Morgunblaðið - 02.07.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 02.07.2000, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg [MENNING] Síminn erstyrktaraðili Listasafns íslands ogvill fyrirtækið þannig styrkja lista- og menningarlíf í landinu. Um leið skapar Síminn sér menn- ingarlega ímynd en verk úr eigu safnsins hafa prýtt forsíöur símaskrár- innar síöastliðin tvö ár. í fyrra voru verk eftir Gunnlaug Scheving á for- síðunum, en í áreftirÁsgrím Jónsson. ^ Morgunblaðið/Þorkell [MYND- OG UOÐLIST] Verkefnið Lífæðarvarfarandsýning mynd- og Ijóðlistar samtímalista- manna sem send var til sjúkrahúsa hér á landi. Verkefnið var kostað af lyfjafýrirtækinu Glaxo Wellcome og hugsað sem leið til að vekja athygli á fyrirtækinu meðjákvæðum hætti, en það auglýsirekki vörursínar. Heilbrigðisráðherra rýnir hér í eitt verkanna á sýningunni. atvinnulífs og menning- ar erlendis Erlendis hafa á undanförnum ár- um átt sér stað miklar breytingar á samstarfi atvinnulífs og menningar. I grein sem birtist í Financial Times í febrúar síðastliðnum eru nýjar hræringar á sviði viðskipta og menningar reifaðar. Þar kemur meðal annars fram að fyrirtæki eru ekki einungis að leggja fram bein- harða peninga til list- eða menning- arstarfsemi til að bæta ímynd sína eða höfða til ákveðinna markhópa heldur er um markvissara samstarf að ræða þar sem fagleg þekking beggja aðila er nýtt báðum til fram- dráttar. í Bretlandi hefur stofnunin Arts and Business (sem áður hét Associ- ation for Business Sponsorship of the Arts) milligöngu um kostun og samstarf á milli viðskipta- og menn- ingarlífs. Sem dæmi um samstarf á þessum nýju nótum má nefna að listamönnum eða þeim sem stunda menningarstarfsemi af einhverju tagi er boðið inn í fyrirtækin til að miðla af sinni þekkingu. Á sviði starfsþjálfunar hafa leikarar verið notaðir til að þjálfa markaðs- og sölufólk, listamenn hafa aðstoðað við hönnun á útliti og starfsum- hverfi og ekki síst við að þjálfa for- ráðamenn fyrirtækja við skapandi stefnumótun sem hefur vísun til samtímans. Á móti hafa viðskipta- fyrirtækin sent sitt starfsfólk inn í menningarstofnanir til að veita ráð- gjöf á sviði rekstrar, fjármála- stjórnunar og markaðsetningar. Bein fjárframlög eru einnig alltaf vel þegin í listageiranum og ættu í raun réttri að geta þjónað sem góð auglýsing og ímynd fyrir viðkom- andi fyrirtæki en þar fyrir utan eru ótæmandi möguleikar á útfærslum ogþróun samstarfs. Áhugi á samstarfi af þessu tagi virðist vera mikill og fyrir hvern samstarfsaðila úr atvinnulífinu sem dregur sig í hlé koma tveir nýir í staðinn. Enda eru nú margar stofn- anir viðs vegar um heim að plægja þennan akur. Auk Arts and Busi- ness má nefna Arts Marketing sem starfar í Bandaríkjunum en auðvelt er að afla sér upplýsinga um stofn- anir af þessu tagi á Netinu. Sú skoðun virðist vera almenn að milli- ganga slíkra stofnanna tryggi heil- brigð viðhorf til samstarfs og kost- unar, hvorum megin borðs sem menn kunna að sitja. Breska ríkið leggur einnig sitt af mörkum til þessarar starfsemi því samkvæmt fyrrnefndri grein Financial Times hefur það mótað skattalöggjöf að bandarískri fyrir- mynd sem veitir kostunaraðilum lista umtalsverða umbun. Mikill áhugi á menning- arvióburðum hér á landi Ef fyrirtæki úr íslensku við- skiptalífi hafa áhuga á að leita í auknum mæli út fyrir hinn hefð- bundna auglýsingamarkað við mót- un markaðsstefnu er kannski ekki úr vegi að líta til alls þess fjölda er sækir menningarviðburði og þeirr- ar ímyndar sem virkt samstarf á menningarvettvangi gæti skapað fyrirtækjum. Samkvæmt upplýsingum sem liggja frammi í vefsetri Hagstofu íslands kemur fram að hér á landi er mikill áhugi á menningarvið- burðum, ef til vill meiri en flestir gera sér grein fyrir. Þar kemur í ljós að samkvæmt nýjustu tölum sem fyrir liggja, frá árinu 1997, heimsóttu tæplega 264.000 manns listasöfnin hér á landi. Jafnframt kemur í ljós að áhugi almennings á myndlist hefur aukist mikið á und- anförnum árum því árið 1988 fóru 38,9% aðspurðra á myndlistarsýn- ingar en tíu árum seinna, árið 1998, fara um 67,5% aðspurðra á mynd- listarsýningar eða mikill meirihluti aðspurðra. Áhugi á myndlist er því greinilega í örum vexti og ekki ástæða til annars en að ætla að hann aukist enn frekar, til dæmis með tilkomu nýs sýningarvettvangs Listasafns Reykjavíkur í Hafnar- húsi. Af öðrum listgreinum er svipaða sögu að segja. Samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstofunni má áætla að um 300.000 manns hafi sótt tónleika á árinu 1995 en nýrri tölur liggja því miður ekki fyrir. Ekki virðist fólk síður sækja í leikhúsin því heildarfjöldi áhorfenda leikárið 1998-9 er rúmlega 314.000. Sam- kvæmt þessum tölum má gera ráð fyrir að íslendingar geri sér 873.000 ferðir til að sækja listvið- burði á ári hverju og er þá varlega talið því ofangreind upptalning var engan veginn tæmandi. Inn í hana vantar t.d. alla viðburði er tengjast óháðum galleríum, bókmenntum, byggingarlist, fyrirlestrum og fleiru er einnig heyrir beinlínis und- ir menningu. Hingað til hafa fyrirtæki einkum beint sjónum sínum að íþrótta- hreyfingunni er þau hafa verið að huga að markhópum með samstarf á sviði kostunar í huga. íþrótta- hreyfingin hefur vissulega notið góðs af þessu samstarfi og þar með samfélagið í heild. Það vekur þó nokkra athygli að ef litið er til að- sóknar hins almenna borgara á íþróttaviðburði er í raun og veru verið að höfða til frekar þröngs hóps, í það minnsta ef tekið er mið af aðsókn á listviðburði. Sem dæmi má nefna að í nýlegri neyslukönnun Gallup kemur fram að þeir sem sjaldan eða aldrei sækja leiki vinsælustu keppnis- íþróttanna eru mikill meirihluti þjóðarinnar. Þannig fara 77,2% að- spurðra sjaldan eða aldrei á fót- boltaleiki í meistaradeild 83,6% sjaldan eða aldrei á handboltaleiki í meistaradeild, 90,7 % sjaldan eða aldrei á körfuboltaleiki í meistara- deild og 79,6 % fara sjaldan eða aldrei á aðra íþróttaviðburði. Sam- kvæmt upplýsingum frá Knatt- spyrnusambandi Islands var heildarfjöldi áhorfenda í Lands- símadeildinni árið 1999 tæplega 81 þúsund en hjá Handknattleikssam- bandinu voru ekki til haldbærar töl- ur um aðsókn á leiki. Því má þó ekki gleyma að íþróttaviðburðir njóta töluverðs áhorfs í sjónvarpi og er það líklega sá vettvangur sem kost- unaraðilar hafa horft til. Fjárfestingar atvinnulífsins á sviði íþrótta hafa verið til fyrir- myndar og væntanlega skilað sér veglega til samfélagsins en spyrja má af hverju sami velvilji og áræði hefur ekki verið hreyfiaflið í kostun á sviði lista þar sem áhugi almenn- ings virðist vera mun meiri á þeim vettvangi. Listasjóður atvinnulífsins Hér á landi hafa nokkrir aðilar haft frumkvæði að því að atvinnu- lífið styðji við myndlist með beinum eða óbeinum hætti. Á morgunverð- arfundi Verslunarráðs fyrir réttum tveimur árum vakti Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarformaður Þyrp- ingar, athygli á þeim tækifærum sem viðskiptalífið gæti nýtt sér „til vaxtar og velgengni" á sviði lista en hann sagði þar m.a. að margir djarfir athafnamenn á sviði við- skipta breytist í afturhaldssama sporgöngumenn þegar kemur að stuðningi við myndlist eða kaupum á listaverkum. „Þá vilja menn fram- ar öllu eitthvað kunnuglegt, eitt- hvað vinsælt, eitthvað ódýrt, eitt- hvað öruggt - jafnvel helst eftir einhvern látinn sem þegar hefur verið skipað meðal öndvegislista- manna þjóðarinnar," sagði Sigurð- ur Gísli. Gunnar Dungal, forstjóri Penn- ans, tekur undir þessi orð Sigurðar Gísla þó nokkuð sé um liðið: „Menn eru mjög djarfir þegar þeir eru að taka ákvarðanir fyrir sín fyrirtæki. Þá eru þeir tilbúnir til að brydda upp á alls konar nýjungum en þegar kemur að listinni vilja þeir bara sjá eitthvað öruggt, Kjarval eða Ás- grím.“ Gunnar hafði forgöngu um stofn- un Listasjóðs atvinnulífsins og seg- ir að rekja megi stofnun þess sjóðs til þess þegar Penninn varð sextug- ur árið 1992 en þá stofnaði hann Listasjóð Pennans. Markmið fyrir- tækisins með þeim sjóði er að styrkja nýliða á sviði myndlistar og veita þeim stuðning við fyrstu skrefin á myndlistarbrautinni að námi loknu. ,Áf þessu tilefni buðum við viðskiptavinum Pennans í hóf að Kjarvalsstöðum en ég hélt þar smá- tölu og var að reyna að hvetja menn til að styðja betur við myndlistina í landinu," segir Gunnar. „Nokkru seinna hittumst við nokkrir til að kanna hvernig væri hægt að fá fyr- irtæki til að kaupa myndlist en þá kom í ljós að menn töldu sig ekki hafa nægilegt vit eða skilning á myndlistarheiminum til að kaupa listaverk. Það varð því úr að við leituðum til fimm listfræðinga sem allir hafa verið tilbúnir til að veita okkur ráðgjöf í sjálfboðavinnu, bæði við að benda okkur á núlifandi listamenn sem væru að gera áhuga- verða hluti og flytja fyrirlestra og slíkt. Hingað til hafa verið fest kaup á hátt í 50 verkum og við erum að vinna í því að stækka hóp fyrirtækj- anna. Úm er að ræða kaup á verki fyrir 100 til 400 þúsund krónur í hvert sinn og við stefnum að því að keypt séu tvö verk á mánuði. Hér er því um umtalsverða fjármuni að ræða. í gegnum þetta starf hafa auk þess oft á tíðum skapast skemmtileg tengsl á milli forráða- manna fyrirtækja og listamann- anna sem geta skilað sér seinna, t.d. ef fyrirtækin þurfa að kaupa gjaf- ir.“ Gunnar segir að vandamál séu auðvitað til staðar í þessu starfi. Á fræðslukvöldum sem efnt hefur verið til á þeirra vegum hafi komið í ljós að fólk sé yfirleitt illa menntað í myndlist. Aðspurður um áhuga at- vinnulífsins á slíkum fræðslukvöld- um og annarri tengdri starfsemi af því tagi segir hann að auðvitað hafi sumir eingöngu mætt af skyldu- rækni og vinskap við mennina í stjórninni en hann sé þess samt fullviss að þetta eigi allt eftir að skila sér í réttan farveg í framtíð- inni. Mikilvægt að listgrein- ar afli einnig stuðnings úr markaðs- og auglýs- ingafjármagni I tengslum við stofnanir á borð við Arts and Business hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að listgreinar afli sér stuðnings með hluta af því fjármagni sem ætlað er til markaðsetningar og auglýsinga en reiði sig ekki eingöngu á framlög sem þeim eru úthlutuð í hugsjóna- skyni. I samtali við Harald Flosa Tryggvason sem sat í stjórn Ný- listasafnsins þar til fyrir skömmu og sinnir nú lögræðilegri ráðgjöf fyrir safnið kom fram að hann teldi mjög mikilvægt að útrýma þeim hugsunarhætti að listamenn eða stofnanir væru að þiggja ölmusu. Það má ekki gleyma því að það verður alltaf hlutverk ríkisins að fjármagna listsköpun eins og alla aðra menntun í landinu. „Hvað snertir atvinnulífið og framlag þess til lista er ekki svo einfalt að búa til samband sem byggir á gagnkvæm- um viðskiptum við menningarstofn- anir þar sem þar gilda ekki alveg sömu lögmál og í hefðbundnu við- skiptalífi," segir Haraldur. „Varð- andi stofnanir eins og Nýlistasafnið og fleiri, finnst mér að það verði að eiga sér stað hugarfarsbreyting. Menn verða að skilja að slíkt sam- starf getur stuðlað að gagnkvæm- um hag án þess að listastofnanirnar eða listamennirnir séu á nokkurn hátt að selja frá sér allan sjálfstæð- an vilja, sköpun eða heimild til að hafa skoðun á hlutunum. Lista- menn óttast að það sé þaggað niður í þeim eða stofnunum eins og Nýl- istasafninu svo þær geti ekki verið óháðar. Það má því aldrei koma til neinnar ritskoðunar vegna kostun- ar. Erlendis hafa virðulegustu fyr- irtæki séð sér hag í því að tengjast furðulegustu uppákomum á sviði lista og borgarastéttin fjárfestir í samtímalistum og vill tengjast þeim. Hér á landi hins vegar eru þeir sem kaupa listaverk á annað borð mjög uppteknir af því að kaupa gömlu meistarana og eru síð- an í uppnámi yfir fölsunum. Hér hefur aldrei verið nein ákveðin stétt sem hefur haldið utan um áhuga og framfarir á sviði menningar. Fólk verslar með gamla list eins og hlutabréf eða hverja aðra fjárfest- ingu en það eru ákaflega fáir sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.