Morgunblaðið - 22.03.2000, Side 16

Morgunblaðið - 22.03.2000, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Sverrir Axel Sigurðsson hefur unnið í pósthúsinu í Pósthússtræti í meira en fimmtíu ár. Hann segir mikið hafa breyst á þeim tfma. Morgunblaðið/Sverrir Afgreiðslusalur pósthússins hefur verið minnkaður og af- greiðslubásum verið fækkað. unni var hólf fyrir póst sem átti að fara í pósthólfin. Svo fórum við og bárum út, en þá var borið út tvisvar á dag, klukkan níu og klukkan þrjú.“ Axel og Þorgeir segja að pósturinn sjálfur hafi breyst nokkuð í gegnum árin. „Það er mikill munur á póstinum, miklu meira af smápökkum. Áður var heldur ekki eins mikið af gluggapósti eins og núna er,“ segir Áxel. Bréf með varalit á og ilmvatni „Sendibréf hafa í mörg herrans ár verið á undan- haldi. Fólk skrifar ekki eins mikið af bréfum og hefur ann- ar samskiptamáti tekið við. Fólk tekur til dæmis miklu frekar upp símann og hringir. Áður fyrr sáust oft alls konai' skemmtileg bréf, jafnvel með varalit á og ilmvatni," segir Þorgeir. Hann segir að breytingarn- ar samskiptaháttum og versl- unarháttum hafi vissulega áhrif á póstþjónustuna. Bögglasendingum fjölgi veru- lega, enda sé fólk í mun meira mæli farið að panta vörur og láta senda sér þær. Hann seg- ir að áður fyrr hafi verið sjaldgæft að einstaklingar pöntuðu vörur frá útlöndum. „Það var svo mikið mál. Ef maður ætlaði að panta sér, þó það væri ekki nema einn bók- arræfil, þá þurfti sérstakt gjaldeyrisleyfi og svo þurfti að fara í banka og standa í alls konar snúningum og aukagjöldum. Þetta er mikið breytt," segir Þorgeir. Breytingar á pósthúsi og pósti Morgunblaðið/Sverrir Axel Sigurðsson deildarstjóri og Þorgeir Ingvarsson, stöðvarstjóri póstafgreiðslustöðvarinnar í Pósthússtræti. Pósthússtræti NOKKRAR breytingar hafa átt sér stað undanfarið í póst- húsinu í Pósthússtræti 3 til 5, eða R einum eins og starfs- menn póstsins kalla það. Af- greiðslusalurinn hefur verið minnkaður töluvert og af- greiðslubásum hefur verið fækkað. Efri hæðir hússins, þar sem áður voru skrifstofur Islandspósts, hafa verið leigð- ar út til hins nýja sameinaða fyrirtækis GSP-almanna- tengsla og Gæðamiðlunar, ásamt fyrstu hæð Pósthús- strætis 3. íslandspóstur er hins vegar áfram með af- greiðslusal á fyrstu hæð Póst- hússtrætis 5 og pósthólfin í kjallaranum. Umsvif póstafgreiðslunnar fara stöðugt minnkandi, vegna síaukinna heimsend- inga á bögglapósti. Þorgeir Ingvarsson, stöðvarstjóri á R einum, segir að þessi aukning á heimsendingum, sem komi til með að aukast enn, sé for- senda breytinganna á af- greiðslusalnum. „Við erum að draga saman þjónustu á pósthúsunum sjálfum. Ferðum neytandans á pósthúsin fer fækkandi, það er alveg ljóst og er þetta í samræmi við þær breytingar sem hafa orðið í löndunum í kringum okkur,“ segir Þor- geir. Húsið byggt árið 1916 Þegar pósthúsið tók til starfa var það eina pósthúsið í Reykjavík og bréfberarnir örfáir. Nú eru bréfberar borgarinnar hins vegar hátt á þriðja hundrað og er póstur flokkaður á hinum mörgu hverfastöðvum, þaðan sem honum er síðan dreift. „Húsið við Pósthússtræti 5 var byggt árið 1916 og er fyrsta húsið sem var byggt sem pósthús á íslandi," segir Þorgeir. „Hér hefur verið pósthús síðan. Húsið við Pósthús- stræti 3 er enn eldra og var upprunalega byggt sem barnaskóli og varð seinna lög- reglustöð áður en það varð svo hluti af pósthúsinu. Einu sinni var pósthúsið eina póstmiðstöðin á íslandi. Hér kom allur bréfapóstur, hvað- anæva af landinu og frá út- löndum, og var afgreiddur héðan. Nú erum við hins veg- ar hverfíspósthús fyrir svæði 101 eins og pósthúsið í Breið- holti er fyrir 109 og 111 og svo framvegis.“ Axel Sigurðsson, deildar- stjóri á R einum, hefur unnið í pósthúsinu í meira en fimmtíu ár. Þegar hann byrjaði þar var Hlíðahverfið austasta hverfi Reykjavíkur og tutt- ugu og einn bréfberi bar út allan póst Reykjavíkurbúa. Skólastrákur í póstinum „Ég held að ég hafi stigið hérna fyrst inn árið 1948. Þá var ég bara skólastrákur og bar út póst á sumrin. Það gerði ég svo öll mín skólaár,“ segir Axel. Hann segir að ým- islegt hafi breyst í starfsemi pósthússins síðan þá. „Þá var 21 bréfberi í Reykjavík og voru það allt karlmenn. Við vorum héma uppi á annarri hæðinni og þar var stór kringla með 21 hólfi sem við röðuðum póstinum í og í miðj- Jafnréttisnefnd gagn- rýnd fyrir tillögu um fæðingarorlof Ljósmynd/Björn Pálsson Börnin í Lundabóli fengu marga góða gesti þegar viðbygg- ingin við leikskólann þeirra var tekin í notkun. Nýtt og stærra Lundaból Gardabær GARÐBÆINGAR tóku í notkun viðbyggingu við leik- skólann Lundaból við Hofsst- aðabraut á föstudag. Leik- skólinn er nú tæplega tvöfalt stærri en áður. Kostnaður við framkvæmdirnar nam um 39 m.kr. Lundaból var upphaflega gæsluvöllur, sem hét Vörðu- völlur, og var í 111 fermetra verksmiðjuframleiddu tim- burhúsi. 1992 var honum breytt í einnar deildar leik- skóla. 1994 var tekin í notk- un 146 fermetra viðbygging og varð leikskólinn þá tveggja deilda. Nú hefur þriðja deildin bæst við því á föstudag var tekin í notkun 233 fermetra viðbygging með samkomusal og fullkomnu eldhúsi. Alls er hús leikskólans nú 491 fer- metri og þar dvelja allt að 60 börn samtímis á dcildunum þremur. Stöðugildi við leik- skólann eru 13,75. Arkitektarnir Pálmar Óla- son og Einar Ingimarsson hönnuðu viðbygginguna, Ragnhildur Skarphéðins- dóttir landslagsarkitekt hannaði lóð en Loftorka í Borgarnesi reisti húsið, sem er úr forsteyptum einingum og einangrað að utan með steyptri veðurkápu. Kópavogur MIKLAR umræður urðu um jafnréttismál á síðasta bæjar- ráðsfundi í Kópavogi. Meiri- hluti bæjarráðs hafnaði til- lögu jafnréttisnefndar bæj- arins um að Kópavogur fylgdi í kjölfar Hafnarfjarð- arbæjar og bætti nú þegar rétt starfsmanna sinna til fæðingarorlofs og bókaði að ekki væri ráðlegt að nefndir bæjarins flyttu tillögur af því tagi. Á fundi jafnréttisnefndar bæjarins þann 13. þessa mán- aðar var gerð einróma sam- þykkt þar sem nefndin fagn- aði þeirri ákvörðun bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar að tryggja starfsmönnum sínum laun í fæðingarorloii án tillits til þess hvaða stéttarfélagi þeir tilheyra. „Nefndin fagn- ar einnig þeirri ákvörðun Hafnfirðinga að auka og bæta rétt feðra til töku fæð- ingarorlofs. Hvort tveggja er mikilvægt skref í átt til jafn- réttis kynja. Nefndin minnir á að fyrir ríflega þrem árum hafði Reykjanesbær frum- kvæði að því að feður fengju tveggja vikna orlof á launum við fæðingu barns. I kjölfarið fylgdu aðrir aðilar og nú er réttur feðra til þessara tveggja vikna lögfestur. Jafn- réttisnefnd Kópavogs telur rétt að Kópavogsbær fylgi fordæmi Hafnfirðinga, auki rétt feðra til fæðingarorlofs um tvær vikur nú þegar og aðrar tvær 2001 og tryggi starfsmönnum sínum laun í fæðingarorlofi án tillits til þess hvaða stéttarfélagi þeh' tilheyra. Er þeim eindregnu tilmælum beint til bæjar- stjórnar Kópavogs að sam- þykkja þetta hið fyrsta," seg- ir í fundargerð þar sem fram kemur að tillagan hafi verið samþykkt einróma. Þegar fundargerð nefndar- innar kom til umræðu í bæj- arráði þann 16. mars urðu töluverðar umræður um jafn- réttismál, - bæði vegna þessa og uppsagnarbréfs jafnréttis- fulltrúa bæjarins. Varðandi fæðingarorlofs- málin óskaði meirihluti bæj- arráðs, Gunnar I. Birgisson, Sigurður Geirdal og Halla Halldórsdóttir, eftir að láta bóka að með tilliti til þess að nú stæði yfir gerð kjara- samnings sem launanefnd sveitarfélaga færi með af hálfu sveitarfélaganna teldi meirihlutinn ekki ráðlegt að nefndir gripu inn í einstaka þætti samninga með þeim hætti sem jafnréttisnefnd hefði gert með samþykkt sinni. „Meirihluti bæjarráðs leggur áherslu á að starfs- mannastjóri sem er jafn- framt deildarstjóri jafnréttis- mála sitji fundi nefndarinnar, henni til ráðgjafar," segir í bókun meirihlutans. Jafnréttisfulltrúi hættir Fundargerð bæjarráðs ber ekki með sér að minnihlutinn hafi látið fæðingarorlofsmál- in til sín taka en hins vegar gengu bókanir á víxl í um- ræðum um uppsögn Hafdísar Hansdóttur, jafnréttisráð- gjafa, sem sagði upp starfi sínu þann 29. febrúar sl. í fundargerð jafnréttis- nefndar lýsir nefndin yfir vónbrigðum með uppsögnina og þakkar jafnréttisráðgjaf- anum vel unnin störf. „Jafn- réttisnefnd mælir með að staðan verði auglýst sem allra fyrst. Jafnframt telja fulltrúar K-listans að þær ástæður sem fram komu á fundinum undirstriki mikil- vægi þess að staða jafnréttis- ráðgjafa verði fullt starf og að jafnréttisráðgjafinn heyri beint undir bæjarstjóra," segir í fundargerðinni. Á fundi bæjarráðs tóku fulltrúar Kópavogslista undir þessa bókun og meirihlutinn lét bóka þakkir og hlýlegar óskir til jafnréttisráðgjafans fyrir vel unnin störf. Minni- hlutinn bókaði aftur að upp- sögnin sýndi að væntingar jafnréttisfulltrúans til starfs- ins hefðu ekki ræst og meiri- hlutinn hefði ekki sýnt jafn- réttisáætluninni eða starfi fulltrúans áhuga. Meirihlutinn bókaði þá að nýju að ekkert í fundargerð né uppsagnarbréfi jafnréttis- fulltrúa renndi stoðum undir þessar fullyrðingar minni- hlutans og væri þessum full- yrðingum því vísað til föður- húsanna. Heitt í kolum Þessu næst fékk minni- hlutinn, Flosi Eiríksson og Kristín Jónsdóttir, gert fund- arhlé og lagði að því loknu fram eftirfarandi bókun sem ber með sér að heitt hafi ver- ið í kolum undir jafnréttisum- ræðunni: „öllum sem fylgjast með jafnréttismálum og skip- an þeirra í kringum okkur ætti að vera ljóst að til þeirra mikilvægu starfa veitir ekki af heilu stöðugildi. Uppsögn jafnréttisráðgjafa eftir stutt- an starfsferil undirstrikar nauðsyn þess að jafnréttis- málum sé gert hærra undir höfði og málaflokkurinn fái þá athygli sem þarf. Brand- arar og skætingur formanns bæjarráðs breyta því engu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.