Morgunblaðið - 02.07.2000, Side 26

Morgunblaðið - 02.07.2000, Side 26
26 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ * Jil Kíno með Kínnklúbbi Unnnr Velkomin í fróðleiks- og skemmtiferð, vítt og breitt um Kína, 22. ágúst til 12. september. Farið verður til Beijing, Xian, Guilin, Shjanghæ, Suzhou, Tongli og Kínamúrsins. Verð kr. 310 þúsund - ALLT innifalið. Upplýsingar gefur Unnur Guðjónsdóttir í símum 551 2596 og 868 2726. Fámennt og góðmennt. Fyrstur kemur - fyrstur fær! — Sambland af frelsistil- finningu og trega Þ ÞITT FE HVAR SEM ÞÚ ERT Fasteignir á Netinu ^mbl.is ALL.TAf= G/TTH\SjA£} /S/ÝTl ETTA er búið að vera löng bið í óvissu um framtíðina, en nú fínnum við fyrir samblandi af mikilli frels- ist ilfinningu og ákveðnum trega,“ segir Guðlaug Sveinbjarnardóttir, móðir 24 ára gamals þroskahefts manns, sem komst á sambýli íyrir skömmu. Eftir margra ára bið, þar sem hvorki fengust svör um vistun né fyrirheit um hana innan tiltekins tíma, komst Jón Grétar Höskulds- son óvænt inn á sambýli fyrir skömmu. Hann fékk pláss vinar síns sem veiktist skyndilega og dó. Foreldrar Jóns Grétars, eða Nonna eins og hann er kallaður, vildu undirbúa flutning hans að heiman með góðum fyrirvara „til þess að hægt væri á löngum tíma að flnna heimili sem hentaði aðstæðum hans. Einnig er mikilvægt að hafa tímann fyrir sér til þess að fjölskyld- an geti undirbúið aðskilnaðinn. Það er ekki auðvelt fyrir foreldra, sem hafa þurft að gæta bamsins síns eins og smábams í áratugi, að sleppa allt í einu hendinni af því. Eins þarf barnið manns aðlögun," segir Guðlaug. Heilu íjölskyldurnar undirlagðar Aðspurð segist hún ekki geta gert upp á milli þess hvort henni þyki brýnni þörf á skammtímavistun eða sambýlum. Hún kveðst þó undrandi á hversu lítið framboð sé á skamm- tímavistun, því það geti lengt þann tíma, sem foreldrar treysti sér til að hafa fotluð böm sín heima. Hún bendir á að á hinn bóginn bíði margar fjölskyldur sem eiga mikið fötluð börn eða börn með al- varleg hegðunarvandamál eftir að fá pláss fyrir þau á sambýli. Mjög áríðandi sé að þær fái úrlausn sinna mála því heilu Qölskyldumar séu undirlagðar af álagi. „Einnig er brýnt að fatlaðir komist á sambýli áður en þeir eða foreldarnir verða of gamlir. Ef foreldamir veikjast eða falla frá er skammtfmavistun eina úrræðið eins og ástandið er núna. Auðvitað em auknar líkur á skyndilegum veikindum eftir því sem foreldrarnir verða eldri.“ Kerfíð óútreiknanlegt í máli Guðlaugar kemur fram að líf aðstandenda þroskaheftra ein- staklinga gangi allt út á áætlanir. Morgunblaðið/Sverrir Guðlaug Sveinbjamardóttir með syni sfnum, Jóni Grétari Höskuldssyni. „Maður tekur ekki fyrirvaralaust tilboð um ferðir innanlands eða ut- an eða þiggur boð sem hefur í för með sér fjarveru frá heimili um- fram fáar klukkustundir. Það þarf að fá pössun og þá er oftast leitað til nánustu fjölskyldu. Stuðningsúrræðunum fækkar venjulega eftir því sem barnið eld- ist. Þegar um þroskaheftan fullorð- inn mann er að ræða þá er til dæmis ekki lengur hægt að leita til afa og ömmu. Móðir mín, sem hefur verið okkur mjög mikil hjálp, er orðin 84 ára gömul og því nokkuð síðan hægt var að leggja það á hana. Bræður Nonna em búnir að stofna eigin fjölskyldur og það er takmarkað hvað hægt er að trafla fjölskyldulíf þeirra. Sumarfrí þarf einnig að skipu- leggja með tilliti til þess hvenær skammtímavistunin er og hversu langan tíma maður fær. Það má lítið bregða út af til þess að alla áætlanir fari út um þúfur. Sem dæmi er aðeins ein skamm- tímavist fyrir þroskahefta, 12 ára og eldri, í Reykjavík. Þar geta sjö einstaklingar dvalið samtimis og þar fékk Nonni vistun eina viku í senn með reglulegu millibili. Fari hins vegar svo að foreldri annars einstaklings veikist, eða geti Við lögðum inn um- sókn til Svæðis- skrifstofu fatlaðra í Reykjavík fyrir tólf árum. Jón Grét- ar fékk loks pláss á sambýli í vor ekki haft hann heima lengur, þá raskar það áætlunum allra annarra sem njóta þjónustu stofnunarinnar og skerðir þá vistun sem þeir fá,“ segir Guðlaug. Slíkt ástand skapaðist síðastliðinn vetur og um svipað leyti fengu for- eldrar Nonna bréf um að vegna skorts á starfsfólki á Bjarkarási, þar sem hann dvelur á daginn, gæti komið til þess að þau yrðu að hafa hann heima dag og dag. fthtmbMMlltmr STEININGARLIM margir litir FLOTMÚR B tegundir ÚTIPÚSSNING margir litir - 3 tegundir INNIPÚSSNING - RAPPLÖGUN úti og inni ■ýfML LÉTTIÐ vinnuna og MARGFALDIÐ afköstin meö ELGO múrdælunnar Traust íslensk múrefni síðan 1973 ' Leitið tilboöa! il steinprýði Stangarhyl 7 — Pósthólf 10058 — 130 Reykjavík Sími 567 2777 — Fax 567 2718 V eruleikafirring ráðherra Skömmu áður hafði félagsmálaráðherra lýst því yfir að má- lefnum fatlaðra hefði ___________ verið veittur algjör forgangur. Hjá Guð- laugu var það komið sem fyllti mæl- inn, þvf hún segir að stöðugt sé ver- ið að halda því á loft sem búið sé að gera, þótt þessi málaflokkur hafi verið sveltur ámm saman. I greininni talar hún um að vemleikafirring félagsmála- ráðherra á málefnum fatlaðra sé ótrúleg. „Það hefur verið afar lítil uppbygging áþjónustu við þroska- hefta undanfarin ár og engan veg- inn haldist í hendur við fjölgun þeirra sem þurfa slíka þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. A siðustu ár- um hafa verið gerðar áætlanir og stefnumótanir hjá Svæðisskrifstofu fatlaðra í Reykjavík en staðið á Ijár- veitingum til að framkvæma þær. Uti á landi virðist ástandið víðast hvar vera allt annað og miklu betra.“ Guðlaug leggur áherslu á að það sé ekki hægt að senda fatlað fólk á sambýli langt frá heimilum sfnum, því foreldrar eða aðrir ættingjar þui'fi að vera í miklum tengslum við hinn fatlaða á meðan aðlögun stend- ur. „Það háir auðvitað foreldrum hvað þeim finnst erfitt að senda börnin frá sér. Það örlar annars vegar á samviskubiti og hins vegar er þessi ótti um að enginn geti ann- ast barnið nógu vel. Maður verður bara að vera harður við sjálfan sig og vera ákveðinn í að láta þetta ganga upp. Nonni virðist vera mjög ánægður með nýja heimilið sitt og á aðlögun- artfmanum hefur hann verið þijá daga heima í viku en íjóra daga á sambýlinu. Þetta er algjörlega okk- ar val, en hafa verður í huga að hann talar nánast ekkert. Það hefur alla tíð þurft að lesa í Ifðan hans og það tekur tíma að læra inn á það.“ Starfsfólkið dýrmætt Guðlaug segir á hinn bóginn að það sé sfn skoðun að búið sé að spenna kröfurnar um húsnæði fatl- aðra of hátt upp, sem þýði að hvert sambýli sé orðið það dýrt í bygg- ingu að kostnaðurinn takmarki framboðið. Hún kveðst hins vegar _ vita að margir séu sér ósammála. „í mínum huga era húsin ekki aðalatr- iðið heldur em það fyrst og fremst starfsmennirnir sem skipta máli,“ segir hún.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.