Morgunblaðið - 22.06.2000, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Hundalíf
Ljóska
Smáfólk
VOUR BROTHER 5PIKE 5AYS
THAT THE 5UMMER OLYMPIC5
15 60IN6T0BE IN NEEPLE5..
THAT'5 RIPICUL0U5! UJHERE
UJOULP HE HEARANYTHIN6
IIKE THAT?
Skúli bróöir þinn segir aö
Ólympíuleikarnir verði haldnir í
Nálaborg..
Þaö er fáránlegt! Frá hveijum kemur
svona þvæla?
Ertu viss?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Kristur, kirkjan
og ríkið
Frá Björgvini Brynjólfssyni:
VÍÐA um lönd og álfur eru kristnir
menn nú að minnast 2000 ára aímæl-
is meistarans frá Nasaret. Ein er þó
sú þjóð sem telur sig kristna sem
lætur afmæli hans sig litlu skipta. -
En heldur þess í stað á fornum
þingstað þjóðarinnar risastóra ríkis-
hátíð til að minnast 1000 ára afmælis
AFNÁMS trúfrelsis í landi sínu. -
Telur sig þó til lýðræðisþjóða og
flestum þjóðum fremri á því sviði, að
áliti sinna ráðherra, sem sumir virð-
ast hafa áhyggjur af mismun á
mannréttindum meðal annarra
þjóða. Trúfrelsið var ekki afnumið
vegna langvarandi átaka á milli trú-
flokka, heldur fyrir hótanir og gísla-
töku erlends konungs, sem þótti
kristinn siður mýkri leppur í sínum
skó. Hann barðist til valda í heima-
landi sínu með hótunum, morðum og
svikum sem skýrt kemur fram í sögu
hans, sem flestum er kunn. Hann hét
þeim syndafyrirgefningu Hvíta-
Krists sem studdu völd hans og ein-
ræði. Enn er kristur misnotaður til
framdráttar spilltu ríkisvaldi sem
leikur sér með skattfé þjóðarinnar.
Ráðherrar gefa en þjóðin borgar.
Á lokaári 20. aldar er þessi þjóð
ekki lengra komin á lýðræðisbraut
enað einn trúflokkur er sérvemdað-
ur í stjómarskrá og með lögum.
Hann einn nýtur náðar ríkisvaldsins,
enda er hann ekki trúflokkur í venju-
legum skilningi, heldur vernduð
siðasamtök ríkisins. Ríkistrúarþjóð-
in miklast oft af sjálfstæðisbaráttu
sinni. Hún hefur lifað tvenn siða-
skipti í landi sínu, sem framkvæmd
vora fyrir framkvæði erlendra ein-
valdskonunga, en virðist nú vera í
sögulegri sátt við þá erlendu íhlutun
og yfirgang sem birtist í trúar- og
siðaskiptum. „Svo lítil era geð
guma“.
Þegar ríkiskirkjan þarf að styrkja
sjálfsmynd sína í augum þjóðarinnar
finnur hún oft upp vinsæl verkefni
og eignar sér þau. Hjálparstörf af
ýmsu tagi era vinsæl og vel fallin til
að bæta ímynd hennar hjá alþjóð. En
flest hennar hjálparstörf draga fé frá
framlögum þjóðarinnar til annarra
félaga sem era notuð til hjálpar-
starfs en ekki til að auglýsa sinn
mannkærleika. Ef ríkiskirkjan vildi í
alvöra styrkja hjálparstörf án þess
að draga úr framlögum þjóðarinnar
til hjálparstarfs annarra á hún hæg
heimatök til fjáröflunar. Ef ríkis-
kirkjan hagræddi í sinu starfi líkt og
aðrar ríkisstofnanir hafa þurft að
gera fengi hún 100-200 milljónir á ári
hverju til frjálsrar ráðstöfunar, þar
sem framlög ríkisins til kirkjunnar
era lögbundin. - Þar fengi hún fé til
hjálparstarfs sem ekki drægi úr
hjálparstarfi annarra féiaga. - Þá
gæti hún í alvöru bætt ímynd sína og
sýnt að græðgi er ekki hennar æðsta
mál.
Aðskilnaður ríkis og kirkju er ekki
aðeins jafnréttis- og mannréttinda-
mál, heldur einnig leið til alvöra
trúfrelsis, þar sem lögboðin sérrétt-
indi ríkiskirkjunnar væra felld niður
og frjáls samkeppni um trú og siði
yrði raunhæf. - Og þjóðin losnaði við
trúarlegt einræðisskipulag og gæti
talist alvöra lýðræðisþjóð. Það væri
ánægjuleg þróun í byrjun nýrrar
aldar. Þjóðin hefur tekið afstöðu í
skoðanakönnunum í sjö ár. Yfir 60%
styðja aðskilnað ríkis og kirkju, en
afstaða Alþingis er enn óljós en mun
skýrast fljótlega. Ríkiskirkjuhátíðin
er fjörbrot deyjandi skipulags.
BJÖRGVIN BRYNJÓLFSSON,
Oddviti SARK, Samtaka um að-
skilnað ríkis og kirkju.
Góð verslun
í Grafarvogi
Frá Þórdísi S. Guðbjnrtsdóttur:
ÉG VIL nota tækifærið og lýsa
ánægju minni með Nóatúnsverslun-
ina sem nýverið tók til starfa í versl-
unarmiðstöðinni í Hverafold hér í
Grafarvogi. Það er mikill munur að
fá hér gott kjöt- og fiskborð og svo er
verslunin björt og rúmgóð.
Ein nýjung er þarna í kjöt- og
fiskiborði sem er rétt að benda á.
Hér er átt við nýjar umbúðir utan
um kjötið og fiskinn. Ég hef tekið
eftir því að þessar nýju umbúðir
auka geymsluþol matvörannar vera-
lega. Um daginn keyptum við til
dæmis ný ýsuflök sem við matreidd-
um ekki fyrr en 5 sólarhringum
seinna og vora flökin ennþá fersk við
opnun umbúðanna. Þetta er mikil
framför frá frauðplastbökkunum
sem taka mikið pláss og hljóta að
safna ryki og óhreinindum í hillum
verslananna. Það er rétt að benda á
það sem vel er gert - líka í úthverf-
unum.
ÞÓRDÍS S.
GUÐBJARTSDÓTTIR,
Hverafold 96, Reykjavík
AUt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Bylting
¥
Fjölnota byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir!
VIR0C byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf,
VIR0C byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi.
VIR0C byggingaplatan er umhverfisvæn.
VIR0C byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint,
Staðalstærð: 1200x3000x12 mm.
Aðrar þykktir: 8,10,16,19, 22, 25, 32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm
Vlroc utanhússklæðnlng
PÞ
&co
Leitlð upplýslnga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA29 S: 553 8640 & 568 6100