Morgunblaðið - 02.07.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 56
FÓLK í FRÉTTUM
Góð
mvndbönd
Tangó/(Tango)
★★★
Listileg útfærsla hins gamalreynda
Sauras á hjartans máli Arg-
entínubúa, tangóinum. Fjölmargar
danssenurnar snilldarlega fangaðar
á filmu af Vitor Storario. Þó ekki
fyrir óþolinmóða.
Glys og glaumur / Sparkler
★★54
Þó nokkuð er spunnið í þessa galsa-
fengnu og vel skrifuðu gamanmynd
þar sem brugðið er upp lifandi
mynd af lífi í hjólhýsabæ og undir-
heimum Las Vegas borgar.
Sláandi fegurð/
Drop Dead Gorgeous
★ ★lé
Hér setja höfundar sig á full háan
hest en á köflum alveg drepfyndin
og kvikindisleg.
Hjarta/Heart
'k'kVz
Góð flétta sem fer vel af stað en
tapar því miður áttum er tekur að
líða á. Leikarar standa sig þó með
prýði.
Lífstíð/Life
'k'k1Á
Hófstilltur og fínn leikur þeirra
Eddie Murphy og Martin Lawrence
kemur skemmtilega á óvart í fínni
gamanmynd sem er þó ekkert
sprenghlægileg.
Eyes wide shut
★★54
Nokkuð snúinn en spennandi
svanasöngur meistara Kubricks.
Truflar mann að hann hafi ekki lif-
að nógu lengi til að fullklára verkið.
Cookie frænka / Cookie’s Fortune
•k'kVí
Þessi nýja mynd leikstjórans
Roberts Altmans er vel þess virði
að sjá. Sposk og skemmtileg smá-
bæjarmynd með fínum leikurum.
Ævintýri Elmo litla / The
Adventures of Elmo in Grouchland
'k'k1/2
Skemmtileg barnamynd með brúð-
unum úr Sesam-stræti. Góður húm-
or, söngatriði, sprell og glens gefa
henni gildi.
Fullkominn eiginmaður /
An Ideal Husband
★★(4:
Lipur útfærsla á skemmtilegu leik-
riti Oscars Wildes. Góðir leikarar
og litrík umgjörð.
Jakob lygari / Jakob the Liar
★★14
Jakob lygari fjallar um tilveru gyð-
inga í gettói í Varsjá á valdatíma
nasista. Mynd sem leynir á sér.
Brjálaði aðkomumaðurinn /
Gadjo Dilo
★★★
Kvikmynd um samfélag sígauna í
Rúmeníu. Vel gerð mynd sem fer
með áhorfandann í einstakt ferða-
lag á framandi slóðii'.
Myrkrið fellur/Darkness Falls
'k'k’Á
FuII hægfara en magnað leikhús-
drama þar sem snillingurinn Ray
Winstone bjargar málunum. Glæp-
samlega vannýttur leikari.
Líf mitt hingað til /
My life so far
★★54
Fallega tekin kvikmynd sem lýsir
bernskuminningum í skoskri
sveitasælu. Tilvalinn kosturfyrir þá
sem hafa gaman af ljúfum
fjölskyldumyndum.
Siðasti söngur Mifune /
Mifunes sidste sang
★★★
Þessi þriðja mynd úr dönsku
Dogma-reglunni skartar sérlega lif-
„Einfaldlega með betri myndum um líf og raunir unglinga. Allt í senn
átakanleg, trúverðug og góð skemmtun. Stúlkumar tvær vinna kláran
leiksigur," segir m.a. í dómi um sænsku kvikmyndina Fucking Ámál.
andi og áhugaverðum persónum.
Ljúfsár og bráðskemmtileg kvik-
mynd.
Mafíumenn / Made Men
★★★
Bráðfyndin og spennandi mafíu-
mynd framleidd af HBO-sjónvarps-
stöðinni. Fær bestu meðmæli.
Berserksgangur í Alabama /
Crazy in Alabama
★★54
í þessari frumraun sinni í leik-
stjórastólnum vinnur Antonio
Banderas skemmtilega kvikmynd
úr samnefndri skáldsögu.
Morgunverður hinna sigursælu /
Breakfast of Champions
★★54
Áhugaverð aðlögun á skáldsögu
Kurts Vonnegut þar sem deilt er á
hamslausa neyslumenningu Banda-
ríkjanna. Bruce WiIIis og Nick
Nolte fara á kostum.
Beautiful People / Fallegt fólk
★★★
Fyndin, pólitísk og nokkuð frumleg
mynd sem segir frá mismunandi
persónum sem tengjast á einn eða
annan hátt í stórborginni London.
Góð frumraun hjá leikstýrunni
Didzar.
Regeneration / Endurnýjun
★★★54
Ljóðræn stríðsmynd um skáldið
Sigfried Sassoon sem settur er inn
á geðveikrarhæli vegna skoðanna
sinna um ómennsku fyrri heim-
styrjaldarínnar. Jonathan Pryce er
frábær í hlutverki sínu sem geð-
læknir Sassons.
American Perfekt /
Amerísk fyrirmynd
★ ★54
Robert Forster er frábær í þessari
undarlegu vegamynd um sálfræð-
ing sem hefur tekið þá ákvörðun að
ákveða næstum allt sem hann gerír
með því að kasta peningi upp á það.
Kieine Teun / Tony litli
★★★54
Hrikalega áhrifamikil og vel leikin
kvikmynd um sálsjúkan ástarþrí-
hyrning sem myndast þegar einföld
bóndahjón ráða til sín unga kennslu
konu til þess að bóndinn geti lært
að lesa.
The Girl Next Door /
Dóttir nágrannans
★★★54
Ferill klámmyndaleikonunnar
Stacy Valentine rakinn frá upphafi
og þar til hún fær verðlaun á full-
orðinsmynda hátíðinni í Cannes.
Áhrífamikil en ávallt hlutlaus lýsing
á þessum yfirborðskennda iðnaði.
Rótleysi / Tumbleweeds
★★★
Einkar vel gerð kvikmynd sem lýsir
flóknu sambandi móður og dóttur
af einstakri næmni. Leikkonurnar
Janet McTeer og Kimberley Brown
fara á kostum í hlutverki mæðgn-
anna.
Ringulrelð / Topsy-Turvy
★★★
Sérlega vönduð og íburðarmikil
mynd eftir breska leistjórann Mike
Leigh sem fjallar um heim óperett-
unnar í Lundúnum á 19. öld.
Slagsmálafélagið / Fight Club
★★★54
Umtöluð mynd og ekki að ósekju.
Kærkomið kjaftshögg fyrír sanna
bíóunnendur og jaðrar á barmi
snilldarinnar. Edward Norton er
snillingur.
Fávitarnir / Idioterne
★★54
Eins og við mátti búast nýtir sér-
vitringurínn Lars Von Trier sér
Dogma-formið út íystu æsar. Djörf
og ögrandi hneykslisrannsókn en
ekki nógu heilsteypt.
Hvað varð eiginlega um
Harold Smith? / Whatever
Happened To Harold Smith?
★★★
Fortíðardýrkunin er hér allsráð-
andi og í þetta sinn áttundi ára-
tugurinn á mörkum diskósins og
pönksins. Klikkuð og bráðskemmti-
leg bresk eðalmynd.
Hústökuraunir / Scarfies
★★★
Enn einn óvænti glaðningurinn frá
nýsjálendingum. I þetta sinn pott-
þétt spennumynd í anda Shallow
Grave. Fylgist með höfundinum
Sarkies í framtíðinni.
Fucking Ámál / Árans Ámál
★★★54
Einfaldlega með betri myndum um
líf og raunir unglinga. Allt í senn
átakanleg, trúverðug og góð
skemmtun. Stúlkurnar tvær vinna
kláran leiksigur.
Heiða Jóhannsdóttir
Ottó Geir Borg
Skarphéðinn Guðmundsson
Nýtt verð á
GIRA Standard.
Gæði á
góðu verði.
S. GUÐJÓNSSON ehf.
Lýsinga- og rafbúnaður
Auðbrekka 9-11 • Sími: 554 2433
Tæki til að tala í
svan)
Viðlegubúnaður
á tilboði
Panasonic
GD90
Dualband GSM
Klukka/vekjari
Titrari
20 hringitónar
Innbyggt módem
200 klst rafhlaða
NEC DB4000
Dualband GSM
Klukka/vekjari
Titrari
14 hringitónar
300 klst rafhlaða
Snúra í eyra
W*1.M
stgr.
Með frelslspakka
og 500 kr. innelgn
SlMINN
Með frelsispakka
og 500 kr. inneign
Svarhf.
Bæjarlind 14-16
200 Kópavogur
S. 510-6000
Ráðhústorgi 5
600 Akureyri
S. 460-5950
TILBOÐ ÓSKAST
í Volvo S-70 árgerð ‘99 (ekinn 4200 mílur),
Jeep Grand Cherokee Limited 4x4 árgerð ‘93
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 4. júlí kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16
LYFTARI
Ennfremur óskast tilboð í Clark rafmagnslyftara.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
-
Stökktu til
Costa del Sol
13. júlí
frá kr.
39.955
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol í júlí, en vinsældir þessa staðar hafa aldrei verið
meiri. Hér finnur þú frábæra gististaði, glæsilega veitinga- og
skemmtistaði, frægustu golfvelli Evrópu, glæsilegar snekkju-
bátahafnir, tívolí, vatnsrennibrautagarða, glæsilega íþrótta-
aðstöðu og spennandi kynnisfeðrir í friinu. 4 dögum fyrir
brottför hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir. Að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Verð kr.
39.955
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
2 vikur.
Verð kr.
49.990
M.v. 2 í íbúð/stúdíó, 2 vikur,
13. júlí, flug, gisting, skattar.
Austurstræti 17, 2. hæð,
sími 595 1000.
www.heimsferdir.is