Morgunblaðið - 22.03.2000, Page 46

Morgunblaðið - 22.03.2000, Page 46
<46 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓN GUNNAR - GUNNARSSON + Jón Gunnar Gunnarsson fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1984. Hann lést 2. mars síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Grafarvogs- kirkju 10. mars. Mér þótti mjög vænt um hve Jón Gunnar var tilbúinn að verða vinur '«iinn, þó ég þekkti hann ekki vel í fyrstu. Við byrjuðum að tala sam- an síðasta sumar og urðum svo enn betri vinir með tímanum. Við töluðum mik- ið saman á opnum húsum í félagsmið- stöðinni og í síma. Þegar ég hugsa til baka finnst mér einkenna Jóga hvað hann var skilningsríkur, opinskár, glaðvær og skemmtilegur. Eg mun alltaf muna góðu stundirnar sem við áttum saman. Mér þótti mjög vænt um þig og ég mun alltaf sakna þín elsku Jógi. Eva Hlín Samúelsdóttir. . Elsku Jógi okkar. Það var svo margt sem við ætluð- um að gera í sameiningu, við í 10. bekk í Hamraskóla. Núna er komið stórt skarð í hópinn, það vantar þig. Þú varst alltaf svo pottþéttur og til- búinn að redda málunum þegar við hin vorum ráðalaus. Líkt og á „Date- ballinu“ í 9.bekk. Græjumar í rústi, allir orðnir pirraðir og þreyttir, þar til þú stóðst upp, lagaðir græjurnar og komst öllum í stuð. Önnur góð minning; Skrekkm* ’98 og ’99. Þai- varst þú í essinu þínu að gera það sem þér þótti semmtilegast ásamt vinum þínum, að „breika“. Þú varst alltaf tíman- lega t.d. þegar þú beiðst fyrir utan skóla kl. sjö um morguninn til þess að mæta á æfingu fyrir Skrekk. Við sem höfð- um fyrirskipað þessa æfingu lágum heima sofandi. Þetta lýsti þér best. Það er ótrúlegt að við eigum aldrei eftir að sjá þig aftur í gulu peysunni með gulu derhúfuna. Við söknum þín og munum alltaf gera. Við þökkum þér, Jógi, fyrir sam- fylgdina og kynnin sem urðu allt of stutt. Núleggégaugunaftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mínverivömínótt. Æ, virst mig að þér taka, méryiirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S.Egilsson) Við biðjum Guð að styrkja fjöl- skyldu Jóns Gunnars og ættingja í þessari miklu sorg. Fyrir hönd nemenda 10. bekkja. Hamraskóla; Sunna, Fanney, Ásta, Björg, Ema, Bára og Berglind Eygló. + Jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEINUNNAR GISSURARDÓTTUR, Naustahlein 9, Garðabæ, fer fram frá Fossvogskapellu laugardaginn 25. mars kl. 10.30. Jarðsett verður að Skarði í Landsveit sama dag kl. 15.00. Jón Guðmundsson, Marinella R. Haraldsdóttir, Þórir Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐBJARGAR ARNÓRSDÓTTUR, Stellu. Þórarinn Jakobsson, Hilmar Ægir Þórarinsson, Elín Birna Guðmundsdóttir, Jakob Þórarinsson, Svandís ívarsdóttir, Þórarinn Þórarinsson, Helen Viggósdóttir, Már Þórarinsson, Ester Gunnsteinsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andiát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS ÁRNASONAR skólastjóra, Skeiðarvogi 125, Reykjavík. Þórhildur Halldórsdóttir, Halldór Jónsson, Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Trausti Leifsson, ’ afabörn og langafabarn. Elsku Jón Gunnar frændi, þú þessi dagfarsprúði drengur með ljúfa skap- ið og brosið bjai'ta ert allur, ég er orð- laus og hryggur og mér dettur ekkert í hug annað en þessi tregaríma eftir Jakob Jóh. Smára: Eftir genginn góðan dreng gráturþrengirróm. Heyrir lengi í hjartans streng harmafenginn óm. Eg bið góðan Guð að varðveita foreldra þína og systkini. Einar Stígsson. Elsku Jógi minn. Af hverju þú? Þú varst svo klár og duglegur strákur. Þú hafðir alltaf hugmyndir um eitt- hvað skemmtilegt tU þess að gera. Varst ávallt í góðu skapi. Varst alltaf brosandi og komst öllum í gott skap með þér. Það var alltaf fjör í kring um þig einsog t.d þegar ég fór með þér í partí komst þú með bassaboxið þitt með til þess að halda uppi fjörinu. Það var svo rosalega gaman að horfa á þig „breika“ því þú varst svo rosalega góður og varst alltaf að reyna að kenna mér en hlóst svo þegar ég reyndi og gat ekki neitt. Svo fórum við einu sinni upp á Faxaskála á línu- skautum. Þú varst að kenna mér á lín- uskautana sem við vorum nýbúin að kaupa handa mér. Svo var ég næstum því dottin og þú ætlaðir að grípa mig en í staðinn dastu með mig og við hlógum alveg einsog vitleysingar þar sem við lágum í götunni. Það var svo gaman. Ég vU að þú vitir svo innilega hve vænt mér þótti um þig og hve æð- islegur kærasti þú varst. Þú sýndir mér aUtaf tillitssemi, ást og hlýju. AU- ir vissu hvað samband okkar var gott og það lifði líka vel. Þú varst alltaf svo umhyggjusamur og góður strákur. Það voru engir töffarastælar í þér. Og að sjá þig með honum Bjarka Hrafni, litla bróður þínum, var alveg frábært. Þú varst svo barngóður. Þú hefðir orðið æðislegur faðir og eiginmaður. Vonandi færðu annað líf þar sem þú getur unnið úr vandamáli þínu sem kom upp og hafði þessar afleiðingar. Ég man að þegar ég var þunglynd og var að þvi komin að fremja sjálfsmorð bað ég þig og marga aðra um hjálp með hegðun minni. Ég var lögð inn á Dalbraut og þú studdir mig mikið á þeim tíma á meðan ég var þar og ég hætti ég við að deyja, sá að það er svo margt jákvætt í líftnu sem ég bara hreinlega sá ekki. Ég sá bara allt svart þangað til mér var hjálpað. Ég hefði viljað hjálpa þér hka og styðja eins og þú gerðir fyrir mig. Ávallt tal- aðir þú vel um alla í kringum þig. Allavega heyrði ég aldrei neitt annað írá þér. Þú, elsku Jógi minn, svo hjartahlýr drengur og svo myndar- legui' enda hrifust margar stelpur af þér og þú áttir meira en fullt af vin- um. Fjölskyldan þín má vera rosalega stolt af þér. Þú talaðir alltaf vel um hana sem er frekar ólíkt unglingum, maður er alltaf fúll út í annaðhvort mömmu eða pabba og blótar þeim í sand og ösku en það gerðir þú ekki. Ef þú varst ósáttur við eitthvað heima talaðir þú við foreldra þína og þið funduð sameiginlega lausn sem allir voru sáttir við. Ég var alveg í sjokki þegar ég frétti um andlát þitt. Þú varst hluti af mér, hluti af lífi mínu. En mér fannst gott að sjá hve margir komu í útfor þína og vita hve mörgum þótti vænt um þig og stóð alls ekki á sama. Vonandi varstu við- staddur og sást allt þetta fólk sem lét tárin falla allan tímann. Allt þetta fólk, ungir sem aldnir, munu muna eftir þér og sakna þín, Jógi minn. Þú lifir enn í okkur öllum. Elsku Gunnar, Jónína, Þóranna og JÓN ÁRNASON + Jón Árnason fæddist í Stykkis- hólmi 23. desember 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 8. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Lang- holtskirkju 16. mars. Jón Árnason, kenn- ari og síðar skólastjóri, hefur kvatt þessa jarð- vist. Þegar bekkjar- systkini sem tóku sam- an fullnaðarpróf fyrir liðlega 40 árum árum frá Langholtsskóla í Reykjavík líta nú um öxl, teljast það óumdeilanlega forréttindi að hafa notið handleiðslu Jóns Amasonar sem kennara. Jón var fæddur í Stykkishólmi og ég man ekki betur en hann hafi verið ákaf- lega stoltur af því, talið það ákveðin forréttindi að vera Hólmari. Fyrstu fimm ár bamaskólagöngunnar nut- um við handleiðslu eiginkonu Jóns, Þórhildar Halldórsdóttur, góðs kenn- ara sem hafði aldeilis frábæra rit- hönd, og mér er það til efs að við hefð- um getað verið heppnari en að fá Jón sem kennara þegar Þórhildur hætti að kenna okkur. Það er heldur ekkert venjulegt að hjón starfí saman sem kennarar við sama skóla í árarað- ir með eins miklum ágætum og þau Jón og Þórhildur. Jón Árnason var góður kennari og hélt uppi góðum aga í 12 ára Á í stofu 7 að því er virtist án þess að hafa mikið fyrir því, það var honum í blóð borið. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt ef að lík- um lætur og hann var einstaklega þolinmóður við þá sem t.d. ekkert gátu teiknað, eins og undirritaður. Bekkurinn fór í skólaferðalag vorið sem hópurinn útskrifaðist frá Lang- holtsskóla og var faiið vestur á Snæ- fellsnes og gist á Hellissandi. Þar fundu höfuðborgarbörnin lúðra í kössum uppi í staur og auðvitað var tekið til óspilltra málanna að blása í lúðrana. Þetta reyndust vera brana- lúðrar og þá reyndi svo sannarlega á þolinmæði Jóns og manngæsku að leysa úr þeim hremmingum sem þessi óstýrláti hópur var búinn að koma sér í. Sumum fannst Jón stund- um svolítið þurr á manninn en hann var hins vegar alveg einstakur sátta- + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR BOGADÓTTUR, Skálarhlíð, Siglufirði, áður til heimílis á Hólavegi 38. Theodór Þráinn Bogason, Birna Berg, Sigurlína Káradóttir, Hreinn Júiíusson, Hjördís Káradóttir, Stefán Björnsson, Höskuldur Rafn Kárason, Sigurleif Guðfinnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Bjarki Hrafn. Ég samhryggist ykkur alveg rosalega. Hann var svo æðisleg- ur og mér eins og ykkur þótti rosa- lega vænt um hann og elskaði. En við komumst yfir þetta saman. Við styðj- um öll við bakið hvert á öðra og leyf- um Jóga að lifa áfi'am innra með okk- ur, á myndum á heimilum okkai', höfum hluti sem hann átti í kringum okkur og svo höfum við auðvitað allar góðu minningarnar um hann. Munið að ég og allir vinir hans og fjölskylda styðjum við bakið á ykkur. Þið fáið alla þá umhyggju og stuðning sem þið viljið, hann fáið þið svo sannarlega. Bless, elsku Jógi minn. Mundu mig - ég man þig að eilífu. Þín Helga Margrét úr Bökkunum. Ég kynntist Jóni Gunnari sl. sumar og enn betur í haust þegar við hófum störf í nemendaráði skólans. Við urð- um góðir vinir og eyddum mörgum kvöldum saman við spjall eða horfa á videóspólur. Það var einstaklega gott að tala við Jóga, hann hlustaði vel og það var hægt að segja honum allt sem manni lá á hjarta. Hann var orðinn einn af mínum bestu vinum og ég hans. Hann sagði við mig að það mik- ilvægasta í lífinu væri að eiga góðan vin sem hægt væri að tala við þegar eitthvað amaði að. Hann var þannig strákur sem ég mundi lýsa sem hamingjusömum, glöðum, góðum og yndislegum. Hann var vanur að hlæja að svo mörgum fáránlegum og hallærislegum hlut- um. Það fékk mig til að hlæja líka og gerir enn þegar ég hugsa aftur um þessar stundir sem við áttum saman. Hann var sannur vinur í raun og er það enn í hjörtum okkar. Með sökn- uði. Björg Þorkelsddttir. semjari og hafði sérstakt lag á að leysa úr vanda allra sem í bekknum vora sem var ansi mislit hjörð. Það var auðvitað sitt lítið af hverju á þess- um áram þegar svo margt er að brjótast um í hugum okkar. Okkur nemendum þeirra var held- ur ekki í kot vísað þegar við áttum eða gerðum okkur erindi á heimili þeirra í Efstasundi 45. Það er ekki víst að ungir kennarar í dag taki því með eins miklu jafnaðargeði og þau Jón og Þórhildur gerðu þegar bankað var upp á af nemendum, stundum af litlu tilefni, ef þá nokkru. En enginn fór bónleiður til búðar. Þegar 25 ár vora liðin frá því hóp- urinn útskrifaðist, árið 1984, kom þessi bekkur, sem svo lengi átti sam- leið á skólabekk, saman og átti ánægjulega kvöldstund, og auðvitað liti þau Jón og Þórhildur við, raunar ekki annað hægt, svo samofin vora þau minningum þessa hóps frá barnaskólaáranum. Að skilnaði var talað um að hópurinn kæmi aftur saman þegar hálf öld væri liðin frá vorinu 1959, þ.e. árið 2009. Ég er sannfærður um að Jón verður með okkur í huganum þegar þar að kem- ur. Nemendur 12 ára A sem Jón Árna- son útskrifaði vorið 1959 í glampandi sólskini minnast hans með þakklæti og virðingu. Hann lagði sitt af mörk- um til þess veganestis sem okkur öll- um var nauðsyn á umbrotatímum í lífi okkar og þjóðfélagsins. Það er svo gott að átta sig á þeim staðreyndum og meta að verðleikum nú þegar mað- ur kemst sjálfur yfir miðjan aldur. Kæra Þórhildur, þessi ár í Lang- holtsskóla undir handleiðslu ykkar Jóns eru ómetanleg. Það ber að þakka. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til þín, barna ykkar og ann- arra afkomenda. Blessuð sé minning Jóns Árnasonai'. F.h. 12 ára A veturinn 1958 til 1959, Geir Guðsteinsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á net- fang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Pað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.