Morgunblaðið - 22.06.2000, Side 1
140. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. JIJNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ásdís
Þórunn Guðbjörnsdóttir heldur á tæplega tveggja mánaða gömlum syni sínum í stofunni á Syðri-Hömrum 2 í Ásahreppi, en þriggja ára dóttir hennar, Steinunn Birna, slapp naumlega undan
bókaskápnum sem féll um koll í jarðslgálftanum. Þórunn og Jón Þorsteinsson, maður hennar, fluttu út í tjald í nótt, en þau hafa sofið í stofunni síðan jarðskjálftinn 17. júm' reið yfir.
Einstakt lán að ekki urðu alvarleg slys á fólki
FÓLK á bæjum við Þjórsá telur það einstakt um fengu börn yfir sig bókahillur. Einn slökkt á sjónvarpi sem féll fram á gólf ásamt í fyrrinótt sé endirinn á jarðskjálftahrinu sem
lán að engin alvarleg slys urðu á fólki í jarð- drengur skarst á fæti þegar hann fékk gler- þungri bókahillu þegar skjálftinn reið yfir. hófst á þjóðhátíðardaginn. Líklegra sé að eft-
skjálftanum í fyrrinótt. Á a.m.k. tveimur bæj- brot í sig. Þriggja ára barn hafði nýlega Jarðvisindamenn telja ólíklegt að skjálftinn ir eigi að koma fleiri stórir skjálftar vestar.
Meretz gengur úr
stj órnarsamstarfinu
Jerúsalem. Reuters, AFP.
EHUD Barak, forsætisráðherra ísraels, reyndi
í gær til þrautar að bjarga samsteypustjórn
sinni eftir að Shas, næststærsti stjórnarflokkur-
inn, ákvað að ganga formlega úr henni. Þá sagði
annar stjórnarflokkur, Meretz, sem er með þrjá
ráðherra, sig úr stjórnarsamstarfinu seinni
partinn í gær. Flokkurinn sagði afsögn sína
stjórninni til góðs, en hafði áður hótað að slíta
stjórnarsamstarfinu yrði Barak við skilyrðum
Shas fyrir því að ganga ekki úr stjórninni.
Fjórir ráðherrar Shas afhentu Ehud Barak
forsætisráðherra afsagnarbréf á þriðjudag en
samkvæmt ísraelskum lögum taka afsagnirnar
ekki gildi fyrr en á hádegi í dag. Barak kvaðst
ætla að reyna til þrautar að ná samkomulagi við
Shas og sagði að „90% deilumálanna" hefðu ver-
ið leyst. Hann bætti þó við að hann myndi ekki
láta undan ef Shas reyndi að beita stjórnina
„þvingunum".
Stjórnin missir þingmeirihluta sinn slíti Shas
samstarfinu. Shas er flokkur heittrúaðra gyð-
inga og ráð trúarlegra leiðtoga hans hafði skip-
Afsögn flokksins
kann að bjarga ísr-
aelsku stjórninni
að ráðherrunum að segja af sér vegna deilu um
fjármögnun skóla sem flokkurinn rekur. Þeir
vilja einnig að Yossi Sarid menntamálaráðherra
hafi ekkert vald yfir skólum Shas, en Sarid er
einnig leiðtogi Meretz. „Við getum ekki látið
undan Shas, en viljum á sama tíma ekki spilla
fyrir friðarferlinu, þannig að við tökum á okkur
ábyrgðina á falli stjórnarinnar," sagði Sarid að
loknum fundi með Barak. Afsögn ráðherra Mer-
etz mun taka gildi tveimur sólarhringum eftir
að hún var afhent Barak og sendi skrifstofa for-
sætisráðherrans í gær frá sér yfirlýsingu þar
sem Barak var sagður harma að Meretz hefði
sagt sig úr stjórnarsamstarfínu.
Deilur stjórnarflokkanna hafa orðið til þess
að Barak hefur ekki getað einbeitt sér að frið-
arviðræðunum við Palestínumenn, sem á að
ljúka innan þriggja mánaða. Palestínumenn
saka Barak um að hafa notað vandamálin heima
fyrir til að koma sér hjá því að virða gerða
samninga og alþjóðlegar skuldbindingar.
Vill enn frið við Palestínumenn
Barak sagði þó í gær að deilur stjórnarflokk-
anna stefndu ekki friðarviðræðunum í hættu.
Hann kvaðst enn staðráðinn í að semja um var-
anlegan frið við Palestínumenn og það væri ein
af ástæðum þess að Shas hefði hótað að ganga
úr stjórninni.
Shas er með 17 þingsæti og stjórnin hefur
haft 16 sæta meirihluta á þinginu. Dragi bæði
Meretz og Shas sig út úr stjórnarsamstarfinu
er stjórnin fallin þar sem samsteypustjórn Bar-
aks hefur þá aðeins 43 af 120 sætum á ísraelska
þinginu. Áfsögn Meretz er þó af sumum talin
veita Barak tækifæri til að sannfæra Shas um
að halda stjórnarsamstarfinu áfram.
George W. Bush
Dauða-
refsingin
sanngjörn
Los Angeles. AP.
GEORGE W. Bush, forsetafram-
bjóðandi repúblikana í Bandaríkj-
unum, sagði í gær að réttarkerfið í
Texas, þar sem hann er ríkisstjóri,
væri „sanngjarnt" og að engin þörf
væri á því að setja tímabundið
bann við dauðarefsingum. I dag
verður Gary Graham tekinn af lífi
fyrir morð og rán, verði hann ekki
náðaður á síðustu stundu. Blökku-
mannaleiðtoginn Jesse Jackson,
einn fjölmargra er krefjast þess að
Graham verði ekki tekinn af lífi,
hitti Graham að máli í gær og
sagði hann fangann vongóðan um
náðun.
■ Sofandi/28
MORGUNBLAÐHD 22. JÚNÍ 2000