni falið að gera tillögu um hvemig standa skuli
að sölu hlutafjár í Landssímanum. Sturla Böðvars-
son sagði í samtali við blaðið í gær að nefndinni
væru ekki sett sérstök tímamörk. „Eg geri ekki
ráð fyrir því að þetta klárist þannig að það sé hægt
að taka þetta mál fyrir fyrir þinglok,“ sagði hann.
Hreinn sagði að þetta mál yrði eitt af stóm mál-
unum sem nefndin fengist við á næstu vikum og
mánuðum.
Samgönguráðherra kveðst hafa kynnt fyrir rík-
isstjóm minnisblað um undirbúning að sölu hluta-
fjár í fyrirtækinu 22. febrúar sl. og hinn 23. febrúar
hafi hann sent einkavæðingamefnd bréf þar sem
henni var falið þetta verkefni. í bréfinu segir að í
samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
um að hafinn verði undirbúningur að sölu Lands-
símans á kjörtímabilinu sé framkvæmdanefnd um
einkavæðingu falið að gera tillögu um hvemig
standa skuli að sölu hlutafjár í Landssímanum.
Ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins, að-
stoðarmaður samgönguráðherra og stjórnarfor-
maður Landssíma Islands hf. verða tengiliðir sam-
gönguráðherra við nefndina og munu taka sæti í
henni ásamt föstum nefndarmönnum á meðan
þetta mál er til meðferðar, að sögn Hreins Lofts-
sonar.
Nefndin skoði nokkra kosti
við sölu hlutafjárins
í bréfi samgönguráðherra er lögð áhersla á að
nefndin skoði eftirfarandi:
„1. Að tryggja starfsfólki kauprétt á hlutafé í
fyrirtækinu með hliðsjón af sambærilegum tilvik-
um við sölu annarra ríkisfyrirtækja.
2. Að ákveðinn hluti verði seldur í almennri
dreifðri sölu og þá sérstaklega símnotendum.
3. Að kanna kosti og galla þess að selja umtals-
verðan hlut í fyrirtækinu til eins aðila.
4. Að meta hagkvæmni þeirra hugmynda sem
fram hafa komið um að skilja að einstaka þætti í
starfsemi fyrirtækisins, svo sem hið almenna
íjarskiptanet.
Þegar tillögur nefndarinnar liggja fyrir verður
málið lagt fyrir ráðherranefnd um einkavæðingu,"
segir í bréfi samgönguráðherra.
„Ég taldi alveg nauðsynlegt að láta einkavæð-
ingarnefnd og þá sérfræðinga sem hún kallar til
skoða alla þessa kosti, þannig að hægt sé að taka
afstöðu til þeirra þegar leiðin er valin,“ sagði
Sturla.
Aðspurður sagðist samgönguráðherra ekki vera
áhugasamur um þann kost að aðskilja einstaka
þætti í starfsemi Landssímans, s.s. fjarskiptanet-
ið, enda hefði slíkt hvergi verið gert við sölu síma-
fyrirtækja. Sturla sagðist hins vegar hafa talið
eðlilegt að nefndin skoðaði kosti og galla þessa.
Hafa kynnt sér einkavæðingu
í öðrum löndum og aflað gagna
Að sögn Hreins hefur einkavæðingamefndin
viðað að sér gögnum og kynnt sér þessi mál í ýms-
um löndum að undanförnu. „Ég hef þegar farið og
kynnt mér mál í Danmörku og það hafa komið
hingað aðilar frá danska símanum.Við höfum farið
til Belgíu og Hollands og kynnt okkur einkavæð-
ingu þar, og til írlands og fleiri landa og viðað að
okkur gögnum.
Núna um helgina munum við kalla til okkar aðila
frá Landssímanum, Póst- og fjarskiptastofnun,
Samkeppnisstofnun og frá samkeppnisaðilunum,
Tali, Línu-Neti, Íslandssíma og fleiri, til þess að
átta okkur á samkeppnisstöðu fyrirtækisins,“
sagði hann.
Hreinn kvaðst ekki geta sagt um hvenær tillög-
ur nefndarinnar lægju fyrir. „Þetta verður eitt af
stóru málunum hjá okkur. Við höfum verið með
önnur mál í gangi en þetta er mjög stórt og viða-
mikið verkefni, sem kemur til með að taka mikinn
tíma hjá okkur á næstu vikum og mánuðum," sagði
Hreinn.
Eftirlit með innherja-
viðskiptum
19 mál til
skoðunar
frá 1996
BANKAEFTIRLIT Seðlabankans
og síðai- Fjármálaeftirlitið hefur
skoðað alls 19 mál vegna meintra inn-
herjaviðskipta frá gildistöku laga um
verðbréfaviðskipti árið 1996. Þetta
kemur fram í svari viðskiptaráðheira
við fyrirspurn Einars K. Guðfinsson-
ar alþingismanns á Alþingi.
Enginn grundvöllur til
aðgerða í 16 tilvikum
Einnig kemur fram í svarinu að af
þeim meintu innherjaviðskiptum
sem athuguð hafa verið og er lokið
hefur niðurstaðan orðið sú að í 16 til-
vikum var ekki talinn grundvöllui- til
aðgerða af hálfu bankaeftirlits Seðla-
bankans eða Fjármálaeftirlitsins.
í einu tilviki var ákveðið að vísa
máli til embættis ríkissaksóknara til
opinberrar rannsóknar, að lokinni at-
hugun bankaeftirlits. Athugun ríkis-
saksóknara leiddi ekki til opinberrar
ákæru vegna umræddra viðskipta.
A umræddu tímabili voru 4 mál
tekin til athugunar árið 1996, 3 mál
árið 1997,8 mál 1998 og 4 mál á sein-
asta ári en þar af er tveimur málum
ólokið.
s
Afsökunar-
beiðni
séra Gunnars
BISKUPI íslands hefur borist af-
sökunarbeiðni frá séra Gunnari
Bjömssyni, fyrrverandi sóknar-
presti í Holtsprestakalli. Afsökunar-
beiðnin, sem Biskupsstofa sendi
fjölmiðlum í gær, fer hér á eftir:
„Ég undirritaður, Gunnar Björns-
son, sérþjónustuprestur, bið fyrrver-
andi sóknarböm mín í Holtspresta-
kalli, sem og aðra þá sem ég kann að
hafa brotið gegn, afsökunar.
Sóknarbömum í Holtsprestakalli
bið ég blessunar Guðs.“
---------------
Sala hefst á
Windows 98 á
íslensku í dag
SMÁSAL A íslenskrar útgáfu af ann-
arri útgáfu Windows 98-stýrikerfis-
ins hefst í dag, miðvikudag, en það er
í fyrsta skipti sem Windows er boðið
á íslensku. Tölvudreifing og Micro-
soft-fyrirtækið hafa náð samkomu-
lagi um að bjóða íslensku útgáfuna á
sérstökum kjömm fram til 15. maí.
Áætlað smásöluverð er 3.490 fyrir
uppfærslupakka sem er þriðjungur
af venjulegu verði.
Síðasti vinnudagur Þórólfs Magnússonar á morgun eftir 35 ára innanlandsflug
Snýst um að
meta aðstæður
rétt hverju sinni
„ÉG FER fyrst í vetrarfrí, síðan tek-
ur við sumarfrí og eftir það fram-
lengi ég líklega fríin eitthvað," segir
Þórólfur Magnússon, flugsljóri hjá
íslandsfiugi, sem nú er að hætta 65
ára að aldri en lengur mega menn
ekki starfa við atvinnuflug á Islandi.
Þórólfur lauk flugnámi árið 1963
og hefur frá árinu 1965 starfað við
atvinnuflug, svo til eingöngu innan-
lands en nokkuð í Grænlandi og víð-
ar.
Hann á að baki rétt. tæplega 25
þúsund flugstundir og hefúr trúlega
langflest flugtök og lendingar fs-
lenskra flugmanna þar sem leggir
eru stuttir í innanlandsfluginu og oft-
ast famar nokkrar ferðir hvem
vinnudag. Þórólfur vcrður 65 ára á
föstudag en reglugerð segir að menn
megi ekki fljúga lengur en fram að
þeim degi.
„Annars er ég fæddur um hádegi
Fersk alþj óðleg
matargerð...
...og það sem við á
Vínhjartað á Hverfisgötunni
sommelier
B r a s s e r í e
Veitingastaðurinn Sommelier • Hverfisgata 46 • Sími: 511-4455 • Veffang: www.sommelier.is
svo ég ætti að geta flogið til hádegis á
föstudag en við ætlum ekkert að
storka yfirvöldum," segir Þórólfur en
kveðst aðspurður vel geta hugsað sér
að starfa lengur. Flugmenn máttu áð-
ur fljúga til 63 ára aldurs ef heifsa
þeirra leyfði en fyrir tveimur ámm
vom aldursmörkin hækkuð f 65 ár.
„Ég átti eftir þijá mánuði í sextíu og
þijú árin þegar reglunum var breytt
og því fannst mér eðlilegt að halda
áfram og gott að geta flogið út öld-
ina.“
Vantar alltaf kennara
og prófdómara
Þórólfur segir að þar sem hann
hafi átt allan feril sinn í innanlands-
flugi hafi lífeyrisgreiðslur hans ver-
ið lægri en hjá mörgum öðrum flug-
mönnum og þær reyndar byijað
seint og því hafi hann hug áað starfa
eitthvað við flugið áfram. „Ég gæti
til dæmis stundað flugkennslu en
veit hreinlega ekki hvort það er
leyfilegt en það vantar alltaf kenn-
ara og prófdóniara."
Ferill Þórólfs hófst á leiguflugi en
hann og Helgi Jónsson ráku þá sam-
an leiguflug og flugkennslu, síðar
annaðist hann flug á vélum sem
hann og fleiri áttu saman og síðan
flaug hann hjá Vængjum, Arnarflugi
og íslandsflugi.
Á þessum árum hefur hann flogið
margs konar flugvélategundum,
Super Cub, Cessna 170, Mooney
M20E, Piper Apache, British Nor-
man Islander, Twin Otter og Dorn-
ier, sem hann hefur einna mest flog-
ið siðustu árin. Og það fer ekki hjá
því að á þessum árum hafi Þórólfur
öðlast mikla reynslu.
„Já, það fer ekki hjá því að maður
hafi lært eitthvað og það snýst
kannski að miklu leyti um það meta
aðstæður rétt hverju sinni. Við höf-
um ákveðin lágmörk og reglur til að
fara eftir á hveijum stað en reynslan
kennir manni líka hvemig veðrið
hagar sér á hinum ýmsu stöðum,
hvað verður úr veðurspánum og þar
fram eftir götunum. Þannig er
stundum hægt að leggja af stað frá
Morgunblaðið/RAX
Þórólfur Magnússon, flugstjóri hjá íslandsflugi, lætur af störfum á
morgun vegna aldurs en atvinnuflugmenn verða að hætta 65 ára.
Þau hafa öll komið nálægt fluginu. Þórólfur ásamt börnum sínum,
þeim Júlíusi, Jónínu og Aðalheiði.
Reykjavik þótt ófært sé þá stundina
á Siglufirði þar sem reynslan hefur
kennt manni að við ákveðnar aðstæð-
ur muni það lagast. En stundum þarf
líka að snúa frá og það þarf ekki síð-
ur að kunna að lesa úr slíkum að-
stæðum."
Þórólfur er á því að innanlandsflug
eigi áfram framtíð fyrir sér þrátt fyr-
ir ýmsar sviptingar á því sviði um
þessar mundir. Hann bendir til dæmis
á varðandi Gjögur að yfir veturinn er
flugið þjóðvegur nr. eitt fyrir byggð-
arlagið og því nauðsynlegt og hann
segir eðlilegt að menn geri kröfúr um
góðar vélar og aðbúnað í fluginu rétt
eins og sífellt sé verið að bæta vega-
kerfið.
„í þessu sambandi má líka benda á
að Domier er sérstaklega hagstæð
vél. Hún flýgur hægt og þannig er
hægt að meta í rólegheitum við flug-
velli hvort unnt er að fara fyrir él og
doka við en spekúlera í aðstæðum sem
ekki er unnt á hraðfleygari vélum.“
Börn Þórólfs hafa líka tengst flug-
inu og þannig starfar Júlíus sem
þotuflugmaður hjá fslandsflugi, Jón-
ína hefur starfað sem flugfreyja þar
og Aðalheiður við afgreiðslu. „Ég
mun því fylgjast áfram með í flug-
inu.“