Morgunblaðið - 22.03.2000, Blaðsíða 33
32 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 33
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VATN OG
LÍFSGÆÐI
ÍSLENDINGAR búa við þær fágætu aðstæður að hafa að-
gang að nægu hreinu og tæru vatni og má fullyrða, að vatn-
ið er mikilvægasta auðlind þjóðarinnar. En vatnið er ekki
aðeins lífgjafi heldur einnig sú auðlind, sem veitir lands-
mönnum ljós og yl og aðgang að nær óþrjótandi orku í
vatnsföllum og jarðvarma. Allt eru þetta gæði, sem víða er
mikill skortur á í heiminum. Þetta eru staðreyndir, sem Is-
lendingar hafa gott af að hafa í huga nú á alþjóðadegi
vatnsins.
í Hollandi er um þessar mundir haldin alþjóðleg vatns-
ráðstefna. Þaðan berast ógnvekjandi tíðindi um hörmulegt
ástand í vatnsbúskap heimsins og framtíðarhorfur eru
ískyggilegar ráði mannkynið ekki við að gera úrbætur í
umgengni við þennan lífgjafa.
Nú þegar hefur um einn milljarður manna ekki aðgang
að hreinu vatni og nær þrír milljarðar til viðbótar búa við
vatnsmengun og ófullnægjandi hreinlæti. Um sjö milljónir
manna deyja á ári hverju af völdum sjúkdóma, sem rekja
má til þessa.
Vatnskreppa er yfirvofandi í heiminum og mun ástandið
fara ört versnandi næstu áratugina. Skortur er þegar á
vatni í 29 löndum. Mannfjölgun er mikil og landbúnaður
þarfnast sífellt meira vatns. Víða um heim er gengið á
grunnvatnsbirgðir, vatnsból eru menguð. Um helmingur
stórfljóta og stöðuvatna í heiminum er mengaður, upp-
þornaður eða ofnýttur. Samkeppni er þegar hafin um vatn
og sums staðar, eins og t.d. í Miðausturlöndum, eru styrj-
aldarátök yfirvofandi út af vatni.
Alþjóða vatnsráðið reynir einmitt á fundinum í Hollandi
að vekja fólk til umhugsunar um þetta risavaxna vandamál,
sem blasir við mannkyni, og hvetja ráðamenn til tafar-
lausra aðgerða til úrbóta. Formaður Alþjóða vatnsnefndar
21. aldar, Ismail Serageldin, segir m.a.: „Vatn er dýrmæt
auðlind, því án þess er ekkert líf. Allir eiga rétt á aðgangi
að hreinu vatni, en óstjórn hefur leitt til yfirvofandi
kreppu. Viðhorfsbreyting þarf að eiga sér stað.“ Nefndin
leggur til, að vatn verði selt á kostnaðarverði og að vatns-
þjónusta verði einkavædd. Með sölu á vatni er vonast til
bættrar umgengni og að fjármagn fáist til vatnsfram-
kvæmda. Serageldin bendir á, að aðeins 2,5% af öllu vatni í
heiminum eru ósölt, þar af eru tveir þriðju hlutar bundnir í
jöklum. Islendingum er tamt að líta á vatn sem óþrjótandi
lífsgæði, sem aldrei þverra. íslendingar eiga frekar að líta
á það sem lífgjafa og sjálfa sig sem forðagæzlumenn fyrir
mannkyn allt.
LÖGGJÖF ÁN FRAM-
KVÆMDAR
ÁKVÆÐI um heilsuvernd starfsmanna, sem kveðið er á um í
lögum frá 1980, eru enn ekki orðin virk. Hvernig má það vera,
að lög um heilbrigðismál fólks á vinnustöðum hafa ekki komið
til framkvæmda 20 árum eftir setningu þeirra? Frá þessu
ófremdarástandi er skýrt í síðasta sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins, þar sem m.a. er rætt við fyrrverandi lögmann Vinnu-
eftirlitsins. Lýsing hans á ástandinu er með ólíkindum. Hann
segir t.d. að það hafi verið betra árið 1939 en það er í dag. I
danskri reglugerð um þessi mál sé minnst á tugi sjúkdóma,
sem skilgreindir séu sem atvinnusjúkdómar, en hið eina sem
fyrirfinnst hérlendis sé reglugerð númer 221 frá árinu 1939,
þar sem þrír kvillar séu skilgreindir: blýeitrun, lungnasjúk-
dómar vegna innöndunar á steinryki og miltisbrandssýking,
sem skoðast sem atvinnusjúkdómur við skepnuhirðingu og
vinpu í sláturhúsum.
Astæður þess að svo er komið í þessum málum eru að mati
Kristins Tómassonar, yfirlæknis atvinnusjúkdómadeildar
Vinnueftirlits ríkisins, tvíþættar. I fyrsta lagi hefur ekki skap-
azt sú venja, né verið lögleidd, að atvinnusjúkdómar séu bóta-
skyldir sjúkdómar, en þeir eru það í flestum nágrannalöndum
okkar. í öðru lagi eru atvinnusjúkdómar ekki bótaskyldir með
tryggingabótum. Þá hefur ekki myndast neinn þrýstingur frá
sjúklingum sem haldnir eru atvinnusjúkdómum.
Nú er unnið að'því að leggja grunn að atvinnusjúkdóma-
vörnum og ennfremur hefur verið ákveðið að gera átak til að
bæta lögboðna skráningu atvinnusjúkdóma. Landlæknir hefur
og stofnað fagráð um atvinnusjúkdómavarnir.
Augljóslega er hér pottur brotinn og full ástæða til að ráða
bót á hið snarasta. Fella nýja löggjöf að nútímaþörfum starfs-
fólks á vinnustöðum og afnema úrelt lagaákvæði, þótt þau hafi
aldrei komið til framkvæmda.
Finnland fyrst N orðurlandanna til að taka upp evruna
N or ður-
landaþjóðir
láti meira
að sér kveða
Finnsku sendiherrahjónin eru á förum frá
Islandi eftir að hafa dvalið hér í næstum sjö
ár. Hildur Einarsdóttir heimsótti þau í bú-
stað þeirra á Hagamelnum en þau segjast
kveðja Island með söknuði.
Sendiherrahjónin Kaija og Tom Södermann.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ferðaskrifstofur blása til sóknar á Netinu
Sameiginlegar vefsíð-
ur og aukin samvinna
Morgunblaðið/Golli
Aætlað er að um 70% sólarlandaferða hjá Úrvali-títsýn verði bókaöar á
Netinu innan nokkurra ára en sú tala er 5% það seni af er þessu ári.
TOM Södermann, sendiherra
Finna, og eiginkona hans,
Kaija Södermann, eru á för-
um eftir að hafa starfað hér
í næstum sjö ár. „Þetta er langur tími í
utanríkisþjónustunni," segir Söder-
mann, „en í Finnlandi eru ekki neinar
ákveðnar reglur um það hve lengi
sendiherrar starfa á hverjum stað.
Þegar ég vann sem yfirmaður upplýs-
ingadeildar finnska sendiráðsins í
London dvaldi ég þar í sjö ár. Eg hef
ekki haft áhuga á að vera stöðugt að
flytjp mig um set.“
„Eg er á förum úr utanríkisþjónust-
unni og verð bráðlega það sem ég kalla
„frjáls maður“. Eg hef stai-fað í
finnsku utanríkisþjónustunni síðan
1963. Fram að þeim tíma vann ég sem
blaðamaður við finnsku fréttastofuna í
fimm ár og við ríkisútvarpið í þrjú ár.
Þá fékk ég óvænt hringingu frá sendi-
herra Finna í Svíþjóð sem spurði
hvort ég hefði áhuga á að starfa sem
upplýsingafulltrúi við finnska sendi-
ráðið í Stokkhólmi.
I starfi mínu sem blaðamaður lærði
ég hvað það er mikilvægt að hyggja
vel að samfélagsmálum og hef ég hald-
ið því áfram i núverandi starfi."
Menningin
aðaláhugamálið
Södennann segir að það hafi verið
ánægjulegt að fylgjast með þeim
miklu framförum sem hafa orðið hér á
landi. „Þegar ég kom til Islands voruð
þið að koma upp úr efnahagslægð sem
hafði staðið yfir um nokkurt skeið en
síðan hafa orðið hraðar framfarir á
flestum sviðum. Það hefur verið gott
að búa í Reykjavík og fylgjast héðan
með gangi mála í heiminum," segir
hann. „Ég hef getað fylgst vel með
samskiptum austurs og vesturs sem
eru mikilvæg fyrir finnsk stjórnmál. í
Reykjavík er einnig fjölbreytt menn-
ingarlíf sem ég hef haft yndi af, en
menningin er mitt aðaláhugamál.
Södermann er spurður að því
hvernig menningarlegu samstarfi
Finna og íslendinga sé háttað:
„Kjarnann í samvinnunni er að
finna í Norræna húsinu en þar fer
fram heilmikið starf allra Noi’ður-
landaþjóðanna. Hingað hafa komið
finnskir listamenn á ýmsum sviðum og
unnið hér um skeið. I rúmlega tíu ár
hefur Sinfóníuhljómsveit Islands haft
finnska hljómsveitarstjóra, þá Osmo
Vánská og Petri Sakari. Þeir hafa báð-
ir kynnt finnska tónlist hér.
I fyi-ra setti finnski leikstjórinn
Kaisa Horhonen upp leikritið „Fávit-
ann“ eftir Dostojevskíj í Borgarleik-
húsinu. I vor kemur einn okkar
fremsti píanóleikari, Olli Mustonen, til
íslands og leikur á Listahátíð."
Mikill áhugi á íslenskum
nútímabókmenntum
Södermann segir að áhugi hans hafi
beinst að því að skapa íslenskum lista-
mönnum tækifæri í Finnlandi. „I
mörg ár hafa íslenskir listamenn
dvalið um þriggja mánaða skeið í
vinnustofu listamanna í Suomenlinna-
virkinu.
í Finnlandi er mikill áhugi á íslensk-
um nútímabókmenntum og hefur verið
um langt skeið.
Stjórnmálalegt samstarf þjóðanna
hefur líka alltaf verið mjög gott,“ segir
Södermann. „Sveinn Björnsson forseti
kom fyrst á formlegu stjórnmálasam-
bandi milli þjóðanna árið 1947. Þjóð-
irnar höfðu gert með sér samkomulag
um skipasiglingar árið 1923 sem var
undirritað af dönskum embættis-
mönnum.
Forsetar ykkar hafa komið reglu-
lega í opinberar heimsóknir. Fyrstur
til þess var Ásgeir Ásgeirsson. Vigdís
Finnbogadóttir naut mikilla vinsælda í
Finnlandi meðan hún var forseti og
kynnti vel íslenska menningu.
í heimsókn sinni í háskóla Lapp-
lands í Rovaniemi fyrir tveim árum
gerði núverandi forseti, Olafur Ragnar
Grímsson, tillögu um vísindaráð norð-
urslóða sem nú er orðið að samstarfs-
verkefni nokkun-a háskóla, þar á með-
al háskólans í Lapplandi og háskólans
á Akureyri."
Þjóðirnar ósammála
í hvalveiðimálinu
„Það eru ekki aðeins embættis-
mennirnir sem hafa unnið að góðum
samskiptum þjóðanna. Ég minnist
þess til dæmis að hafa lesið um ís-
lenska konu sem skömmu eftir seinni
heimstyijöldina bjó til fjöldann allan af
ullarteppum og afhenti barnaspítala
sem verið var að byggja í Finnlandi.
Þjóðirnar hafa verið ósammála í
einu máli og það er í hvalveiðimálinu.
Finnar hafa aldrei haft áhuga á að
stunda hvalveiðar og hafa fremur átt
samleið með þeim þjóðum sem eru á
sömu skoðun í Alþjóða hvalveiðiráðinu.
Islensk stjórnvöld hafa gagm-ýnt
Finna fyrir þessa afstöðu. Sjálfur er ég
þeirrar skoðunar að skynsamleg nýt-
ing hvalastofnanna sé í lagi og ég hef
ekki farið í launkofa með þá skoðun
mína í Finnlandi."
Stærstu kaupendur
íslenskrar sfldar
Talið berst að viðskiptatengslum
þjóðanna. Södermann segir að útflutn-
ingur Finna endurspegli það sem
Finnar flytja út til annarra landa.
Helmingurinn af útflutningi Finna sé
pappír og hinn helmingurinn iðnaðar-
varningur eins og fjarskiptabúnaður
frá finnska fyrirtækinu Nokia sem er í
hópi þrjúhundruð stærstu fyrirtækja í
heiminum. Finnar selja Islendingum
einnig heitavatnsrör í hæsta gæða-
flokki sem búa yfir þeim eiginleika að
hitastigið í vatninu lækkar aðeins um
1-2 gráður þótt það fari um langan
veg.
Um 70% af því sem Finnar kaupa af
Islendingum er fiskur og fiskifóður
sem notað er til fiskeldis.
„Finnar voru með lítinn fiskiskipa-
flota við strendur Islands á fimmta og
sjötta áratugnum. Þegar þið stækkuð-
uð fiskveiðilögsöguna hættu finnskir
sjómenn að veiða síld við strendur Is-
lands. I staðinn fói’um við að kaupa af
ykkur síldina," segir Södermann. „ís-
lenska síldin er talin sú besta í Finn-
landi en Finnar kaupa hlutfallslega
mest af Islendingum af saltaðri síld.
Ástæðuna fyrii*. vinsældum íslensku
síldarinnar má rekja til þess að gæði
hennar hafa geymst í minnum manna
frá þeim tíma þegai’ Finnar veiddu
hana hér við Iand.“
Viðskiptajöfnuður
landanna afar ójafn
I fyrra fluttu Finnar inn vörur til Is-
lands að verðmæti rúmlega tveggja pg
hálfs milljarðs íslenski'a króna en Is-
lendingar fluttu inn vörur til Finn-
lands fyrir andvirði rúmlega sex millj-
óna króna. Frá árinu á undan dróst
útflutningur íslands til Finnlands
saman um rúm 30%. Viðskiptajöfnuð-
ur landanna er því afar ójafn. Söder-
mann er spurður hvort hann geti gefið
skýringu á þessum mun:
„Nei, ekki að öllu leyti en auðvitað
er þetta spurning um markaðssetn-
ingu íslenskra vara í Finnlandi. Ég hef
reynt að kynna Finnland sem góðan
markað fyrir íslenskar vörur. En ég
hef orðið var við að það er ekki mikill
áhugi hjá íslendingum að selja til
Finnlands. Ein skýringin sem ég hef
heyrt er að Islendingum finnist
finnski markaðurinn of lítill til að
leggja í þann kostnað sem markaðs-
setningunni fylgir. Það sama má segja
að Finnum finnist um íslenska mark-
aðinn. Ég hef bent Finnum á að ís-
lendingar séu mikil neysluþjóð og það
sé þess virði að leggja rækt við þann
markað.“
Ekki hefð fyrir neyslu
lambakjöts í Finnlandi
„Mér finnst synd að ekki skuli vera
fiutt inn meira af íslensku lambakjöti
til Finnlands því það er það besta sem
ég hef smakkað. Það er lítil hefð fyrir
neyslu lambakjöts í Finnlandi og þeii’
eru ekki vanir gæðalambakjöti, en
verðið hefur verið hagstætt.
Ég efast þó ekki um að útflutningur
frá Islandi eigi eftir að aukast síðar í
nýjum greinum sem nú er töluverður
vaxtarbroddur í hér á landi, til dæmis í
líftækni- og tölvuiðnaði."
Samruni fyrirtækja milli landa hef-
ur farið vaxandi á undanförnum árum.
Eru einhver íslensk fyrirtæki að hluta
til í eigu Finna?
„Það er aðeins eitt fyrirtæki sem
Finnar eiga svolítinn hlut í hér á landi
og það er Steinullai'verksmiðjan á
Sauðárkróki. Ég sé þó fyrir mér að
þetta geti breyst. Finnar hafa svo
keypt pappírsfyrirtæki í Bandaríkjun-
um og Finnar, Svíar og Danir gerðu
tilraun til að kaupa saman norskan
banka, en ekki náðist samkomulag um
kaupin.“
Við hugsum á svipuðum nótum
„Ég hef trú á að Norðurlandaþjóð-
irnar eigi eftir að vinna miklu meira
saman í framtíðinni á hinum ýmsu
sviðum. Það hefui’ verið góð reynsla af
norrænu samstarfi. Síðan á fimmta
áratugnum hafa Norðurlandaþjóðirn-
ar lagt áherslu á að samræma löggjöf
sína. Þar fyrir utan eigum við margt
sameiginlegt og við hugsum á svipuð-
um nótum. Næsta kynslóð mun spyrja
af hverju þessi samvinna hafí ekki ver-
ið meiri og á eftir að vinna að því að
Norðurlandaþjóðirnar komi fram sem
ein heild út á við.
Norðurlandaþjóðirnar hafa ekki
verið mjög áhrifamiklar í evrópsku
samstarfi. Þær þyi’ftu að sameinast
svo að rödd þeirra yrði sterkari á þess-
um vettvangi. Hugmyndir þessa efnis
voni viðraðar í ræðu sem var haldin
þegar fimm Norðurlandaþjóðir opn-
uðu sendiráð í Berlín í sömu byggingu.
Islendingar hafa komið fram með
ýmsar athyglisverðar tillögur á vett-
vangi norræns samstarfs.
Þegar Halldór Ásgrímsson var í for-
sæti norrænu ráðherranefndarinnar í
fyrra komu íslendingar fram með til-
lögu sem kallast „Fólk og haf í norðri“
og fjallar um sjálfbæra nýtingu nátt-
úruauðlinda, náttúruvernd og lífskjör
á Vestur-Norðurlöndum og öðrum
norðlægum slóðum.
Tillögur Davíðs Oddssonar um
non'ænt samstarf í byggðarmálum
skiptu einnig miklu máli. - Svo er ver-
ið að segja að það sé ekkert að gerast í
norrænu samstarfi.“
Finnar fyrstir Norðurlandaþjóð-
anna til að taka upp evruna
Aðspurður segist Södermann vera
mjög sáttur við veru Finna í Evrópu-
sambandinu. „Við höfum haft það að
markmiði frá upphafi að fylgjast mjög
vel með gangi mála á þessum vett-
vangi og leitast við að hafa þar áhrif.
Finnland hefur verið í forsæti fyrir
Evrópusambandinu og við erum eina
Norðurlandaþjóðin sem hefur ákveðið
að taka upp evruna sem gjaldmiðil.
Danir ætla að kjósa um það í haust og
Svíar árið 2002. íslendingar fylgjast
mjög vel með framvindu mála á þessu
sviði. Mörg íslensk fyrirtæki nota evr-
una í viðskiptum við erlend fyrirtæki.
Ég var um tíma formaður Evrópu-
sambands-sendiráðanna hér á landi en
það eru sex Evrópusambandslönd
sem hafa sendiráð hér. Við höldum
reglulega fundi og ræðum um það sem
er að gerast hverju sinni. Við upplýs-
um íslenska utanríkisráðuneytið um
gang mála.“
Islendingar komast ekki inn í
arkitektaskóla í Finnlandi
Södermann segir að það sé nokkuð
um íslenska námsmenn í Finnlandi.
Þeir stundi þar einkum listnám. „Áður
fyrr var vinsælt að nema arkitektúr í
Finnlandi enda eru Finnar þekktir
fyrir góða skóla á þessu sviði. í augna-
blikinu eru engir íslenskir nemendur
við nám í arkitektúr í Finnlandi. Eftir
að við gengum í Evrópusambandið
hefur aðsókn nemenda frá Evrópu-
sambandslöndunum aukist í þessa
skóla sem hefur leitt til þess að Islend-
ingar hafa ekki sömu möguleika til
námsins og áður. Ég hef verið að
reyna að hafa áhrif á það að íslenskir
stúdentar komist aftur inn í skólana
en það á eftir að koma í ljós hvað
verður.“
Södermann segir að það séu að
minnsta kosti tíu starfandi íslenskir
arkitektar sem hafa lært i finnskum
háskólum og hann hafi áhuga á að það
verði framhald á því.
„Finnar hafa einnig komið til Is-
lands til að stunda nám, þá einkum til
að læra íslensku, hugvísindi og eld-
fjallafræði. Hér hafa dvalið að meðal-
tali tíu finnskir nemendur á hverju ári
undanfarin ár.“
Finnskum ferðamönnum
hefur fjölgað hér á landi
Það kemur fram í máli Södermanns
að hann hefur mikinn áhuga á að aftur
komist á beint flug milli Helsinki og
Keflavíkur. „Þegar Flugleiðir hófu
beint flug þangað fyrir tveim árum í
nokkra mánuði vonuðum við að það
myndi halda áfram. Þá var gert átak
til að kynna Island í Finnlandi. Þetta
skilaði sér því finnskum ferðamönnum
til Islands fjölgaði úr fimm þúsund í
átta þúsund á síðastliðnu ári. íslensk
og finnsk fyi’irtæki stóðu að kynning-
unni.“
Þar eð Södermann hefur starfað hér
lengst sendiheiTanna er hann starfs-
aldursforseti sendiherrahópsins sem
hér dvelur. „Sá starfi felst meðal ann-
ars í því að þegar nýr sendiherra kem-
ur til landsins og þai-f að fá einhverjar
frekari upplýsingar leitar hann til
þess sendiherra sem lengst hefur
starfað í landinu. Það er litið á þetta
sem heiðursstarf. I þeim tilvikum þeg-
ar íslendingar geta ekki boðið öllum
sendiheiTum til móttöku er starfsald-
ursforsetanum boðið sem samnefnara
fyrir hópinn. Ef eitthvert sendiráð-
anna á við einhvern alvarlegan vanda
að etja kemur einnig til kasta starfs-
aldursforsetans. Ekkert slíkt hefur
hent hér á landi. Sendiráðin eru til-
tölulega fá hér eða tíu talsins og því
þekkjumst við sendiherrarnir vel inn-
byrðis og við höfum átt ánægjulegar
stundir saman.“
Fyrst í frí og síðan
í blaðamennskuna
Það er komið að lokum samtalsins
og Södermann er spurður hvað hann
ætli að taka sér fyrir hendur þegar
hann lætur af störfum:
„Þegar ég fer héðan ætlum við hjón-
in að taka okkur frí yfir sumarmánuð-
ina. Þá munum við meðal annars
dvelja á eyjunni Rosala eða „eyju rós-
anna“ eins og hún heitir á íslensku
sem er í finnska skerjagarðinum. Þar
eigum við hús. Faðir minn er ættaður
þaðan. Ég hef dvalist á Rosala síðan
ég var drengur. Næsta haust vonast
ég til að geta tekið upp þráðinn að
nýju í blaðamennsku. Það eru ýmis
verkefni sem ég hef áhuga á að taka
fyrir. Ég er í ritstjórn tímaritsins Nya
Argus sem er gefið út mánaðarlega og
fjallar um menningarmál og mig lang-
ar til að vinna að uppbyggingu þess.
Ég hef líka áhuga á að ferðast til Lett-
lands, en þaðan er móðir mín ættuð,
og finna rætur mínar þar.
Södermann segir að hann og eigin-
kona hans Kaija hafi tekið ástfóstri við
Island. „Við höfum notið dvalarinnar
hér til hins ýtrasta og eigum eftir að
sakna lands og þjóðar."
Fólk kaupir í auknum
mæli flugferðir og
aðra ferðaþjónustu á
Netinu. Talið er lík-
legt að á næstu árum
muni því ferðaskrif-
stofum fækka.
Islenskar ferðaskrif-
stofur blása til sókn-
ar og hvetja m.a. til
samstarfs á Netinu.
FRAMTÍÐARSÝN ferða-
skrifstofanna og breytt
hlutverk við aukna notkun
Netsins var efni fundar
sem ferðaskrifstofunefnd Samtaka
ferðaþjónustunnar efndi til í gær.
Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar,
sagði að eins og staðan á markaðnum
væri í dag þyi'ftu ferðaskrifstofur að
berjast fyrir tilvist sinni, ekki síst
vegna ákvörðunar Flugleiða um að
lækka sölulaun til þeirra og vegna
aukinnar notkunar Netsins við bók-
anir ferða.
Hann sagði að Flugleiðir hefðu til-
kynnt lækkun á umboðslaunum til
ferðaskrifstofa fyrir nokkrum mán-
uðum og boðað enn frekari lækkun
síðar. Þá hefðu þær m.a. vísað til þess
að þetta væri þróunin hjá flugfélög-
um erlendis, t.d. hjá British Ainvays.
Helgi benti hins vegar á að þeir færu
með rangt mál því hjá British
Airways hefði verið unnið markvisst
með ferðaskrifstofum í að gera þær
sýnilegri því þær væru öflugasti sam-
starfsaðili flugfélagsins. British Air-
ways hyggst breyta fyrirkomulaginu
og auka þjónustugjöld þegai’ um-
boðslaun verða afnumin og verðlauna
þær ferðaskrifstofur sem selja dýr-
ustu fargjöldin, sagði hann.
í máli Helga kom fram að ferða-
skrifstofur hérlendis ættu ekki ann-
ars úrkosti en fara í verðstríð við
Flugleiðir eins og Samvinnuferðir-
Landsýn gerðu með leiguflugi til ým-
issa borga í sumar undir nafninu
Flugfrelsi.
„Ferðaskrifstofur verða að tryggja
sér aðgang að sætum til og frá landi
með öðrum hætti en gegnum Flug-
leiðir og ná hagstæðum samningum.
Við ætlum að vera með og látum ekki
skáka okkur út.“
Bókunarmiðstöð íslands
Helgi sagðist álíta að til að íslensk-
ar ferðaskrifstofur næðu að markaðs-
setja sig af krafti erlendis og hér-
lendis þyi'ftu þær að vinna saman í
meira mæli en þær hafa gert. Hann
sagði Samvinnuferðir-Landsýn hafa
verið leiðandi af ferðaskrifstofum á
Netinu og að innan skamms yrði
komið í notkun nýtt bókunarkerfi hjá
þeim.
Helgi lagði áherslu á að nú yrði
blásið til sóknar á erlendum mörkuð-
um með tilkomu Bókunarmiðstöðvar
íslands en þróunarvinna hefur staðið
yfír í nokkur ár.
Þar gefst bæði útlendingum og ís-
lendingum, sem ætla að ferðast um
landið, möguleiki á að panta og bóka
beint ferðaþjónustu eins og gistingu,
bílaleigubíl og afjireyingu. Undanfar-
in ár hefur staðið yfir þróun á Bókun-
armiðstöð íslands en nú sagði Helgi
að þjónustan væri að komast á fullt
skrið.
Bókunarmiðstöð íslands á að vera í
eigu íslenskrar ferðaþjónustu og
Helgi sagði að allir sem áhuga hefðu
ættu kost á að kaupa hlut í henni.
Hann sagði að með tilkomu Bókunar-
miðstöðvarinnar gæfist aðilum í
ferðaþjónustu tækifæri til að byggja
upp einn heildarvef og markaðssetja
ísland bæði hér heima og erlendis.
Bókunarmiðstöðin verður með úti-
bú á Keflavíkurflugvelli, hún verður á
upplýsingamiðstöðvum hringinn í
kringum landið og jafnvel á bensín-
stöðvum.
Aukið samstarf nauðsynlegt
Ulfar Antonsson, framkvæmda-
stjóri innanlandsdeildar hjá Ferða-
skrifstofu íslands, benti í erindi sínu
einnig á nauðsyn aukins samstarfs að-
ila í ferðaþjónustu hér á landi. Hann
sagði að nýlega hefðu danskar ferða-
skrifstofur kynnt sameiginlega vef-
síðu og það væri hugmynd sem
íslenskar ferðaskrifstofur ættu að
skoða nánar.
Hann benti jafnframt á að i Dan-
mörku væri fyrirtækið M&P Oracle að
þróa bókunarkerfi á Netinu sem getur
þjónað öllum hótelum og ráðstefnusöl-
um þai' í landi. Þá segir hann að
breska fyrirtækið Airtours, sem rekur
um helming allra ferðaskrifstofa í
Skandinavíu, sé að þróa netlausnir
fyrir sínai' ferðaskrifstofur.
Úlfar sagði að erlendis væri gífur-
legum fjái'munum varið í þróunar-
vinnu á þessum vettvangi, t.d. væri
fyrirtæki eins og breska ferðaskrif-
stofan Thomson að eyða um hundrað
milljón sterlingspunda í þróunar-
vinnu.
Ferðaskrifstofum mun fækka
Úlfar telur að óhjákvæmilega muni
ferðaskrifstofum fækka mikið á næstu
árum, ekki síst vegna þess að það sé
dýrt að gera þær breytingar sem þurfi
til að taka tæknina í sínar hendur.
Þá nefndi hann að eflaust yrði þró-
unin sú að Netið tæki yfir stóran hluta
t.d. í sölu einstaklingsferða og gi'eindi
frá sem dæmi að á sl. ári hefðu 500.000
bílaleigubílar í Evrópu verið leigðir í
gegnum Netið og að árið 2003 áætluðu
menn að um 20 milljónir pakkaferða
yi'ðu seldar í gegnum Netið í Evrópu
af 400 milljón ferðum.
Hjá utanlandsdeild Ferðaskrifstofu
íslands, Úrvals-Útsýnar er áætlað að
um 70% sólarlandaferða verði bókaðar
á Netinu innan fárra ára en sú tala er
5%Jiað sem af er þessu ári.
Ulfar býst ekki við að þróunin verði
svipuð í sölu viðskipta- eða ráðstefnu-
þjónustu sem þarfnist skipulagningar
sem Netið geti aldrei tekið yfir. Það
kom fram í máli Úlfars að rekstur
ferðaskrifstofa kynni að breytast á
öðrum sviðum en hvað tækninni einnL
viðkemur og hann sagði að þó að fyrir-
tækið Ferðaskrifstofa íslands skil-
greindi sig sem ferðaskrifstofu núna
gæti það alveg eins breyst í ferðaþjón-
ustufyrirtæki. Það kann að vera hag-
kvæmt, sagði hann, að sameina fyrir-
tæki í ferðaþjónustu því birgjarnir,
þ.e. hótel, veitingahús, bílaleigur og
svo framvegis, verða alltaf starfandi
hversu öflugt sem Netið verður í sölu
farseðla og ferðaþjónustu.
Hann sagði að landamærin hefðu
verið skýi' í ferðaþjónustu en þau
væru óðum að gliðna í sundur og þá
yi'ðu allir að skilgreina sig upp á nýtt.
Netið veitir einstakt tækifæri
Sigmundur Halldórsson, vefstjóri
Flugleiða, sagði að Flugleiðir hefðu'”
um miðjan síðasta áratug tekið þá
stefnu að líta á Netið sem einstakt
tækifæri fyrir lítið flugfélag til að
koma sér á framfæri á alþjóðlegum
markaði.
Hann sagði að Flugleiðir hefðu
stöðugt verið að uppfæra Netið og í
dag stæðu yfir útlitsbreytingar á vef
Flugleiða og breytingar á leiðakerf-
inu. Flugleiðir eru á ellefu mörkuðum
með vefsíðui' sem allar eru svipaðar
að útliti og hann sagði að bestur
árangurinn væri í Bandarílcjunum í
tekjum talið, en aftur á móti hér á
landi ef miðað væri við höfðatölu en
um 2% þjóðarinnar hafa keypt miða í
Netklúbbi Flugleiða.
Sigmundur sagði að framtíðin í sölu*
á Netinu væri fólgin í þráðlausu Neti
og samruna farsímatækni og tölvu-
tækni. Fyi-sta skrefið sagði hann að
væri wap-þjónustan sem Flugleiðir
hefðu þegar tekið í þjónustu sína en
viðskiptavinir Flugleiða gætu þá
pantað farseðla og aðra þjónustu í
gegnum farsímann sinn.
Framfarirnar eru mjög örar og Sig-
mundur sagði að þegar væri hægt að
tengjast Netinu í gegnum Ieikjatölv-
ur. Hann sagðist ekki í vafa um að
börn framtíðarinnar ættu eftir að líta
á Netið sem jafn sjálfsagðan hlut og
síma.
Sigmundur benti á að ekki væri
langt í að ferðaþjónustuaðilar gætu
boðið þjónustu í gegnum síma um leið
og símeigandinn þyi'ftu á henni að
halda. Síminn verður þá eins konar
staðsetningartæki og sé símeigandinn
t.d. staddur á Egilsstöðum lætur sím-
inn hann þegar vita um þá afþreyingu
sem er í boði á staðnum.