Morgunblaðið - 22.06.2000, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 69
ÍDAG
BRIDS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
SVÍAR verða með sterkt lið
á Norðurlandamótinu sem
hefst í Hveragerði í næstu
viku. Þar er fremstur í flokki
Anders Morath (56 ára),
höfundur Gulrótarlaufsins.
Félagi hans nú er Maarten
Gustawsson. Hin pörin eru
Magnus Eriksson/Ulf Nils-
son, og Frederik Nyström/
Peter Strömberg, sem eru
þeirra yngstir, báðir nýlega
26 ára. Þeir voru hér á landi
í fyrra og unnu þá NL í ung-
mennaflokki. Þegar Norður-
landamót í opna flokknum
var síðast haldið hér á landi
árið 1988 vann ísland sinn
fyrsta sigur og þá eftir
harða keppni við Svía. Hér
er spil úr viðureign þjóð-
anna í Reykjavík 1988:
Vestur gefur; allir á
hættu. Norður * 1083 v G1084 ♦ 984 + 852
Vestur Austur
A K654 + 972
VÁKD2 V 9765
♦ 65 ♦ G103
* ÁD7 + G104 Suður + ÁDG »3 ♦ ÁKD72 + K963
Þorlákur Jónsson og Sig-
urður Sverrisson voru í AV
gegn Morath og Bjerre-
gaard:
Vestur Norður Austur Suður
Sigurður Bjerregaanl Þorlákur Morath
llauf Pass Pass 2grönd
Dobl Pass Pass Pass
Sigurður stóð í þeirri trú
að stökk Moraths í tvö
grönd lofaði 55 í láglitunum
og doblaði til að sýna
hámarksopnun. Það var
ekki fyrr en allir höfðu pass-
að, sem Sigurður spurðist
fyrir um sagnir, og kom þá í
ljós að Morath var að lofa í
kringum 20 punktum og til
þess að gera jafnri skipt-
ingu.
Sigurður tók fyrst þrjá
efstu í hjarta og skipti yfir í
tígul. Sem er besta vörnin.
Morath beið með tíguhnn og
spilaði strax spaðadrottn-
ingu. Sigurður varð að taka
þann slag, en hann ákvað að
dúkka og það var allt sem
Morath þurfti. Hann tók nú
tígulslagina og spilaði
spaðaás og gosa í fjögurra
spila lokastöðu, þar sem
vestur átti Kx í spaða og ÁD
í laufi. Morath fékk þannig
áttunda slaginn á laufkóng.
Á hinu borðinu unnu Jón
Baldursson og Valur Sig-
urðsson þrjá tígla í NS, en
spilið kostaði ísland samt 11
IMPa.
Árnað heilla
Q A ÁRA afmæli. í dag,
O U fimmtudaginn 22.
júní, er áttræð frú Laufey
Andrésdóttir, Fjóluhvammi
4, Hafnarfirði. Hún og fjöl-
skylda hennar taka á móti
vinum og ættingjum í
Hraunseli, sal eldri borgara,
Reykjavíkurvegi 50, Hafn-
arfirði, frá kl. 20 í dag.
A A ÁRA afmæli. í dag,
Öv/ fimmtudaginn 22.
júní, er sextug Agústa Ósk
Guðbjartsdóttir, Engjateigi
17. Hún var gift Hilmari
Þorbjörnssyni, sem lést
1999. Ágústa tekur á móti
ættingjum og vinum á heim-
ili sínu föstudaginn 23. júní
frákl. 17-21.
A A ÁRA afmæli. í dag,
öv fimmtudaginn 22.
júní, er sextugur Einar
Pálsson, bifreiðastjóri,
Reynimel 92, Reykjavík.
Hann tekur á móti ættingj-
um, vinum og starfsfélögum
á morgun, 23. júní, í Nætur-
galanum, Smiðjuvegi 14,
Kópavogi, milli kl. 20 og 23.
F A ÁRA afmæli. í dag,
l) U fimmtudaginn 22.
júní, verður fimmtugur Sig-
Uijón Pétursson, fram-
kvæmdasljóri. Eiginkona
hans er Þóra Hrönn Njáls-
dóttir. Þau taka á móti gest-
um í Strandbergi, safnaðar-
heimili Hafnarfjarðarkirkju,
frákl. 17-19 ídag.
COSPER
Allt í einu mundi ég eftir að það var ég sem var með
miðana.
LJOOABROT
morgunblaðið
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Vorvísur
Þegar líður gamla góa,
góðs er von um land og flóa,
vorið bræðir vetrarsnjóa,
verpar fuglar einherjans
út um sveitir ísalands;
ungum leggur eins hún tóa,
úr þvi fer að hlýna.
Enga langar út um heim að blína.
Tjaldrar syngja um tún og móa,
tildrar stelkur, gaukur, lóa,
endar hörkur hljóðið spóa,
hreiðrin byggir þessi fans
út um sveitir ísalands;
æðarfuglinn angra kjóar,
eru þeir að hvína.
Enga langar út um heim að blína.
Sæt og fögur grösin gróa,
gleðja kindur, naut og jóa,
engjar tún og auðnir glóa
eftir boði skaparans
út um sveitir Isalands;
að stekkjarfénu stúlkur hóa
og stökWa úr því við kvína.
Enga langar út um heim að blína.
Eggert Ólafsson
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur listrænum
hæfíleikum og ert geðríkur
og þarft því oft að hafa
stjórn á skapi þínu.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Nú er ekki rétti tíminn til að
byrja á nýju verkefni því þú
ert of annars hugar til þess.
Geymdu það í nokkra daga
þangað til þú ert kominn í
betra form.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Deildu leyndarmálum þín-
um með einhverjum sem þú
treystir út í æsar. Það er
aldrei að vita nema eitthvað
skemmtilegt komi út úr því
að skiptast á hugmyndum.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) AA
Þér finnast öll spjót standa
á þér og langar mest að
draga þig í hlé. Hertu upp
hugann því sókn er besta
vörnin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vandasöm verkefni bíða þín
en gangir þú heill til starfa
muntu leysa þau og afla þér
aukins frama og vinsælda.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Vertu óhræddur við að segja
hug þinn þvi þá munu aðrir
taka mark á þér. Svaraðu
bréfum og skilaboðum strax.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) vuíL.
Það er nauðsynlegt að eyða
tíma með ungviðinu og um
leið að fínna barnið í sjálfum
sér. Láttu það ganga fyrir
öllu öðru.
Vog xrx'
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt gott með að umgang-
ast aðra svo þú skalt nýta
þér þann hæfileika sem best
þú getur. Þú þarft llka að
vinna í eigin vandamálum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur byr í seglin á
vinnustað þínum og átt að
notfæra þér það því það get-
ur skipt sköpum fyrir fram-
tíð þína.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) ftO
Þú þarft að fara vandlega í
gegnum fjármáiin. Það er
ástæðulaust að kaupa allt
sem hugurinn girnist, betra
er að vanda valið.
Steingeit „
(22. des. -19. janúar) álF
Þú þarft ekki að vera með
nein látalæti í umgengni við
aðra. Vertu bara þú sjálfur
og sinntu þínum störfum
sem best þú getur.
Vatnsberi f .
(20. jan. -18. febr.)
Nú virðist vera rétta tæki-
færið fyrir þig að koma mál-
um þínum áfram. Gættu
þess að þú fáir þá viður-
kenningu sem þú átt skilið.
Fiskar mt
(19. feb. - 20. mars)
Samstarfsmenn þínir munu
koma auga á hæfileika þína
og vilja njóta þeirra. Vertu
örlátur og þú munt upp-
skera ríkulega.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Opið mánud,- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 14
^6vi/:yV\\y4. - Gœðavara
Gjdídvard - mð(d! oij kdííislell
Allir verðílokkdr.
Heimsfrægir fiöniiuðir
m.d: Gidnni Versdte.
u/y/x \\\av vfrslunin
Laiigavegi 52, s. 562 4244.
Þú bara rennir skálmunum af og á allt eftir þörfum.
100% bómull, léttar og þægilegar. Kr. 5.990.-
►Columbia
SportswearCompany* m « H
ii REiSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
-------- Skeifunni 19 - S. 5681717 -
Þú þarft ekki einu sinni
skæri til að stytta þær
Convertible buxur
Nýjar vörur
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 4.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 1.690
Bolir frá kr. 1.500
Kvartbuxur kr. 2.500
Stuttbuxur og
bermudabuxur frá kr. 1.900
'&l&ð All,af sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
deur®
h-gallabuxur
má Kvartbuxur
Stuttbuxur
Bolir
Dpio
tískuverslun v/Nesveg,
sími 561 1680.
daglega kl. 10-18,
laugardaga kl. 10-14.