Morgunblaðið - 22.06.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 2S
ERLENT
„Allt í lagi
að kjós-
endur sofí
á kjördag“
YOSHIRO Mori, forsætisráð-
herra Japans, sætti harðri
gagnrýni dagbiaða og stjórnar-
andstæðinga í gær vegna um-
mæla hans um að óákveðnir
kjósendur mættu sofa af sér
þingkosningarnar á sunnudag.
„Um það bil 40% kjósend-
anna hafa ekki áhuga eða eru
enn óákveðnir,“ sagði Mori í
kosningaræðu í fyrrakvöld.
„Það er allt í lagi ef þeir sofa á
kjördag og segjast ekki hafa
áhuga á kosningunum, þótt ég
telji að það gerist ekki.“
Nýjustu skoðanakannanir
benda til þess að flokkur Moris,
Frjálslyndi lýðræðisflokkur-
inn, fari með sigur af hólmi í
kosningunum, þrátt fyrir mikl-
ar óvinsældir forsætisráðherr-
ans. Flokkurinn kann þó að
bíða ósigur ef margir hinna
óákveðnu kjósa stjórnarand-
stöðuna.
„Það er hneykslanlegt að
hvetja fólk til að sofa á kjör-
dag,“ sagði Yukio Hatoyama,
leiðtogi stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins, Lýðræðisflokks
Japans, og kvað Mori óttast að
óflokksbundnir kjósendur
styddu stjómarandstöðuna.
Friðarvið-
ræður sam-
þykktar
Stærstu stjórnmálaflokkar Sri
Lanka samþykktu í gær að
hefja viðræður við skæruliða
tamílsku tígranna um drög að
friðaráætlun með það að
markmiði að binda enda á ára-
tuga blóðsútheilingar á eyj-
unni. Chandrika Kumaratunga
forseti hafði áður hafnað við-
ræðum við skæruliðana og sagt
að ekki kæmi til greina að þeir
fengju aðild að bráðabirgðarík-
isstjórn sem mynduð verður
samkvæmt friðaráætluninni.
Forsetinn féllst hins vegar á að
stofnað yrði sérstakt ráð sem
ætti að fara með málefni norða-
usturhluta eyjunnar og tam-
sflsku tígrarnir gætu fengið að-
ild að því ef þeir hættu vopnaðri
baráttu sinni fyrir sjálfstæðu
ríld tamfla á svæðinu.
Styrkur til
ósonverndar
Alþjóðabankinn hyggst veita
Indverjum styrk að andvirði
6,2 milljarða króna til að hætta
framleiðslu klórflúrkolefna,
sem eyða ósonlaginu. Féð verð-
ur notað til að greiða fyrirtækj-
um bætur fyrir að hætta fram-
leiðslunni í áföngum.
„Óðurinn til
gleðinnar44
bannaður
Fílharmóníuhljómsveit Teher-
an var meinað að flytja „Óðinn
til gleðinnar" eftir Beethoven á
tónlistarhátíð, sem hófst í borg-
inni í gær, vegna þess að bann-
að er að nota kvenraddir sam-
kvæmt íslömskum lögum sem
gilda í Iran. Tónlistarhátíðin,
sem nefnist Fete de la Mus-
ique, hófst í Frakklandi 1982 og
er nú haldin í mörgum löndum.
Venja er „Óðurinn til gleðinn-
ar“ sé fluttur á hátíðinni.
Leiðtogafundi ESB lokið án breytinga á aðgerðum gegn Austurríki
Málamiðlun
um skatta
Santa María da Feira. Reuters, AP.
LEIÐTOGUM Evrópusambandsins
(ESB) tókst á síðustu stundu fyrir lok
tveggja daga fundar þeirra í Feira-
kastala skammt frá Oportó í Portúgal
á þriðjudag að ná samkomulagi um
aðgerðir til að stemma stigu við fjár-
magnstekjuskatksflótta milli aðildar-
ríkja sambandsins. Austurrfldsmenn
voru síðastir til að fallast á málamiðl-
un í þessari þrálátu skattadeilu. Ýjað
var að því ennfremur, að þess kunni
að vera skammt að bíða, að fram
verði lagðar tillögur um hvemig
dregið verði úr hinum pólitísku ein-
angrunaraðgerðum ESB-rflqanna 14
gegn Austurrfld, sem hófust í febr-
úarbyrjun í tilefni af stjómarþátttöku
hins umdeilda Frelsisflokks. Wolf-
gang Schiissel, kanzlari Austurrflds,
sagðist í gær reikna með að Portú-
galar leggi fram tillögur um næstu
skref fyrir mánaðamótin, en þá taka
Frakkar við ESB-formennskunni.
Antonio Guterres, forsætisráð-
herra Portúgals, var spurður hvort
samþykki Austurríkismanna við
skattamálamiðluninni hefði verið
keypt með fyrirheitum um að koma
milliríkjasamskiptunum við Austur-
ríki aftur í eðlilegt horf og hann vísaði
því með öUu á bug.
Tækifæri fyrir ísland?
Lykilþáttur í því að málamiðlun
náðist í fjármagnstekjuskattsmálinu
var að skilyrði fyrir því að ESB-ríkin
byrji á að skiptast á upplýsingum um
eigendur bankainnistæðna yrði að
samkomulag náist við þriðju ríki,
einkum lönd á borð við Sviss, Liecht-
enstein, Bandaríkin og fleiri, um að
taka þátt í þessum upplýsingaskipt-
um. Ýmsir hafa lýst svartsýni á að
samningar um slíkt takist. Halldór
Asgrímsson utanrfldsráðherra, sem í
gær var staddur á ráðherrafundi
Eystrasaltsráðsins í Björgvin í Nor-
egi, tók í samtali við Morgunblaðið
undir slíkar efasemdir.
„Þeir munu sjálfsagt reyna að ná
saman við okkur líka,“ segir Halldór;
„það er mjög lítið af erlendu fjár-
magni á íslandi. Það gæti verið að
þetta verði til þess að það verði vax-
andi áhugi á því að koma því fyrir á
íslandi.“
fjmmtudag t
3 Runnar
a& eigin vali
999
kr.
Meðal tegunda:
Blátoppur, Runnatnura,
Dögglingskvistur, Loðvíbír,
Yllir, Hansarós, Reyniblaðka,
Víóikvistur og Bjarkeyjarkvistur.
10 Flauelsblóm
k 499
Aspir
eitt veró
allt aS 250sm