Morgunblaðið - 02.07.2000, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Evrópa skekur Framsókn
Það er ekki skrítið þó hristist, þetta er nú stóri Evrópuskjálftinn
sem beðið hefur verið eftir, góða.
Bless bursti
Nú á ég skilið að
uppþvottavél
fá
AEG 4231-U verð 49.900 stgr
Vinnur verk sín í hljóði
Þetta er sú heitasta á markaðnum, turbo burrkun með heitum blæstri
og svo hljóðlát að þú hefur ekki hugmynd um að hún er gangi.
Tekur 12 manna stell, býr yfir 6 þvottakerfum, er með 6 falt vatnsöryggi
og svona mætti lengi telja - þetta er alvöruvél.
Við vonumst til að geta óskað þér til hamingju með áfangann en
bendum þér samt á að kveðja gamla uppþvottaburstann og
-vettlingana með hæfilegri virðingu.
AEG
Barnastarf á Kristnihátíð
Lif og qor a
Æskuvöllum
Ása Hlin Svavarsdóttir
A* KRISTNIHÁTÍÐ
á Þingvöllum verð-
ur ýmislegt bama-
efni á boðstólum á Æsku-
völlum þar sem Ása Hlín
Svavarsdóttir er umsjón-
armaður. Hún var spurð
hvað bömum væri boðið
upp á á þessari miklu hátíð
sem haldin er í tilefni 1000
ára kristni í landi.
„Það er fjölmargt sem er
í boði af ýmsum toga. Á
svæðinu em þrjú 220 fer-
metra tjöld og eitt stórt
leikhústjald. Eg hef kosið
að gefa þessum minni
tjöldum nafn, þau heita
Hjartastöðin, Sagnastöðin
og Orkustöðin. Hjartastöð-
in er ætluð bömum tveggja
til fimm ára, Sagnastöðin
er ætluð bömum sex til níu ára og
Orkustöðin er ætluð bömum tíu til
tólf ára. í þessum þremur tjöldum
fer fram skapandi starf fyrir þá
aldurshópa sem þau em ætluð og
foreldra þeirra. í framhaldi af
þeim fjölmörgu leiksýningum sem
í boði verða í leikhústjaldinu em
samvemstundir og umræða. Við
fáum töframann í heimsókn, einn-
ig verður boðið upp á tónlistar- og
leiklistarspuna, við fáum trúbador
sem kemur og leikur og syngur
fyrir okkur, einnig verða útileikir
af ýmsum toga á grasbalanum og í
fumlundinum íyrir framan tjöldin
og fornleifauppgröftur. Við byrj-
um alla morgna á að teygja úr
skönkunum saman og presturinn
okkar, Sigurður Grétar Sigurðs-
son, sér um morgunstund og á
kvöldin þökkum við ásamt honum
fyrir daginn.“
- Er tekið mið af trúnni víða í
barnadagskránni?
„Við emm með einar þrjár sýn-
ingar sem em í raun sprottnar af
hugleiðingum um kristna trú. Þær
samvemstundir sem em í fram-
haldi af þeim verða notaðar til
þess að velta vöngum með bömun-
um yfir ýmsum spumingum í sam-
bandi við trúna. Við ætlum einnig
að vinna saman myndlistarverk
sem tengist sýningum þessum.
Morgun- og kvöldstundimar
verða líka tiieinkaðar trúarlegum
hugleiðingum. í stóra tjaldinu
verða fjórir krossar, einn þeirra
stór úr rekaviði. Bömin fara með
þrjá þessara krossa, hver aldurs-
hópur íyrir sig, inn í sín tjöld og
þar verða þeir skreyttir meðan á
hátíðinni stendur með mosaík og
skeljabrotum. Klukkan 16.30 á
sunnudeginum verður svo farin
krossganga með þessa skreyttu
krossa að Þingvallakirkju og þeir
afhentir séra Þórhalli Heimissyni
og Þingvallakirkju til varðveislu."
-Hvers konar fomleifar má
gera ráð fyrir að bömin grafi upp?
„Ég hef gran um að í haugnum
megi finna ýmiskonar dýrgripi,
gömul leirker, eðalsteina, gamla
leir- og jámkrossa, skeljar og bein
og ýmislegt fleira spennandi. Ég
fékk fomleifafræðinginn Margréti
Hermanns-Auðardóttur í lið með
mér og hefur hún gegnt
forystuhlutverki hvað
hauginn varðar. Hún
og annar fornleifafræð-
ingur verða til staðar á
hátíðinni og munu leið-
beina bömunmn við
uppgröftinn."
- Er fleira á dagskrá en auglýst
atriði?
„Já, það verður skapandi starf í
öllum tjöldunum og er undirbún-
ingur þess starfs að taka á sig
mjög skemmtilega mynd og mætti
helst líkja við handverkssmiðjur.
Hið hugmyndaríka starfsfólk sem
ég er með hefur gengið á fjömr og
► Ása Hlín Svavarsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 22. júli 1960. Hún
lauk gagnfræðaprófí frá gagn-
fræðaskólanum i Mosfellssveit
1976 og hélt um haustið 1978 til
náms til London i Ieiklist í The
Arts Educational Schools og lauk
þaðan prófi vorið 1981. Hún hef-
ur starfað sem leikkona, lengst
af hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en
einnig hjá Þjóðleikhúsinu og
Leikfélagi Akureyrar og með
hinum ýmsu leikhópum. Siðari ár
hefúr Ása nær eingöngu unnið
við leikstjóm og handritsgerð.
Hún var einn af stofnendum leik-
hússins Síbylju og stendur nú að
farandleikhúsinu Bak við eyrað.
Ása á tvö börn.
tínt alls kyns náttúraefni til sem
vinna má úr. Er ætlun okkar að
gera tilraun með gerð margs kon-
ar krossa, óróa og fleira. Tilgang-
urinn með þessu er að bömin geti
búið til alls kyns gripi sem þau
geta svo farið með heim með sér
og átt til minningar um hátíðina.11
-Hve margt fólk tekur þátt í
undirbúningi fyrir þessa barna-
dagskrá?
„Segja má að ég sé með níu
starfsmenn á minni könnu og auk
þess kem ég til með að fá sex
manna hóp reyndra leikmanna úr
kirkjunni fyrir milligöngu Bisk-
upsstofú. Auk þess er hátt á þriðja
tug fólks sem heldur námskeið og
kemur fram í leiksýningum á
Æskuvöllum."
- Hefur þessi undirbúningur
tekið langan tíma?
„Frá því ég fyrst fékk þetta
verkefni er liðið eitt ár. Fyrstu
mánuðimir fóra í mótun hug-
mynda - hvemig dagskráin ættí
að byggjast upp. Síðari mánuðir
hafa farið í hagnýtar lausnir verk-
efna. Þess má geta að ég hef verið í
nánu samstarfi við Kolbrúnu Hall-
dórsdóttur, sem er dagskrárstjóri
allrar hátíðarinnar."
- En hvað með unglingana?
„Unglingamir era velkomnir á
Æskuvelli, þeir gætu fundið ýmis-
legt við sitt hæfi í Orkustöðinni -
einnig er margt spennandi að ger-
ast fyrir unglinga á því svæði sem
skátarnir sjá um.“
-Hefur þú áður séð
um svona viðamikla
dagskrá?
„Nei, þetta er í fyrsta
skipti sem ég kem að
svona stóra skipulags-
verkefni. Þetta er þó
líkt leikstjómarstarfi hvað snertir
hugmynda- og skipulagsvinnu, svo
þarf og að huga að því að kostnað-
aráætlun standist. Ég tel að mér
og mínu fólki hafi tekist að koma
saman fjölbreyttri og spennandi
dagskrá án þess að fara út fyrir
þann kostnaðarramma sem barna-
starfinu á Kristnihátíð var settur.“
Spennandi
uppákomur,
skapandi
starf og trúar-
leg íhugun