Morgunblaðið - 27.04.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Kristinn Sigmundsson söng í
Metropolitan-óperunni í New York
„Fékk ljómandi
undirtektir“
KRISTINN Sig-
mundsson bassasöngv-
ari hlaut eldskím sína á
sviði Metropolitan-óp-
erunnar í New York í
íyrrakvöld. Söng hann
hlutverk Hundings í
Valkyrjunum eftir
Wagner undir stjórn
James Levine. I aðal-
hlutverki í uppfærsl-
unni er spænski tenór-
söngvarinn Placido
Domingo.
Ólafur Egilsson
sendiherra, sem var
meðal óperugesta í
fyrrakvöld, segir
Kristni hafa tekist afar
vel upp. „Hann kom þarna fram á
sviðið snemma í óperunni af miklum
myndugleika og upphóf raust sína.
Hann gerði þetta ljómandi vel. Fyrst
kom hann fram með meðsöngvurum
sínum í þeim þætti, Placido Domingo
og Deborah Voight, og þau fengu
dúndrandi klapp öllsömul. Síðan kom
Kristinn fram einn og fékk líka ljóm-
andi undirtektir. Þannig að það var
augljóst að áhorfendum féll mjög vel
í geð hans framlag."
Sjálfur er Kristinn
ánægður með sinn hlut.
„Þetta var satt best að
segja miklu þægilegra
en ég bjóst við - minna
stress. Það gekk allt
upp. Það er mjög gott
að syngja í þessu húsi.“
Ekkert hefur verið
ákveðið um framhaldið
en Kristinn telur ekki
ólíklegt að hann eigi eft-
ir að syngja á ný í Metr-
opolitan. „Við skulum
segja að það kæmi mér
ekki á óvart þótt eitt-
hvað kæmi í kjölfarið.
Viðmótið héma er já-
kvæðara en ég þorði að
vona. Óperustjórinn er mjög jákvæð-
ur og satt best að segja man ég ekki
eftir jafn hlýju viðmóti í neinu óperu-
húsi sem ég hef sungið í. Það er mjög
vel hugsað ummann hérna.“
Tveir aðrir íslendingar hafa staðið
á sviði Metropolitan, sem af mörgum
er talið merkasta óperuhús heims,
María Markan og Kristján Jóhanns-
son.
■ Er tiltölulega rólegur/28
Kristinn
Sigmundsson
Opnar skrif-
stofu í Bretlandi
DÍMON hugbúnaðarhús opnar í
næsta mánuði skrifstofu í Lundún-
um. Fyrst í stað verður hlutverk
Lundúnaskrifstofunnar markaðs-
setning og sala WAPorizer á Bret-
landseyjum, en til hennar verða
ráðnir forritarar fljótlega eftir
opnun.
í fréttatilkynningu segir að
ástæða þess að Dímon velur að
opna skrifstofu á Bretlandseyjum
sé mikill áhugi þarlendra fyrir-
tækja á WAPorizer.
Dímon hefur hannað hugbúnað
sem þýðir venjulegar heimasíður
yfir á WAP-form, WAPorizer, og
gerir þær aðgengilegar þráðlaus-
um tækjum á borð við WAP-síma
og lófatölvur.
Meðal íslenskra fyrirtækja sem
hafa tekið WAPorizer í notkun
eru: Íslandssími, Olís, Gula línan
og Flugleiðir.
Á dögunum fór fram lokað
hlutafjárútboð þar sem íslenskum
stofnanafjárfestum var boðinn
hlutur í fyrirtækinu til kaups og
bættust þá meðal annars Flugleið-
ir, Búnaðarbankinn, Burðarás og
Opin kerfi í hluthafahóp Dímons.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nautið Guttormur með kvígunni Skrautu sem fæddist 18. apríl síðastliðinn og er tólfta afkvæmið sem hann
eignast frá því að hann kom í Húsdýragarðinn árið 1993. Með þeim er Berglind Ágústsdóttir.
Ráðherra
gaf Guttormi
nýja stíu
Flugleiðir leita leiða til að lækka kostnað og draga úr offramboði
Hugsanlega fækkað um eina
vél í næstu vetraráætlun
FLUGLEIÐIR leita nú leiða til að
mæta lækkandi verði flugfargjalda
og of miklu sætaframboði á flugleið-
inni yfir Norður-Atlantshaf. Meðal
þess sem er til skoðunar er að
fækka um eina vél í næstu vetrar-
áætlun félagsins.
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri hjá Flugleiðum, tjáði Morgun-
blaðinu í gær að leita verði allra
leiða til að auka tekjur félagsins og
lækka kostnað. „Við erum að skoða
möguleika á því að draga úr sæta-
framboði á Norður-Atlantshafs-
markaðnum yfir háveturinn með því
að fækka um eina vél en við viljum
gera það án þess að það hafi veruleg
áhrif á framboð sæta til og frá land-
inu sem er ekki einfalt mál,“ sagði
Einar. Verða skoðaðir einstakir
dagar og hugsanlega dregið úr
framboði sæta yfir hafið á veikustu
mörkuðunum sem gefa lítið af sér
yfir veturinn og segir Einar þá eink-
um hafða í huga farþega sem ferðist
beint milli Evrópu og Ameríku.
Söluferlið
verður einfaldað
Einar sagði að vandinn væri sá að
skerða ekki þá uppbyggingu sem
fram hefði farið hérlendis, meðal
annars átak við fjölgun ferðamanna
yfir vetrartímann, en ferðum yfir
vetrartímann til og frá landinu hefði
fjölgað um 60% síðustu fimm ár.
„Við erum að fást við að lækka
kostnað á öllum sviðum og þróunin
er sú að raunfargjöld eru lækkandi
og það kallar á mikla þróunarvinnu
og að allt söluferlið sé einfaldað. Við
erum að laga allt framboðið betur að
markaðnum og styrkja tekjugrund-
völl félagsins utan háannatímans,"
segir Einar ennfremur. Verði af því
að fækkað verði um eina vél næsta
vetur segir Einar að leitað verði
verkefna fyrir hana erlendis.
Tólf þotur verða í flota Flugleiða í
sumar. Átta 757-200 þotur, tvær
737-400 þotur og síðan tvær frakt-
þotur.
NAUTIÐ Guttormur flutti nýverið í
sérsmíðaða einkastíu í fjósinu í
Húsdýragarðunum í Laugardal og
segir starfsfólk garðsins að Gutt-
ormur, sem er orðinn 906 kíló, sé
aukarýminu feginn.
„Hann var orðin svo rosalega
stór að hann átti bágt með að vera
þarna á bás og þá var smíðuð ný
stía sem er gjöf landbúnaðar-
ráðherra í tilefni af tíu ára afmæli
Húsdýragarðisins," segir Margrét
Dögg Halldórsdóttir, rekstrarstjóri
Húsdýragarðsins. Margrét segir að
Guttormur sé búinn að koma sér
vel fyrir í stíunni. Stærðar sinnar
vegna hafi hann ekki getað beðið
með að flytja inn í hana þó að Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
afhendi hana ekki formlega fyrr en
á afmæli Húsdýragarðsins 19. maí.
„Guðni var svo rosalega hrifinn
af Guttormi, því hann er konungur
íslenska kúastofnsins, eins og hann
segir. Hann ákvað því að gera vel
við hann og gefa honum þessa stíu."
Það er stutt stórviðburðanna á
milli í lffi Guttorms en hann varð
pabbi nú rétt fyrir páska og það í
12. sinn síðan hann kom í garðinn
1993. Þann 18. apríl síðastliðinn,
fæddist kvígan Skrauta sem hefst
nú við í lítilli stíu við hliðina á stóru
sérsmíðuðu stíunni hans pabba síns.
L
Ræktar þú garðinn þinn?
Sameinaðu kosti Heimilislínu og Heimilisbanka
Með því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari
vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi.
Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum
og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
®BÚNAÐARBANKINN
HEIMILISLlNAN
Trausturbanki
wtvwMis