Morgunblaðið - 22.03.2000, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.03.2000, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýtt hlutafélag um rekstur Leifsstöðvar hefur starfsemi 1. október næstkomandi Mikilvægt að hagsmunir starfs- manna verði hafðir að leiðarljösi Morgunblaðið/Kristinn Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra kynnti nýtt frumvarp til laga um stofnun hlutafélags um rekstur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar fyrir starfsmönnum stöðvarinnar í gær. Flugstöð Leifs Eiríkssonar: Farþegafjöldi, starfsmenn og skuldir 1988-2005 ÁÆTLAÐ 1988 1995 1999 2001 2005 Farþegafjöldi (þús.) 806 900 1.315 1.450 1.850 Starfsmenn 135 175 290 330 400 Langtímaskuldir 2,4 4,1 4,5 8,6 7,7 (milljarðar kr.) 'fr n "íp r? ^——a V n f/ F' " • ^ " £=r L ^ 4- 4* i x NÝTT hlutafélag um rekstur Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar mun formlega hefja starfsemi 1. október næstkomandi ef frumvarp til laga um stofnun þess verður samþykkt á Alþingi. Þetta kom fram í máli Hall- dórs Asgrímsson utanríkisráðherra á starfsmannafundi í Leifsstöð í gær. Á fundinum, sem um 150 starfsmenn flugstöðvarinnar og frí- hafnarinnar sóttu, lagði Halldór ríka áherslu á að hagsmunir þeirra yrðu hafðir að leiðarljósi í gegnum þetta breytingarferli. „Við erum að fara út í þessar breytingar til að efla þessa flugstöð en hún er náttúrlega ekkert án dug- mikils starfsfólks og hagsmunir hennar eru jafnframt ykkar hags- munir,“ sagði Halldór og bætti því við að fundurinn væri fyrst og fremst haldinn til að eyða óvissu starfsmanna um framtíð sína hjá fyrirtækinu. Réttindi og skyldur þeirra myndu færast til hins nýja hlutafélags. Að sögn Halldórs mun ekki koma til uppsagna í kjölfar breytinganna heldur þvert á móti mun verða þörf á fleiri starfsmönnum vegna fyrir- hugaðrar stækkunar flugstöðvar- innar. Hratt unnið í málinu innan utanríkisráðuneytisins Halldór sagði að mjög hratt hefði verið unnið í málinu innan utanrík- isráðuneytisins, svokölluð flug- stöðvarnefnd hefði skilað áliti sínu fyrir viku og fyrirhugað var að leggja frumvarpið fyrir Alþingi í gærkvöldi. Samkvæmt frumvarp- inu verður flugstöðin og fríhöfnin sameinuð og hlutafélag stofnað 1. september næstkomandi. Utanrík- isráðherra mun sjálfur skipa stjórn félagsins, sem verður í eigu ríkisins, stjórnin mun síðan ráða forstjóra og taka formlega við rekstrinum 1. október eins og áður sagði. „Þetta er stórt fyrirtæki og það verður að reka það þannig að það standi undir sér. Það er mikilvægt að það komi að þessu sjálfstæð stjórn sem getur einbeitt sér að rekstrinum. Það er ekki eðlilegt að þetta sé ein deild í utanríkisráðu- neytinu." Halldór sagði að í frum- varpinu væru engar heimildir til að selja hlutabréf í fyrirtækinu um það þyrfti Alþingi að taka sjálfstæða ákvörðun síðar. Flugstöð Leifs Eiríkssonar var tekin í notkun árið 1987 og sagði Halldór að bygging hennar hefði eingöngu verið fjármögnuð með lánum og að lítið hefði verið hugað að endurgreiðslu þeirra. Árið 1988 hefðu skuldirnar numið 2,4 millj- örðum króna og að þær hefðu auk- ist í 4,5 milljarða á síðasta ári. Hann sagði að fyrst árið 1998 hefðu náðst einhver tök á skuldaþróuninni og aðeins verið hægt að borga lánin niður. „Fram að því voru lánin mikið í vanskilum og á dráttarvöxtum og það hafði ekki verið hugað að þess- um málum með þeim hætti sem hefði þurft að gera. Ég ætla ekki að fara að ásaka neinn í þessu sam- bandi, en þetta er samt sannleikur- inn í málinu." Heildarkostnaður vegna stækkunar er 5 til 6 milljarðar Árið 1988 fóru 806 þúsund far- þegar um Leifsstöð, en þeim hefur síðan fjölgað smám saman og á síð- asta ári fóru um 1.315 þúsund far- þegar um stöðina. Gert er ráð fyrir að árlegum komum farþega til Leifsstöðvar muni fjölga um rúm 500 þúsund á næstu 5 árum. Halldór sagði að vegna þessarar miklu fjölgunar og vegna Shengen- samkomulagsins hefði verið ákveð- ið að stækka Leifsstöð um tæpa 16 þúsund fermetra á næstu árum, en núverandi flugstöð væri um 17 þús- und fermetrar. Hann sagði að heild- arkostnaður vegna stækkunarinnar væri áætlaður um 5 til 6 milljarðar króna. „Það segir sig sjálft að til þess að standa undir þessum miklu fjárfest- ingum þá þarf að tryggja skilvirka og nútímalega þjónustu við farþega og fyrirtæki og því er nauðsynlegt breyta rekstrarfyrirkomulaginu og tekjumyndun hér í flugstöðinni. Þegar rekstur flugstöðvar og frí- hafnar verður sameinaður munu allar tekjur fríhafnarinnar ganga til flugstöðvarinnar. Þ.e.a.s. þær munu ekki lengur renna til ríkisins heldur til þessarar byggingar, á móti mun fyrirtækið borga tekju- og eignar- skatt til ríkisins eins og önnur fyrir- tæki í landinu. Jafnframt mun það borga arð af því hlutafé sem ríkið kemur til með að eiga.“ Vöknuðu í 50 stiga frosti ÍSLENSKU norðurpólsfararnir komust 4,64 km á þriðjudag áleiðis að norðurpólnum og hafa lagt að baki 45,4 km af 800 km langri leið. Þrettándi dagurinn hófst í gær, miðvikudag, og hafa þeir nú geng- ið 4,1 km á dag að meðaltali, sem er nokkru minna en í síðustu viku. „Okkur líður vel, en það var mjög kalt í morgun [gærmorgun] þegar við vöknuðum, eða 50 stiga frost,“ sagði Haraldur Örn Ólafs- son í gær við bakvarðarsveitina á Islandi. „Það var erfítt að fara upp úr svefnpokanum og var kaldara í nótt [fyrrinótt] en við höfum nokkru sinni upplifað áður. Þótt við værum með grímu fyrir and- litinu var erfitt að hafa nefbrodd- inn upp úr pokanum í þessu mikla frosti," sagði Haraldur. Hann sagði að veður á þriðjudag hefði verið ágætt, stormurinn væri genginn niður, sólin skini í logni og 40 stiga frosti. „Það var stífara skíðafæri og minna um lausamjöll en áður. En á móti kom að spenn- an í ísnum hefur aukist mikið. Það var töluvert um brak og bresti í ísnum á göngunni og við erum nú farnir að sjá nýfrosnar vakir í fyrsta sinn. Það er greinilega meiri hreyfing á ísnum en áður. Það er auðveldara að draga sleð- ana, en við þurftum að fara yfir marga erfiða íshryggi á leið okkar og það tafði okkur,“ sagði hann. Þeir lentu í því á þriðjudag að skinn losnaði undan einu skíðanna, en þeim tókst að líma það aftur á um kvöldið yfir hita frá prímus í tjaldinu. Þeir sögðust við hesta- heilsu og báðu fyrir kveðjur heim. Stöðvun rekstrar vegna vanskila á vörslusköttum í Reykjavík Fulltrúi Landsvirkjunar um fullyrð- ingar um Sultartangavirkjun Fráleitar og vart svara- verðar 14 fyrirtæki innsigluð vegna vanskila 1999 STÖÐVUN atvinnurekstrar vegna vanskila á vörslusköttum er tiltölu- lega sjaldan beitt. Samkvæmt yfir- liti tollstjórans í Reykjavík yfir stöðvun atvinnurekstrar gjaldenda vegna vanskila á síðasta ári kemur fram að í 14 tilvikum þurfti að inn- sigla fyrirtæki vegna vanskila en í 104 tilvikum gerðu viðkomandi upp vanskil þegar lokun átti að fara fram. Alls voru 1.800 vanskilamál í vinnslu hjá tollstjóraembættinu um síðustu áramót. Þessar upplýsingar koma fram í svari Geirs H. Haarde fjármála- ráðherra á Alþingi við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingis- manns um framkvæmd skattskila. I svarinu kemur fram að nú eru til skoðunar tillögur í fjármálaráðu- neytinu sem lúta að frekari tak- mörkunum atvinnuumsvifa þeirra sem skulda skatta, einkum virðis- aukaskatt. 547 lentu á lokunarlista inn- heimtumanna ríkissjóðs Samkvæmt yfirliti tollstjórans í Reykjavík um vanskil á vörslu- Stöðvun atvinnurekstrar gjaldenda vegna vanskila á vörslusköttum árið 1999 Aðilar sem lentu í vanskilum Fjöldi - greiddu samkvæmt greiðsluáskorun áður en kom til stöðvunar 9.612 - lentu á aðgerðarlista (lokunaríista) 547 - sömdu um greiðslu áður en kom til stöðvunar 56 - fundust ekki eða ekki var haegt að loka hjá 181 - gerðu upp vanskil þegar lokun átti að fara fram 104 Innsiglanir 14 Mál í vinnslu um áramót 1.800 sköttum í atvinnurekstri á árinu 1999 greiddu samtals 9.612 aðilar skv. greiðsluáskorun áður en kom til stöðvunar atvinnurekstrar. 547 lentu hins vegar á lokunarlista og sömdu 56 um greiðslu áður en kom til stöðvunar. 181 fannst hins veg- ar ekki eða ekki var hægt að stöðva atvinnurekstur hans af öðr- um ástæðum. I svari fjármálaráðherra kemur einnig fram að nefnd sem ráðherra skipaði 1997 til að leggja drög að verklagsreglum við afskriftir skattkrafna hefur nú skilað tillög- um sínum til ráðherra og eru þær til skoðunar í ráðuneytinu. Þá er verið að kanna í ráðuneyt- inu í samráði við undirstofnanir hvernig unnt er að bæta verklag við áætlanir skatta og eiga tillögur að liggja fyrir með vorinu. Auk þessa er um þessar mundir unnið að gerð verklagsreglna varðandi gjaldþrotaskipti hjá embætti toll- stjórans í Reykjavík, að því er fram kemur í svari fjármálaráð- herra. LANDSVIRKJUN segir að full- yrðingar Guðmundar Gunnarsson- ar, formanns Rafiðnaðarsambands- ins, þess efnis að Sultartanga- virkjun sé „faglegur ruslahaugur" séu fráleitar og í raun ekki svara- verðar, en í Morgunblaðinu í gær er skýrt frá fullyrðingum þessa efn- is á heimasíðu Rafiðnaðarsam- bandsins, þar sem meðal annars kemur fram að erlend fyrirtæki komist upp með ótrúlega lélegan frágang við virkjunina. Guðmundur Pétursson, raf- magnsverkfræðingur og verkefnis- stjóri Landsvirkjunar við Sultar- tangavirkjun, segir að langstærstur hluti uppsetningar búnaðar við Sultartangavirkjun hafi verið unn- inn af íslenskum rafiðnaðarmönn- um og væru fullyrðingar formanns Rafiðnaðarsambandsins réttar, sem þær auðvitað væru ekki, væru þær áfellisdómur yfir starfi íslenskra rafiðnaðarmanna við virkjunina. Guðmundur sagði að nokkrir er- lendir rafiðnaðarmenn, m.a. 5-8 írskir, hefðu verið fengnir til starfa við uppsetningu virkjunarinnar tímabundið þegar íslenskir rafiðn- aðarmenn hefðu ekki fengist til starfa vegna þenslu á innanlands- markaði. Þessir erlendu iðnaðar- menn hefðu í hæsta lagi sett upp u.þ.b. 5% þess rafbúnaðar sem um væri að ræða í virkjuninni. Hins vegar hefðu um og yfir 40 íslenskir rafiðnaðarmenn verið að störfum þar við uppsetningu búnaðar þegar mest var umleikis síðastliðið sumar. Guðmundur sagði að ekki hefðu komið upp fleiri vandamál í sam- bandi við uppsetningu búnaðar í Sultartangavirkjun en í öðrum virkjunum áður, þrátt fyrir mjög nauman framkvæmdatíma og mikið álag á iðnaðarmenn. Auðvitað væri alltaf eitthvað um hluti sem betur mættu fara, en þannig væri það í öllum framkvæmdum og Sultar- tangavirkjun væri þar engin undan- tekning. Virkjunin hefði fullkom- lega staðið undir væntingum eftir að hún var gangsett og engin telj- andi vandamál komið upp, enda hefði eftirlit með framkvæmdum verið mjög nákvæmt og í höndum sjálfstæðs eftirlitsaðila, auk Lands- virkjunar. Vél- og rafbúnaður virkj- unarinnar væri allt viðurkenndur búnaður í háum gæðaflokki sam- kvæmt alþjóðlegum stöðlum. Full- yrðingar um annað væru ósæmileg- ar og alrangar. Guðmundur bætti því við að ekki væri hægt að taka fullyrðingar for- manns Rafiðnaðarsambandsins al- varlega af framangreindum orsök- um. Að öllum líkindum væru þær settar fram vegna þeirra viðræðna um kjarasamninga sem nú stæðu yfir og bæri að skoða þær í því ljósi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.