Morgunblaðið - 22.03.2000, Page 53

Morgunblaðið - 22.03.2000, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 BRÉF TIL BLAÐSINS Klám og hmgn- un siðgæðis Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur: EG TRÚI því varla að ég sé ein um það að ofbjóða hið gegndarlausa auglýsingaflóð, sem finna má og nú einnig heyi’a, og tilheyrir tiltölulega nýtilkomnum kynlífsiðnaði hér á landi. Afstaða Morgunblaðsins gagn- vart lesendum sínum er tilkynnt var á sínum tíma er til vitnis um vitund stjórnenda blaðsins um það atriði að misbjóða ekki siðgæðisvitund les- enda sinna. Að því er ég best veit hafa afskaplega fáir aðrir látið sig varða siðgæðisvitund almennings með afgerandi hætti, svo fáir að undrum sætir. Flestir virðast fljóta með sofandi að feigðarósi, undir formerkjum hins óhefta frelsis og markaðshyggju. Er fólki alveg sama um siðgæðisvitund barna sinna í þessu sambandi? Þarf ekki að veita einhvers konar við- spyrnu við þessa tegund af þjónkun við hinar lægri hvatir mannsins í slíku magni sem raun ber vitni. Nektardansstaðir spretta upp eins og gorkúlur, með leyfi yfirvalda. Þarf ekki að fara að hóa saman í einhvers konar siðgæðisnefnd er hefði það hlutverk með höndum að stuðla að aukinni siðgæðisvitund al- mennings, og ef til vill væri það skárra að aðeins afmarkaður hluti höfuðborgarinnar utan íbúðarhverfa fengi leyfi til reksturs slíkra staða. Raunin er sú að þótt ráð og nefndir geti skilað tilgangi þá eru það fyrst og fremst við sjálf sem þurfum að mynda okkur skoðun í okkar nánasta umhverfí. Ástarlækningar gegnum síma Satt best að segja er það stór- hlægilegt að ekki skuli mega auglýsa bjór, meðan drekkja má almenningi í klámkjaftæði. Ekki þar fyrir að bjór- eða áfengisauglýsingar séu af hinu góða, þvert á móti. Nýjungagirni okkar íslendinga er nefnilega lítil takmörk sett, líkt og venjulega og hræðslan við að skera sig úr sökum þess að hafa skoðun er nokkuð ríkj- andi. Sér einhver fyrir sér ferming- arbörnin í runum með GSM-símann, hlustandi á heita mey stynja mis- munandi háum stunum? Getur það verið að það taki því ekki lengur að finna sér maka og festa ráð sitt, held- ur hægt að hanga á glóðheitum síma- línum í staðinn eða sitja á nektar- búllum? Mér er einnig sagt að útvarpsmaður einn sem kennir sig við ástarlækni lýsi allra handa kyn- ferðislegum athöfnum í útvarpi, þar sem aðferðum samkynhneigðra við iðkun síns ástalífs er lýst út í ystu æsar. Sami maður er vinsæl popp- stjarna og hver man ekki þegar unglingar í eina tíð brutu í sér fram- tönn til þess að líkjast poppstjörnu. Eru unglingar í dag eitthvað öðru vísi? Sennilega ekki, en fyrirmynd- imar hafa breyst. Klámofbeldi alls staðar Ég er án efa ekki ein um það að hafa hneykslast í langan tíma yfir magni kláms sem birtist ljóst og leynt hér og þar í samfélaginu. Sjálf sá ég ekki mynd Sigursteins Más- sonar, en hann er greinilega snilling- ur að hitta á réttu punktana hjá okk- ar þjóð, miðað við umræðu fólks í kjölfarið. Þótt það sé afstætt að til þess skuli þurfa að koma að afhjúpa óþverrann í allri sinni mynd til þess að vekja vitund almennings þá má segja að við lifum einfaldlega á þeim tímum. Vonandi vaknar siðgæðisvit- und þeiwa er hafa með mál þessi að gera og ausa yfir okkur klámkjaft- æði í formi sölumennsku einhvers konar dag eftir dag. Hvers vegna inniheldur sérstök sjónvarpsrás bæði íþróttir og klámmyndir? Æði margir sem ég ræði við furða sig nokkuð á þeim ráðstöfun. Umræða og umfjöllun um kynlífshjálpartæki til handa ófötluðu fólki, er einnig eitthvað sem er að mínum dómi óþarft, því hvar er ástalíf vort ef vél- mennska tekur við af hugsun. Ásókn eftir vindi er allt það brölt og sá pen- ingaaustur sem farið hefur í þjónkun við þessar lægstu hvatir mannsins, sem aðeins eiga að birtast og dvelja innan veggja heimilisins, inni í svefn- herbergi milli karls og konu sem kjósa að búa saman, eða hinna sam- kynhneigðu ellegar. Frelsið er ynd- islegt en snýst í andhverfu sína ef þess finnast ekki mörk. Sjálf bind ég vonir við kvenlegt innsæi í fjölgun kvenna á æðstu stöð- um, að þær láti mál þessi til sín taka, hið fyrsta. Samstillt átak dóms- og kirkjumálaráðherra, heilbrigðisráð- herra, viðskiptaráðherra og borgar- stjói-ans í Reykjavík, kynni að vera upphaf að siðbótaátaki með kven- legu innsæi. GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, húsmóðir, Herjólfsgötu 18, Hafnarfirði. (BIODROGA^ Snyrtivörur Q-10 húðkremið li Greiðslukerfi banka KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 http://www.kerfisthroun.is/ abinnréttingar i miklu úrvali Friform HÁTÚNI 6A (í húsn. Fönix) SlMI: 552 4420 51. STJORIUMÁLASKÓLI SJÁLFSTÆÐISFLOKICSINS Helgarslcóli 24. og 25. mars DAGSKRÁ: Föstudagur 24. mars: kl. 17.00-17.15 Skólasetning: Árni Johnsen, alþingismaður. kl. 17.15-19.00 Samgöngu- og byggðamál: Árni Johnsen, alþingismaður. kl. 20.00-21.30 Ræðumennska og fundarsköp: Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, forseti bæjarstjórnar. kl. 21.45-23.00 Greina- og fréttaskrif: Einar Sigurðsson, nemi HÍ. (blaðam. DV). Laugardagur 25. mars: kl. 09.30-10.45 Sjávarútvegsmál: Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðvanna. kl. 10.45-12.00 Menntamál: Jóhanna María Eyjólfsdóttir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra. kl. 13.00-14.15 Sjálfstæðisstefnan og Sjálfstæðisflokkurinn: Drífa Hjartardóttir, alþingismaður. kl. 14.15-15.30 Upplýsinga- og fjarskiptamál: Árni Sigfússon.framkvæmdastjóri. kl. 15.45-17.00 Sveitarstjórnarmál: Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri. kl. 17.00 Skólaslit: Árni Johnsen, alþingismaður. 24., 25. og 26. mars DAGSKRÁ: Föstudagur 24. mars: kl. 17.00-17.15 Skólasetning: Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður. kl. 17.15-19.00 Jafnréttismál: Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður. kl. 20.00-21.15 Ræðutækni: Guðlaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri. kl. 21.15-22.30 Upplýsingamál: Gunnar Vignisson, framkvæmdastjóri. Laugardagur 25. mars: kl. 10.00-12.00 Byggða-, ferða- og samgöngumál: Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður og Halldór Blöndal, forseti Alþingis kl. 13.00-14.15 Ræðutækni: Jónas Þór Jóhannsson, sveitastjóri kl. 14.15-15.30 Menntamál: Sigríður A. Þórðardóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna. kl. 15.30-16.45 Greina- og fréttaskrif: Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna. kl. 16.45-18.00 Sveitarstjórnarmál: Helgi Halldórsson, skólastjóri. Sunnudagur 25. mars: kl. 10:00-12.00 Ræðutækni: Einar Rafn Haraldsson.framkvæmdastjóri kl. 13.00-14.15 Utanríkismál: Tómas Ingi Olrich, alþingismaður kl. 14.15-15.00 Sjálfstæðisstefnan og Sjálfstæðisflokkurinn: Halldór Blöndal, forseti Alþingis kl. 15.00-17.00 Skólaslit: Halldór Blöndal, forseti Alþingis SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN wwwf.xd.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.