Morgunblaðið - 22.03.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.03.2000, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Hart tekist á um fullgild- gea ingu Schengen-samnings tJSf VIÐ síðari umræðu um þingsályktun- artillögu utanríkisráðherra um full- gildingu samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerð- anna, sem fram fór á Alþingi í gær, lýstu tveir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins sig andsnúna samþykkt hennar. Sagðist Einar K. Guðfinns- son ætla að sitja hjá við afgreiðslu málsins en Einar Oddur Kristjánsson lýsti þvi yfir að hann væri alveg ófá- anlegur til að styðja þetta mál enda sæi hann ekki að það hefði neitt nema kostnað í för með sér fyrir íslend- inga. Tómas Ingi Olrich, þingmaður Sjálfstæðisflokks, og fomaður utan- ríkismálanefndar, mælti í upphafi umræðunnar fyrir áliti meirihluta ut- anríkismálanefndar sem leggur til að tillagan verði samþykkt. Sagði hann m.a. ljóst að ef Island hefði eitt Norð- urlandanna kosið að standa utan Schengen hefði eftirlit á norrænum landamærum verið tekið upp gagn- vart íslandi. Tómas Ingi sagði að utanríkismála- nefnd hefði kannað sérstaklega hvaða undfrbúningur hefði farið fram á Keflavíkurflugvelli vegna málsins og þannig t.d. farið í kynnisferð í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar af því tilefni. Áætlaður heildarkostnaður við fram- kvæmdir í Flugstöðinni væri nú met- inn 3,6 milljarðar kr., en beinn kostn- aðui- vegna aðildar íslands að Schengen um 500-900 millj. kr. Meirihluti nefndarinnai' teldi hins vegar að ef vel tækist til í allri fram- kvæmd gæti þátttaka í Schengen fal- Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks lýstu andstöðu ALÞINGI ið í sér sóknarfæri íyrir íslenska ferðaþjónustu til lengri tíma litið. Einai' K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem situr í utanrík- ismálanefnd, lýsti hins vegar því yfir að hann myndi sitja hjá við afgreiðslu málsins. Vakti hann í nefndaráliti sínu sérstaka athygli á því að Scheng- en-samstarfið hefði í för með sér um- talsverðan kostnað sem borinn yrði uppi af skattborgurum eða þeim sem ferðuðust um Schengen-svæðið og eftir atvikum ílugrekendum á svæð- inu. Jafnframt vakti hann athygli á þeirri staðreynd að tvö ríki innan Evrópusambandsins sem Islendingar hefðu haft mikil samskipti við, írland og Bretland, yrðu ekki aðilar að Schengen-samstarfinu. Sighvatur Björgvinsson, þingmað- ur Samfylkingar, sem hlut átti að meirihlutaáliti utanríkismálanefndar, vakti athygli á því í andsvari að sinni við málið varaþingflokksformaður Sjálfstæðis- flokksins lýsti sig andsnúinn stjórn- arfrumvarpi og velti Sighvatur því fyrir sér hvort utanríkisráðhen'a og formanni Framsóknarflokksins hefði verið ljós andstaða í þingflokki sjálf- stæðismanna. Spurði hann hvort fleiri sjálfstæðismenn væru mótfalln- ir aðild að Schengen. Ófáanlegur til að styðja málið Svar við því fékk Sighvatur þegar Einar Oddur Kristjánsson lýsti því yfir að hann væri alveg ófáanlegur til að styðja þetta mál. Sagði Einar Odd- ur að engin einustu rök fyndust í nefndaráliti meh’ihluta utanríkis- málanefndar íyrir því að ganga inn í Schengen-samstarfíð. Taldi Einar Oddur að það hefði verið ómaksins vert að kynna sér afstöðu Breta og íra í þessu efni. Eyþjóðin enska teldi þannig enga þörf fyrir sig að treysta öðrum þjóðum fyrir landamæra- vörslu sinni og hið sama ætti við um Islendinga og Ira, þótt öðru gilti e.t.v. um meginland Evrópu. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, sem sæti á í utan- ríkismálanefnd, sagði umhugsunar- efni hversu lítil umræða hefði orðið um mögulega aðild Islands í Scheng- en-samstarfinu og gagnrýndi hann þátt stjórnvalda í því efni. Steingrím- ur sagði eðlilegt að spyrja hvort markmið með Schengen-aðild væri fyrsta skrefið í átt að ESB-aðild og taldi því næst til kostnað málinu sam- fara, en í því sambandi benti hann á að allar tölur þar að lútandi væru mjög á reiki. Fór Steingrímur í ítar- legu máli yfir kosti og galla aðildar og lagði síðan til að Alþingi staðfesti ekki samninginn og felldi þingsályktunar- tillögu utanríkisráðheira. Þess í stað yrði leitað eftir viðræðum um sér- lausn fyiir Island. Dýrt að vera ekki í Schengen Halldór Asgrímsson utanríkisráð- herra sagði það vissulega ljóst að kostnaður vegna Schengen-aðildar yrði mjög mikill þó að erfitt væri að átta sig á því hversu mikill hann yrði. Hann spurði hins vegar hvort menn teldu virkilega að enginn kostnaður yrði því samfara að vera ekki með í Schengen-samstarfinu. Halldór fullyrti að ferðamanna- straumur til íslands yrði meiri og auðveldari en áður færu Islendingar inn í Schengen. Sagði hann einnig að greiðara aðgengi milli landa myndi liðka mjög fyrir viðskiptum, t.d. við Evrópuþjóðimar. Hann sagði það rétt að Schengen-aðild auðveldaði hugsanlega inngöngu í ESB en hún auðveldaði okkur ekki síður að vera þar fyrir utan. Sagði Halldór það jafnframt rangt að bera íslendinga saman við Breta og íra, þessai' þjóðir væru í ESB og aðstæður þeirra til samninga því aðrar en okkar. Taldi hann fullvíst að öll vandamál í tengsl- um við Keflavíkurflugvöll, t.d. er vörðuðu tengiflug, væru leysanleg. VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra mælti í gær fyrir lagafrumvarpi sem felur í sér að viðskiptabönkum og sparisjóðum verði heimilt skv. sérstökum samn- ingi að taka að sér að veita póst- þjónustu fyrir hönd aðila sem leyfi hefur til að veita slíka þjónustu. Tók hún það þó sérstaklega fram að ekki væri um það að ræða að viðskipta- bankar og sparisjóðir öðluðust með þessu sjálfstætt leyfi til póstþjón- ustu. Valgerður sagði að hér væri um afar þýðingarmikið mál að ræða enda gæti samvinna um grunnþjón- ustu af þessu tagi skipt sköpum um hvort hún væri fyrir hendi eða ekki í hinum dreifðu byggðum landsins. Undir þetta tóku þau Svanfríður Jónasdóttir, þingmaður Samfylk- ingar, og Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og sagði Einar ekkert óeðlilegt við það að hægt væri að steypa saman þjón- ustuformum sem vel ættu saman, eins og hér væri ráð fyrir gert. Svanfríður rakti tildrög þess að málið væri komið inn á borð Al- þingis og sagði hún að með þessum hætti væri hægt að tryggja að landsbyggðarfólk nyti eins góðrar þjónustu og hugsanlegt væri miðað við þær breyttu aðstæður sem nú væru uppi. Þakkaði Valgerður Svanfríði í seinni ræðu sinni það frumkvæði sem hún hefði sýnt í þessu máli, en fram kom að Svan- fríður hefði ýtt við ráðherra að þrýsta þessu máli fram er Valgerð- ur tók við húsbóndavaldi í viðskipta- ráðuneytinu. Samkeppnislaga- frumvarpi vel tekið LAGAFRUMVARP sem felur í sér veigamiklar breytingar á samkeppn- islögum var vel tekið við fyrstu um- ræðu á Alþingi í gær en Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hafði mælt fyrir málinu. Voru þing- menn á einu máli að frumvarpið yrði til mikilla bóta og að með þeim breytingum, sem það felur í sér, væru gerðar bráðnauðsynlegar úr- bætur á samkeppnislöggjöfinni. í frumvai-pi viðskiptaráðherra er skerpt mjög á samkeppnislöggjöf- inni. Það felur m.a. i sér bann við samkeppnishamlandi samstarfi fyr- irtækja, bann við misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu og ennfremur eru samrunaákvæði samkeppnislaga styrkt til muna. Jóhanna Sigurðar- dóttir og Lúðvík Bergvinsson, þing- menn Samfylkingar, og Jón Bjarna- son, þingmaður Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs, fögnuðu því við umræðuna í gær að þetta frumvarp væri framkomið og voru sammála um að það bætti mjög stöðu neytenda gagnvart hættunni á fákeppni á markaði. Lýstu þau jafn- framt þeirri ósk að þetta frumvarp yrði að lögum sem fyrst. Jóhanna gerði samrunaákvæði fnjmvarpsins að sérstöku umtals- efni og sagði mikilvægt að taka á þeim málum. Kvaðst hún sannfærð um að ýmis mál, sem komið hefðu upp á síðustu misserum, hefðu farið á annan veg ef Samkeppnistofnun hefði haft þau úrræði sem henni væru veitt með þessu frumvarpi hvað varðaði samrunaferli fyrir- tækja. Lúðvík fagnaði hins vegar sérstaklega þeirri meginbreytingu, sem í frumvarpinu felst, að horfið er frá hinni svokölluðu misbeitingar- reglu til svonefndrar bannreglu í samkeppnismálum en í því felst sú meginregla að nær allar samkeppn- ishömlur séu bannaðar á meðan mis- beitingarreglan felur ekki í sér slíkt bann fyrirfram heldur aðeins mögu- leika til að grípa inn í samkeppnis- hömlur í einstökum tilvikum séu þær taldar skaðlegar. Jón Bjarnason taldi það hafa sýnt sig að gildandi lög næðu ekki nægi- lega langt til að vernda neytendur með sómasamlegum hætti. Spurði hann, rétt eins og Jóhanna, hvað liði könnun á meintri fákeppni á mat- vörumarkaði í líkingu við þá sem Neytendasamtökin hafa farið fram á. Svaraði Valgerður Sverrisdóttir því til að eftir því sem hún vissi best hefði Samkeppnisstofnun verið að rannsaka þau mál, m.a. í samráði við Neytendasamtökin. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hafði í nógu að snúast á Alþingi í gær og mælti m.a. fyrir fjórum frumvörpum. Viðskiptaráðherra mælir fyrir frumvarpi um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði Reglur skýrari og ákvæði um menntun Frumvarpið sagt ganga of skammt VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir lagafrumvarpi um verð- bréfaviðskipti og verðbréfasjóði en í frumvarpinu er meðal annars kveðið á um skýrari reglur og um nám þeirra sem við verðbréfamiðlun starfa, um viðskipti þein-a sjálfra og fjölskyldna þeirra, auk þess sem að- skilnaður einstakra starfssviða fyr- irtækja í verðbréfaþjónustu er gerð- ur skýrari með svokölluðum Kína- múrum. Tveir þingmenn Sam- fylkingar töldu hins vegar ekki nægilega langt gengið í frumvarp- inu. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar, lýsti í andsvari við ræðu Valgerðar þeirri skoðun sinni að horfa hefði átt í ríkari mæli til þeirra ströngu reglna sem um verð- bréfaviðskipti gilda í Bandaríkjun- um. Sagði hann skynsamlegra að leita í smiðju þeirra sem þekktu þessa hluti hvað best fremur en að vera að reyna að finna upp hjólið í þessum efnum. Jóhanna Sigurðardóttir tók hins vegar mun dýpra í árinni en Lúðvík og sagðist hún hafa orðið fyrir mikl- um vonbrigðum með frumvarp við- skiptaráðherra. Kvaðst Jóhanna hafa átt von á því að hraustlegar yrði staðið að verki en þetta, miðað við þær yfirlýsingar sem Valgerður hefði gefið fyrr í vetur. Hún sagði frumvarp viðskiptaráðhen-a að mjög litlu leyti taka á þeim vandamálum sem hefðu komið upp á verðbréfa- markaðnum að undanförnu og þess vegna mætti búast við að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þyrfti að fara rækilega yfir málið áður en að afgreiðslu þess kæmi. í seinni ræðu sinni við umræðuna svaraði Valgerð- ur Sverrisdóttir nokkrum þein-a spurninga sem Jóhanna hafði lagt fyrir hana. Sagði hún m.a. að vinna væri í gangi í viðskiptaráðuneytinu hvað varðaði ákvæði um meðferð trúnaðarupplýsinga, og taldi hún ekki útilokað að slík ákvæði yrðu tekin inn í frumvarpið í meðförum Alþingis, t.d. með heimild til reglu- gerðarsetningar þar að lútandi. RáðheiTann sagði einnig að bann við kaupum starfsmanna á hluta- bréfum í tiltekinn tíma eftir afkomu- birtingu væri eitt af þeim atriðum sem þyrfti að skoða nánar þó hún teldi líklegt að hinir svokölluðu Kínamúrar ættu að duga í því sam- bandi. Valgerður sagði að hvað varðaði ýmis þau mál, sem komið hefðu til kasta Verðbréfaþings og Fjármála- eftirlits að undanförnu, þá væru nokkur þeirra vissulega enn til um- fjöllunar, að því er hún best vissi. Það væri hins vegar ekki hennar að greina frá niðurstöðum þeirra rann- sókna, Fjármálaeftirlitið væri sjálf- stæð stofnun og lyti ekki stjórn við- skiptaráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.