Morgunblaðið - 04.05.2000, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
kl. 18:40
Sjávarút-
vegsfyrir-
tæki sam-
einast
á netinu
Morgunblaðið/Kristján
Samningafundur mjólkurfræðinga stóð fram á nótt
V erkfall skollið á
og mjólk á þrotum
VERKFALL mjólkurfræðinga hófst
á miðnætti í nótt og var í gær farið að
bera á því að fólk væri farið að
hamstra mjólk. Mjólkursamsalan
framleiddi talsvert meira af mjólk í
gær en venja er, en afgreiddi þó síð-
ustu mjólkina til verslana í gær.
Sýrðar mjólkurvörur verða þó fáan-
legar áfram. Setið var við samninga-
borðið í Karphúsinu fram á nótt og
sagði Þórir Einarsson ríkissátta-
semjari um klukkan eitt í nótt að
hann hygðist reyna til þrautar.
„Ég veit það nú ekki,“ sagði Þórir
er hann var spurður hvort sáttavilji
væri í viðræðunum. „En það er hald-
ið áfram - það er viss vísbending í
því og ég slít ekki fundi heldur held
inn í nóttina. Helst vil ég ekki hætta
fyrr en samningur er kominn, en ef
það gengur ekki slítur maður ein-
hvern tímann með morgninum."
Framleiðsla aukin um helming
Leifur Orn Leifsson, forstöðumað-
ur sölu- og dreiflngarsviðs hjá
Mjólkursamsölunni, sagði að í gær
hefði verið framleitt 80 til 100%
meira af mjólk en venjulegt teldist á
miðvikudegi, en meðaltalið væri
sennilega 90 þúsund lítrar af mjólk í
heildina. Síðasti neysludagur þeirrar
mjólkur, sem var sett á fernur í gær,
er 11. maí.
Pantanir voru það miklar í gær að
skammtað var í verslanir og var eng-
in mjólk eftir í dagslok. Sagði Leifur
Örn að þær verslanir, sem hygðust
panta í dag myndu koma að tómum
kofunum: „Það verður engin mjólk
til afgreiðslu fyrir þá, sem panta í
fyrramálið."
Ekki verður hins vegar lokað hjá
Mjólkursamsölunni þótt mjólkin sé
uppurin. „Við eigum fullt af sýrðum
mjólkurvörum, jógúrt, sýrðan rjóma
og súrmjólk," sagði hann. „Einnig
erum við með geymsluþolnar vörur.
Þessar vörur verður hægt að fá fram
eftir vikunni og fram í þá næstu.“
Hamstrað í Hafnarfírði
Baldvin Helgason, umsjónarmað-
ur mjólkurkælisins í Fjarðarkaup-
um, sagði að greinilegt væri að fólk
væri farið að hamstra mjólkurafurð-
ir, sumir keyptu jafnvel 15-20 lítra.
„Salan í dag er um 40-50% meiri en á
venjulegum degi,“ sagði Baldvin.
Sund
í sumaryl
AKUREYRINGAR nutu veðurblíð-
unnar í gærdag en margir þeirra
vita fátt betra en svamla löngum
stundum í sundlauginni. Þar var
fjölmenni í góða veðrinu í gær, hiti
um 18 stig og hlý sunnangola lék
við vanga. Aðsókn að Sundlaug Ak-
ureyrar hefur aukist jafnt og þétt,
en þar hafa miklar endurbætur
staðið yfir síðustu ár og laugin orð-
in hin glæsilegasta. Á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs hefur aðsókn
aukist um 40% frá sama tíma í fyrra
en þegar einungis er horft til apríl-
mánaðar var aðsóknin í' nýliðnum
apríl helmingi meiri en í sama mán-
uði í fyrra, að sögn Kristins Lór-
enzsonar, forstöðumanns Sund-
laugar Akureyrar.
Einnig var hlýtt á Austurlandi en
hlýjast var á Hallormsstað þar sem
hiti náði 20 stigum. Á Egilsstöðum
var 19 stiga hiti og 17 stiga hiti á
Seyðisfirði.
Islenskt fyrirtæki undirbýr allsherjarvef um knattspyrnu
Gengið frá
samningi
við Rivaldo
FORSVARSMENN nýs vefjar fyrir
áhugamenn um knattspymu, World-
SoccerClub.com, hafa gert samning
til fimm ára við Rivaldo, sem hampað
hefur titlinum besti knattspyrnu-
maður heims, um að koma fram fyrir
hönd vefjarins. Verður farið af stað
með vef á netinu 2. júní þar sem
verður hægt að nálgast knattspyrnu-
vaming og fá upplýsingar um knatt-
spymu frá 28 löndum.
Eggert Magnússon, stjórnarfor-
maður WorldSoccerClub.com, sagði
í gær að sérstök heimasíða Rivaldos
myndi tengjast vefnum og gæti velt-
an í tengslum við hana hlaupið á
milljónum dollara.
Morgunblaðið/Hólmfríður Matthíasdóttir
Eggert Gunnarsson, stjórnarformaður WorldSoccerClub.com, og Riv-
aldo, einn besti knattspyrnumaður heims, skrifa undir fimm ára samn-
ing um samstarf á netinu.
Upphafið að þessu framtaki má
rekja til ársins 1997 þegar Halldór
Einarsson, sem stjórnar nú skrif-
stofum WorldSoccerClub.com í
Manchester á Englandi, hleypti því
af stokkunum með þeim orðum að
tvennt væri á öruggri uppleið í heim-
inum: knattspyrnan og netið.
■ Umfangsmikill vefur/11
NÍU stór sjávarfyrirtæki frá Banda-
ríkjunum, Kanada og íslandi til-
kynntu í gær um sameiginlegan vef á
netinu, SeafoodAlliance.com, með
það að leiðarljósi að auka viðskipti
með sjávarafurðir víða um heim.
Bandarísku fyrirtækin eru Pacific
Seafood Group, American Seafood
og Pacific Trawlers/Crystal Sea-
foods, frá Kanada koma Fisheries
Products International, Clearwater
----'Fine Foods, The Barry Group of
Companies og High Liner Foods
(áður National Sea), en íslensku fyr-
irtækin eru SÍF Group og Coldwat-
er, dótturfyrirtæki SH. „Við tökum
þátt í þessu til að skapa okkur nýja
möguleika til frekari sóknar í sam-
keppni við önnur matvæli,“ segir
Friðrik Pálsson, stjómarformaður
SÍF hf. Henry Demone, stjórnarfor-
maður SeafoodAlliance.com. og
stjórnarformaður High Liner Foods,
greindi frá samstarfi fyrirtækjanna
^^g^níu og gat þess að samanlögð árs-
velta þeirra næmi um 3,5 miljörðum
dollara. „Fyi*ir okkur hjá SÍF er um
að ræða mjög rökrétt framhald á
þeirri stefnu sem félagið hefur sinnt,
að reyna að ná árangri með sameig-
inlegu átaki margra framleiðenda og
reyna að stækka fyrirtækið og ná til
fleiri viðskjptavina," segir Friðrik.
■ Skapar nýja möguleika/10
Biðlistar
lengjast
vegna
sparnaðar
BIÐLISTAR lengjast nú á bæklun-
arskurðdeild Landspítalans við
Hringbraut þar sem deildinni hefur í
raun verið lokað og starfsemin flutt á
aðra deild. Er það gert vegna spam-
aðar og er ekki vitað á þessari
stundu hvenær deildin verður aftur
rekin með fullum afköstum.
Sólveig Sverrisdóttir, hjúkrunar-
deildarstjóri á bæklunarskurðdeild-
inni, tjáði Morgunblaðinu að í mars
og apríl hefðu aðeins 15 af 22 rúmum
deildarinnar verið notuð. Sólveig
(sagði hugsanlegt að einhverjir sjúkl-
inganna gætu fengið úrlausn á bækl-
unardeildum á Akranesi eða Akur-
eyri en ljóst væri að 200-300 manna
biðlisti myndi lengjast.
Virlúi rlnsH