Morgunblaðið - 22.06.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 57
------------------------
UMRÆÐAN
Afrek Þorgeirs
Lj ós vetningagoða
Á LÍÐANDI ári
minnast íslendingar
tveggja 1000 ára gam-
alla viðburða, kristni-
töku á Þingvöllum og
fundar lands (eða
landa) í vestur og suð-
vestur frá Eystribyggð
á Grænlandi.
Hér er óneitanlega
um stórviðburði að
ræða og full ástæða til
að minnast þeirra með
viðeigandi hætti, mynd-
arlegu hátíðarhaldi og
margs konar annarri
viðhöfn eftir því sem
sæma þykir. Kristnihá-
tíð á Þingvöllum verður haldin fyrstu
daga júlímánaðar. Sú hátíð er einlit
að því leyti að kristnir söfnuðir utan
þjóðkirkju eiga ekki virka aðild að
meginhátíðinni.
Kristnitaka og fundur Vínlands
Nú er það að vísu svo að ofannefnd-
ir 1000 ára viðburðir fara ekki saman
að eðli og inntaki og minningarhátíðir
um þá er ekki unnt að sameina, enda
stendur það ekki til. Það sem líkt er
með þessum stóratburðum íyrir 1000
árum er vitaskuld það að þeir snerta
Island og íslendinga með beinum
hætti.
Þó er það nú svo að kristnitakan á
Þingvöllum er sýnu „íslenskari" en
fundur Vínlands. Þegar kristnitakan
átti sér stað voru íslenskir land-
stjómarmenn að fjálla um örlagaríkt
pólitískt málefni í býsna víðtækum
skilningi. Á Aiþingi stóðu vopnaðar
fylkingar hvor gegn annarri og við-
búið að til bardaga
kæmi í þinghelginni.
Menn óttuðust í alvöru
„landauðn" fyrir innan-
landsófrið (meiri en áð-
ur hafði þekkst), eins
konar byltingu eða
stjómlagarof. Mál vom
þannig vaxin að þau
urðu landstjórnarmenn
sjálfir að leysa. Erlend
meðalganga var víðs
fjarri og á engan hátt
raunsæ. Og það lán
fylgdi landstjómar-
mönnum, þegar svo
mikið lá við, að þeim
tókst að leysa deilur
friðsamlega. Innanlandsstyrjöld var
afstýrt. Því má á það fallast, sem oft
er sagt, að þetta sé stærsta og mikil-
vægasta mál sem Alþingi íslendinga
hefur nokkm sinni staðið frammi fyr-
ir og leyst farsællega. Ekki efa ég að
á þetta verður lögð mikil áhersla á
hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum í
næsta mánuði.
Fundur Vínlands snertir íslend-
inga að sjálfsögðu fyrir þær sakir að
sá maður sem stjórnaði skipi í það
sinn — án þess að hann væri beinlínis
f landaleit — var fæddur á íslandi,
Leifur heppni Eiríksson. Hins vegar
hafði hann flust ungur með fólki sínu
til Grænlands þegar faðir hans stofn-
aði þar til nýlendu. Eftir það koma
þeir feðgar ekki við íslensk mál svo
vitað sé, enda útlagar og nefndir
Grænlendingar eftir það, að ætla má.
En ekki þarf að kvarta undan því að
íslendingar sýni Leifi ekki sóma. Að
því er ég fæ best skynjað er hann á
líðandi missimm næstum að segja
hin eina sögupersóna sem allir Is-
lendingar þekkja með nafni og tengja
afreld sem hann er réttilega borinn
fyrir.
Örlagavaldur á alvörustund
En víkjum aftur að viðburðum á
Alþingi árið 1000.
Þótt ófriðlega hafi horft tókst að
firra stórvandræðum, ekki kom til
innanlandsstyijaldar, stjómskipunin
hélst og lögum var uppi haldið. Hér
er ekki rúm til að rekja ítarlega fram-
vindu mála á Þingvöllum. En á niður-
stöðuna verður að minnast og þann
mann er henni réði sem tillögumaður
að lausn þingdeilna. Þessi maður var
Þorgeir Þorkelsson lögsögumaður,
norðlenskur höfðingi, búsettur á
Ljósavatni á mótum Ljósavatns-
skarðs og Bárðardals og fór með
Ljósvetningagoðorð, enda nefndur
Þorgeir Ljósvetningagoði. Þorgeir
hafði verið lögsögumaður um 16 ára
skeið þegar þetta var en átti eftir að
bæta einu ári við þann frama. Munu
fáir hafa gegnt lögsögumanns-
embætti lengur en hann og sýnir það
^Merkingar
föt og skó
&ÖQt>
Laugalækur 4 • S: 588-1980.
Ingvar Gíslason
Sagnfræði
Hið eina stórmannlega
sem nú er gert til
minningar um Þorgeir
goða, segir Ingvar
Gfslason, er smíði
nýrrar kirkju á Ljósa-
vatni, höfuðbóli hans.
að hann var virðingar og trausts
verður. Þorgeir var heiðinn og án efa
í fremstu röð heiðinna manna. Þrátt
fyrir það gerði hann þá tillögu til
þingsins (eða kvað upp þann úrskurð)
að heiðni skyldi afnumin en kristni
tekin í lög. Þetta samþykktu heiðnir
menn. Kristnir menn hlutu að fagna
úrskurðinum. Síðan hafa íslendingar
talist til kristinna þjóða. Og því höld-
um við í ár kristnihátíð með mikilli
viðhöfn.
Ekki er því að neita að úrskurður
Þorgeirs er einstakur og kom vita-
skuld flatt upp á þingheim. Síðari
tíma menn hafa leitað skýringa á
úrskurðarferli Þorgeirs og þykjast
sjá ýmsa skýringarmöguleika. Ekki
verður þess freistað hér að ræða
skýringar þessar. Þær skipta að sjálf-
sögðu máli í rökræðum um gang mála
kringum kristnitöku en eiga ekki rúm
í þessari blaðagrein. Beinum í staðinn
sjónum að úrskurði Þorgeirs og
manninum sjálfum. Hvernig sem á er •»-
litið er Þorgeir örlagavaldur í málinu.
Öll rök mæla með því að nafni hans sé
myndarlega á loft haldið á minning-
arári um kristnitöku. Fram að þessu
hefur raunar verið hljótt um nafn
hans, svo að telja verður til efs að það
sé á hvers manns vörum. Ef það er
rétt er slíkt fálæti ómaklegt.
Smíði Ljósavatnskirkju
Hið eina stórmannlega sem nú er
gert til minningar um Þorgeir goða
er smíði nýrrar kirkju á Ljósavatni,
höfuðbóli hans. Þeir sem að þeirri
framkvæmd standa eiga mikið lof
skilið. Enda stendur Þingeyingum
næst að halda uppi minningu hans.
Að öðru leyti hafa Norðlendingar
verið helsti tómlátir um minningu
Þorgeirs. Ríkisstjóm og Alþingi hafa
þó bjargað heiðri sínum að því marki
sem nemur opinberum fjárveitingum
til Ljósavatnskirkju. Þorgeir Ljós-
vetningagoði var afreksmaður og all-
ir Islendingar ættu að leggja sér nafn
hans og minningu á hjarta.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður og ráðherra.
YAMAHA
Mótórhjól
KRINGLUKAST
í DRESSMANN
AIIAR SKYRTUR
TAKTU 3 - BORGAflll 2
ODVRASn SRVRTAN ER f KAIIPBÆTI
McfiORDON
GALUODXUR
1 STK.
1.
. / 2STK.
2.990
M:
V
§
DRESS
MANN
LAUGAVEGI - KRINGLUNNI