Morgunblaðið - 22.03.2000, Side 45

Morgunblaðið - 22.03.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 4^ GÍSLI GÍSLASON + Gísli Gíslason fæddist á Brunn- gili í Bitrufirði á Ströndura 11. sept- ember 1908. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Hólmavík 10. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Borgarneskirkju 15. janúar. Það var langt á milli Bitru og Kollafjarðar á mínum uppvaxtarár- um, svo langt að kynni fólks, einnig hinna fullorðnu í þess- um nágrannasveitarfélögum voru afar takmörkuð. Minnist ég þess að eitt sinn kom hingað bóndi úr Bitru, sem kynnti sig fyrir föður mínum um leið og þeir heilsuðust. Það var ekki fyrr en unga fólkið tók til sinna ráða eftir að samgöngur voru orðn- ar viðunandi að þetta breyttist. Ekki er mér í minni hvar við Gísli sáumst fyrst. Ég hygg að ég hafi verið kominn um eða yfir tvítugs- aldurinn að fundum okkar bar sam- an. Líklega höfum við verið hjá ein- hverjum bóndanum þar sem hann var smiðurinn en ég einn af þeim sem færðu steypu í mót. Gísli lærði ungur húsasmíði á Hólmavík og vann mikið við smíðar aila tíð meðan heilsa og þrek leyfði. Ég hygg að meirihluti bygginga í Bitru frá þeim tíma þegar hann sinnti smíðum hvað mest beri hans handbragð. Hann var afar lagvirkur og með ólíkindum fljótur að átta sig á öllu þar sem hann kom á byggingarstað þótt einhverjir hefðu farið á undan með einhvern undirbúning eða haíið byggingai’starfið. All- ur reikningur og töl- fræði lá ljós fyrir hon- um, þar var ekki legið lengi yfir teikningum og blöð sáust hygg ég ekki með útreikning- um hans og kroti eins og hjá mörgum er á eftir komu. Gisli var hvorki hár maður né þrekvaxinn en afköstum hans hygg ég að enginn maður muni nokkru sinni ná. Þar sem langt var á milli heimila okkar sá ég hann ekki oft og nær aldrei við störf á eigin heimili. Þeir sem næstir honum bjuggu sögðu oft frá alveg ótrúlegum af- köstum hans þegar hann vann að byggingarframkvæmdum á eigin jörð. Varla hefur svefntíminn þá alltaf verið langur frekar en þar sem hann var í vinnu fjarri heimili sínu. Ég minnist atviks úr mínu næsta nágrenni þegar Gísli vann þar að fjárhúsbyggingu. Bóndinn sá hafði ekkert sérstakt orð á sér fyrir að vera morgunsvæfur, engu að síður sat Gísli við eldhúsborðið þegar bóndinn kom niður um morguninn. Hafði hann þá komið gangandi yfir Bitruháls og farið þveran Kolla- fjörðinn að Steinadal og vinna að sjálfsögðu hafin strax og morgun- sopinn hafði verið drukkinn. Gísli hafði einstakt lag á að virkja krafta unglinga, ekki síst aðkomuunglinga, sem oft voru á sveitabæjum fyrr á árum. Sæi hann einhvern sem lítið hafði fyrir stafni kallaði hann við- komandi til sín og fékk hann í verk með sér og varð ég aldrei var við annað en að hinu unga fólki væri ljúft að leggja honum lið, enda mað- urinn einstakt prúðmenni og öllum hlýr. Gísli var áhugasamur um bú- skap og unni landi og og bústofni og hann uppskar laun erfiðis síns. Ég tel að hann hafi verið efnamaður en þó alltaf afar sanngjarn í öllum við- skiptum. Hann bjó yfir mikilli þekk- ingu án teljandi skólagöngu og gæfumaður var hann án minnstu til- sagnar sérfræðinga. Gamansemi og hlýleiki voru einkennandi þættir í fari hans og framkomu. Heimili þeirra Birgittu Stefánsdóttur var einkar fallegt og snyrtimennska bæði utan húss og innan nánast í sérflokki þrátt fyrir margvísleg bú- umsvif. Þau eignuðust fjögur börn, mikið efnisfólk. Aldrei mun nokkur manneskja nokkurn tíma öðlast göf- ugri vitnisburð en þann að börn hennar mæti af styrk lífsins and- streymi. Af gulnuðum blöðum fæ ég séð að þessi maður smíðaði hinsta hvílu- rúm föðurömmu minnar, sem lést 1936. Ég er sannfærður um að vel hefur farið um hana og hún notið góðra handaverka þessa hagleiks- manns. Því góður hugur fylgdi hverju hans verki og allt sem hann gerði vann hann vel. Ég er þakklát- ur fyrir að hafa kynnst þessum sér- stæða og góða manni, sem Guð hef- ur nú tekið til sín að loknu löngu og farsælu ævistarfi. Aðstandendum hans óska ég alls góðs. Guðfinnur Finnbogason. GUÐBJORG (STELLA) ARNÓRSDÓTTIR + Guðbjörg Arn- órsdóttir fæddist á fsafirði 6. desem- ber 1937. Hún lést á heimili sínu 7. mars síðastliðinn og fór útfór hennar fram frá Kópavogskirkju 15. mars. Það er erfitt að trúa því að þú sért farinn frá okkur, elsku systir mín og mágkona. En það verða alltaf góðar og skemmilegar minningar í hjörtum okkar um þig. Alla tíð hefur þú, Stella systir, ver- ið okkur fjölskyldunni kær og heim- sóknir þínar í Alfheimana voru engu líkar. Þú varst ein af fjölskyldu okkar, komst við við hjá okkur eftir vinnu og við spjölluðum saman um heima og geima og það var hlegið mikið, því það ríkti alltaf mikil gleði í kringum þig, hvar sem þú komst. Börnin okk- ar og barnabörn dýrkuðu þig og fannst alltaf gaman þegar Stella frænka kom í heimsókn þegar þau voru hjá okkur. Og enn jukust sam- skipti okkar á seinni árum þegar við hjónin festum kaup á sumarbústað í Miðdal sem er skammt frá ykkar glæsilega bústað í Úthlíð, þar sem þið voruð öllum stundum sem þið gátuð. Við keyrðum oft á milli bústaða, sem tók ekki langan tíma stundum vai- stutt stopp og stundum gist. Það er sorglegt, elsku Stella, að geta ekki eytt árunum okkar saman í sumar- bústöðunum okkar eins og við töluð- um svo oft um. En við þökkum með hlýhug þann tíma sem við áttum saman. Takk fyr- ir allt og allt. Þér, kæri Þórarinn, börnum, tengdabörnum og barnabörnum vottum við okkar innilegustu samúð. Megi góður Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Júlíus og Herdís. Elsku Stella. Ég trúi þessu ekki ennþá að þú skulir vera farin, samt lá það svo ljóst fyrir að það yrði þannig, þar sem þú varst svo veik. Ég heimsótti þig ekki á sjúkrabeðinn, vegna þess að ég treysti mér ekki til að horfa á þig svo veika, vildi heldur muna Stellu mína eins og hún var fyrir veikindin. Þegar ég hugsa um þig heyri ég alltaf hlát- urinn þinn skemmti- lega og svo orðin sem þú sagðir þeg- ar á þig var yrt „ Já elska“ það verður hræðilega tómlegt á næsta ættar- móti, sem vera á í júlí nk. engin Stejla, alveg óhugsandi. Ég þakka allt og allt, elsku frænka. Elsku Þórarinn, Hilmar, Jakob, Þórarinn, Már og fjölskylda, megi Guð gefa ykkur styrk við þennan mikla missi. Hvíl í friði, Stella mín, og Guð geymi þig, elska. Þín frænka Kristín Gyða. Okkur langar að minnast Stellu með nokkrum orðum. Fyrir mörg- um árum unnum við á gæsluvelli við Hlégerði í Kópavogi. Stella starfaði þar einnig með okkur, ásamt fleirum seinni árin því Stella vann á þessum gæsluvelli um 30 ára skeið eða lengur. Stella var mjög vinsæll starfskraftur og seinna meir var farið að kalla völlinn „Stelluróló“ og upp frá því hélt hann því nafni. „Komum á Stellu- róló,“ sögðu börnin. Og Stella vann þar alveg þangað til veikindi höml- uðu vinnugetu hennar. Bæði börn og fullorðnir dáðu Stellu og treystu á hana. Hið ljúfa og góða skap hennar gerði það að verkum. Og þarna stóð Stella eins og klettur. Eftir að við hinar fluttum úr vest- m-bænum í Kópavogi slitnaði sam- bandið og eftir sitja minningar um góða konu sem alltaf var tilbúin að gleðja aðra bæði böi'n og fullorðna. Börnin í vesturbæ Kópavogs munu sakna Stellu en eiga ljúfar minningar um hana. Sárastur er þó söknuðurinn hjá eiginmanni og börnum og vottum við fjölskyldunni allar okkar samúð. Guð styrki þau öll. Nú leggégaugunaftur Ó, Guð þinn náðarkraftur mínverþvömínótt. Æ,virstmigaðþértaka méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinböm Egilsson.) Svala, Valborg og Sveinbjörg. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Utfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Einarsson M Sverrir Frederiksen útfararstjóri. MWtHí Olsen M útfararstjóri. I h Aljj s/m/ 896 8242 útfararstjóri. pf,J JjPj s/m/ 895 9199 Útfararstofa ísiands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, ÞÓRA BJ. TIMMERMANN fyrrv. aðalgjaldkeri Pósts og sima, áður til heimilis í Efstaleiti 14 í Reykjavík, lést ó hjúkrunarheimilinu Skógarbee mánu- daginn 20. mars sl. Björk Timmermann, Andrés Svanbjörnsson, Frímann Andrésson, Markúr Þór Andrésson, Friðrikka Bjarnadóttir. t Hjartkaer bróðir minn og frændi okkar, HELGI ANTON GUÐFINNSSON frá Baldurshaga, Borgarfirði eystra, andaðist á Hrafnistu Reykjavík sunnudaginn 19. mars. Kveðjuathöfn verður í Áskirkju í dag, miðviku- daginn 22. mars, kl. 13.00. Útförin auglýst síðar. Halldór Guðfinnsson og systkinabörn hins látna. t Fósturmóðir mín, amma okkar og langamma, RAGNHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR frá Þóreyjarnúpi, er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Nína Björk Árnadóttir, Ari Gísli Bragason, Valgarður Bragason, Ragnar ísleifur Bragason, Ragnheiður Björk Aradóttir. t Elskuleg móðir okkar, GUÐNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR W:'í « w frá Bíldudal, ■Æ .. lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 20. mars. / - Fyrir hönd aðstandenda, M Börn hinnar látnu. Æ t Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, ÞÓRUNN RAGNA TÓMASDÓTTIR, Kleppsvegi 106, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 18. mars sl. Ólafia Guðbjörnsdóttir, Ólafía Kr. Sigurðardóttir, Lúðvík R. Kemp, Jónína G. Sigurðardóttir, Witek Bogdanski, Björn Tómas Sigurðsson, Rúnar Gunnarsson, Guðmundur Tómasson, Elsa Elíasdóttir, Sigurður Tómasson, Kristbjörg Þórarinsdóttir og barnabörn. t Utför EINARS PÉTURSSONAR fyrrv. bónda á Arnhólsstöðum, fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 25. mars kl. 14.00. Jarðsett verður í Þingmúlakirkjugarði. Guðrún Einarsdóttir, Pétur Guðvarðarson, Ingibjörg Einarsdóttir, Hreinn Guðvarðarson, Erla Sólveig Einarsdóttir, Karl Guðbjartsson, Örn Sigurður Einarsson, Matthildur Þorbjörg Gunnarsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.