Morgunblaðið - 02.07.2000, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ferðaþjónusta bænda og Hólaskóli í samstarfí um gæðaeftirlit
130 bæir
heimsóttir
í sumar
Morgunblaðið/ Rúnar Þór
Gunnar Rögnvaldsson og Sævar Skaptason við úttektina hjá Gunnari
Th. Gunnarssyni á Leifsstöðum.
Morgunblaðið/ Rúnar í’ór
Kirsten Gods við herbergin sem eru sérútbúin með breiðum dyrum.
ÍjSUMAR stendur yflr markvisst
gæðaeftirlit og úttekt á öllum gisti-
stöðum innan Ferðaþjónustu
bænda. Verkefnið er samstarf Hóla-
skóla, Ferðaþjónustu bænda og Fé-
lags ferðaþjónustubænda. Það eru
þeir Gunnar Rögnvaldsson frá
Hólaskóla og Sævar Skaptason frá
Ferðaþjónustu bænda, sem heim-
sækja ferðaþjónustubændur um
land allt. Morgunblaðið hitti þá þeg-
ar þeir voru á ferð í Eyjafirðinum á
dögunum og fræddist um verkefnið,
ástæður þess og markmið.
Gæðaeftirlit styrkir greinina
Að sögn Sævars er áratugur síðan
farið var í fyrstu markvissu úttekt á
bæjum innan FB, en þá var byijað
áo flokka gististaðina í þrjá mismun-
andi flokka. Flokkarnir miðast t.d
við hvort boðið er upp á handlaugar
inni á herbergjum, hvort setustofa
er á staðnum, hvort bað sé inni á
herbergjum o.s.frv. „Fyrstu árin
var reglubundið eftirlit með þessari
flokkun og nutum við til þess styrks
frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Fyrir þremur árum var styrkurinn
felldur niður og í framhaldi af því
lagðist eftirlitið af,“ sagði Sævar. Að
sögn Sævars er núna grundvöllur
í?3»lr gæðaeftirlit að nýju í samvinnu
við ferðamálabraut Hólaskóla. Að
sögn Gunnars er stefnan sú að
könnunin verði viðameiri seinna
meir, farið verði í að rannsaka hvaða
afþreyingu sé boðið upp á á staðn-
um, hver séu gæði afþreyingarinn-
ar, stefna staðanna í veitingafram-
boði og svo mætti lengi telja.
Báðir taka þeir fram að gæðaeft-
irlitið sé mjög mikilvægt fyrir ferða-
þjónustuna í heild og hvað Ferða-
þjónustu bænda varðar sé það afar
mikilvægt því að 130 staðir hvar-
vetna á landinu eru undir hatti
Ferðaþjónustu bænda. „Það getur
verið að þurfi að lagfæra eitthvað
smávægilegt á stöðunum og það
þarf bara einhvem utanaðkomandi
til að benda á það, þannig kemur
þetta staðarhöldurum til góða.
Einnig er gæðaeftirlitið nauðsyn-
legt til þess að koma í veg fyrir að
einhver auglýsi aðstöðu sem er svo
ekki til staðar. Ferðamaðurinn
verður þá óánægður og það skaðar
greinina í heild,“ sögðu þeir Sævar
og Gunnar.
Fyrirhugað að koma upp
gagnabanka
Sævar tekur einnig fram að í
þessari ferð þeirra um landið taki
þeir myndir á hverjum stað, mæli
herbergi og safni upplýsingum sem
verða settar í fyrirhugaðan
gagnabanka á vefnum síðar meir.
„Það er hugmyndin að ferðamaður-
inn geti farið inn á veraldarvefinn,
fundið gagnabankann og skoðað
nákvæmlega hvað er í boði á hverj-
um stað fyrir sig,“ sagði Sævar.
Gunnar segir að samstarfið milli
Hólaskóla og Ferðaþjónustu bænda
geti orði viðtækara. Þarna samein-
ast fræðin og þekking á vettvangi
sem geti seinna meir skilað sér í
auknu námskeiðahaldi og fræðslu
fyrir ferðaþjónustubændur.
Fjölbreytileiki staðanna mikill
Þegar blaðamenn hittu þá Gunnar
og Sævar þá voru þeir að störfum á
Leifsstöðum í Eyjafirði. Þeir voru
sammála að þarna væri ánægjulegt
dæmi um stað þar sem allt væri til
fyrirmyndar og vel staðið að málum.
Það eru þau hjónin Gunnar Th.
Gunnarsson og Arný Petra Sveins-
dóttir sem eru hótelhaldarar á
Leifsstöðum. A staðnum hefur verið
byggt upp hægt og bítandi en þegar
þau keyptu staðinn var fyrir hlaða
og fjós þar sem nú er gistiaðstaða
fyrir 16 manns, veitingasalur og
setustofa. Einnig vekur sérstaka at-
hygli mikill trjágróður í kringum
húsið og sunnan við það er skjólgott
rjóður sem Gunnar og Arný segja að
erlendu ferðamennirnir rölti mikið
um. Að sögn þeirra þá kemur ver-
öndin við húsið sér einnig afskap-
lega vel í góðu veðri, en þar geta
ferðamennirnir drukkið kaffi og lát-
ið fara vel um sig.
Blaðamenn fylgja þeim Gunnari
og Sævari einnig eftir er þeir heim-
sækja bæinn Björk sem er örlítið
framar í sveitinni. Þar hafa þau
Kirsten Godsk og Rögnvaldur
Símonarson skapað sér sérstöðu
sem felst í aðgengi fyrir fatlaða. Öll
herbergi í húsinu eru með breiðum
dyrum með rennihurðum og án
þröskulda. Kirsten segir að hug-
myndin að þessu hafa kviknað
vegna starfs þeirra en hún er
sjúkraþjálfari og Rögnvaldur er
iðjuþjálfi.
Að sögn þeirra Sævars og Gunn-
ars endurspegla þessir tveir bæir
mjög vel þá fjölbreytni sem er ríkj-
andi innan Ferðaþjónustu bænda,
ætlunin sé að með gagnagrunni og
gæðaeftirliti verði ferðamönnum
gert auðveldara fyrir að leita sér
upplýsinga um hvern stað iyrir sig
áður en haldið er af stað í ferðalagið.
Vínlandsbúðir reistar
á Sauðárkróki
TJALDBÚÐIR líkar þeim sem
Vesturfararnir reistu sér í Vínlandi
verða reistar dagana 3.-9. júlí nk.
Búðir þessar verða á Sauðárkróki
norðan sundlaugarinnar. Þar verður
fjölbreytt dagskrá alla daga vikunn-
i tjaldbúðunum verður þjóðleg
dagskrá. Boðið verður upp á súrmat,
fisk og heilu skrokkarnir verða grill-
aðir. Víkingar mæta á svæðið í her-
klæðum og beijast, svo eitthvað sé
nefnt.
Samhliða tjaldbúðunum verður
skemmtidagskrá á hverju kvöldi þar
sem allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi. Þar má nefna: Alftagerðis-
bræður, Sönghópinn Auroru ásamt
Margréti J. Pálmadóttur, Andreu
Gylfadóttur söngkonu og Guðmund
Pétursson gítarleikara, Svönu
Berglindi Karlsdóttur og Rögnvald
Valbergsson, Hörð Ólafsson og Eirík
Hilmisson, Brynjar Elefsen og
Sverri Bergmann, Helgu Brögu
Jónsdóttur grínista, Sorin Lazar og
Ellert Jóhannsson, harmonikkuleik-
arann Kristján frá Gilhaga, Gróinn
Gestmóinn og Rimmugýgi, Andra
Sigurðsson trúbador, DjTonik,
Reflex og hljómsveitirnar Blygðun,
Norðanpilta, Freistingu, Gildruna
og Snörurnar, Súrefni og Sóldögg.
Búðimar eru samstarfsverkefni
við Reykjavík Menningarborg
Evrópu árið 2000.
Jörð til sölu
Tilboð óskast í jörðina Hrísnes á Barðaströnd, 451 Patreksfirði.
Jörðin á land að sjó, en án framleiðsluréttar. Gamalt íbúðarhús hefur
verið nýtt til sumardvalar.
Nánari upplýsingar í síma 553 7915. Tilboð berist Halldóri S. Vig-
fússyni, Hvassaleiti 35, 103 Reykjavík, fyrir 30. ágúst 2000.
Ásvallagata 42, 2. hæð t.v., Rvík.
Góð 51,2 ferm. íbúð, stofa, svefnher-
bergi, eldhús og bað. i kjallara er
geymsla, auk sameiginlegs þvotta-
húss, salernis og hjólageymslu.
Bílastæði á lóð. V. 8,3 millj.
Laus 1. sept. 2000
Fasteignamarkaður Vestmannaeyja s.f.
Heimagötu 22, sími 481 1847
Jón Hjaltason, hrl. Guðbjörg Ósk Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali Lögg. fasteignasali • s: 864-1847
Ungir Vestur-fslendingar heimsækja ísland
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Utanríkisráðherra tók á móti hópnum í utanríkisráðuneytinu á fimmtudag. Talið frá vinstri: Ásta Sól Kristjáns-
dóttir verkefnisstjóri, Erika Bardal, Carley Sawers, Gwennie Blard, Shawn Bryant, Kristin Hildahl, Halldór
Ásgrímsson, Richard Long, Erica Wick, Stefan Jacob Guttormsson, Adam Sommcrfeld, Margret Magnusson,
Matthew Bemhoft Shirley og Sally Olafson.
Sex vikna dvöl
í landi forfeðranna
ÞRETTÁN ungmenni frá Banda-
ríkjunum og Kanada, 811 af ís-
lensku bergi brotin, eru í heimsókn
á fslandi um þessar mundir til þess
að taka þátt í svokölluðu Snorra-
verkefni, sem er samstarfsverkefni
á vegum Norræna félagsins og fs-
lenska þjóðræknisfélagsins. Ung-
mennin munu dvelja hér á landi í 6
vikur og kynnast landi og þjóð.
Fyrstu tvær vikumar taka þau
þátt í menningardagskrá þar sem
þau munu meðal annars fræðast
um sögu vesturfaranna. Að því
loknu fara þau í þriggja vikna
starfsþjálfun víðsvegar um landið
en öil fá þau vinnu á heimaslóðum
forfeðra sinna og munu dvelja hjá
íslenskum ættingjum sinum. f lokin
verður lagt í vikulanga ævintýra-
ferð um landið og helstu náttúru-
perlur fslands skoðaðar.
Að sögn Ástu Sólar Kristjáns-
dóttur, verkefnisstjóra, er tilgang-
urinn að gefa ungum Vestur-Is-
lendingum tækifæri til þess að
kynnast uppruna sínum en einnig
vilji félögin efla tengsl við íslend-
inga í vesturheimi. Ungmennunum
er boðið hingað þótt þau borgi
ferðina að hluta til sjálf en aðal-
styrktaraðili verkefnisins er Is-
lensk erfðagreining.