Morgunblaðið - 27.04.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000 65
I DAG
Arnað heilla
Q A ÁRA afmæli. Á
O U morgun, föstudag-
inn 28. apríl, verður átt-
ræður Jóhann Pétursson,
fyrrv. stöðvarstjdri Pósts
og síma á Keflavíkurflug-
velli, Smáratúni 21,
Keflavík. Eiginkona hans
er Kristrún Helgadóttir.
Þau eru að heiman í dag en
þeir sem vildu gleðja hann
eru beðnir um að gefa til
sundlaugar þroskaheftra í
Keflavík.
BRIPS
Umsjón (hiðniiiinliir Páll
Arnarson
ER hugleysi dyggð? Tæp-
lega er það viðurkennd skoð-
un, en í brids er stundum vit-
urlegt að hopa af hólmi þegar
manns „freista firai’". I átt-
undu umferð íslandsmótsins
fékk suður áskorun um að
spila fimm hjörtu redobluð,
en hafði ekki kjark til að
sitja:
Austur gefui'; allir á hættu.
Norður * G103 v - * G976542 * K65
Vestur Austur
A 865 *Á
v G9542 V ÁD108763
♦ D8 ♦ ÁK3
* 842 + DG Suður * KD9742 *K ♦ 10 + Á10973
Þetta er greinilega mikið
baráttuspil, en algengasta
niðurstaðan var sú að austur
fékk að spila fimm hjörtu
ódobluð. Það er einfaldur
samningur, því kóngurinn í
hjarta er ekki vandfundinn
þótt hann liggi á eftir ásnum.
Eitt par spilaði fjóra spaða
doblaða í NS og vann fimm,
enda eru ellefu slagir upp-
lagðir þar eð DG í laufi falla
máttlaust undir ÁK. En lík-
lega var þetta áhrifamesta
sagnröðin í spilinu:
Vestur Norður Austur Suður
- - 1 bjarta lspaði
Pass 2spaðar Dobl 4spaðar
Pass Pass Dobl Pass
5hjörtu Pass Pass Dobl
Pass Pass Redobl öspaðar
Pass Pass Dobl Allirpass
Byrjunin var róleg, en svo
fór að færast ijör í leikinn og
eftir tvö úttektardobl austurs
ákvað vestur að þegja ekki
lengur yfir hjartastuðningn-
um. Suður taldi sig eiga góða
vinningsvon í fjórum spöðum
og vildi fá eitthvað upp í
skaðann og doblaði því fimm
hjörtu. En hann var síður en
svo viss í sinni sök og var
fljótur að breyta í fimm
spaða þegar austur redobl-
aði. Austur hafði svo sem
ekkert á móti því, enda bjóst
hann ekki við að fimm hjörtu
stæðu. Redoblinu var einmitt
ætlað að reka suður í spað-
ann sinn! En þegar öllu var
lokið kom í ljós að redoblið
hafði kostað AV 1700 stig,
hvorld meira né minna. NS
fengu 850 fyrir 11 slagi í
fimm spöðum dobluðum, en
hefðu gefið út sömu tölu fyrir
að spila vömina í fimm hjöri>
um dobluðum.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 8. apríl sl. í Bústaða-
kirkju af sr. Ólafi Skúlasyni
Ingunn Sigurðardóttir og
Þorkell Ágústsson. Heimili
þeirra er að Ásbraut 13,
Kópavogi.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. apríl sl. í Árbæjar-
kirkju af sr. Þór Haukssyni
Svanhvít Jónsdóttir og
Helgi Ólafsson. Heimili
þeirra er að Hraunbæ 96,
Reykjavík.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Golli
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 3.150 kr. fyrir
Rauða kross íslands. Þær heita Linda Brynjólfdóttir,
Helga Kr. Magnúsdóttir og Ásta Guðrún
Sighvatsdóttir.
SKAK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvitur á leik.
MEÐFYLGJANDI staða
kom upp á milli spænska al-
þjóðlega meistarans Julen
Arizmendi, hvítt, (2445) og
rússneska stórmeistarans
Alexander Grischuk (2581) á
Reykjavíkurskákmótinu í
ár. 10...Rg3! ll.Hh2 Eftir
11. Hgl Dxh4 er hvíta staðan
að hruni komin. ll....De7!+
12. Kd2 Ekki skemmtilegur
reitur fyrir kónginn en eftir
12.KÍ2 h5 13.Rh6+ (13.Re5
leiðir til taps eftir 13...Bxe5
14.dxe5 Dc5+)13....Kg7
vinnur svartur a.m.k. mann.
12...He8 og hvítur gafst upp
þar sem hann hefur ekkert
svar við margvíslegum hót-
unum svarts. Byrjunarleik-
irnir í þessari óvenju stuttu
skák voru þessir: l.e4 e5 2.f4
exf4 3.Rf3 g5 4.h4 g4 5.Re5
Rf6 6.Bc4 d5 7.exd5 Bd6
8.d4 Rh5 9.Rc3 OO 10.Rxg4
og nú höfum við stöðuna á
stöðumyndinni.
Nú getur
hann horft
á ástralska
ríkissjón-
varpið.
UOÐABROT
STOKUR
21. desember 1844
Enginn grætur íslending
einan sér og dáinn.
Þegar' allt er komið í kring,
kyssir torfa náinn.
Mér er þetta mátulegt,
mátti vel til haga,
hefði ég betur hana þekkt,
sem harma ég alla daga.
Lifðu sæl við glaum og glys,
gangi þér allt í haginn.
I öngum mínum erlendis
yrki ég skemmsta daginn.
Sólin heim úr suðri snýr,
sumri iofar hiýju.
Ó, að ég væri orðinn nýr
og ynni þér að nýju.
Jónas Hallgrímsson.
STJ ÖRJVUSPA
eftir Franees Drake
* W
NAUTIÐ
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert sjálfum þér nógur og
Ieitar Utt til annarra með þín
mál. En mundu að maður er
manns gaman.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) ~r*
Líttu á jákvæðar hliðar mái-
anna og láttu ekkert draga
þig niður í neikvæð viðhorf.
Brettu upp ermarnar. Hálfn-
að er verk, þá hafið er.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að setja þig í spor
annarra. Það er ógjörningur
að skilja fólk nema reyna
fyrst að gera sér grein fyi-ir
viðhorfum þess og aðstæðum.
Tvíburar . ^
(21. maí-20. júní) A A
Eitthvað á eftir að koma þér
verulega á óvart í dag.
Reyndu að bregðast við eftir
efnum og ástæðum þvi of
hörð viðbrögð valda bara
vandræðumA
Krabbi _
(21. júní-22. júh")
Vandaðu mál þitt sérstakiega
þannig að megi skilja hvað þú
meinar án þess að verða sárir
eða hafa möguleika á að snúa
út úr orðum þínurnA
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) W
Leyfðu öðrum að útskýra sína
hlið mála áður en þú kemur
þínum skoðunum að. Það er
stundum betra að hlusta og
hugsa áður en maður talar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er veður til að skapa svo
þú skalt láta það eftir þér að
eyða tíma til þess að mála eða
skrifa eða hvers annars sem
hugur þinn stendur til.
(23. sept. - 22. október) m
Þú ert eitthvað í skrýtnu
skapi í dag svo þú skalt reyna
að halda þig sem mest fyrir
þig þannig að erfiðleikar þínir
bitni ekki á öðrum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er alveg kominn tími tii
þess að þú breytir einhverju í
kringum þig bæði heima fyrir
og á vinnustað. En gerðu
samt áætlanir fyrst um breyt-
ingamar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) iSUr
Það er kominn einhver los-
arabragur á fjármáiin hjá þér
svo þú skalt taka þér tak og
koma þeim aftur í fastar
skorður. Það er auðvelt að
vera án margra hluta.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) 4BÍP
Stefiidu ótrauður að þínu tak-
marki hvað sem hver segir
því þú ætlar að ná því fyrir
sjálfan þig en ekki aðra.
Gættu þess bara að ganga
ekki á rétt annarra.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) Csfi!
Það eru margar spurningar
sem brenna þér á vörum en
þú þarft að vera þolinmóður
þótt svörin birtist þér ekki
tafarlaust. Allt hefur sinn
tíma.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu ekki að beijast til
forystu í ákveðnu máli því
hún er ekki þitt hlutskipti að
svo stöddu. Sýndu sannan
liðsanda og láttu ekkert trufla
þig-
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vfsinaalegra staðreynda.
QUELLE
fflSLUN, DALVEGI2
mmi,S: 564 2000
Enn betra verö
Höfum lœkkaö veröin í öllum listum
okkar vegna hagstœöara gengis! Þú fœrö
ekki meira úrval, þýsk gœöi eru ótvíræö og
veröiö enn betra!
Graco
kerrurnar
komnar,
með svuntu
og fyrir
bílstóla
Úrvalið er v
hjá okkur M..
oAmijía,
SlMI 553 3366
G L Æ S I B Æ
Opið á laugardögum frá 11.00 til 16.00
Allt á að seljast
afsláttur
Aðalstræti 16, sími 551 9188.
^mbl.is
AUGLÝSINGADEILD Simi: 569 1111, Bréfsimi: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is AL.L.TAf= eiTTH\SAO rjÝTl