Morgunblaðið - 27.04.2000, Page 62
62 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hundalíf
Er íslenska heil-
brigðiskerfíð sjúkt?
Frá Einari Bimi Bragasyni
FRAM að þessu hef ég talið mig
lánsaman að vera íslendingur og búa
í landi friðar og velferðar, enda er
landið eitt af fimm ríkustu löndum
heims og var talið hafa eitt besta heil-
brigðiskerfi fyrir þegnana.
Skoðun mín hefur ekkert breyst
hvað landið varðar, en hinsvegar er
hún gjörbreytt hvað varðar íslenska
heilbrigðiskerfið eftir mjög undarlega
reynslu. Undirritaður brákaðist á
hálsi í vinnuslysi fyrir um einu og
hálfu ári síðan. Eftir að hafa gengið
frá Heródesi til Pílatusar endaði ég
hjá þeim ágæta lækni Sveini Sveins-
syni yfírlækni Héraðssjúkrahúss Sel-
foss. Ég hélt um tíma að ég hefði dott-
ið í lukkupottinn því læknirinn reyndi
aUt er hann gat til að finna lausn mála,
en þrátt fyrir fjölda röntgenmynda,
bólgueyðandi lyfja, sterasprautur og
sjúkraþjálfun versnaði mér stöðugt.
Yfirlækniiinn neyddist á endanum
til að senda mig til Boga Jónssonar
bæklunarlæknis enda HSS vanbúið
til frekari rannsókna. Eftir nær
tveggja mánaða bið eftir tíma hjá
lækninum og rúmlega aðra tvo mán-
uði eftir tölvusneiðmyndum kom í ljós
áverki á hálsliðum. A læknamáli kall-
að „Osteofytar þrengja að neural for-
minal í c5-c6 og þrengt rými að mænu
hægra megin milli c6-c7“. Hvað sem
það nú þýðir.
Loks var komin skýring á vanlíðan
minni, ég hélt að nú væri hægt að
kippa kalli í lag, en það reyndist nú
öðru nær. Það kom fljótlega í ljós að
læknamir Bogi og Halldór Jónssynir,
er starfa við aðgerðir af þessum toga
hafa ekki ftjálsar hendur í sínum
læknisverkum. Þeir mega aðeins
framkvæma ákveðinn fjölda aðgerða
á viku. Heilbrigðisráðherra virðist
halda fast um Astorveskið. A meðan
lengjast biðlistar og fársjúkt fólk ligg-
ur kvalið vítt og breitt um byggðir
landsins, bíður mánuðum og jafnvel
árum saman eftir bót meina sinna.
Er það eðlilegt að færustu sérfræð-
ingar okkar í slíkum aðgerðum séu
hreinlega læstir úti og fái ekki að nota
skurðstofur Landspítalans v. Hr.
nema hluta af venjulegri vinnuviku?
Það er áríðandi að fá upplýst hvort
þessi vinnubrögð eru alfarið á hendi
heilbrigðisráðherra eða hvort þetta er
stefna ríkisstjómarmnar.
Almannatryggingakerfi íslensku
þjóðarinnar, er stofnað var 1936, réði
lengi vel við þau verkefni sem því var
falið. Það gerir það ekki lengur, það
sést best á því að talið er að nú bíði
7.000 manns eftir ýmsum vandasöm-
um læknisaðgerðum.
Auður hverrar þjóðar hlýtur að
liggja í heilbrigði almúgans.
Ef heilbrigðisráðherra er svo skyni
skroppinn að sjá ekki þessa gulínu
reglu, get ég ekid orða bundist og lýk
máli mínu með orðum langömmu
minnar úr Súðavík: „sveiattan".
EINAR BJÖRN BRAGASON,
fyrrverandi kerfisstjóri,
Austurmörk 25b, 810 Hveragerði
Ljóska
HVAÖ HEIIIR PESSILEIMRI
AFTUR? ANDLITIt) ER SVO
KUNNU6LEST
Ferdinand
Á hvað ertu Síðdegi skógar- Það er mjög Ég get ímyndað
að hlusta? púkans eftir fallegt. mér nokkuð sem
Debussy er enn fallegra.
„Síðdegi seppa“.
Þjóðin heldur
upp á afmæli
Frá Konráði R. Friðfinnssyni:
ÍSLENSKA þjóðin ætlar að halda
upp á það að liðin em eitt þúsund ár,
að talið er, síðan menn námu landið
og hófu kross Krists á loft. Vissulega
stendur þjóðin á ákveðnum tímamót-
um.
Þrátt fyrir þennan sannleika má
síðan spyija sig þeirrar spumingar
upp á hvað þjóðin sé raunverulega að
halda. Vill hún gleðjast yfir þeim at-
burðum sem gerðust hér fyrir þúsund
árum, er kristnir menn námu landið,
eða þá hinu, sem Kristur er að gera
akkúrat núna, í dag í þínu eigin lífí?
Grunnur að margvíslegu kristilegu
starfi var vissulega lagður hér árið
1000 og sem þjóðin byggir enn á.
Núna fer fram margháttuð starfsemi
innan kristna geirans sem vert er að
gefa gaum og minna á, á sjálfu afmæl-
isárinu. Trúboð er stundað á ýmsum
stöðum og í mörgum myndum og
menn eru að framkvæma stóra hluti í
Jesú nafni. Margir fá lækningu fyrir
kraft frelsarans, aðrir hitta ástvini
aftur, í þessum sama krafti, hjóna-
bönd styrkjast, fyrir hjálp sama frels-
ara, menn og konur losna undan böli
áfengis og fiknieftia, einnig fyrir náð
og miskunn Jesú Krists, fjármál kom-
ast á réttan kjöl. Ungt fólk gengur
Kristi á hönd og strengir þess heit að
gefa honum líf sitt. Allt fyrir trú og
traust á krossfestann og upprisinn
frelsara, sem forfeðumir boðuðu hér-
lendis fyrir þúsund árum. ViJjum við
halda upp á þetta, á Þingvöllum í
sumar, eða ætlum við bara að minn-
ast þeirra atburða sem gerðust fyrir
tíu öldum og gera Krist að einhverju
minnismerki sem gott er að hafa upp
á vegg? Ætlum við að sveipa einhvem
dýrðarljóma yfir þessa löngu liðnu
daga eða færa hátíðina fram til dags-
ins í dag og játa hver fyrir öðrum
hvað Kristur er að gera í lífi okkar og
hvaða blessun gangan með honum
hefur fært? Vemm heiðarleg og
spyrjum okkur slíkra spuminga.
Ef við hins vegar höldum okkur við
hið liðna og einblínum á það umfram
daginn í dag, þá hryggjum við þann
sem dó fyrir okkur á krossi. Því hann
er hinn sami og hann var fyrir þúsund
ámm og er enn að gera sömu hluti og
þá fyrir manneskjumar. Sem er að
líkna og lækna og frelsa fólk undan
oki óvinarins. Eins og þá.
Gerum ekki kristnitökuna að ein-
hverri fomri sögu, einhverjum löngu
liðnum atburðum, heldur hugsum
þetta þannig að Kristur lifi í dag,
núna, og gangi enn um á meðal fólks-
ins, hrópandi sömu orð og heyrðust
óma meðal Gyðinganna forðum:
„Komið til mín, allir þér sem erfiði
hafið og þungar byrðar, og ég mun
veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok
og lærið af mér, því að ég er hógvær
og af hjarta lítillátur, og þá munuð
þér finna hvíld sálum yðar. Því að
mitt ok er ljúft og byrði mín létt.“
(Matt: 11.28-30)
KONRÁÐ R. FRIÐFINN SSON,
Hvaleyrarbraut 2, Hafnarfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.