Morgunblaðið - 04.05.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000 21
þeirra bóka á næstunni. Aðsókn að
safninu hefði verið góð og á skírdag
sl. komu 794 gestir í heimsókn.
Magnús Garðarsson, eftirlits-
maður framkvæmda hjá Akureyr-
arbæ, sagði að þegar verið væri að
dusta rykið af svona málum kæmi
ýmislegt í ljós. Kröfur varðandi
húsnæðið hefðu breyst mikið og það
gerði hlutina erfiðari þegar búið
væri að afmarka húsið. Magnús
sagði að arkitektinn hefði verið
búinn að hanna húsið miðað við fyr-
irliggjandi forsendur og því yrði
bærinn að taka þann kostnað á sig
sem af því hlytist að ekki hefði verið
ráðist í framkvæmdir.
Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa í
gegnum tíðina oft verið gagnrýnd
fyrir það að ekki hafi verið lokið við
eina framkvæmd áður en byrjað er
á annarri. Saga viðbyggingarinnar
við Amtsbókasafnið er orðin ansi
löng og trúlega sú lengsta innan
bæjarkerfisins í langan tíma, ef
ekki frá upphafi.
Á hátíðarfundi bæjarstjórnar 29.
ágúst 1987 var samþykkt að stækka
hús Amtsbókasafnsins við Brekku-
götu á næstu árum í tilefni 125 ára
afmælis bæjarins og að veita tvær
milljónir króna til að hefjast handa
við hönnun byggingarinnar. Við-
byggingin á að rísa norðan við safn-
ið. Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti í febrúar 1988 að efna til
samkeppni um hönnun nýbyggingar
við Amtsbókasafnið, sem ætlað var
að laða fram bestu lausn hvað varð-
aði fyrirkomulag og notagildi bæði
nýbyggingar og núverandi húss
sameiginlega. Verðlaunafé nam
samtals um 1,3 milljónum króna.
Alls bárust 25 tillögur í keppnina
og voru þrjár þeirra verðlaunaðar.
Tillaga Guðmundar Jónssonar arki-
tekts, sem starfar í Noregi, hlaut
fyrstu verðlaun. í kjölfarið var
gerður samningur við Guðmund um
arkitektavinnu vegna hönnunar við-
byggingarinnar. Fleiri aðilar komu
að verkinu, m.a. vegna tæknilegra
verkefna.
Menningarsetur í hjarta
bæjarins
Málið komst aftur á rekspöl eftir
að núverandi meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Akureyrarlista tók við
völdum. Við gerð fjárhagsáætlunar
fyrir árið 1999, í desember árið áð-
ur, samþykkti bæjarstjórn að verja
8,5 milljónum króna vegna upphafs
framkvæmda við viðbyggingu við
Amtsbókasafnið og þá jafnframt að
lokið yrði við hönnun og gerð út-
boðsgagna. Það gekk ekki eftir og
eins og áður er nefnt er enn beðið
eftir að hönnuðir ljúki sinni vinnu.
Á 100 ára kaupstaðarafmæli Ak-
ureyrar árið 1962 var tekin sú
ákvörðun að reisa veglegt hús yfir
Amtsbókasafnið og var byggingin,
sem stendur á horni Brekkugötu og
Oddeyrargötu, tekin í notkun árið
1968. Byggingin er tæpir 1.200 fer-
metrar að stærð og henni var á sín-
um tíma ætlað að bæta úr húsnæð-
isþörfum Amtsbókasafnsins og
Héraðsskjalasafnsins. Talið var
æskilegt að þetta menningarsetur
yrði byggt í hjarta bæjarins, þótt
landrými hefði verið meira á öðrum
stöðum í bænum.
0ECLSGK
t A# (S
hrífandi
heimur!
fegurð, slökun
og uppbygging
Decleor-snyrtivörullnan er leið-
andi merki á heilsusetrum og
SPA-stöðum um allan heim.
Hún hefur slakandi áhrif, er
örvandi, nærandi, grennandi,
vatnslosandi og byggir upp
húðina á sérstakan hátt vegna
þess að hún er unnin beint úr
náttúrunni.
Kynning verður á Decleor-
snyrtivörullnunni þriðjudaginn
2. mal til föstudagsins 5. maí I
Planet Esju, Suðurlandsbraut 2
(Hótel Esju), annari hæð, milli
kl. 20.00 og 22.00.
Þeir sem koma á kynninguna
geta fengið frlan prufutíma á
Planet Esju. Athugið að slfkan
tlma verður að panta hjá
ráðgjafa.
JF*Iczn*?t
ICELAND
Umboós- og heildvwrslun
Hótel Esju • Suduriandsbraut 2 • Sími: 588 1700
GULLNA H l ! 0 I Ð - plaOO 295