Morgunblaðið - 02.07.2000, Side 16

Morgunblaðið - 02.07.2000, Side 16
16 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Þróun snýst ekki aðeins um þriðja heiminn Bjartsýnin blómstraði 1995 þegar leiðtogar 186 landa lofuðu á fundi í Kaupmannahöfn að legaa sitt af mörkum til að útrýma fátækt og félagslegu misrétti. Ráðstefna í Genf í vikunni sýnir glöggt að lítt hefur miðað, en hagvöxtur dugir ekki einn og sér og þá heldur ekki í ríku löndunum, segir Sigriin Davíðsdóttir. VIÐ HÖFUM ekki náð þeim markmiðum, sem við settum okkur ... við höfum ekki staðið við fyrirheit okkar og alls ekki á tilsettum tíma. Það er hin dap- urlega staðreynd. Við hefðum getað gert betur - miklu betur,“ sagði Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Dana, í ræðu í Genf í vikunni er hann ávarpaði aukaþing Sameinuðu þjóð- anna, haldið undir heitinu „Kaup- mannahöfn plús fimm“. Þingið er haldið til að fara yfir það sem áunnist hefur síðan 186 þjóðar- leiðtogar samþykktu átak gegn fá- tækt, atvinnuleysi og félagslegri út- skúfun á leiðtogafundi í Kaup- mannahöfn 1995. Þar af heitið. Eins og Nyrup benti á er hin dapurlega niðurstaða sú að það hefur fjarska lít- ið verið gert af því sem var svo fjálg- lega rætt um í Kaupmannahöfn á sín- um tíma. Ef yfirlýsingunum frá 1995 hefði verið fylgt dæju 1,7 milljónum færri böm í ár álykta bresku hjálparsam- tökin Oxfam í skýrslu, sem var lögð fyrir ráðstefnuna í Genf. En nú ætla helstu stofnanir heimsins að taka sig á og stefna nú að því að fækka fyrir árið 2015 um helming þeim sem búa við sára fátækt. „Betri heimur fyrir alla“ er skýrsla unnin í samvinnu Sameinuðu þjóðanna, Alþjóða bank- ans, Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, og OECD, Efnahagssamvinnu- og þró- unarstofnuninni, sem stundum eru kölluð klúbbur ríku þjóðanna. Fleira hefur gerst á undanfömum fimm árum. U2-söngvarinn Bono ferðast um heiminn til að sannfæra þjóðarleiðtoga um skuldauppgjöf fyr- ir fátækustu lönd heims. „Hagvöxtur dugir ekki til“ var fyrirsögnin á grein í Financial Times, sem James Wolf- ensohn, aðalbankastjóri Alþjóða- bankans, og Joe Stieglitz, yfirhag- iræðingur hans, skrifuðu síðastliðið haust. Síðan heíúr Stieglitz reyndar látið af störfum og einnig Ravi Kanbur, annar háttsettur hagfræðingur bank- ans. Af hálfu bankans er því haldið fram að stefnan sé áfram sú sama, en ýmsir velta því fyrir sér hvort hin mjúku viðhorf tvímenninganna hafi á endanum þótt um of mjúk. Árið 1998 fékk Amartya Sen Nóbelsverðlaunin í hagfræði, en hann hefur einmitt ver- ið ákafur talsmaður þessara viðhorfa. Þrátt fyrir allt er því kannski ekki ástæða til að falla í þunglyndi og svartsýni þótt til þess séu annars nóg- ar ástæður. Verðið fyrir innantóm loforð Skuldbindingamar tíu, sem þjóðar- leiðtogamir 186 skrifuðu undir í Kaupmannahöfn, vom almennt orð- aðar en viðleitnin var góð. Þær tóku til þess að skapa efnahagslegar, fé- lagslegar, menningarlegar og laga- legar forsendur fyrir félagslegri þró- un einstaklinga. Hvert land setti sér tímamörk til að útrýma sámstu fá- tækt og full atvinna var markmið. Miðað var við vemdun mannrétt- inda og jafnrétti kynjanna, rétt til menntunar og heilsugæslu. Styrkja átti þróun vanþróuðustu ríkjanna, ekki síst í Afríku, þróunaraðstoð átti að miðast við félagslega þróim og al- þjóðlegt samstarf undir merki Sam- einuðu þjóðanna átti að aukast á þessu sviði. Þegar nú er sagt að ekki hafi verið nóg að gert er erfitt að benda á að skuldbindingar hafi ekki verið upp- fylltar, þar sem þær vom almennt orðaðar. En undir almennu orðalagi var til dæmis einnig miðað við að ríki, sem veita þróunarhjálp, legðu 0,7 prósent þjóðartekna í þróunarhjálp. Það hefur ekki gengið eftir og heldur dregið úr opinberri þróunarhjálp. Þar á móti kemur þó að æ fleiri að- ilar starfa nú á sviði þróunarhjálpar og sá geiri er orðinn mun einkavædd- ari en áður var. Hið dapurlega er þó að mikið af aðstoð fer í neyðaraðstoð vegna náttúruhamfara og styrjalda, en síður í langvarandi uppbyggingu. Bresku hjálparsamtökin Oxfam, sem einbeita sér að bamastarfi, birta dapurleg dæmi í skýrslu sinni: Verðið fyrir innantóm loforð („Missing the Target: The Price of Empty Promiss- es.“) Þau benda á að þó yfirlýsingar og loforð nú stefni á að draga úr ung- bamadauða gangi spáin á því sviði þó í gagnstæða átt. Talsmenn Oxfam benda á að til að takast á við fátækt dugi fátækustu löndunum ekki aðeins aukinn hag- vöxtur, heldur vöxtur, sem gagnist öllum. Samtökin tala ekki aðeins um aukna hjálp heldur ekki síður að rík- isstjómir, til dæmis á hinu efnaða norðurhveli jarðar, rífi niður þann frumskóg viðskiptahindrana, sem bitni svo illilega á fátæku löndunum. Hafði þá Kaupmannahafnar- ráðstefhan engin áhrif? Fyrst svo lítið er um áþreifanlegan árangur af Kaupmannahafnarráð- stefnunni má spyrja hvort hún hafi þá AP Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er hann ávarpaði aukaþing SÞ í Genf. ekki borið neinn árangur. Jú, hún hef- ur haft áhrif er ályktað í úttekt frá Sameinuðu þjóðunum fyrir Genfar- ráðstefnuna. Áhrifin má sjá í því að eftir ráðstefnuna er ekki lengur litið á félagsleg málefni sem einkamál hvers lands, heldur forgangsmál í alþjóð- legri samvinnu. Þessi hugarfars- breyting komi til dæmis fram í auk- inni athygli á félagslegum afleið- ingum efnahagskreppa. Þessi afstaða hefur komið fram í viðbrögðum við efnahagskreppunni í Asíu. Oxfam álítur reyndar að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn verði að gera meira á þessu sviði, en sjóðurinn hef- ur þó tekið hina félagslegu vídd með í dæmið einmitt varðandi Asíukrepp- una og stuðning við lönd, sem urðu fyrir barðinu á henni. Hvort sem það er Kaupmanna- hafnarráðstefnunni að þakka eða ekki hafa félagsleg áhrif umbyltinganna í Austur- og Mið-Evrópu náð athygli margra. Margt má segja um ástandið þar á Sovéttímanum en þessi lönd bjuggu þó við gott heilbrigðis- og menntakerfi og vinnu var að hafa. Þama liggur nú víða við hruni í þess- um efnum með hrikalegum félagsleg- um áhrifum. Áhrifin eru grátlega skýr á heilsufar, þar sem dánartíðni hefur hækkað aftur eftir áratuga fall, sjúkdómar eins og eyðni breiðist víða hratt um og gamlir sjúkdómar eins og berklar koma upp í nýjum og enn hættulegri myndum en áður. Á ráðstefnunni í Genf er margt endurtekið frá fyrri árum. Meðal ann- ars ætlar kanadíska stjómin nú að brydda upp á hugmyndum James Tobin, nóbelsverðlaunahafa í hag- fræði, um að örlágur skattur verði lagður á gjaldeyrisstreymi í heimin- um. Þann skatt megi nota til að stuðla að félagslegri þróun, auk þess sem hann gæti dregið úr skammtíma fjár- festingum og stuðlað að betri fjárfest- ingum til langs tíma. Getur Bono bjargað þriðja heiminum? Annað sem bent er á í úttekt Sam- einuðu þjóðanna er að nú hafi bæði Alþjóðabankinn og Alþjóða gjaldeyr- issjóðurinn sett baráttuna gegn fá- tækt efst á blað. Um leið hafi athyglin beinst að skuldabyrði fátækustu landanna og hvemig megi létta á henni. Uppgjöf skulda hefur verið gríðarlegt hitamál alveg frá því á níunda áratugnum. Mörg frjáls fé- lagasamtök hafa barist fyrir skulda- uppgjöf af miklum krafti, en lengst- um með litlum árangri. Það virtist ekki duga að hippalegt fólk stæði og veifaði spjöldum á götum úti. Eftir að breski U2 söngvarinn Bono gerðist talsmaður þessa mál-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.