Morgunblaðið - 04.05.2000, Síða 20
20 FÍMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
moégun'blaðið
AKUREYRI
Herflutningavél með
rússneskt keppnislið
lendir á Akureyri
Formaður framkvæmdanefndar óhress með seinagang
við hönnun viðbyggingar Amtsbokasafnsins
Oánægja með
drátt á hönnun
viðbyggingar
Morgunblaðið/Kristján
Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður skoðar gamalt líkan af Amtsbóka-
safninu og fyrirhugaðri viðbyggingu sem hann er farið að lengja eftir.
RÚSSNESK herflutningavél með
16 manns innanborðs, vélsleða og
búnað lendir á Akureyrarflugvelli
um kl. 14 í dag, fimmtudagin 4.
maí. Um er að ræða fjögurra
manna rússneskt keppnislið, að-
stoðarfólk og blaðamenn sem taka
þátt í og ætla að fylgjast með al-
þjóðlegri vélsleðakeppni sem Vél-
sleðaklúbbur Ólafsfjarðar og Kapp-
akstursklúbbur Akureyrar halda í
miðbæ Ólafsfjarðar um helgina.
Vélsleðamótið hefst kl. 13 á laug-
ardag, en meðal þátttakenda eru
bestu snjókrossmenn hérlendir,
sem og keppendur frá Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi auk Rússanna.
Nú er verið að aka snjó inn í mið-
bæ Ólafsfjarðar til að búa til braut-
ir fyrir keppnina. Að lokinni
keppni verður haldin grillveisla í
miðbænum fyrir keppendur og
gesti.
Marinó Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sportferða, sem sá um skipu-
lagningu vegna komu rússneska
liðsins í samvinnu við rússneska
sendiráðið, sagði að mikið yrði um
að vera í Ólafsfirði og undirbúning-
ur í fullum gangi. Þátttakendur
yrðu um 20 talsins en ómögulegt
væri að geta sér til um hversu
margir áhorfendur yrðu, þeir gætu
orðið á bilinu 1.000 til 2.000 talsins.
FRAMKVÆMDANEFND Akur-
eyrarbæjar hefur lýst yfir megnri
óánægju sinni með það hvað dregist
hefur að ljúka hönnun á viðbygg-
ingu Amtsbókasafnsins. Ásgeir
Magnússon, formaður fram-
kvæmdanefndar, sagði að teikning-
ar hefðu enn ekki borist en að bæj-
arstjórn hefði verið búin að ákveða
að fara af stað með verkið á þessu
ári.
Ásgeir sagði að rætt hefði verið
við hönnuði hússins á síðasta ári, til
að tryggja að hægt yrði að bjóða
verkið út um síðustu áramót og
steypa húsið upp að öllu leyti í ár.
„Hönnuðirnir töldu sig ekki geta
verið tilbúna með teikningar í des-
ember og báðu um frest fram í jan-
úar. Þegar komið var fram í janúar
báðu þeir um frest fram í mars og
nú er komið fram í maí og þetta er
ekki klárt enn. Það er endalaust
verið að þrýsta á málið og ég vona
að við getum farið að bjóða verkið út
og koma því af stað. Við erum að
lenda hér á eftir öllum framkvæmd-
um í útboðum og það er alveg
skandall hvernig þetta hefur gengið
fyrir sig,“ sagði Ásgeir. Nýbygging
verður um 1.400 fermetrar að stærð
og heildarstærð hússins eftir að
nýbyggingin er risin verður tæpir
2.600 fermetrar.
Hólmkell Hreinsson amtsbóka-
vörður sagði að innan meirihluta
bæjarstjórnar væri ákafur og ein-
dreginn vilji til þess að hefja fram-
kvæmdir við viðbygginguna. Hann
Tónlistarskóli
Eyjafjarðar
Fimm vor-
tónleikar
VORTÓNLEIKAR á vegum Tón-
listarskóla Eyjafjarðai- eru nú að
hefjast, en alls verða haldnir fimm
tónleikar á þessu vori.
Fyrstu tónleikamir verða um
helgina í Freyvangi en þar verða
haldnir þrennir tónleikar, þeir fyrstu
eru á föstudagskvöld, 5. maí, kl.
20.30 og þá verða tónleikar á laugar-
dag, 6. maí, kl. 14.30.
Tónleikar Söngdeildar verða svo á
sunnudag, 7. maí, kl. 20.30 en þar
koma fram nemendur Þuríðar Bald-
ursdóttur söngkennara og er efnis-
skráin fjölbreytt að vanda. Undir-
leikari á tónleikunum er Dóróthea
Dagný Tómasdóttir.
Þá verða haldnir tónleikar í Þela-
merkurskóla á þriðjudag, 9. maí, kl.
20.30 og síðustu tónleikamir verða í
gamla skólahúsinu á Grenivík á
fimmtudag, 11. maí, kl. 20.30.
Aðgangur er ókeypis á tónleikana
og allir velkomnir.
nefndi að minnihlutinn hefði lagt
fram tillögu við gerð fjárhagsáætl-
unar fyrir árið 1999 um að fresta
framkvæmdum en hún hefði verið
kollfelld. „Það er vissulega pirring-
ur meðal okkar að verkið skuli tefj-
ast svona en það er hönnuðurinn
sem dregur lappirnar."
Á fundi bæjarráðs í síðustu viku
var yfirlit yfir flutning ónýttra fjár-
veitinga vegna fjárfestingaverkefna
milli áranna 1999 og 2000. Vegna
Amtsbókasafnsins voru fluttar 7,6
milljónir króna. Hólmkell sagði að
ekki hefði fengist unnið upp í þessa
fjárhæð en að heildarkostnaður við
hönnunina væri kominn i um og yfir
30 milljónir króna. Hann sagði að
hugmyndin hefði verið að taka
fyrstu skóflustungu viðbyggingar-
innar á afmælisdegi Davíðs Stefáns-
ÁTJÁN ára piltur hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra í rúmlega eins mánaðar
fangelsi, sem skilorðsbundið var til
tveggja ára. Þá var honum gert að
greiða pilti á svipuðum aldri bætur.
Pilturinn var ákærður fyrir að
hafa í byrjun október á síðasta ári
ráðist að ungum manni í undirgöng-
um við verslunarmiðstöðina Kaup-
ang við Mýrarveg og slegið hann
nokkur högg í andlitið, þannig að
hann hlaut mar, skurði og eymsl.
sonar frá Fagraskógi 21. janúar sl.
Hólmkell sagði að bæjarbúar hefðu
einnig sýnt því mikinn skilning að
stækka safnið. Samkvæmt skoðana-
könnun sem gerð var meðal skatt-
greiðenda í fyrra hefðu bæjarbúar
m.a. nefnt það að standa ætti við af-
mælisgjöfina og stækka safnið,
bæta aðstöðuna og efla safnið, svo
eitthvað væri nefnt.
Kröfur varðandi húsið
hafa breyst
Starfsfólk safnsins hefur búið við
þröngan kost í langan tíma og sem
dæmi er vinnurými þeirra í lestrar-
salnum. Hólmkell sagði að safninu
hefði borist 90 kassa bókagjöf í vik-
unni og vegna plássleysis hefði
þurft að setja þá alla í geymslu.
Safngestir fengju því ekki að njóta
Játaði pilturinn hátterni sitt
skýlaust. I mars síðastliðnum var
hann dæmdur fyrir nytjastuld og
var refsingin skilorðsbundin til
tveggja ára, var sá dómur tekin upp
nú. Með vísan til ungs aldurs pilts-
ins, sem var sautján ára þegar brot-
in voru framin, sem og greiðlegri
játningu og þess að hann samþykkti
að greiða skaðabætur að hluta var
fullnustu refsingar frestað og hún
felld niður haldi hann almennt skil-
orð.
Ert þs naglfastur?
Nú ertímabærtað
skipta yfir á sumardekk
Gatnamálastjórinn |g| í Reykjavík
Héraðsddmur Norðurlands eystra
Skilorð vegna
líkamsárásar
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is