Morgunblaðið - 27.04.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000 49
MINNINGAR *
INGÞÓR
LÝÐSSON
tlngþór Lýðsson
fæddist á Akra-
nesi hinn 23. mars
1963. Hann lést á
heimili sínu, Vallar-
braut 1,
hinn 15. apríl síðast-
liðinn. Hann var son-
ur hjðnanna Vigdís-
ar Matthiasdóttur, f.
5.11. 1930, og Lýðs
Sigmundssonar, f.
17.4 1911, d.
1994.
titför Ingþórs fór
fram frá Akranes-
kirkju miðvikudag-
inn 26. aprfl.
Nú kveðjum við elskulegan bróður
okkar og mág, Ingþór Lýðsson.
Hann var næstyngstur sex systkina
en áður höfðum við þurft að sjá á bak
yngsta bróðumum, Grétari, sem lést
af slysforum 1993.
Ingþór ólst upp við Vesturgötuna
og var fjaran og Krókalónið aðalleik-
svæðið og oft komu litlir gaurar koll-
votir úr þeim leiðöngrum. Einnig var
skroppið niður í Fiskiver og inn á
Kamp í vinnuna til pabba og mömmu
og litlar hendur reyndu að hjálpa til
við síldarsöltun og fleira.
Að loknu skyldunámi tók þátttak-
an í atvinnulífmu við. Sjómennska
heima og heiman og margháttuð
störf í landi, þó einkum við múrverk
seinni árin. Hann var mikill tónlistar-
unnandi og fór í Tónlistarskóla Akra-
ness. Seinna átti gítarinn eftir að
stytta honum stundimar í veikindum
hans, svo og lestur góðra bóka. Gítar-
inn og bækumar vom sjaldan langt
undan þegar hann var annars vegar.
Ingþór var innan við fermingu
þegar hann fór að kenna þeirra veik-
inda er jafnt og þétt settu mark sitt á
hann og hömluðu þátttöku hans í at-
vinnulífmu. Hann þurfti að ganga í
gegnum margar og erfiðar nýmaað-
gerðir vegna meðfædds nýmasjúk-
dóms en var þó alltaf vongóður um að
nýjar aðferðir og þróun í lækningum
gætu hjálpað honum til betra lífs.
Núna síðustu vikurnar beið hann
bjartsýnn enn einnar aðgerðar og öll
hans framtíðaráform miðuðust við að
hún tækist vel. Að gefast upp var
ekki til í hans orðabók og vafalaust
hefur líðanin oft verið mikið verri en
okkur gat gmnað. Þar var ekki
kvartað að ástæðulausu. Líklega
þess vegna kom það eins og reiðar-
slag yfir okkur þegar hann lést
snögglega að kvöldi laugardagsins
15. apríl sl.
Nú er þínum erfiðleikum lokið, vin-
urinn. Megi Guð blessa vegferð þína.
Núleggégaugunaftui1,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mínverivömínótt
Æ, virzt mig að þér taka,
méryfirláttuvaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Systkini og makar.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvfl-
ast leiðir mig að vötnum, þar sem ég má
næðis njóta.
Hann hressir sál mina, leiðir mig um rétta
vegu fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast
ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti
þinn og stafur hugga mig.
Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum
mínum; þú smyr höfðuð mitt með olíu; bik-
ar minn er barmafullur, Já gæfa og náð
fylgja mér alla æfidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa æfi.
(23. Davíðssálmur.)
Jæja Ingi minn, þá ert þú kominn í
hús Drottins. Ég veit að þeir sem
elska þig þar hafa tekið á móti þér.
Það er skrýtið að vera að skrifa
kveðjuorð til þín og erfitt að trúa því
að þú sért ekki lengur á ferðinni
hérna á Jörðinni. Ég skil t.d. ekki að
þú munir ekki hringja aftur eða koma
og fá kaffi og ég get ekki áttað mig á
því að þú verðir ekki hjá mér á næstu
áramótum. En tíminn
er vissulega afstæður
og ég er reyndar alveg
sannfærð um það að við
hittumst aftur, þó ég
viti ekki hvenær og
ekki hvar. Það er nefni-
lega eins og ég hafi
upplifað þetta fyrr. Ég
man nefnilega alveg
þegar við hittumst aft-
ur eftir síðasta langa
aðskilnað. Það var
snemma árs 1994. Ég
hafði farið með vinkonu
minni eitthvað að skoða
næturlífið og við sett-
umst inná eitt öldurhúsið þar sem var
verið að spila og syngja, og þar varst
þú. Ég þekkti þig strax aftur. Mér
fannst það skrýtið að hafa ekki rekist
á þig fýrr því að við höfðum þá deilt
jarðvist í 28 ár og áttum þar að auki
ýmsa sameiginlega kunningja.
Við áttum margar góðar stundir
saman. Eitt af því fyrsta sem við
gerðum saman var að fara i ferðalag
á heimaslóðir Grettis Ásmundarson-
ar. Þar áttum við nokkra góða daga
og þetta ferðalag lagði sterkan grunn
að okkar kynnum. Þar hitti ég fyrst
þann skugga sem hafði fylgt þér
lengst, sjúkdóminn sem þú fékkst í
vöggugjöf. Líkt og Glámur fylgdi
Gretti hvert fótmál, setti þessi skuggi
mark sitt á allt þitt líf og lífsviðhorf.
í nokkra mánuði hringdumst við á
daglega og hittumst um helgar, þetta
voru góðir dagar. Ég elskaði þig.
Seinna fékk ég að deila daglegu lífi
með þér. Borða með þér kvöldmat og
vaska upp með þér. Hlæja með þér
og þegja með þér, njóta nærveru
þinnar sem var svo góð. Fyrir allt
þetta er ég svo þakklát núna.
Ingi.
Það var ekki líkt þér að gráta. Lífið
fór ekkert sérlega vel með þig, en þú
gafst aldrei upp. Ég hef grátið þessa
síðustu daga. Eg er strax byijuð að
sakna þín. Það voru hlutir sem við
höfðum ráðgert að gera saman, en
þeir munu bíða þangað til við hitt-
umst aftur.
Veistu að ég bíð þín
ogvakihérogbíóþín
bakviðgrænarrúður
ogryðbrunnarskrár,
bakviðbrúnarheiðar,
bakvið dagogár?
(SnorriHjartarson.)
Elsku Ingi. Ég bið Guð og Jesú að
leiða þig í ljósið. Ég veit að þú hefur
fundið friðinn sem þú þráðir og bjart-
ar hugsanir þeirra sem elska þig
fylgja þér. Ég bið Guð að styrkja og
hugga Vigdísi móður þína sem hefur
misst svo mikið, og systkini þín og
fjölskyldur þeirra.
Takk fyrir samveruna,
Laufey.
Nú héðan á burt í friði eg fer,
ó, faðir, að vilja þínum,
í hug er mér rótt og hjartað er
af harminum læknað sínum.
Sem hézt þú mér, Drottinn, hægan blund
ég hlýt nú í dauða mínum.
(Lúther.)
Hann Ingi er dáinn - þannig hljóð-
aði sú frétt sem mér barst á sunnu-
dagsmorgni, þann 16. apríl sl., að
systursonur minn, Ingþór Lýðsson,
væri látinn. Mig setti hljóða og dofi
fór um mig alla. Við slíkar fréttir
brjótast fram ótal spumingar. Hvers
vegna hann? Var ekkert hægt að
gera? Hver er tilgangurinn þegar
ungur maður á besta aldri, aðeins 37
ára gamall, er kallaður burt? En eng-
in svör fást við þessum spurningum.
Ingi átti lengi við erfiðan sjúkdóm að
stríða sem rénaði annað slagið en tók
r 3lómobúðin >
öa^ðsKom
l v/ FossvogsUirkjwgarð j
V Sími, 554 0500 y
sig svo upp aftur og aftur án þess að
nokkuð væri hægt að gera nema
deyfa sárustu kvalimar. í öllum
þessum læknavísindum nú til dags
fundust engin ráð eða lækning.
Ingi var ekki þannig gerður að
hann talaði mikið um veikindi sín, né
lét heldur á því bera að hann væri
sárþjáður og alltaf leið honum ágæt-
lega þegar ég talaði við hann í síma.
Ég minnist Inga sem kraftmikils og
skemmtilegs barns sem kom mér oft
til að brosa þegar við hittumst. Þá
kom fyrir að hann sagði mér frá ein-
hverju sem hann hafði gert og enginn
mátti vita. Það var leyndarmál okkar
á milli og er enn. Þá var hann svo full-
orðinslegur í sér að ég mátti passa
mig að fara ekki að hlæja. Kynni okk-
ar Inga vora ekld mikil eftir að hann
varð fullorðinn. Ég flutti út á land og
kom æ sjaldnar í heimsókn, en ég
mun ávaOt minnast þessa góða
drengs.
Elsku Ingi, með þessum línum vil
ég kveðja þig. Núna era allar þínar
þrautir á enda. Megi Guð leiða þig
um ókunna heima. Hvíl þú í friði.
Ó, JESÚS,séuorðinþín
andláts síðasta huggun mín,
Sál minni verði þá sælan vís
með sjálfum þér í Paradís.
(Hallgr. Pét)
Elsku Dísa, systkini og fjölskyld-
ur. Mikill og sár er missir ykkar, en
minningin um góðan dreng lifir
áfram í huga okkar allra. Guð blessi
ykkur öll.
Sigríður.
þér. Mér finnst svo skrítið að ég á
ekki eftir að hitta þig eða ræða við
þig meir og ég skil það ekki enn fylli-
lega. Þegar ég var við kistulagning-
una og horfði á þig langaði mig svo að
taka þig með mér, því mér finnst svo
erfitt að trúa þvi að Ingi frændi sé
farinn og komi ekki aftur. Mér finnst
það svo sárt að svo góður maður eins
og þú, ungur og hæfileikaríkur, skuli
vera tekinn í burtu svo skyndilega, en
ég verð að sætta mig við það eins og
allir aðrir. Mér verður hugsað til ár-
anna á Akranesi þar sem við ólumst
upp saman.
Þar var margt brallað, bæði þar
sem við áttum heima saman á Vest-
urgötunni og eins seinna á Suðurgöt-
unni, þar sem ég bjó og við eyddum
svo mörgum stundum saman. Ég
held að það sé óhætt að segja að það
hafi ekki verið nein lognmolla í kring-
um okkur. Það var alltaf gaman að
vera meðþér og höfðum við alltaf nóg
að gera. Eg minnist þín sem brosandi
glaðs stráks sem gott var að vera ná-
lægt.
Eins minnist ég þess að ég gat
ávallt treyst þér, því þú varst traust-
ur og góður vinur. Það var ætíð þann-
ig, þrátt fyrir að okkar samskipti
minnkuðu talsvert eftir að ég flutti til
Reykjavíkur. Þú varst og verður
ávallt sérstakur í mínum huga.
Kannski vegna þess að það voru
ákveðnir hlutir sem við áttum sam-
eiginlega án þess að ég ætli að tíunda
þá, en mér þótti óskaplega mikið
vænt um þig og það vissir þú, því ég
hafði oft sagt þér það.
Ég veit að þér þótti mjög vænt um
mig líka. Ég man hvað mér þótti
gaman að því þegar þú sendir mér
mynd af sjálfum þér og á henni stóð:
„Élsku frændi, þú veist að mér þykir
alltaf vænt um þig.“ -
Ég mun ætíð geyma þessa mynfí^
því fyrir mér er hún mjög dýrmæt,
eins og þú varst ætíð og verður. Ég
man eftir því þegar þú varst á Borg-
arspítalanum, þar sem þú varst oft
lagður inn vegna veikinda, og ég dá-
ist að þér fyrir það að þótt þú værir
sárkvalinn kvartaðirðu ekki mikið og
varst alltaf glaður og bjartsýnn.
Finnst mér það sýna þann styrk sem
þú áttir. Þú munt ávallt búa í huga
mér og hjarta, elsku vinur minn og
frændi. Ég á eftir að sakna þín mikið
en ég trúi því að þar sem þú ert núna
líði þér miklu betur en þér gerði þeg-
ar þú varst með okkur hér á jörð.
Eins trúi ég því að seinna eigum við
eftir að hittast og þá getum við rifjað
upp gamlar stundir. En þangað til,
elsku Ingþór minn, bið ég þér Guðs
blessunar.
Hvíl í friði, minn vinur og frændi.
Elsku Dísa, Inga, Hanna, Simmi
og aðrir aðstandendur. Ykkur sendi
ég samúðarkveðjur og bið ég Guð að
vera með ykkur, styrkja og blessa.
Mig langar að enda þetta með bæn
sem mér þykir vænt um.
Guð gefðu mér æðruleysi
tíl að sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt,
kjark tíl að breyta því sem ég get breytt
ogvittilaðgreinaþarámilli. ^
Vilhjálmur Matthíasson
og synir.
Elsku Ingþór minn. Mig setti
hljóða þegar hringt var í mig og mér
sagt að þú hefðir verið að kveðja
þetta líf. Þú varst allt of ungur til að
fara. Þó að þú hafir lengi verið veikur
hélt ég alltaf að þú fengir bata og
ættir eftir mörg góð ár. Elsku frændi
minn, ég vona að þér líði vel þar sem
þú ert núna. Ég veit að það hefur ver-
ið tekið vel á móti þér af pabba þínum
og Grétari bróður þínum og öðram
ættingjum. Ingþóri er ég búin að
fylgjast með frá fæðingu. Hann var
yndislegt barn og unglingur, svolítill
prakkari. Þeir fundu upp á ýmsu,
sonur minn og hann, ásamt öðrum
strákum á Skaganum. Oft var það
rifjað upp þegar við hittumst, við
höfðum ýmislegt að tala um þegar ég
heimsótti hann á spítalann eða ann-
ars staðar. Síðan um 15 ára aldur hef-
ur hann átt við mikil veikindi að
stríða og tók því með æðraleysi og
hélt sínu góða skapi allan tímann. Ég
kveð þig, frændi. Góður Guð fylgi
þér. Dísu systur, Ingu, Hönnu,
Simma, Eddu og öðrum ættingjum
votta ég samúð. Megi Guð vera með
ykkur og veita allan þann styrk sem
þið þurfið á að halda í sorg ykkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
núkominerlífsins nótt.
þig umveíji blessun og bænir,
égbið aðþúsofirróti
Þó svíði sorg mitt þjarta,
þásælteraðvitaafþví
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þínveröld erbjörtáný.
(Þórunn Sig.)
Þín frænka,
Þuríður.
Elsku Ingi minn, nú hefur þú kvatt
þetta líf og ert farinn á vit nýrra æv-
intýra. Ég trúi því að þar sem þú ert
nú líði þér vel og það áttu sannarlega
skilið. Þú áttir erfitt líf oft og tíðum
og kannski sérstaklega síðustu árin
sem þú lifðir. Ég á eftir að sakna þín
rpjög mikið og mér finnst mjög sárt
að sjá á eftir eins góðum dreng og
Legsteinar
í Lundi
SÚLSTEtNAR við Nýbýlaveg, Kðpavogl
Sími 564 4566
KATRÍN
ÞORLÁKSDÓTTIR
+ Katrín Þorláks-
ddttir fæddist 9.
ágúst 1936. Hún lést
á gjörgæsludeild
Landspftalans í Foss-
vogi 26. mars sfðast-
liðinn og fór útfor
hennar fram frá
Frfkirkjunni í Hafn-
arfirði 5. aprfl.
Elsku mamma, nú
ertu farin, svona alltof
fljótt. En við vitum að
þér líður vel núna þar
sem þú ert. Þú varst
búin að vera svo mikið
veik. Þú varst besta mamma í heimi,
svo frábær hlustandi. Við gátum
alltof komið með okkar vandamál til
þín og þú gast alltaf leyst þau á þinn
sérstaka hátt. Við viljum þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
okkur, þú varst alltaf tilbúin til þess.
Þú varst mikið náttúrubarn, hafðir
gaman af því að ferðast. Þú elskaðir
bækur, fallega tónlist og varst mikið
í félagslífinu. Þú varst mörg ár í
Leikfélagi Hafnarfjarðar og í
Kvennalistanum. Þú og pabbi hófuð
búskap fyirr austan, í Miðkrika,
þegar við voram 2 ára. Þú vannst
myrkranna á milli í fjósinu, sinntir
heimilinu og hugsaðir um okkur. Ég
man þegar þú sagðir við okkur að þú
elskaðir allar beljurnar þínar og
mundir öll nöfnin á þeim.
í sveitinni byrjaði bakið á þér að
kalka, en þú gafst aldrei upp. En við
bjuggum ekki lengi í Miðkrika. Við
fluttum til Keflavíkur og svo til
Sandgerðis. Þegar við
urðum 6 ára skildu
leiðir hjá þér og pabba^
En þið hélduð alltaf
góðu vináttusambandi.
Pabbi hringdi oft í þig
ef hann var í vandræð-
um og þú gast alltaf
leyst úr þeim. Pabbi
hefur misst mikið,
góða vinkonu. Við
fluttum í Hafnarfjörð-
inn, þú varst orðin ein-
stæð móðir með okkur
tvær. Og það var ekk-
ert auðvelt, þú vannst
mikið. En þú stóðst þig
alltaf vel í uppeldinu á okkur, þú lést
okkur ganga fyrir, svo okkur liði
sem best. Þegar þú gafst okkur jóla-
gjafir þá dreifðir þú gjöfinni í 3
pakka svo þeir urðu fleiri. Svo eftií1
að María Dís, barnabarn þitt, fædd-
ist ’91, þá hélstu þessu áfram. María
Dís á eftir að sakna þess þessi jól.
Hún var alltaf svo glöð með allar
gjafirnar sem þú gafst henni. María
Dís var sólargeisli í lifi ömmu sinn-
ar, þær vora mjög nánar. Henni
fannst Ijúft að skríða upp í fangið á
ömmu sinni. Hún sagði alltaf að hún
væri svo mjúk. María Dís hefur
misst mikið, okkar ástkæra
mamma, þú varst sterkur persónu-
leiki, barst höfuðið hátt og áttir auð-
velt með að hafa samskipti við fólk,
varst hrein og bein. Við munum allt-
af sakna þín mikið og varðveitum
minningarnar um þig.
Þínar dætur og þitt barnabarn, *
María, Ólöf og María Dís.
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður
Utfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt
verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar.
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu.
Sverrir
|i Einarsson
útfararstjóri.
sími 896 8242
it
Sverrir
Olseti
útfararstjóri.
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Simi 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Baldur Bóbó
iFrederiksen
útfararstjóri.
sími 895 9199