Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 13
Leiðtogi norskra bindindismanna kynnir breyttar baráttuaðferðir
Vínbann ekki
á dagskrá núna
NORSKI bindindisfrömuðurinn
Bjorn Skau sótti íslenska góðtempl-
ara heim í liðinni viku og kynnti þeim
róttækar breytingar á starfi norskra
templara síðustu árin. Svipaðar
breytingar hafa einnig verið gerðar í
Svíþjóð og telur Skau að á vissan hátt
sé um að ræða viðbrögð vegna vax-
andi hneigðar í átt til frjálsræðis í
áfengismálum í þessum löndum, auk
þess sem neysla fari hratt vaxandi.
Skau hefur komið víða við, var um
hríð ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og
félagsmálaráðuneytinu í Ósló og
gegndi embætti dómsmálaráðherra í
fyrstu ríkisstjórn Gro Harlem
Brundtland 1981. Hann var formaður
norsku góðtemplarareglunnar og til
skamms tíma forseti ráðs norrænna
góðtemplara.
„Hreyfingin er ekki stór ef félaga-
talan er höfð í huga. Norska reglan
skiptist í nokkur ólík félög sem öll
eiga aðild að alþjóðasambandi góð-
templara, IOGT. Við erum með ungl-
ingasamtök og bamasamtök og tvenn
samtök fyrir fullorðna. Alls eiu félag-
arnirrúmlega 10.000.“
Stúkufundir barna aflagðir
„A undanförnum árum og einkum
tvö síðustu árin höfum við gert
grundvallarbreytingar á starfinu. Við
leyfum nú félögunum sjálfum að
ákveða hvernig form þeirra vilja hafa
á starfinu. Barna- og unglingasam-
tökin skiptast að jafnaði ekki í stúkur
lengur.
Við viljum ekki vera samtök sem
láta sér nægja að vera, við viljum líka
gera, vera virk. Pessari stefnu fylgj-
um við fram með ýmsum hætti og
leggjum æ meiri áherslu á að fá inn
nýja félaga sem ekki ætla eingöngu
að njóta samskipta við aðra bindindis-
menn heldur vilja einnig taka þátt í að
leysa verkefni í samfélaginu, vinna
þar að bindindismálum meðal ann-
arra. Mér virðist að þessi stefnumót-
un sé nú farin að bera ávöxt.
Starfið meðal barnanna er að sjálf-
sögðu mjög mikilvægt. Við erum ekki
lengur að reyna að fá þau til að taka
þátt í stúkufundum heldur til þátt-
töku í leikstarfsemi og öðru tóm-
stundastarfi.
Einnig vil ég nefna að við höfum
sett á laggirnar ráðgjafarmiðstöð fyr-
ir sveitarfélögin. Þar geta þau fengið
aðstoð okkar við að skipuleggja andóf
gegn áfengisnotkun á staðnum og þá
með áherslu á forvamir. Auk þess er-
um við þar með fræðslu fyrir stjórn-
málamenn og þá starfsmenn sveitar-
félagsins sem vinna að
áfengisvörnum.
Annað sem við erum nú byrjuð að
gera er afar óhefðbundið. Við höfum
efnt til námskeiða fyrir fólk í veitinga-
rekstri, þá sem reka krár og stærri
staði. Samkvæmt nýjum lögum um
áfengismál á fólkið að fara í próf til að
sýna að það kunni ákvæði laganna um
þessi mál og þessa kunnáttu getur
það nú öðlast á námskeiðunum okkar.
Við höfum nú í meira en þijú ár
rekið starfsemi fyrir fjölskyldur, við
nefnum hana Sterk og klar. Við höf-
um samband við fólk fyrir tilstuðlan
skólanna og markmiðið er að foreldr-
ar og böm semji um það sín í milli
hvemig taka skuli á vandamálum í
tengslum við áfengi og fleira. Það er
athyglisvert að það em ekld bara for-
eldrar sem eiga við vanda að stríða
vegna misnotkunar bama sinna á
þessum efnum heldur þurfa mörg
börn á hjálp að halda vegna áfengis-
misnotkunar hinna eldri. Oft kemur í
Ijós að bömin hafa ekki þorað að ræða
þessi mál opinskátt við foreldra sína.“
Símaþjónusta fyrir börn
„Eitt af ráðunum er símaþjónusta
sem við höfum rekið í nokkur ár íyrir
böm sem em þjökuð af áfengismis-
notkun fullorðinna. Þessi vandi hefur
verið hunsaður víða um lönd, gert er
ráð fyrir að fjöldi slíkra bama í Nor-
egi einum sé vel yfir 100.000. Við töl-
um við þau, stundum getum við gefið
þeim ráð, sagt þeim hvar þau geti
fengið aðstoð en við tökum ekki að
okkur neina meðferð. Lítill, vel þjálf-
aður hópur af fólki á hveijum stað
annast símaþjónustuna."
Hann er spurður hvort hreyfingin
beijist sem fyrr gegn allri áfengis-
notkun, hvort vínbann sé enn mark-
miðið.
Morgunblaðið/RAX
Bjorn Skau, bindindisfrömuður frá Noregi.
„Já, en við störíúm með fólki sem
hefur aðra skoðun í þessum efnum.
Við verðum að greina á milli þess ann-
ars vegar að vinna gegn fíkniefnum
og hins að vera sjálfur bindindismað-
ur. Þetta er spuming um persónulega
afstöðu hvers og eins. Við fögnum öll-
um sem vilja vinna gegn misnotkun
áfengis og fíkniefna en álítum að í
hveiju þjóðfélagi þurfi að vera til
vettvangur fyrir þá sem alls ekki
neyta áfengis.
En þegar rætt er um algert bann
við neyslu áfengis er það stefna okkar
að málið verði ekki á dagskrá fyrr en
mikill meirihluti þjóðarinnar vill slíkt
bann, jafnvel meira en tveir af hverj-
um þremur. Bann virkar ekki nema
afgerandi meirihluti styðji það.“
10-50%
afsláttur af hreinlætis- og
blöndunartækjum
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is