Morgunblaðið - 22.06.2000, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Rúnar Pór
Hér má sjá yfir þann hluta sýningarinnar sem varðar sjávarútveg Akureyringa.
Sýning á Minjasafninu
um „bæinn við Pollinn“
í MINJASAFNINU á Akureyri var opnuð sýn-
ingin ,Akureyri, bærinn við Pollinn“ sunnudag-
inn 18. júní. Sýningin fjallar um sögu Akureyrar
og er ætlað að fjalla um helstu þætti bæjarsög-
unnar, s.s. fiskveiðar, verslun, mannlíf og híbýla-
hætti. Hönnuður sýningarinnar er Þórunn Sig-
ríður Þorgrímsdóttir. Blaðamaður rölti um
svæðið með Katrínu Björgu Ríkharðsdóttur,
starfsmanni Minjasafnsins.
„Sýningin á að spanna sögu Akureyrar í ýms-
um myndum allt frá árinu 1602 sem er eins kon-
ar upphaf bæjarins en þá hófst hér einokunar-
verslun Dana. Við reynum svo að teygja okkur
allt til dagsins í dag,“ sagði Katrín. Það fyrsta
sem vekur athygli þegar gengið er inn á sýning-
arsvæðið í kjallara safnsins er blámálað svæði
við innganginn.
Að sögn Katrínar er ætlunin að gestunum
finnist þeir vera að stíga út á Pollinn sem er
mjög einkennandi fyrir Akureyri. Það sem síðan
blasir við gestunum er fyrsti hluti sýningarinnar
sem fjallar um fiskveiðar á Akureyri. „Við
reyndum að sýna hvemig fiskveiðamar þróuð-
ust frá því að vera eingöngu til sjálfsþurftar upp
í stórtæka atvinnustarfsemi,11 sagði Katrín.
Myndir á veggjum era margar og vekja at-
hygli. Samt sem áður hafði Katrín orð á að reynt
hefði verið að skapa áþreifanlegt andrúmsloft
með því t.d. að hafa útlínur húsa á sýningar-
svæðinu, e.k. leikmyndir fremur en að raða bara
upp hlutum og textum í beinni röð í salnum. Ein
myndin sker sig strax úr sökum stærðar en hún
sýnir garðveislu hjá apótekarahjónunum á Ak-
ureyri rétt upp úr aldamótunum.
„Þessi mynd er á margan hátt dæmigerð fyrir
líf heldra fólksins á Akureyri á þessum tíma,“
sagði Katrín.
„Ef haldið er áfram inn salinn er gengið fram
hjá Krambúðarhorni en þar er sýnt hvernig slík-
ar verslanir litu út. Sögu Kaupfélagsins era
einnig gerð góð skil. Hvernig það þróaðist frá
því að vera verslun með svæði upp í það stórveldi
sem það einu sinni var,“ segir Katrín.
Klæðningar og Sibbukofi
Inni í miðjum salnum era útlínur húsa mjög
áberandi og þar er ætlunin að skapa torg-
stemmningu að sögn Katrínar. „Þessar fram-
hliðar húsa eiga einnig að sýna mismunandi
klæðningar sem á margan hátt era einkennandi
fyrir Akureyri. Má sem dæmi nefna steinblikkið
sem var flutt beint frá Ameríku hingað til Akur-
eyrar og prýðir enn mörg hús í bænum,“ sagði
Katrín. Sýningin leiðir fólk einnig í gegnum
Katrín Björg Ríkharðsdóttir stendur í hurð-
inni á Sibbukofa, sem stóð allt til ársins
1949 við Aðalstræti 82.
húsasund inn í tæknihorn þar sem fræðast má
um tilkomu raf-, vatns- og hitaveitu.
Það sem vekur einnig athygli blaðamanns er
framhlið torfbæjar sem merkt er Aðalstræti 82.
Þetta segir Katrín vera Sibbukofa sem stóð allt
fram til ársins 1949. Gegnt þessu húsi er sýnt inn
í stofu heldra fólks og þannig gefst fólki tækifæri
á að upplifa andstæðumar sem blöstu við fólki á
þessum tíma.
Aðspurð um atriði líkt og skólamál sem ekki
finnast á sýningunni, segir Katrín að þau hafi
valið markvisst úr þegar kom að því að setja upp
sýninguna. „Það var stefnan að sleppa þeim
þáttum sem sjá má annars staðar eða verða sett-
ir upp sem sérsýningar. Undir það falla skóla-
málin, iðnaðurinn og sjúkrahúsmálin en til er
iðnaðarsafn og ætlunin er að setja upp sýningar
tengdar skóla og sjúkrahúsi annars staðar í
bænum í framtíðinni,“ sagði Katrín.
Katrín sagðist vonast eftir því að fólk flykkist
á sýninguna. „Eg er viss um að gamlir Akureyr-
ingar eiga eftir að kannast við ýmislegt hér á
sýningunni, bæði myndir og muni,“ sagði Katrín
að lokum.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Gréta Berg sýnir
í Islandsbænum
Verðlaunahafar
vetrarins
SKÍÐADEILD Leifturs á Ólafsfirði
heiðraðj skíðafólk í lokahófi á dög-
unura. A meðfylgjandi mynd eru eft-
irtaldir eldri keppendur sem hlutu
verðlaun: Aftari röð: Sunna Hara-
ldsdóttir, Arni G. Gunnarsson, Bragi
Óskarsson, Krislján Uni Óskarsson,
Gunnlaugur Haraldsson, Hjörvar
Maronsson. Fremri röð: Ólöf Elsa
Guðmundsdóttir, Ásgerður Einars-
dóttir, Sigríður Þóra Hilmarsdóttir,
Esther Gestsdóttir, Tomasz Kolos-
owski, Bima Agnarsdóttir.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum.
Hafbu samband
.jj»f ’WM M’ ’v
- vogir cru okkarfag -
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
GRÉTA Berg myndlistarmaður
hefur opnað sýningu á verkum sín-
um í íslandsbænum í Eyjafjarðar-
sveit. Þar sýndir hún 15 olíumál-
verk sem ýmist era unnin um eða
undir áhrifum frá Heimsljósi eða
Kvæðakverum Halldórs Laxness.
Þannig geta gestir upplifað
Unglinginn í skóginum eða Kraft-
sbirtingarhljóm guðdómsins á sýn-
ingunni. Gréta Berg hefur haldið
nokkrar málverkasýningar á Akur-
eyri en þar á meðal er sýningin
„Draumar rætast" þar sem Davíð
Stefánsson var uppspretta verka
hennar.
„Þessi skáldskapur er mjög
skemmtilegur og persónusköpunin
er afar myndræn," sagði Gréta.
Sýningin er opin nú fram á laug-
ardag frá kl. 17 til 21, íslandsbær-
inn er svo lokaður þann dag vegna
einkasamkvæmis og einnig er lok-
að næsta mánudag. Á sunnudag er
opið frá kl. 15 til 19, en í næstu
viku, frá þriðjudegi til föstudags,
er sýningin opin frá kl. 17 til 21.
Sýningunni lýkur föstudaginn 30.
júní næstkomandi.
Heiman o g
heim á
Listasumri
HEIMAN og heim er yfiskrift íyrsta
bókmenntakvöldsins á Listasumri en
það verður í Deiglunni föstudaginn
23. júní og hefst kl. 20.30. Bókmennta-
dagskrá verður fastur liður á Lista-
sumri, ávallt á sama stað og tíma.
Ljóð eftir fjögur brottflutt akur-
eyrsk skáld verða flutt á þessu fyrsta
bókmenntakvöldi sumarsins, Jónas
Þorbjamarson, Sigmund Erni Rún-
arsson, Jóhann Árelíuz og Sigurð
Ingólfsson.
Jónas og Sigmundur flytja Ijóð sín
sjálfir, Þráinn Karlsson les Ijóð Jó-
hanns og Steinunn Sigurðardóttir les
ljóð Sigurðar.
Amtsbókasafnið á Akureyri kynnir
vikulega bókmenntir sem tengjast
bókmenntadagskrá Listasumars við-
komandi viku.
V erkfallsaðgerðir
Sleipnis halda áfram
Eigandi
flaug norð-
ur til að
ljúka ferð
VERKFALLSVERÐIR Sleipnis
höfðu i nógu að snúast í Mývatns-
sveit og á Akureyri og höfðu þegar
stöðvað fimm bíla um miðjan dag í
gær. Heimir Bergmann verkfalls-
vörður sagði að fjórir bflar frá jafn-
mörgum fyrirtækjum hefðu verið
stöðvaðir við Mývatn og Húsavík.
„Hér á Akureyri lagðist einnig
skemmtiferðaskip að höfn. Við gerð-
um fararstjóra, sem sá um rútuferð-
irnar fyrii- farþegana, gi-ein fyrir því
að við myndum stöðva bílana ef aðr-
ir en eigendurnir ækju þeim. Það
var hlustað á okkur og málið leyst í
bróðerni," sagði Heimir.
Að sögn Heimis hafði eigandi
rútufyrirtækisins Snæland-Gríms-
son, flogið norður til að keyra rútu
sem þeir höfðu þá stöðvað. „Við
sóttum hann á flugvöllinn og keyrð-
um hann að rútunni og hann tók þá
við akstrinum," sagði Heimir.
-------------------
19 unglingar
sóttu um
bæjarvinnu
KÖNNUN á atvinnuhorfum ungl-
inga fyi-ir sumarið er að mestu lokið
hjá Akureyrarbæ, en unglingar án
vinnu vora beðnir að skrá sig hjá
bænum. Að sögn Jónínu Laxdal hjá
Akureyrarbæ skráðu sig nítján ungl-
ingar og fá þefr allir vinnu í átta vik-
ur hjá bænum.
Jónína kvaðst ekki vita hvort þess-
ir unglingar hefðu sótt um vinnu
annars staðar og fengið synjun áður
en þeir snera sér til Akureyrarbæj-
ar. Að sögn Jónínu era unglingai-nfr
frá 17 ára aldri og sumir jafnvel
komnir yfii’ tvítugt.
-----♦-4-4----
Sauðfjár-
bændur við
Eyjafjörð
funda
AÐALFUNDUR Félags sauðfjár-
bænda við Eyjafjörð verður haldinn
í íslandsbænum við Blómaskálann
Vín í kvöld, fimmtudagskvöld, og
hefst hann kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
mun Jón Helgi Björnsson, slátur-
hússtjóri Kjötiðjunnar á Húsavík,
ræða um fyrirkomulag slátrunar í
haust og Ólafur Valsson hérað-
sdýralæknir ræðir um aðbúnað
sauðfjár og fleira. Aðalsteinn Jóns-
son, formaður Landssamtaka sauð-
fjárbænda, mætir á fundinn. Sauð-
fjárbændur í héraðinu era hvattir til
að koma.
-----♦-♦-♦----
Fagnar hug-
myndum um
jarðgöng í
Vaðlaheiði
SVEITARSTJÓRN Hálshrepps
hefur sent frá sér ályktun þar sem
fram kemur að hún fagnar fram
komnum hugmyndum um gerð jarð-
ganga í gegnum Vaðlaheiði. „Sú
framkvæmd myndi styrkja byggð-
irnar austan og vestan Vaðlaheiðar á
margan hátt. Því skorar sveitarsjórn
á alþingismenn að beita sér fyrir því
að gerð verði hagkvæmnisathugun á
þeirri framkvæmd sem allra fyrst,“
segir í ályktun nefndarinnar.