Morgunblaðið - 22.03.2000, Page 19

Morgunblaðið - 22.03.2000, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 19 Listdans í skautahöllinni FYRSTA Iistdansmótið á skautum fdr fram í hinni nýju og glæsilegu skautahöll á Akureyri um síðustu helgi og eins og vera ber var mikið um dýrðir af því tilefni. Hér má sjá einn keppandann á mótinu, Audrey Freyju Clarke, sýna listir sínar og áhorfendur - sem eru fjölmargir - eru greinilega vel með á nótunum. Morgunblaðið/Björn Gíslason Héraðsdómur Norðurlands eystra Byssur og stokkendur gerðar upptækar TVEIR karlmenn hafa í Héraðs- dómi Norðurlands eystra verið dæmdir til greiðslu sektar auk þess sem haglabyssur þeirra voru gerðar upptækar og fjórar stokk- endur sem þeir skutu. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa í vörslu sinni ólögmæt vopn er þeir voru á ferð í Reykjahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu síðasta haust. Annar þeirra var ákærður fyrir að aka bifreið sem þeir voru á sviptur ökuréttindum. Þá var þeim einnig geíið að sök að hafa skotið fjórar stokkendur út um glugga bifreiðarinnar. Mennirnir viðurkenndu sakar- giftir og þótti sök þeirra nægilega sönnuð. Var öðrum þeirra gert að greiða 80 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs en hinum 25 þúsund krónur. Héraðsdómur Norðurlands eystra Sekt og ökuleyfismissir fyrir að aka dráttarvélinni drukkinn KARLMAÐUR á fertugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norður- lands eystra til að greiða sekt í ríkis- sjóð að upphæð 80 þúsund krónur auk þess sem hann var sviptur öku- rétti í eitt ár. Maðurinn var ákærður fyrir nytja- stuld og umferðarlagabrot með því að hafa í desember síðastliðnum ekið bifreið í heimildarleysi og undir áhrifum áfengis frá húsi á Dalvík eft- ir Ólafsfjarðaivegi þar til hann ók út af skammt frá afleggjaranum að bænum Hálsi í Dalvíkurbyggð. Þar var honum gefíð að sök að hafa ekið dráttarvél í heimildarleysi og undir áhrifum áfengis á bæjarhlaðinu þar til vélin festist í snjóskafli. Maðurinn viðurkenndi að hafa ek- ið dráttarvélinni en neitaði hins veg- ar að hafa tekið bifreiðina í leyfísleysi og ekið henni. Gegn neitun mannsins þótti ósannað að hann hefði ekið bif- reiðinni í umrætt sinn, en með játn- ingu hans varðandi dráttarvélarakst- urinn þótti brot hans nægilega sannað. Hann var því dæmdur til greiðslu sektar í ríkissjóð, greiðslu alls sakarkostnaðar sem og að sæta sviptingu ökuréttar í eitt ár. Akureyrar- kirkja - föstuvaka FÖSTUVAKA verður í Akureyrai’- kirkju í kvöld, miðvikudagskvöldið 22. mars, kl. 20. Sungið verður úr Passíusálmum Hallgríms Pétursson- ar, bæði í kórsöng og almennum söng og Kór Akureyrarkirkju syng- ur kórtónlist. Forsöngvari er Sveinn Arnar Sæmundsson, organisti og kórstjóri er Björn Steinar Sólbergs- son. Lesið verður úr ritningunni og Bernharð Haraldsson flytur hug- vekju. Prestur er sr. Svavar A. Jóns- son. Föstuvaka er nýbreytni í helgi- haldi kirkjunnar á föstunni og kemur í stað föstuguðsþjónustu sem haldn- ar hafa verið um árabil á miðviku- dagskvöldum á sjö vikna föstunni. Minni framleiðsla hjá Laxá í fyrra en árið áður Verðlækkun á fóðri og samdráttur í sölu FRAMLEIÐSLA Fóðurverksmiðj- unnar Laxár var heldur minni á liðnu ári en þar á undan eða um 3.100 tonn. Meginhluti framleiðslunnar var seldur innanlands en einnig var fóður flutt út til Færeyja, samtals 632 tonn, en ekki hefur verið selt þangað fóður í nokk- urn tíma. Þá var lítilsháttar selt til Danmerkur. A aðalfundi Fóðurverksmiðjunnar Laxár kom fram að velta fyrirtækisins á síðasta ári var um 220 milljónir króna og lækkaði um liðlega 22% milli ára. Tap varð af reglulegri starfsemi upp á um 12 milljónir króna, en félagið var gert upp með lítilsháttar hagnaði, 345 þúsund krónum. Arið á undan skilað fyrirtækið rám- lega tveggja milljóna króna hagnaði. Fram kom í skýrslu Valgerðar Krist- jánsdóttur framkvæmdastjóra að verð á fiskimjöli og lýsi hefði lækkað á síð- asta ári, fyrst í janúar um 4% og svo í lok apríl um 12% eða samtals um 16%. Lækkað verð á fóðri og samdráttur í sölu eru helstu ástæður þess að velta ársins varð minni en árið á undan. Þrátt fyrir að afkoma fyrirtækis- ins hafi ekki verið betri en raun ber vitni eru forsvarsmenn þess almennt bjartsýnir á framtíðina. Verð á laxi hefur haldist stöðugt en tók nokkum kipp um áramót og hækkaði og búist er við hærra verði á þessu ári. Fóður- verð er tiltölulega lágt þannig að gera má ráð fyrir að hagur eldis- manna vænkist. Nokkur eldisfyrir- tæki hyggja á stækkun og verið er að kanna grundvöll fyrir laxeldi í sjó í Eyjafírði og stefnt að 7-8000 tonna stöð. í áætlun fyrir þetta ár er gert ráð fyrir að selja um 4500 tonn af fóðri á árinu en óvíst nú hvort tekst að ná því marki. Færeyingar slátruðu meira af laxi í desember en ráð var fyrir gert og hafa þvi lítið keypt af fóðri nú í byrjun þessa árs og þá er norska fóð- urfyrirtækið Skretting að sækja inn á færeyska markaðinn þannig að samkeppni þar er afar hörð og verð lágt. Þrátt fyrir það eru forsvars- menn Laxár bjartsýnir og vona að hægt verði að selja þangað umtals- vert magn á næstu árum. Hamraborg, Kóp. — 3ja Falleg 3ja herb. íbúð á 8. hæð í lyftuhúsi. Laus fljótlega. Stæði í bílgeymslu. Agnar Gústafsson hrl., Eiríksgötu 4, s. 551 2600 og 552 1750. Geturðu sagt: ,Get ég aðstoðað? 500 sinnum á dag og meint það? Flugfreyjur/flugþjónar íslandsflug hf. óskar eftir að ráða flugfreyjur/flugþjóna til starfa sumarið 2000 á B-737 vélar félagsins. Umsækjendur þurfa að hafa náð 23 ára aldri, hafa stúdentspróf og tala a.m.k. 3 tungumál. Einstaklingar með reynslu af starfi flug- freyju/flugþjóns koma eingöngu til greina. Við- komandi þurfa að hafa þjónustulund og vera liprir í mannlegum samskiptum. Umsóknareyðublöð liggja frammi í móttöku skrifstofu íslandsflugs hf. við Reykja- víkurflugvöll og skal þeim skilað inn ásamt staðfestum prófskírteinum fyrir 31. mars n.k. til starfsmannastjóra félagsins. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. ISLANDSFLUG simi 570 8090 www.isiandsfiug.is g&rir fíeirum fært að fíjúga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.