Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir
Síminn gerir samning við Ericsson
Síteng’ing’ við
Netið og marg-
faldur hraði
SÍMINN hefur samið við Ericsson í
Danmörku um kaup á búnaði sem
gerir kleift að tífalda flutningshraða
í GSM-kerfi Símans og bjóða upp á
sítengingu við Netið. Búnaðurinn
hefur m.a. í för með sér að WAP-
þjónusta Símans verður hraðvirkari.
Aðilar samningsins vænta þess að
búnaðurinn verði að fullu kominn í
notkun í lok ársins.
I fréttatilkynningu frá Símanum
og Ericsson segir að samningurinn
sé eðlilegt framhald af mikilli stækk-
un GSM-nets Símans, en notendur
þess eru nú um 110 þúsund. Með hin-
um nýja búnaði, sem byggist á svo-
kallaðri GPRS-lausn, er búið í hag-
inn fyrir framtíðina, að sögn Olafs
Indriðasonar forstöðumanns far-
símakerfa hjá Símanum.
„Með GPRS verður farsímanetið
raunverulegt gagnanet og takmark-
ast ekki við flutning samtala. Not-
endur farsíma verða alltaf í sam-
bandi og fá þannig á svipstundu
samband við intemet- og WAP-þjón-
ustu og fleira," segh- Olafur. Hann
bendir á að þar með verði óþarfi að
hringja í þjónustuaðila sem selja að-
gang að Netinu og telur að þessi
háttur gefi nýja notkunar- og við-
skiptamöguleika.
Islensk málnefnd gerir samþykkt
vegna breytinga á stjórnsýslu
••
Ornefni hverfa
ekki þótt ný sveit-
arfélög verði til
Frjálslyndi flokkurinn
og útvarpsstjóri
Vill skrif-
lega skýr-
ingu
SVERRIR Hermannsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins, hefur í
bréfi til Markúsar Arnar Antons-
sonar útvarpsstjóra óskað eftir
skriflegri skýringu á því hvernig
það samræmist lögum um fyllstu
óhlutdrægni að boða fjóra af fimm
formönnum þingflokka til viðræðna
í Kastljósi um stöðu þingmála.
í bréfi Sverris til útvarpsstjóra
er honum þökkuð afsökunarbeiðni
útvarpsstjóra og einnig afsökunar-
beiðni umsjónarmanns Kastljóss
en síðan segir: „Þér leggið áherzlu
á óhlutdrægni Ríkisútvarpsins,
sem vonlegt er, enda mælt fyrir
um hana í lögum. En hvernig það
samræmist lögum um fyllstu óhlut-
drægni í dagskrárgerð að boða að-
eins fjóra af fimm formönnum
þingflokka til að ræða stöðu þing-
mála á síðustu dögum þingsins -
og þar bar hæst þennan dag um-
ræðu í þingi um fiskveiðistjórnar-
mál, sem Frjálslyndi flokkurinn
hafði forgöngu um - er óskað eftir
að fá skriflega skýringu á.“
Stálu bifreið
á reynslulausn
TVEIR ungir menn voru hand-
teknir í Reykjavík í aðfaranótt
miðvikudags, ölvaðir á stolinni bif-
reið. Þeir eru báðir á reynslulausn
og sérstökum vímuefnaskilyrðum.
Annar þeirra losnaði úr síbrota-
gæslu skömmu fyrir páska er hér-
aðsdómur hafnaði kröfu lögreglu
um áframhaldandi gæslu.
Þá handtók lögreglan tvo menn
eftir húsleit á miðvikudagskvöld
og færði til yfirheyrslu. I fórum
þeirra fundust 40 grömm af hassi
og u.þ.b. 20 grömm af amfetamíni,
auk þess sem hald var lagt á
nokkra gsm-síma og innbrots-
tækjabúnað.
Stafkirkja rís
í Heimaey
BYRJAÐ er að reisa í Vestmanna-
eyjum stafkirkju af sömu gerð og
reistar voru í Noregi á upphafs-
árum kristni þar í landi fyrir 1000
árum. Fjórir norskir smiðir eru
komnir til Eyja sérstaklega til að
reisa kirkjuna en áætlað er að vígja
hana 30. júlí næstkomandi að við-
stöddum fyrirmennum. Mun Har-
aldur Noregskonungur sjálfur hafa
hug á því að verða viðstaddur at-
höfnina ásamt eiginkonu sinni,
Sonju.
Kirkjan er þjóðargjöf Norð-
manna til íslendinga í tengslum við
1000 ára kristnitökuafmælið hér á
landi en íslenska ríkisstjórnin legg-
ur til stofnframlag til að kirkjan fái
umgjörð við hæfí á Heimaey. Fyrir-
tækið Stokk og Stein í Lom í Nor-
egi hefur unnið að smíði kirkjunnar
og nánast byggði hana upp innan
dyra þar ytra. í aprfl var kirkjan
síðan flutt í einingum til Íslands og
er fullnaðarsmíði hennar nú hafín.
Kirkjan mun standa fyrir miðjum
syðri hafnargarðinum í Heimaey
en kirkja sú sem Hjalti Skeggjason
reisti árið 1000 mun hins vegar
hafa verið norðan innsiglingar-
innar á Hörgaeyri. I vetur hefur
verið unnið að kirkjustæðinu en
Pétur Jónsson landslagsarkitekt
hannaði umgjörðina. Verið er að
hlaða garða í gömlum stfl í kring-
um kirkjuna, sem og gangstíga, en
sjálfur hafnargarðurinn verður lóð
kirkjunnar með lýsingu, munstur-
steypu og sérstakri kirkjubygg-
ingu.
ÍSLENSK málnefnd hefur gert
samþykkt þar sem segir að gefnu til-
efni vilji nefndin vekja athygli á því
að ekki sénauðsynlegt að dagleg
málnotkun fylgi í einu og öllu skipu-
lagsbreytingum eða breytingum á
venjum í opinberri stjórnsýslu.
„Sameiningu sveitarfélaga fylgja
oft nýjar eða breyttar nafngiftir.
Meðal nýlegra nafna á sveitarfélög-
um sem fengið hafa staðfestingu fé-
lagsmálaráðuneytis eru Sveitarfé-
lagið Hornafjörður, Sveitarfélagið
Ai-borg, ísafjarðarbær o.fl. Þessum
og þvílíkum breytingum þurfa hins
vegar ekki að fylgja breytingar á
nafnanotkun í daglegu tali. Sá sem
þjó á Selfossi áður en Sveitarfélagið
Arborg varð til býr eftir sem áður á
Selfossi, sá sem bjó á Kjalarnesi býr
þar enn þótt Kjalarneshreppur hafi
sameinast Reykjavík o.s.fr,“ segir í
samþykkt nefndarinnar.
Ekki þarf að kasta fyrir róða
gömlum veðurheitum
Kristján Árnason, formaður ís-
lenskrar málnefndar, segir að borið
hafi á því að sumir haldi að gömul
örnefni hverfi þegar ný sveitarfélög
verða til. íslensk málnefnd hafi séð
ástæðu til að benda á þetta.
I samþykkt Islenski-ar málnefnd-
ar segir epnfremur: „Enda þótt Veð-
urstofa íslands taki upp þá ný-
breytni að lýsa vindhraða í metrum á
sekúndu er ekki þar með sagt að
nauðsynlegt sé að kasta fyrir róða
orðum sem áður hafa tíðkast um
vindhraða svo sem orðunum andvari,
kul, stinningskaldi og stormur. Ekki
verður annað séð en að hin hefð-
bundnu heiti megi nota jafnt í dag-
legu tali sem í veðurfregnum frá
Veðurstofu Islands."
Kristján segii- að ekki sé ástæða til
að óttast að þessi orð séu að falla út
úr málinu. Hann tekur undir með
þeim sem segja að það sé ekki hlut-
verk Alþingis að stjórna daglegri
málnotkun og vísar þar til umræðna
nýlega á þingi um orðanotkun við
veðurlýsingar. Hann bendir á að
ábyrgð Veðurstofunnar sé einnig
mitól því hún hafi áhrif á málnotkun-
ina. Engin ástæða sé til þess að Veð-
urstofan af breyti framsetningu veð-
urfregna.
Umhverfísráðherra um framkvæmd samnings um líffræðilega fjölbreytni
Fjárskortur hefur haml-
að vinnslu skýrslu
HEILDARKOSTNAÐUR af aðild íslands að
alþjóðasamningnum um líffræðilega fjölbreytni
nam á árunum 1995-1999 ríflega 8 milljónum
kr. vegna aðildargjalda, ferðakostnaðar og
vinnuframlags Náttúrufræðistofnunar Islands.
Ekki er gert ráð fyrir fé til framkvæmdar
samningsins í fjárlögum þessa árs en í ferða-
áætlun umhverfisráðuneytisins er gert ráð fyrir
kostnaði við að senda einn fulltrúa til þátttöku
á fimmta þingi aðildarríkja samningsins, sem
hefst í Nairobi í Kenýa 15. maí næstkomandi.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ski-if-
legu svari umhverfisráðherra við fyrirspurn
Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri-
hreyfingarinnar - græns framboðs, um fram-
kvæmd samningsins sem undirritaður var á
Ríó-ráðstefnunni 1992 og staðfestur formlega
af íslands hálfu árið 1994.
Kemur ennfremur fram að dregist hefur að
skila til skrifstofu samningsaðila skýrslu ís-
lands um líffræðilega fjölbreytni hér á landi en
eindagi til að skila skýrslunni var í janúar 1998.
Er ástæðan sögð sú að skort hafi nauðsynlegar
upplýsingar og fé til þess að ljúka vinnslu
skýrslunnar. Hins vegar liggi fyrir drög að
skýrslunni í umhverfisráðuneytinu og að stefnt
sé að því að ljúka gerð hennar og senda til
skrifstofu samningsins á næstu mánuðum.
Skipuð samráðsnefnd í febrúar 1998
Fullyrt er að ráðuneytið hafi tekið mið af
ákvæðum samningsins um líffræðilega fjöl-
breytni við gerð frumvarpa til laga undanfarin
misseri og að unnið sé markvisst að því að
styrkja grundvöll fyrir framkvæmd hans hér á
landi. Hins vegar hafi komið í ljós að til þess að
ná yfir öll áherslusvið samningsins og í umfjöll-
un á þingum aðildarríkja væri nauðsynlegt,
vegna eðlis hans og þess hversu víðtækt gildis-
svið hans er, að fleiri ráðuneyti en umhverfís-
ráðuneytið og stofnanir þess kæmu að honum.
Var því í febrúar árið 1998 skipuð sam-
ráðsnefnd um samninginn með aðild utanríkis-
ráðuneytis, sjávarútvegsráðuneytis og landbún-
aðarráðuneytis, auk umhverfisráðuneytis og
Náttúrufræðistofnunar íslands. Hefur um-
hverfísráðuneytið að undanförnu undirbúið
gerð framkvæmdaáætlunar fyrir samninginn
hér á íslandi og hyggst á næstunni hefja nánari
útfærslu hennar í samvinnu við samráðsnefnd-
ina.