Morgunblaðið - 22.06.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 33
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Borðsiðir brúðarinnar valda Þrym nokkrum áhyggjum.
Þrymskviða
tekin til
kostanna
Hamar Þórs eða The Hammer of Thor er
titill sýningar á ensku sem frumsýnd verður
í Hafnarfjarðarleikhúsinu 1 kvöld. Þetta er
goðsagnakennt spennu/gamanleikrit um
ferð Þórs í jötunheima til að endurheimta
hamar sinn, Mjölni.
í Hafnarfjarðarleikhúsinu verður í
sumar glettst við ferðamenn og aðra
sem gaman hafa af skoplegri sýn á
söguþráð hinnar fornu Þrymskviðu.
Þar hafa um vélað Gunnar Helgason
gamanleikari og fjórir nemar af öðru
ári úr Leiklistarskóla Islands, þau
Gísli Pétm- Hinriksson, ívar Sverris-
son, Ólafur Egill Egilsson og Vigdís
Hrefna Pálsdóttir. Saga Þrymskviðu
lýsir því er Jötuninn Þrymur rænii-
Mjölni, hamri Þórs, og neitar að skila
honum nema æsir gefí honum frjó-
semisgyðjuna Freyju íyrir konu. Þór
tekst ferð á hendur í jötunheima í
gervi Freyju til að endurheimta
Mjölni undir leiðsögn hins fláráða
Loka Laufeyjarsonar. í brúðkaupinu
kemur Þór höndum yfir hamarinn og
þá er ekki að spyrja að leikslokum.
„Þetta leikverk varð upphaflega til
sem kennsluverkefni í Leiklistarskól-
anum í íyrra undir minni stjórn,“ seg-
ir Gunnar Helgason leikstjóri sýn-
ingarinnar. „Okkur datt síðan í hug
að snúa þessu á ensku og leika fyrir
ferðamenn í sumar hér í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu og tengja þetta Víkinga-
hátíðinni sem nú stendur sem hæst.
Við sömdum þetta í sameiningu og
höfðum mikið gaman af og sérstak-
lega hefur verið skemmtilegt að búa
til útgáfu á ensku,“ segir Gunnar.
Þór var greinilega ryðgaður í ensk-
unni og sletti óspart fomíslensku en
Freyja var hins vegar eins og nýstig-
in af sporvagninum Girnd með Suð-
urríkjahreiminn fljótandi á tungu.
Þrymur var hins vegar af lands-
byggðinni með sterkan skoskan
Morgunblaðið/Þorkell
Þör og Loki í sannfærandi dulargervi Freyju og þernu hennar.
Þokkagyðjan Freyja heillar
Þór. Gísli Pétur Hinriksson,
Vigdís Hrefna Pálsdóttir og
Ólafur Egill Ólafsson.
hreim en heimsmaðurinn Heimdallur
gekk um flámæltur á yfirstéttar-
ensku.
A forsýningu á þriðjudagskvöld sat
blaðamaður fyrir aftan fjölskipaðan
bekk víkinga með alvæpni sem
skemmtu sér konunglega og hlógu
viðeigandi hrossahlátri þegar mest
gekk á. Þeir voru þó spakir og brugð-
ust vel við tilmælum leikstjórans um
að slökkva á farsímum sínum áður en
sýningin hófst. Þótti þeim vegur Þórs
mikill í sýningunni og gátu vart kyrr-
ir setið þegar hin kynþokkafulla
Freyja heillaði þrumuguðinn upp úr
skónum svo hann varð bljúgur sem
lamb í höndum hennar. Bitu þeir síð-
an fast í skjaldarrendur og voiu við
öllu búnir þegar Þór ruddi borð og
bekki í brullaupsveislu Þryms.
„Við munum bjóða upp á sýningar
hér í Hafnarfjarðarleikhúsinu í sum-
ar bæði á ensku og íslensku eftir því
sem óskað er,“ segir Gunnar og bætir
því við að sýningin sé formlega sam-
starfsverkefni milli Hafnarfjarðar-
leikhússins og Leikhópsins Æsir sem
leiklistamemamir fjórir standa að.
Þú færð allar helstu
f úavarnartegundir hjó
Litaveri, Grensósvegi.
Kjörvari 144 Itr. - gegnssr
Okkarverðkr. 2.758*
Woodex Ultra 2.5 Itr.- gegnsær
Okkor verð kr. 2.133-
Sólignunt 5 Itr.- þekjandi
Okkarverðkr. 4.570*
Texolin 4 Itr. - þekjandi
Við reiknum efnisþörfina og veitum
þér faglegar róðleggingar
um vinnu ó viðnum
Grensásvegl 18 s: 581 2444
Þar sem þjónustan
er í fyrirrúmi.________
>£M-2000
Miðvikudagur 21. júní
ÍSAFJÖRÐUR
Menningarveisla
Sunnukórinn flytur kóra úr óperum,
óperettum, trúartega tónlist, klass-
ísk kórlög oggömul dægurlög.
Stjórnandi er Margrét Geirsdóttir.
Tónleikarnir eru í ísafjarðarkirkju og
hefjast kl. 20:30.
Dagskráin erhluti af samstarfsverk-
efni Menningarborgarinnar og sveit-
arfélaga.
vesturferdir@vesturferdir.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
- HAFNARHÚSINU. KL. 20.
Gleymdir stadir.
Aö steypa form borgarinnar eryfir-
skrift fyrirlesturs Halldórs Gíslason-
ar, arkitekts og kennara viö háskól-
ann í Portsmouth í Englandi, sem
hann heldur í kvöld. Fyrirlesturinn er
sá síðasti íröð fyrirlestra á vegum
Norrænu akademíunnarí arkitektúr
sem heldur vinnubúðir í Reykjavík
þessa dagana.
Halldór heldur fyrirlestur um borgar-
formið og afgangsrými borgarinnar.
Hann mun reyna að setja fram þær
kenningar sem lúta að aðferðum nú-
Golffélag Reykjavíkur býður upp
á golfkennslu á sumaríþróttaviku
ÍBR. Á myndinni er Ragnhildur
Sigurðardóttir úr GR.
tímamannsins við að steypa lífsitt
og þá sérstaklega borgarmenning-
una í form.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er
aðgangur ókeypis.
AKUREYRI -L2000
ítilefni af50 ára afmæli Bandalags
íslenskra leikfélaga verður haldin
fimm daga alþjóðleg leiklistarhátíð
undir yfirskrihinni L2000.
www.tv.is/bil/L2000
N0RRÆNT UNGMENNAMÓT
Ævintýravika á íslandi undiryfir-
skriftinni,, Kultur & ungdom" þar
sem haldið verðurmót fyrirhátt í
2000 ungmenni víðsvegar að af
Norðurlöndunum. Lögð verður
áhersla á menningu, umhverfi og
íþróttir. Ungmennafélags íslands
skipuleggur mótið sem stendur til
28. Júní.
www.umfi.is/kultur.
SUMARÍÞRÓTTAVIKA ÍBR
Golffélag Reykjavíkur. Golfkvöld verð-
urhaldið í samvinnu við Golffélag
Reykjavíkur á knattspyrnuvelli þróttar
v. Suðurlandsbraut, þarsem al-
menningi verður boðið upp á kennslu
ogsýningu kl. 18-21.
Útivist býður til sumarsólstöðugöngu
í Reykjavík.
Sumaríþróttavikan erhaldin í sam-
starfí við Íþróttahátíð ÍSÍog fjölmarga
aðra skipuleggjendur og stendur til
24.júní.
www.ibr.is.
www.reykjavik2000.is. wap.olis.is.
-------------é-f-é--------
Samsýning
á Blönduósi
NÚ stendur yfir samsýning lista-
kvenna í grafíklistafélaginu Áfram
veginn á kaffihúsinu Við árbakkann
á Selfossi.
Sýningin stendur til mánaðamóta.