Morgunblaðið - 22.03.2000, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðlegu IMPAC Dublin-bókmenntaverðlaunin
Atta bækur í pottinum
IMPAC Dublin-bókmenntaverðlaunin verða
veitt 17. júní nk. í Dublin. Sjö bækur hafa nú
verið valdar úr og mun dómnefnd skipuð rithöf-
undum og bókmenntafræðingum skera úr um
hver þeirra hlýtur verðlaunin hinn 17. maí
næstkomandi. Bækurnar eru Wide Open eftir
Nicolu Barker, The Hours eftir Michael Cunn-
ingham, Trumpet eftir Jackie Kay, This Side of
Brightness eftir Colum McCann, Charming
Billy eftir Alice McDermott, Paradise eftir Toni
Morrison og I Married a Communist eftir Phil-
ip Roth.
IMPAC Dublin-bókmenntaverðlaunin eru
verðlaun sem veitt eru árlega fyrir skáldverk á
ensku, frumsamið eða í þýðingu. Verðlaunaféð
er veglegt, 100.000 írsk pund, og eru þetta
stærstu peningaverðlaun sem veitt eru fyrir
einstakt bókmenntaverk í enskumælandi heimi.
Dublinarborg stendur að verðlaununum ásamt
fyi-irtækjunum Dublin Corporation og IMPAC
en Borgarbókasafnið í Dublin sér um fram-
kvæmdina. Almenningsbókasöfn um allan heim
geta tilnefnt bækur og í ár voru þátttakendur
yfir 100 borgarbókasöfn í 34 löndum, meðal
annars Borgarbókasafn Reykjavíkur. Borgar-
bókasafnið tilnefndi bókina Hanna’s Daughters
eftir sænsku skáldkonuna Marianne Fredriks-
son, sem er ensk þýðing Joan Tate á skáldsög-
unni Anna, Hanna och Johanna. Samkvæmt
reglum samkeppninnar mega frumútgáfur ekki
vera eldri en sex ára og ensk þýðing þeirra ekki
yngri en tveggja ára. Þetta gerir það að verkum
að nýjar enskar þýðingar á bókum íslenskra
höfunda koma ekki alltaf til greina. Borgar-
bókasafn hefur fjórum sinnum tilnefnt bækur
íslenskra höfunda, skáldsögurnar Absolution
(Fyrirgefning syndanna) eftir Ólaf Jóhann Ól-
afsson (1996), Angels of the Universe (Englar
alheimsins) eftir Einar Má Guðmundsson
(1997), Troll’s Cathedral (Tröllakirkja) eftir Ól-
af Gunnarsson (1998) og Z: A Love Story (Z.
Ástarsaga) eftir Vigdísi Grímsdóttur (1999).
Tilnefndar bækur fyrir árið 2000 eru 101 tals-
ins og eru bandarískir höfundar í miklum meiri-
hluta eða 41,17 breskir höfundar eru á listanum
en einnig höfundar frá Ástralíu, Frakklandi,
Suður-Afríku, Þýskalandi, Kanada, Kína, Bras-
ilíu, Sri Lanka, Guadaloupe og Haítí svo eitt-
hvað sé nefnt. Flestar eru bækurnar skrifaðar á
ensku en tólf þýðingar eru á listanum, þar á
meðal þýðingar á verkum eftir Paolo Coelho,
Milan Kundera, WG Sebald, Mario Vargas
Llosa og Marianne Fredriksson. Verði þýdd
bók fyrir valinu rennur hluti af verðlaunafénu
til þýðandans. Listi yfir tilnefndar bækur hang-
ir uppi á Borgarbókasafninu í Þingholtsstræti
og í Borgarbókasafninu í Gerðubergi.
Fyrri verðlaunahafar Dublin-verðlaunanna
eru breski höfundurinn Andrew Miller fyrir
Ingenious Pain (1999), Þjóðverjinn Herta Mull-
er fyrir The Land of Green Plums (1998), Javier
Man'as frá Spáni fyrir A Heart So White (1997)
og Ástralinn David Malouf fyrir Remembering
Babylon (1996).
Þeim sem vilja kynna sér verðlaunin og bæk-
urnar skal bent á heimasíðu IMPAC Dublin-
verðlaunanna, impacdublinaward.ie, sem er
einnig aðgengileg af heimasíðu Borgarbóka-
safns Reykjavíkur, en þar má einnig nálgast
upplýsingar um fleiri bókmenntaverðlaun, inn-
lend sem erlend. Slóðin er www.borgarboka-
safn.is
Söngdeild Tónlistarskóla Kópavogs í Salnum
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Nemendur úr söngdeild Tónlistarskóla Kópavogs flytja tvær gamanóperur eftir Gluck í Salnum í kvöld.
Gaman-
óperur
eftir
Gluck
NEMENDUR í söngdeild Tónlistar-
skóla Kópavogs flytja tvo gaman-
óperueinþáttunga eftir Christoph
Willibald Gluck á tónleikum í Saln-
um í kvöld kl. 20.30.
Fyrri óperan, Batnandi byttu er
best að lifa, verður flutt í íslenskri
þýðingu Onnu Júliönu Sveinsdött-
ur, söngkennara skólans og leik-
stjóra sýningarinnar, en hin seinni,
Dómarinn táldregni verður sungin
á þýsku. Að sögn Onnu Júlíönu er
hér er um frumflutning á íslandi að
ræða. „Gluck samdi fyrri einþátt-
unginn árið 1760 og hinn síðari
1761, árið áður en hann samdi óper-
una Orfeus og Evridís," segir hún.
„Þó að þessar óperur séu mjög
ólíkar má segja að þemað í þeim
báðum sé svekkt eiginkona. I hinni
fyrri er eiginmaðurinn mikill
drykkjurútur, sem hefur valdið
konu sinni miklum vonbrigðum.
Hann á drykkjufélaga sem verður
ástfanginn af frænku hennar og
einhverju sinni endar svall þeirra
með því að báðir deyja drykkju-
dauða. Þá bregður eiginkonan,
frænkur hennar og vinir á það ráð
að þykjast vera djöflar og nornir,
svo þegar þeir vakna halda þeir að
þeir séu lentir í helvíti. Eigin-
maðurinn lofar auðvitað bót og
betrun og heitir því að láta aldrei
aftur áfengi inn fyrir sínar varir,“
segir Anna Júh'ana. Seinni óperan,
Dómarinn táldregni, er svokölluð
Tyrkjaópera, en þær voru mjög vin-
sælar á þessum tíma þegar margir
óttuðust innrás Tyrkja og landvinn-
inga þeirra.
Grín gert að karlmönnum
„Hér er gert grín að tyrkneskum
dómara sem er giftur og ætlar að
kaupa sér nýja eiginkonu en þegar
til kemur reynist konan sem hann
hefur keypt en ekki séð vera for-
ljót,“ heldur Anna Júlíana áfram. í
báðum verkunum er óspart gert
grín að karlmönnum en flytjendur
eru allir með tölu kvenkyns, þó að
sumar bregði söngkonurnar sér í
karlmannslíki á sviðinu. „Við snú-
um þessu við, hér áður fyrr þegar
konur máttu ekki syngja í óperum,
þá sungu geldingar sópran-
hlutverkin og kontratenórar
mezzósópranhlutverkin."
Alls taka tíu nemendur þátt í sýn-
ingunni, allt frá fyrsta til áttunda
stigs, en yngsta söngkonan er að-
eins 16 ára gömul. Nemendurnir
eru þær Vigdfs Björg Sigur-
geirsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Perla
María Hauksdóttir, Ragnheiður
Þórdís Stefánsdóttir, Sólrún Sæ-
mundssen, Anna Hafberg, Helga
Heimisdóttir, Oddrún Óiafsdóttir,
Oddný Sigurðardóttir og Björg Ósk
Bjarnadóttir. Píanóleik annast
Krystyna Cortes, undirleikari
söngdeildar, og umsjón með fórðun
og búningum hefur Anna María
Einarsdóttir. Aðgangur er ókeypis.
Á síðastliðnum árum hefur
söngdeild Tónlistarskóla Kópavogs
staðið fyrir flutningi á óperunum
Hin fyrstu jól eftir Michael Hurd,
Hans og Gréta eftir Engilbert
Humperdinck og Briddsleikararnir
eftir Samuel Barber og Gian Carlo
Menotti, en að sögn Önnu Júlíönu
hafði engin þeirra verið flutt hér á
landi áður. „Við erum að reyna að
feta ótroðnar slóðir," segir hún.
Nútímakonan í
náttúrunni
MYNDLIST
(i a 11 c r f <§> li I e m ni 11 r
EIRÚN
SIGURÐ ARDÓTTIR
LJÓSMYNDIR
Opið alla daga nema mánudaga
frá 14 til 18. Sýningin stendur
til 26. mars.
EIRÚN Sigurðardóttir heldur
áfram rannsóknum sínum á stöðu
nútímakonunnar gagnvart umhverfi
sínu og sem fyrr er nálgun hennar
bæði frumleg og ögi-andi. Fyrir
skömmu sýndi Eirún myndröð í
Stöðlakoti þar sem hún sýndi pers-
ónuna Dollý, eins konar teikni-
myndakonu sem tekst á við líf sitt á
óvenjulegan hátt en af öiyggi og
ákveðni. Dollý var holdgervingur
nútímastúlkunnar og máluð í anda
japanskra teiknimynda, táknmynd
frekar en raunveruleg kona. Nú hef-
ur Eirún sjálf tekið aðalhlutverkið
og sýnir Ijósmyndir þar sem hún
ferðast um í íslenskri náttúru, vel til
höfð með langar rauðar neglur, príl-
ar upp hraundranga og handleikur
nýveiddan silung af kunnáttusemi.
Líkt og sýning Eirúnar í Stöðla-
koti er þessi sýning í Gallerí-
@Hlemmur mjög vandlega unnin og
framsett eftir þeim stíl sem tíðkast
nú um stundir um allan heim. Mynd-
irnar eru ágengar en þó óaðfinnan-
lega smekklegar, en einmitt þar
liggja skilaboð Eirúnar. Árekstur
hins smekklega og þess grófgerða er
viðfangsefni hennar hér: ímynd
borgarkonunnar í andstöðu við
hrjóstrugt hraunið og slímugan
nýdauðan fiskinn. Margar spurning-
ar vakna þegar maður skoðar þessar
myndir en flestar eru líklega þess
eðlis að hver þurfi að svara þeim fyr-
ir sig. Umræða Eirúnar um konuna
og stöðu hennar takmarkast nefni-
lega ekki við pólitískar klisjur eða
almennar alhæfingar. Það, sem hún
varpar fram, virðist heldur varða
ákvarðanir sem hver þarf að taka
sjálfur. Ákvarðanir um það hvernig
maður sjálfur tekst á við líf sitt og þá
umgjörð sem því er búin.
Eirún hefur starfað með Gjörn-
ingaklúbbnum sem hefur undanfarið
vakið athygli víða um heim undir al-
þjóðlega nafninu The Icelandic Love
Corporation. Með þessum tveimur
sýningum hefur hún líka markað sér
stað sem sjálfstæður listamaður og
hafið merkilega könnun sem á ef-
laust eftir að skila fleitá verkum á
næstunni. Hún hefur líka markað
sér sérstæðan stíl í efnistökum sem
ber vott um sterkan listrænan skiln-
ing ekki síður en vilja til að takast
markvisst á við erfið viðfangsefni.
Jón Proppé
Hvorki
fugl né
fískur
KVIKMYNDIR
S a m b í 6 i n
HUNDURINN OG
HÖFRUNGURINN ★
Leikstjóri: George Miller. Handrit:
Tom Benedek. Aðalhlutverk: Steve
Guttenberg, Kathleen Quinlan,
Miko Hughes, Majandra Delfino,
Jessica Howell, Dawn McMilIan og
Arnold Vosloo. Rysher
Entertainment 1997.
SEIFUR heitir hundur nokkur
sem sem feðgarnir Terry og Jordan
hafa með sér í fríið við sjávarsíðuna.
Seifur verður skotinn í höfrungi sem
heitir Roxanne og þannig kynnast
feðgarnir sjávarlíffræðingnum Ann
Beth og dætrum hennar Judith og
Noru og hefst mikill vinskapur milli
þeiiTa.
Þetta er slæm mynd sem er því
miður bæði illa ski-ifuð og leikstýrð og
söguþráðurinn það agalega teygður
og ómai’kviss, að það er varla að
myndin byiji né endi.
Eg geng út frá því að þetta eigi að
vera bama- og fjölskyldumynd og þá
finnst mér lágmark að söguþráðurinn
höfði til barna. En ég býst við að afar
fáir gríslingar hafi áhuga á því að
tveir fullorðnir einstaklingar rífist um
rannsóknarstyrk. Þau fatta ekki einu
sinni hver vondi karlinn í myndinni er
og þá er nú mikið farið. I svona mynd
vilja börn, og hún býður óneitanlega
upp á það, skondin, skemmtileg og til-
finningamikil atriði með dýrunum, en
hér er þeim ekki fyrir að fara. Það
eina sem hundurinn og höfrungurinn
gera er að tala saman og maður skilur
ekki einu sinni um hvað! Eða yfirleitt
hvað þeir eru að gera í þessari mynd.
Höfrungminn reyndar bjargar
mömmunni í lokin og það var nú gott
hjá honum. Þegar aumingja hundur-
inn kemur í leitfrnar, eftir að feðgam-
ir tóku flugvél á milli landshluta til að
leita af honum, tekur enginn eftir því!
Eða var það bara ekki sýnt?
Stelpurnar, sem era hálf stálpaðar,
em eitthvað unglingaveikar, en hætta
því snögglega og vilja endilega leika
við einhvern smágutta sem Jordan er.
Og fullorðna fólkið er miður sannfær-
andi í hrifningu sinni hvort af öðm.
Því miður eru Hundurinn og höfr-
ungurinn hvorki fugl né fiskur.
Hildur Loftsdóttir
M-2000
Miðvikudagur 22. mars.
Vetraríþróttahátíð ÍBR
Kennsla og kynn-
ing á íþróttum fyi-ir
almenning.
Skíðaganga,
ganga, sund,
* skokk, skíði innan borg-
armarkanna í hádeginu og
seinni hluta dags.
www.ibr.is
Málþing í Gvendarbrunnum.
Kl. 15.
Tært vatn - auður komandi
kynslóða.
Málþing sem Orkuveitan og
Junior Chamber Reykjavík
hafa skipulagt á alþjóðlegum
degi vatnsins. Vatnssérfræðing-
ar og áhugamenn leita svara við
spurningunum: Emm við að
fara vel með vatn? Nýtum við
það á sjálfbæran hátt? Er nóg af
vatni á íslandi og hvernig er
staða vatnsmála í veröldinni?
Málþingið hefst kl. 15:00 og
verður haldið að Gvendarbmnn-
um, þar sem aðalvatnsból Reyk-
víkinga vom til margi-a ára.
www.jc.is
www.vatn.is
www.reykjavik2000.is