Morgunblaðið - 04.05.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nemendur í 10. bekk héldu upp á lok samræmdra prófa með ýmsu móti í gær
Skemmti-
ferðir í til-
efni prófloka
SAMRÆMDUM prófum í 10. bekk lauk í gær og
héldu nemendur upp á það með ýmsum hætti. I
mörgum skólum hafa á undanförnum árum verið
skipulagðar skemmtiferðir fyrir nemendur í til-
efni prófloka og hefur það yfirleitt mælst vel fyr-
ir meðal kennara, nemenda og foreldra.
Meðal skóla sem buðu nemendum sínum í
ferðalag í gær var Langholtsskóli og var ferðin
skipulögð af kennurum, starfsfólki félags-
miðstöðvarinnar Þróttheima og foreldrafélag-
inu. Farið var í þriggja daga ferð um Snæfellsnes
og meðal þess sem er á dagskrá er skíðaferð á
Snæfellsjökul og sigling frá Stykkishólmi um
Breiðafjörð.
Lagt var af stað eftir hádegi í gær og komið
verður heim seinni partinn á föstudag. Rúmlega
50 nemendur fóru í ferðina en það eru nær allir
nemendur þriggja bekkjardeilda 10. bekkjar
skólans. Umsjónarkennarar bekkjanna þriggja
fóru einnig ásamt tveimur starfsmönnum Þrótt-
heima.
ErnaM. Sveinbjarnardóttir, skólastjóri Lang-
holtsskóla, segir að bæði nemendur og kennarar
skólans séu afar ánægðir með að halda upp á lok
samræmdu prófanna á þennan hátt.
„Þetta er íþriðja sinn sem svona ferð er farin.
Átaksverkefni til að nýta orku betur á „köldum svæðum“ ýtt úr vör
Reynt að vekja
almenning til
umhugsunar um
betri orkunýtingu
Orkudagar, átaksverkefni til að nýta orku betur á þeim svæðum þar
sem hús eru hituð upp með rafmagni, var kynnt í gær. Valgerður Sverr-
isdóttir, iðnaðarráðherra, kynnti átaksverkefnið, en með henni á mynd-
inni er Ragna Karlsdóttir, Orkustofnun, sem cr verkefnisstjóri.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Nær allir nemendur 10. bekkjar Langholtsskóla fóru í ferðalag upp á Snæfellsnes í gær.
Ég tel að þessi góða þátttaka sé að mörgu leyti
vegna þess að krakkarnir hafa frétt hversu vel
tókst til þessi tvö ár sem farið hefur verið,“ segir
Erna.
f Breiðholtsskóla skipulögðu foreldrar nem-
enda 10. bekkjar óvissuferð. 24 nemendur af 32
tóku þátt í henni ásamt. 19 foreldrum. Meðal þess
sem boðið var upp á var ferð niður Hvítá á
gúmmíbátum og sundsprettur í Bláa Lóninu.
„Þetta var gert í fyrra og svo virðist sem það
sé að komast hefð á þetta,“ segir Magnús Jóns-
son, stigsstjóri unglingastigs Breiðholtsskóla.
„Það kom okkur þægilega á óvart hversu mikil
þátttaka var og góð stemmning var fyrir þessu
hjá nemendum, en þeir voru mjög spenntir þegar
þeir lögðu af stað.“
Lítil sem engin ölvun í Kringlunni
og miðbænum
Að sögn lögreglunnar í Reylqavík voru ólæti
unglinga með minnsta móti í gær. Fáir söfnuðust
saman í Kringlunni eins og undanfarin ár og
þurfti lögreglan aðeins að hafa afskipti af fjórum
unglingum þar vegna ölvunar. Fáir unglingar
voru á ferli í miðbænum í gærkvöld og sagði lög-
reglan að varla væri hægt að segja að þeir hefðu
safnast þar saman. Nokkir hefðu verið þar á
stangli en ekki hefði ölvunsést á þeim ölvun.
ORKUDÖGUM, átaksverkefni á
þeim landsvæðum þar sem hús eru
hituð upp með rafmagni, verður ýtt
úr vör um helgina, en markmiðið með
þeim er að vekja almenning til um-
hugsunar um hvernig spara megi
orku og nýta hana betur. Hefjast þeir
í Ólafsvík á laugardaginn kemur og
Grundarfírði á sunnudag og verða
síðan í framhaldinu haldnir á ýmsum
stöðum á landsbyggðinni, en þeir eru
haldnir í samráði við sveitarstjómir á
hverjum stað.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
ráðherra, sagði á blaðamannafundi
þar sem átakið var kynnt, að til þess
væri efnt til að draga úr orkunotkun,
einkum hjá þeim sem notuðu óvenju
mikla orku til húshitunar og vekja
fólk til umhugsunar um þessi mál.
Byrjað yrði á Snæfellsnesi og Vest-
fjörðum í þessum mánuði og síðan
yrði haldið áfram í haust og teknir
fyrir aðrir landshlutar. Átakið ætti
rætur að rekja til starfshóps sem iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra hefði
skipað árið 1995, en í honum hefðu
átt sæti fulltrúar iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins, alþingismenn,
fulltrúar orkufyrirtækja, sveitarfé-
laga, Orkustofnunar og Rannsókna;
stofnunar byggingariðnaðarins. í
framhaldi hefði verið sett á laggimar
verkefnisstjóm.
Faríð á 16-18 staði á landinu
Farið verður á 16-18 staði víðsveg-
ar á landinu vegna átaksins, en auk
Vesturlands og Vestfjarða er þar
einkum um að ræða staði á Austur-
landi, auk staða víða á Norðurlandi
og Norðausturlandi. Eftir dagana í
Ólafsvík og í Gmndarfirði um næstu
helgi verður orkudagur í Búðardal
laugardaginn 13. maí og á Hólmavík
daginn eftir. Laugardaginn 20. maí
verður orkudagur á ísafirði og á Pat-
reksfírði sunnudaginn 21. maí.
Á orkudögunum geta gestir nálg-
ast upplýsingar um eigin orkunotkun
og orkukostnað og fengið hollráð um
hvernig þeir geti nýtt orkuna betur.
Fyrirtæki í byggingariðnaði efna til
sýninga á vömm og þjónustu sem
tengjast orkunýtingu og orkufyrir-
tæki verða kynnt og fluttir fyrirlestr-
ar um orkuspamað í daglegu lífi. Þá
munu orkufyrirtæki senda húsráð-
endum á þessum svæðum, þar sem
hús era hituð upp með rafmagni, bréf
með ábendingum um orkunotkun við
húshitun og hvatningu um að kynna
sér hvort notkunin sé innan eðlilegra
marka miðað við stærð húss í hverju
tilviki. Einnig verður útbúið fræðslu-
og kynningarefni fyrir almenning og
verkefni hefur verið útbúið fyrir
gmnnskólanemendur, en það felur í
sér að þeir afli sér ýmissa upplýsinga
um eigið húsnæði, veðurfar og meðal-
hita innandyra og reikni síðan út
orkuþörfina við upphitun húsanna.
Þá er í tengslum við orkudagana
haldið námskeið fyrir tæknimenn
sveitarfélaganna um það hvað hægt
sé að gera til að spara orku við upp-
hitun húsnæðis.
Fram kom að raforkunotkun til
húshitunar ræðst af ýmsum þáttum,
einkum veðurfari, húsakosti og
notkunarvenjum. Talið sé að eðlileg
notkun sé á bilinu 70-90 kílówatt-
stundir á ári á hvem rúmmetra hús-
næðis, en notkunin sé í mörgum til-
vikum meiri en það og jafnvel séu
dæmi um meira en tvöfalt meiri
orkunotkun en þetta eða allt upp í
200 kWst á rúmmetra. Gera megi ráð
fyrir að úrbóta sé þörf á að minnsta
kosti 5-6% húsnæðis á þessum svæð-
um, en samanlagt er talið að á þeim
séu um 9-10 þúsund heimili.
Sérstakur útlánaflokkur
í undirbúningi
Valgerður sagði að á vegum iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneytisins, félags-
málaráðuneytisins og Ibúðalánasjóðs
væri verið að kanna möguleika á því
að setja á laggirnar sérstakan útlána-
flokk fyrir þá íbúðareigendur á köldu
svæðunum sem hygðust gera úrbæt-
ur á húsnæði sínu til þess að minnka
hitunarkostnað. Lánin yrðu af stærð-
argráðunni 200-300 þúsund krónur, á
viðráðanlegum kjömm. Hún teldi
mjög æskilegt að hægt yrði að bjóða
upp á þetta, því það gæti verið nokk-
ur kostnaður samfara því að ráðast í
framkvæmdir af þessu tagi.
Fréttir af mbl.is
á miðunum
Mikil
bót fyrir
sjómenn
SJÓMÖNNUM á hafi úti gefst frá
og með deginum í dag færi á að
fylgjast með fréttum Morgunblaðs-
vefjarins mbl.is um Þjónustubanka
Radíómiðunar. Fréttirnar era upp-
færðai- á klukkutíma fresti og að
auki býðst sjómönnum hvern mið-
vikudag efni úr Verinu, sérblaði
Morgunblaðsins um sjávarútveg.
Ingvar Hjálmarsson, forstöðu-
maður netdeildar Morgunblaðsins,
og Jóhann Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Radíómiðunar ehf.,
fagna samstarfinu og leggja áherslu
á að þjónustan sé vemleg bót fyrir
sjómenn.
Aðgangur sjómanna á miðunum
að fréttum á Netinu hefur að vísu
verið tæknilega mögulegur um
skeið en varla raunhæfur, að sögn
Jóhanns Bjarnasonar. „Þau kerfi
sem em hagkvæmust í rekstri og
ódýrasti búnaðurinn hafa mjög litla
flutningsgetu. Með þessum tækjum
ferðu ekkert inn á Netið. Tæknin er
til en notkunin yrði alveg óheyrilega
dýr og búnaðurinn sem til þarf
líka,“ sagði Jóhann. Ástæðan fyrir
því að hægt er að sækja upplýsingar
af Þjónustubanka Radíómiðunar af
miðunum er að upplýsingarnar eru
sérsniðnar þannig að síðan verði
eins einföld í sniðum og mögulegt er
og þar af leiðandi létt í vöfum.
Göð viðbrögð við
þjónustunni
Þjónustubanki Radíómiðunar
hefur stækkað ört frá því faríð var
að huga að opnun hans fyrir um það
bil þremur áram. Nú hefur hann
meðal annars að geyma upplýsingar
um veður, lokanir á miðunum,
fiskmarkaði og gengisski-áningu.
Jóhann segir að það sé í eðlilegu
framhaldi af þessari stækkun að
haft var samband við Morgunblaðið.
Þjónustan hefur nú verið prófuð
um borð í togurum við góðar undir-
tektir. „Við höfum fengið mjög
sterk viðbrögð," sagði Jóhann og
bætti við „það er ekki að ástæðu-
lausu að Morgunblaðið er keypt inn
á meirihluta íslenskra heimila."
Greiða þarf mánaðargjald fyrir
aðgang að Þjónustubanka Radíó-
miðunar.
----------------
Jarðskjálfta-
hrina norður
af Grímsey
JARÐSKJÁLFTAHRINA hófst í
gær um 10 kílómetra norðaustur af
Grímsey. Mestu skjálftarnir voru
um sjöleytið í gærmorgun en sá
stærsti var um 3,1 stig á Richter.
Að sögn jarðskjálftavaktar Veð-
urstofu Islands hafa um 60 skjálftar
mælst, en virkni fór mjög minnk-
andi.
Sérblöð í dag
tzsmm
Morgunblaðinu
í dag fylgir
tímaritið 24-7.
Útgefandi:
Alltafehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson
4 wm m..
íprúiiir
Eiður Smári með sigurmark Bolton
gegn Woives/C3
íri á leið til knattspyrnuliðs
Stjörnunnar/Cl
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is