Morgunblaðið - 02.07.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
149. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 2. JULI2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Atta fórust í slysinu í Hróarskeldu
Söngvarinn
reyndiað
afstýra slysi
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„ÞETTA er óskiljanlegt," heyrðist
úr öllum áttum í gær eftir að ljóst
var að átta ungir menn höfðu látist í
troðningi fyrir framan tónleikasvið á
30. Hróarskelduhátíðinni laust fyrir
miðnætti á föstudagskvöldið. Ekkert
benti til að troðningurinn hefði verið
meiri á þessum tónleikum en á mörg-
um öðrum, engin örvænting greip
um sig og fæstir í þvögunni gerðu
sér grein fyrir hvað um væri að vera.
Engin merki eru heldur um að neitt
óvenjulegt hafí gerst er valdið hafi
slysinu.
Síðdegis í gær höfðu verið borin
kennsl á fjóra af hinum átta látnu,
Dana, Þjóðverja, Svía og Hollending.
Fjórir aðrir voru illa haldnir á
sjúkrahúsi, þar af ein stúlka í lífs-
hættu.
Forráðamenn hátíðarinnar
ákváðu að halda hátíðinni áfram,
meðal annars vegna þess að það
hefði stofnað öryggi margra í hættu
ef allir streymdu á brott frá staðnum
samtímis. „Þetta er ákvörðun sem
við erum ekki 110% viss um að sé
rétt og við vitum að fyrir þetta mun-
um við hljóta gagnrýni," sagði
stjómandi hátíðarinnar, Leif Skov, á
blaðamannafundi í gærmorgun. „Við
viljum með þessu minna á að lífið
heldur áfram og er enn einhvers
virði fyrir þá sem lifðu af þótt það sé
erfitt á slfkri stundu.“ Hann sagði að
ákvörðunin hefði verið tekin í sam-
ráði við lögregluna. Slysið hafði held-
ur ekki áhrif á vígslu Eyrarsunds-
brúarinnar, en Poul Nyrup
Rasmussen forsætisráðherra bað
viðstadda að minnast hinna látnu
með þögn.
Allt virtist með
venjulegum hætti
I fréttum í gær kom fram að ekk-
ert hefði bent til þess sem gerst
hafði. Tónleikar bandarísku sveitar-
innar Pearl Jam löðuðu að sér um
fimmtíu þúsund manns, sem ekki er
óalgengt á hátíð, sem sótt er af hátt í
hundrað þúsund manns.
Allt fór rólega fram, fyrir utan
hinn venjulega troðning, sem skap-
ast þegar menn standa og hreyfa sig
fram og aftur. Sumir leita að sviðinu,
aðrir hörfa frá.
í kringum svæðið er girðing, en
aðeins um 120 sentimetrar á hæð.
Við hana standa stöðugt öryggis-
verðir hátíðarinnar og hjálpa fólki að
losa sig úr þvögunni ef það vill. Rétt
um það leyti sem slysið varð virtist
ekkert benda til óróleika eða að
troðningurinn væri markaður öðru
en venjulegri tónleikastemmningu.
Söngvari hljómsveitarinnar, Edd-
ie Vedder, fékk þó boð um að eitt-
hvað væri að og bað fólk að vera
samtaka og stíga þrjú skref aftur á
bak. Það var gert, hann bað þá fólk
að gera þetta aftur, en fannst þá
greinilega eins og ekki væri nóg að
gert, dró sig til baka á sviðinu og
settist á hækjur sér meðal félaga
sinna og grét. Þá komu að sjúkrabíl-
ar og fólk var borið úr þvögunni.
Hljómsveitin sendi frá sér fréttatil-
kynningu þar sem aðstandendum
hinna látnu var vottuð samúð. „Líf
okkar verður aldrei samt á ný en við
vitum að það skiptir engu þegar hug-
að er að sorg fjölskyldna og vina,“
sagði í tilkynningunni.
■ Martröð/6
------*-M--------
Forsetakjör
í Mexíkó í dag
Jafnt í
könnumim
Mexíkóborg. AP.
SAMKVÆMT síðustu skoðanakönn-
unum eru keppinautarnir tveir í for-
setakosningunum í Mexíkó nær jafn-
ir en kosið verður í dag.
Vicente Fox, frambjóðandi stjórn-
arandstæðinga, var með ívið minna
fylgi í könnununum en stjórnar-
flokksmaðurinn Francisco Lam-
bastida. Fráfarandi forseti, Emesto
Zedillo, hefur heitið því að ekki verði
beitt neinum brögðum við talning-
una eins og stjórnarflokkurinn hefur
verið sakaður um síðustu árin.
Kaþólska kirkjan í Mexíkó hvatti
trúaða til að biðja Guð um að fyrir-
gefa sér kosningasvik sem þeir hefðu
tekið þátt í og biðja um að kosning-
arnar færu vel og lýðræðislega fram.
„ÁN NÝRRA VERKA,
ÁN NÚTÍMANS,
HÆTTIR FORTÍÐIN
AÐVEKJA ÁHUGA“
Uppskipting veikir
kaupfélögin hratt
|.'vVá;w S?
'•V & WÉ WL \ \ ' .m \ .-\ \ \ ^ \ X M . ■ vv_ •,'v
i H Wk * .
■
-TTW \ \ M
,7 1 ; Á MxM v-v. ~ ~ JM'
1 J i
Glímukappar sýndu glímubrögð við Lögberg á laugardag.
Morgunblaðið/Golli
APÓTEK
LJÓSMYNDARANS
30 VIÐSKIPnAIVINNULÍF
ÁSUNNUDEOI
Við upphaf
Kristnihátíðar
KRISTNIHÁTÍÐ hófst á Þingvöll-
um í gærmorgun og stendur yfir
alla helgina. Eitt af fyrstu atriðum
hátíðarinnar var glímusýning Hér-
aðssambandsins Skarphéðins við
Lögberg í blíðskaparveðri.
MORGUNBLAÐK) 2. JÚU 2000