Morgunblaðið - 22.03.2000, Side 57

Morgunblaðið - 22.03.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2000 57* FÓLK í FRÉTTUM Bjarni Ara tók lagið í Las Vegas Goðsagnir frá Las Vegas í Bíóborginni VIÐ MEGUM eiga von á nokkrum bflslysum eða hálsrígum í höfuð- borginni í næstu viku því von er á tví- förum nokkurra erlendra goðsagna til landsins. Það eru lifandi eftir- myndir Michaels Jacksons, Toms Jones, Madonnu, Eltons Johns, Elv- is Presleys, Tinu Turner og Whitney Houston. Það mun reyndar vera sama konan sem mun vera tvífari Tinu og Whitney. Tvífarar þessir ætla að troða upp í svokallaðri „goð- sagnasýningu" sem byrjar í Bíóborg- inni á fimmtudaginn næsta, hinn 30. mars. Listamennirnir hafa það sér- kennilega starf að „ganga í skrokk" þessara listamanna á hverju kvöldi en sýning þessi er innflutt frá Las Vegas af guðföður íslenska bíóbrans- ans, Árna Samúelssyni. Með tvíför- unum koma hingað hljómsveitar- meðlimir sem kunna að klæða hljóð- færi sín í annarra búning og dans- arar sem kunna öll réttu sporin. Tvífararnir eru ekki einungis líkir stjörnunum í útliti því þeir sérhæfa sig í að ná réttum raddblæ og hreyf- ingum þeiira. „Þeir eru bara alveg eins,“ fullyrð- ir Árni aðspurður hvort tvífararnir skili sínum hlutverkum vel. „Ég er búinn að sjá þessa sýningu, „Leg- ends in Concert", fjórum sinnum í Las Vegas og hún er einfaldlega ein sú kröftugasta sem ég hef séð.“ John Stuart, framleiðandi sýning- arinnar, ætlaði sér upphaflega að sýna hana í sex vikur en í dag, sextán árum seinna, er hún ennþá sýnd á hverju kvöldi fyrir fullu húsi í sýn- ingarsal Imperial Palace-hótelsins í Las Vegas. Hún er í anda þeirrar sýningahefðar sem er hvað vinsælust í borg ljósaskilta og fjárhættuspila. Bítlarnir væntanlegir „Okkur langar til að nota Bíóborg- ina meira undir „lifandi" skemmti- efni. Salurinn er einn sá besti á land- inu fyrir tónleikahald og ekki er verra að fá hingað sýningar frá Las Vegas,“ segir Arni með aðdáunartón. Það er greinilegt að Árna líður vel í þeim bæ. „Ég var þar fýrir tíu dög- um en ég fer þangað tvisvar á ári. Stoppa í 2-3 daga hverju sinni. Þetta er þrælmerkileg borg, skjótvaxnasta stórborg í heimi. Þegar ég kom þangað fyrst bjuggu þar tvö hundruð þúsund manns, nú er íbúafjöldinn Stytturnar fundnar! ÞAÐ fór skjálfti um aðstandendur óskarsverðlaunahátíðarinnar um helgina er uppgötvaðist að öllum verðlaunastyttunum hafði verið stolið af hafnarbakkanum í Los Angeles. En nú geta allir andað létt- ar því stytturnar eru komnar í ljós! Stytturnar sem eru 55 talsins í ár komu þó ekki allar í ljós og er enn tveggja þeirra sárt saknað. Það var rúmlega sextugur maður sem fann stytturnar í ruslagámi og kom þeim til lögreglunnar. „Ég hef fengið í hendurnar fleiri óskarsverðlaun en nokkur kvikmyndastjarna," sagði Willie Fulgear sem hefur lifibrauð af því að safna hlutum og setja í endurvinnslu. „Ég var að leita í gámi og rak fótinn í eina styttuna. Það þekkja allir hann óskar.“ Lögreglan hefur handtekið tvo starfsmenn Roadway Express fyr- irtækisins vegna málsins, grunaða um verknaðinn. Hvað þeir ætluðust fyrii- með stytturnar er enn á huldu, kannski eru þeir fallnar Hollywood- stjörnur sem hefur alla tíð dreymt um einn óskar á arinhillunni? Lög- reglan hefur neitað að gefa upp nöfn mannanna en Fulgear gamli á von á góðu því vegleg fundarlaun voru í boði fyrir þann sem myndi finna stytturnar, rúm ein milljón ki’óna. Hannibal kominn á kreik LOKSINS hefur fengist botn í það hverjir koma til með að fara með hlutverk Hannibals Lecter og Clarice Starling í kvikmynd byggðri á skáldsögunni Hannibal eftir Thomas Harris, framhaldi sögunnar um lömbin sem gátu ekki þagnað. Það verða sumsé þau Anthony Hopkins, sem cinnig fór með hiutverk í fyrri mynd- inni, „Silence of the lambs“ og Julianne Moore. Það verður si'ðan Ridley Scott, sá hinn sami og gerði Blade Runner og Thelma og Louise sem mun leikstýra og framleiða myndina. Áætlað er að tökur hefjist í maí, í Flórens á Ítalíu. Reuters Julianne Moore leikur Clai’ice Starling. Guðný, „Tom Jones“, Árni Sam, Magnea, „EIvis“, Hulda, Björn, Þorsteinn, Bjarni Ara, Alfreð og John Stuart á góðri stundu í Imperial Palace-hótelinu. um tvær milljónir." En skyldi Árna dreyma um að koma sér inn í hótel- rekstur í Las Vegas? „Nei, við erum í kvikmyndahúsarekstri, með þessari sýningu erum við einungis að fikta við eitthvað nýtt til að nýta húsið bet- ur,“ segir Árni og virðist vera sáttur við sitt hlutskipti. Sam-feðgarnir ætla sér að krydda tilveruna með ýmsum uppákomum í þessu húsi og meðal þeirra hug- mynda sem eru á teikniborðinu er skemmtisýning með Ladda og inn- flutningur „Bítlanna." En úti í Las Vegas er heil hljómsveit samansett af tvíförum þeirra sem spila og syngja Bítlalögin í eina og hálfa klukkustund. Upphitunin yrði ekki af verri endanum en um hana myndu „The Rat Pack“ sjá um, en þar yrðu m.a. tvífarar Frank Sinatra, Sammy Davis jr og Dean Martin. Bjarni Ara í Las Vegas I siðustu ferð sinni til Las Vegas tók Árni með sér Bjarna Arason söngvai’a. Eftir að hafa kippt í rétta strengi fékk Bjarni svo, fyrstur ís- lendinga, að taka lagið á sviði í Las Vegas. „Hann var búinn að vera lengi á leiðinni til Las Vegas. Þar sem ég þekkti John Stuart framleið- anda þá kom ég því á við hann að leyfa Bjarna að spreyta sig.“ Bjarni söng „Bridge Over Troubled Water“ eftir þá Simon og Garfunkel, og tók svo vel valinn slagara eftir Presley eins og honum einum er lagið. „Þetta vai’ á Imperial Palace-hótelinu í Las Vegas og hann sló þar rækilega í gegn og framleiðandinn [John Stu- art] sagði að Bjami hefði komið sér( skemmtilega á óvart með stórkost- legum söng sínum, og hefur hann nú séð þá marga.“ ‘ - .4/. Tuuuquogl jörlrsjö Tölubloð nr.u Mlchoel Younq sKuggaboldur öskar Jónosson Stórl bróðlr H ö n n u n Lond og synir K I n k y Kúrekiöstln Ástln og lífið j (S AlltoF meö Mogganum ö fimmtudögum ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.