Morgunblaðið - 27.04.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000 35
LISTIR
Enn eitt stórvirkið
Heimspeki hversdagsins
og sálfræði daglegs lífs
TONLIST
ísafjarðarkirkja
BACH-HÁTÍÐ
Flytjendur: Margrét Bóasdóttir
sópran; Jóhann Smári Sævarsson
bassi; Hátíðarkór Tónlistarskóla
ísafjarðar, kórstjóri Beata Joó;
Kammerhljómsveit, stjórnandi
Ingvar Jónasson. Föstudaginn
langa, 21. apríl.
í ANNAÐ sinn á tveimur árum urðu
fsfirðingar og nágrannar vitni að
sannkölluðu þrekvirki á sviði tónlist-
arinnar. í fyrra var það flutningur á
Messíasi eftir Hándel. I ár var komið
að hljómsveitar- og kórverkum eftir
Johann Sebastian Bach. Tilefnið er að
250 ár eru liðin frá andláti tónskálds-
ins. A sama tíma að ári er ætlunin að
flytja Sálumessu Mozarts.
Hvað er að gerast á Vestfjörðum?
Rétt eins og ekkert væri sjálfsagðara
er ráðist í hvert þrekvirkið á fætur
öðru. Það er auðvitað langt frá því að
vera sjálfsagt. En skýringin er
kannski ekki svo langt undan. Hér
býr hefð, ríkur metnaður og samtaka-
máttur að baki. Tónlistarskóli Isa-
fjarðar, undir stjóm Sigríðar Ragn-
arsdóttur, og Tónlistarfélag Isafjarð-
ar eru driffjöðrin, ásamt stjórnandan-
um Ingvari Jónassyni. Þá er að geta
ómetanlegs stuðnings fjölmargra fyr-
irtækja og stofnana sem gera stór-
virki eins og þetta mögulegt. Þá er
hlutur kórfélaga ekki lítill, því kórinn
sem og stjómandi hans, Beata Joó,
tekur hlutverk sitt mjög alvarlega.
Hljómsveitin er sldpuð úrvalsfólki
og sama gildir um einsöngvarana.
Hvergi er slegið af kröfum.
Fyrst á efnisskránni var hljóm-
sveitarsvíta nr. 1 í C-dúr BWV1066.
Hljómsveitarsvíturnar fjórar BWV
1066-69 em framúrskarandi dæmi
um þessa tegund tónlistar frá
barokktímanum. Svítumar em hríf-
andi tónlist og í sumum þeirra má
finna einhver þekktustu verk Bachs.
Dæmi um það er hið fræga „Lag fyrir
G-streng“, sem er útsetning á hæga
kaflanum úr þriðju svítunni. Það sem
er skemmtilegt við svítumar er líka
hversu mikill jöfnuður ríkir milli
hþóðfæra. Strengja- og blásturs-
hljóðfæri spila t.d. samskonai- tón-
hendingar og endurtaka jafnvel sömu
hendingarnar.
Hljómsveitarsvíta nr. 1 hljómaði
fallega í Isafjarðarkirkju. Bæði er
hljómburður í kirkjunni mjög góður
og svo hefur Ingvari tekist að laða
fram einstaklega fallegan barrokk-
hljóm í kammersveitinni. Hljómurinn
var seiðandi og silkimjúkur. Svolítið
óöryggi í samspili gerði þó vart við sig
stöku sinnum. Byrjun á svokölluðum
Langbarðadansi varð að tvítaka, en
það var lítill ljóðm- sem þó náði að
verka traflandi á heildarapplifunina.
Blásaramir léku einstaklega vel.
Þá var komið að Kantötu BWV140,
„Wachet auf, raft uns die Stimme",
eða „Vakna, Síons verðir kalla“.
Strax á fyrstu tónunum mátti
heyra að hér var kominn vel undir-
búinn og einbeittur kór. Hrein unun
var að hlýða á lokasönginn „Gloria sei
dir gesungen“. Hátíðarkór Tónlistar-
skóla Isafjarðar var stofnaður haust-
ið 1998 í tilefni af því að 100 ár voru
liðin frá fæðingu Ragnars H. Ragnar,
skólastjóra og tónlistarfrömuðar á
ísafirði um áratuga skeið.
Hátíðarkórinn er skipaður núver-
andi og fyrrverandi nemendum og
kennuram Tónlistarskóla ísafjarðar
ásamt fleira áhugafólki.
Tenórar vora góðir í sólóhlutverki í
kóralnum í kantötunni. Kórar úr
Matteusarpassíu og Jóhannesarpass-
íu voru fallega sungnir. Það reynir
veralega á kórfólkið í verkum Bachs,
því hann semur eins og um hljóðfæra-
raddir sé að ræða. Það er ljóst að
stjómandi kórsins, Beata Joó, hefur
unnið gríðarlega gott starf.
Margrét Bóasdóttir fór ákaflega
vel með tónles í „Er kommt, er
kommt“. Röddin falleg og féll vel að
viðfangsefni og stfl. Sama má segja
um dúettinn „Wenn kommst du, mein
Heil“. Eitthvað mistókst þó í dúettin-
um „Mein Freund ist mein“, þar sem
nokkrir tónar vora ekki nægilega
hreinir undir lokin.
Jóhann Smári Sævarsson söng af
öryggi. Röddin er djúp og dramatísk
og nýtur sín kannski ekki nægilega í
tónlist Bachs. Hún hentar mun betur
á óperasviði. Hann náði því ekki að
sýna hvað í honum býr.
Af einstökum hljóðfæraleikurum
er ærin ástæða til að lofa frammi-
stöðu óbóleikaranna Kristjáns Þ.
Stephensen og Eydísar Franzdóttur,
og konsertmeistarans, Sigurlaugar
Eðvaldsdóttur.
Ingvar Jónasson á mestan heiður
skilið fyrir sinn þátt í Bach-hátíðinni.
Tónleikamir era að miklu leyti fólgn-
ir í hans eigin undirbúningsvinnu.
Sem dæmi um það má nefna að hann
skrifaði sjálfur út allan partítúr.
Hann er mjög hvetjandi persóna sem
stjómar tónlistarfólkinu af festu og
öryggi.
Líkt og við flutninginn á Messíasi
fyrir ári vora tónleikamir hljóðritað-
ir. Gæði tónlistarflutningsins þá
komu á óvart. Gaman verður að heyra
upptökur frá Bach-hátíðinni, enda
orðið ljóst að hér er efni á ferð sem á
fullt erindi við fleiri en tónleikagesti.
Efnisskrá Bach-hátíðarinnar er
falleg og ítarleg. Að lokum er rétt að
óska öllum aðstandendum Bach-há-
tíðarinnar til hamingju með enn eitt
stórvirkið og gæfu með það næsta,
Sálumessu Mozarts.
Kristinn Níelsson
OPINN Háskóli hefur starfsemi sína í
Háskóla Islands mánudagskvöldið 1.
maí með námskeiðinu Heimspeki
hversdagsins - tilvistarstef á 20. öld.
Kvöldið eftir, 2. maí, hefst síðan
námskeiðið Sálfræði daglegs lífs.
I fyira námskeiðinu verður á níu
kvöldum tjallað um nokkur meginstef
tilvistarheimspekinnar sem hefur í
senn endurspeglað og mótað hugarfar
einstaklinga og lífsstfl á öldinni sem er
að líða. Tilvistarheimspekin leitast
einkum við að greina hversdagslega
•reynslu manneskjunnar. Hún spyr
hver séu grundvallarskilyrði mann-
legrar tilvera og hvemig manneskjan
geti gefið lífi sínu merkingu í ijósi
þeirra. Undir hana falla kenningar
sem leggja höfuðáherslu á sérstöðu
mannlegrar tilvistar og að hún verði
einungis skilin réttilega með hliðsjón
af persónulegri reynslu og ákvörðun-
um.
Umsjónarmaður og einn fyrirlesara
er Vilhjálmur Amason heimspekingur,
en eftirtaldir fyrirlestra verða haldnir:
„Pascal - rök hjartans". Eyjólfur Kjal-
ar Emilsson, prófessor í heimspeki;
„Tilvistarstefiian - andóf gegn hefð-
inni“: Vilhjálmur Ámason; „Kierkega-
ard - veldu sjálfan þig“: Kristján Áma-
son, dósent í bókmenntafræði ;
„Nietzsche? fagurfræði hversdagsins":
Róbert Haraldsson, lektor í heim-
speki; „Emerson - að skapa sjálfan
sig“: Róbert Haraldsson; „Sigurður
Nordal - einlyndi og marglyndi":
Gunnar Hai'ðarson, dósent í heim-
speki; „Heidegger - hið hversdagslega
og hið einstæða": Magnús Diðrik Bald-
ursson, heimspekingur; „Camus - fjar-
stæðan og uppreisnin": Páll Skúlason,
prófessor í heimspeki og háskólarekt-
or og loks „Sarfre - frelsið og ábyrgð-
in“. Vilhjálmur Ámason.
I námskeiðinu Sálfræði daglegs lífs
sem hefst kl. 20.00,2. maí verður á sex
kvöldum íjallað um efni sem ætla má
að höfði til almennings og sem ákaf-
lega margir glíma við í daglegu lífi.
Gylfi Ásmundsson sálfræðingur er
umsjónarmaður námskeiðsins. Fluttir
verða eftirtaldir fyrirlestrar: Kvíði og
kvíðastjómun: Oddi Erlingsson, yfir-
sálfræðingur á geðdeild Landspítal-
ans; Svefii og svefhtruflanir: Júh'us K.
Bjömsson, sálfræðingur á Rannsókn-
arstofnun uppeldismála; Verkir og
verkjameðferð: Dr. Eiríkur J. Líndal,
sálfræðingur á geðdeild Landspítal-
ans; Agi og agavandamál hjá bömum:
Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur,
forstöðumaður Stuðla, meðferðar-
heimilis fyrir unglinga, Þunglyndi:
Forvai'nir og sálfræðileg meðferð: Eir-
íkui' Öm Amarson, yfirsálfræðingur á
geðdefld Landspítalans og dósent;
Sjálfstyrking.: Anna Valdimarsdóttir,
sálfræðingm'.
Námskeiðin eru öllum opin end-
urgjaldslaust, en væntanlegir þátttak-
endur verða að skrá sig hjá Endur-
menntunarstofnun Háskólans.
VINNII-
SÁLFRÆÐI
Hljómþýður söngur
TOIVLIST
Selljarnarneskirkja
KÓRATÓNLEIKAR
Rangæingakórinn undir sljórn
Elínar Óskar Óskarsdóttur flutti
íslensk kórlög. Einsöngvarar með
kórnum voru auk söngstjórans
Kjartan Ólafsson, Gissur Páll
Gissurarson, Bryndís Jónsdóttir og
Sigrún Flóvenz. Samleikari á flautu
var Marianna Másdóttir og undir-
leikari á píanó Hólmfríður Sigurð-
ardóttir. Þriðjudaginn 18. apríl.
UNDANFARNAR vikur hafa kór-
arnir á Reykjavíkursvæðinu verið
að gera upp vetrarstarfið og halda
sína árlegu vprtónleika. Rang-
æingakórinn hélt sína tónleika í
Seltjarnarneskirkju sl. þriðjudags-
kvöld en á efnisskránni voru ein-
göngu íslensk kórlög.
Tvö fyrstu viðfangsefnin vora
raddsetningar á íslenskum þjóðlög-
um, fyrst Tíminn líður, sem er
raddsetning eftir Árna Harðarson,
og þá ágæt útsetning söngstjórans
á Nú er ég glaður á góðri stund,
þar sem formið er víxlsöngur ein-
söngvara og kórs. Einsöngvari var
Gissur Páll Gissurarson, er skilaði
sínu mjög fallega. Fuglinn í fjör-
unni eftir Jón Þórarinsson, Smá-
vinir fagi-ir eftir Jón Nordal, I
kvöld þegar ysinn er úti eftir ísólf
Pálsson, tvö lög eftir undirritaðan,
'Vorvísa og Fyrirlátið mér, Faðirinn
góði og Gömul vísa eftir Gunnstein
Olafsson vora næstu viðfangsefni,
allt ómþýð og alþýðleg kórlög, er
voru fallega sungin af kórnum.
Frumflutt var lag eftir Torfa Ól-
afsson við kvæðið I musterinu eftir
Davíð Stefánsson. í því lagi sungu
söngstjórinn og Kjartan Olafsson
einsöng og auk píanistans, Hólm-
fríðar Sigurðardóttur, lék Marí-
anna Másdóttir á þverflautu. Þetta
er ómþýtt lag er var flutt af þokka.
Syrpa með lögum eftir Sigfús Hall-
dórsson var fallega sungin, en í
þeim lögum sungu Bryndís Jóns-
dóttir, Sigrún Flóvenz og Gissur
Páll Gissurarson einsöng og var
flutningur þeirra hljómþýður og
fallega framfærður.
Tvö síðustu kórverkin eru eftir
Björgvin Þ. Valdimarsson, Ástar-
þrá og Rangárþing, og vora ágæt-
lega flutt. Rangæingakórinn er
góður og það sem helst mætti
gagnrýna er hversu viðfangsefnin
voru nær eingöngu af léttara tag-
inu, auk þess sem söngstjórinn hef-
ur auðheyrilega lagt áherslu á þýð-
an og mjúklega mótaðan flutning,
svo söngurinn var helst til
áreynslulaus á köflum. Þó mátti vel
heyra að kórinn er vel þjálfaður og
gæti hvað snertir raddgæði tekist á
við erfiðari verkefni en gert var að
þessu sinni.
Jón Ásgeirsson
Samskipti
á vinnustað
Á flestum vinnustöðum eru samskipti flókin og oft
vandasöm. Á námskeiðinu verður kennd samskiptalík-
an til að auka samstarfshæfni þátttakenda og þjálfa
viðbrögð sem leysa ágreining og auka vinnugleði.
Námskeiðið er ætlað fyrir:
Stjórnendur, yfirmenn og aðra starfsmenn sem í starfi
sínu þurfa að takast á við samskipti og samstarfsvanda.
Leiðbeinendur og höfundar
námskeiðs eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir
og Guðfinna Eydal.
Upplýsingar og skráning í síma
Sálfræðistöðvarinnar, 562 3075,
milli kl. 11 og 12/fax 552 1110.
Námskeid fyrir eldri borgara...
• Grwndvallaratriði upplýsingðtækni
• Windows stýrikerfid
• Word ritvinnsla
• Notkun Internetsins
Námskeiðið Hefst 16. nóvember
og Ukur 16. desemher. Keunt verður á
pridjudögum og flmmtudögum
rtimrtrs vegrn* frá kí. 9:00 til 12:00
og hins vegar frá 13:00-16:00
Nánari upplýsingar og innritun
i simuni 555 4980 og 544 4500
... 60 ára og eldri
Nýi tölvu- &
viðskiptaskolinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirðí - Sfmi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hlíðasmára 9- 200 Kópavogl - Sfml: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is