Morgunblaðið - 22.03.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 3 7^.
LISTIR
Verk eftir Peter Lang.
Skipulagt frelsi
vandam
Anastim hárvökvinn frá Ducray
örvar hárvöxt og dregur úr hárlosi.
20%
'wmtmBmm
Kynning í Lyfju Lágmúla
frákl. 14-18
á morgun í Lyfju Hamraborg
og á föstudag í Lyfju Setbergi
LYFJA
Lyf á lágmarksveröi
Norræn samtímalist er
viðfangsefni sýningar-
innar „Organising
freedom“ sem nú stend-
ur yfír í Moderna mus-
eet í Stokkhólmi. Inga
Birna Einarsdóttir
segir frá sýningunni.
HEITI sýningarinnar er
komið úr texta eftir
Björk Guðmundsdóttur.
í laginu „The hunter"
segir: „thought I could organize
freedom/how scandinavian of me“.
Dægurlagatextar eru safnstjóran-
um David Elliott innblástur frekari
hugleiðinga um frelsi. Janis Joplin
söng „freedom is just another word
for nothing left to lose“ og Bob Mar-
ley um frelsi landa sinna í laginu
„Redemption song“.
Elliott ræðir í sýningarskránni
um áráttu Norðurlandabúa að
skipuleggja tíma sinn út í æsar og þá
sérstaklega frítímann. Það er hins
vegar spurning hvort þetta eigi ekki
frekar við hina sósíaldemókratísku
hefð Svía en Islendinga.
Sýningin hefur það að markmiði
að sýna hugmyndir ungra norrænna
listamanna um frelsið, bæði andlegt
og samfélagslegt. Til þess valdi Elli-
ot 28 listamenn frá Danmörku, Nor-
egi, Svíþjóð, Finnlandi og Islandi.
Þeir skiptast nokkuð jafnt milli
landa en það vekur athygli að Is-
lendingar eiga bara einn fulltrúa á
sýningunni. Það má velta því fyrir
hvaða ástæður liggja þar að baki,
hvort honum þyki íslensk samtíma-
list vera óspennandi. Það er ekki
neitt fyrirfram ákveðið sem stjórnar
vali hans. Þetta eru einfaldlega þeir
listamenn sem honum finnst vera
mest spennandi í augnablikinu.
Islendingurinn í hópnum, Olafur
Elíasson, er orðinn talsvert þekktur
á alþjóðavísu. Um þessar mundir á
hann umhverfisverk í Utrecht í
Hollandi og er meðal þátttakenda á
samsýningu þýskra myndlistar-
manna í Wolfburg í Þýskalandi.
Hann er fæddur og uppalinn í Kaup-
mannahöfn og er nú búsettur í Ber-
lín. Ólafur sýnir Ijósmyndir úr ís-
lensku landslagi, bæði í svarthvítu
og lit. Hann segist taka myndavélina
með sér í gönguferðir þegar hann
dvelur á íslandi á sumrin. Þetta er
vel þekkt myndefni, stórbrotin og
eyðileg íslensk náttúra.
Esko Mánnikkö hlaut mikla frægð
fyrir ljósmyndir sínar af finnskum
piparsveinum og afskekktum hýbýl-
Verk eftir Bjarne Melgaard.
um þeirra. í nýrri myndaröð er við-
fangsefnið útidyr á fínnskum sumar-
húsum. Sameiginlegt með þessum
sumarhúsum er lélegt ásigkomulag,
brotnar rúður, skakkar hurðir og
eintóm hrákasmíð. Myndirnar eru
rammaðar inní tréramma sem eru
úr gömlu og veðruðu tré. Gætu
næstum því verið úr tilsniðnum
rekaviði. Það er sama tregablandna
andrúmsloftið í þessum myndum og
í fyrrnefndri myndaröð af finnsku
piparsveinunum. Það má velta því
fyrir sér hvort þetta sé einn hluti af
hinum finnska harmi.
Bjarne Melgaard er „enfant
terriblé“ í norska lista-
heiminum. Hann vinnur í
ýmsa miðla, tekur ljós-
myndir af sjálfum sér í ýmsum stell-
ingum og með ýmis svipbrigði í
myndaröðinni „Monument to Ray
Johnson". A gólfinu við innganginn
inn í sýningarsalinn er innsetning
med risavöxnum tjábolum. Hún
leggur hindranir í veg sýningar-
gesta því þeir verða að klofa yfir þá
til að komast leiðar sinnar. Við
fyrstu sýn gæti maður haldið að
þetta væru tótem-súlur en við nán-
ari skoðun minna sumir trjábolirnir,
sem eru tilsniðnir, á risastóra getn-
aðarlimi.
Spaugarinn í hópnum er Daninn
Peter Lang. Framlag hans er
myndbandsverk í 2 hlutum.
Hann hafði setið fastur í sköpun-
arkrísu um tíma. í verstu krísunni
fletti hann símaskránni og hringdi
og pantaði 2 stúlkur til að koma
heim til sín og strippa. Hann fékk
leyfi til að festa þær á filmu og
árangurinn má sjá á skjánum. Stúlk-
urnar eru viðvaningslegar með af-
brigðum og það má jafnvel sjá lista-
manninum bregða fyrir og reyna að
stjórna þeim án sýnilegs árangurs.
Þetta taldi hann geta notað á ein-
hvern hátt og í hinu myndban-
dsverkinu strippar hann sjálfur.
Hann hefur dansinn íklæddur göml-
um og ljótum gráum nærbuxum sem
hann rífur sig seinna úr. Hann dans-
ar af miklum krafti í þær 25 mínútur
sem verkið tekur.
Annica Karlsson Rixon tók ljós-
myndir af bandarískum flutningabíl-
stjórum. Hún beinir linsunni að
höndunum á þeim þar sem þeir veifa
í kveðjuskyni. Bandarísku þjóðveg-
irnir hafa ávallt þótt tákngera frels-
ið. Eru þeir hið raunverulega frelsi
eða er það bara goðsögn?
Upp á síðkastið hefur norræn list
verið í tísku, ef svo má að orði kom-
ast. Ekki bara myndlistin heldur
líka tónlist og kvikmyndir. Sýningin
í Moderna tekur púlsinn á því sem
er að gerast i listaheiminum á Norð-
urlöndum.
Sýningin stendur til 9. apríl nk. og
má sjá umfjöllun um hana á heima-
síðu safnsins: www.moderna-
museet.se.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á aðalskrifstofu félagsins, Suðurlandsbraut 18,
4. hæð, frá og með 20. mars, fram að
hádegifundardags.
Aðalfundur Olíufélagsins hf. verður haldinn
miðvikudaginn 22. mars 2000 á Hótel Loftleiðum,
þingsal 1-3, og hefst fundurinn kl. 14.00.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar
félagsins munu liggja frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf
skv. 12. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.