Morgunblaðið - 02.07.2000, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
/P00R 5PIKE..ME 6ET5 50 \ f LOKIEL'f' OUT TUERE ON TME \ \ PE5ERT, ME START5 TALKIN6/ X^TO TME CACTU5.. IT'5 A BAP 5I6N OJMEN YOU 5TART TALKIN6 TO TMIN65... /MLPI5M..M0U) iMAVE YOU 8EEN?>
V~t='3 /— * h
1 V 11 \
( • íjg) tn 1 \vr>
> ► \ r\ j
1 i 0 — 4 l ~~ ~~ V-' f —
í |ft \ 6-17-00
Aumingja Spotti. Hann verður svo Það merkir ekki gott þegar Hæ dallur, hvernig
einmana þaraa úti í eyðimörkinni. maður fer að tala við hluti. hefur þú haft það?
Hann er farinn að tala við kaktusa.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Torfærumál í
hnút sem verður
að höggva á
Frá Sæunni Lúðvíksdóttur:
í TILEFNI fréttaflutnings vegna
keyrslu ungra stúlkna á torfæru-
bifreiðum og annarra deilna félaga í
LÍA við stjórn LIA.
Með skrifum mínum nú er ég ekki
að blanda mínu félagi eða einstökum
félagsmönnum inn í þær deilur sem
einkenna innra starf LIA þessa dag-
anna og draga allan mátt og gleði úr
annnars skemmtilegu sporti. En nú
er nóg komið og reyndar of langt
gengið þar sem fullorðið fólk er farið
að stunda grjótkast úr glerhúsum.
Því er nefnilega þannig farið að ef
ég fer í fallhlífarstökk eða fljótareið
þá fæ ég leiðbeiningar um hvemig
ég á að haga mér, hvar og hvernig.
Ef ég hins vegar ákveð að gerast of-
urhugi og fer út fyrir mitt þekking-
arsvið sem byrjandi getur aðeins
tvennt gerst:
A: Stökkið / siglingin getur
heppnast og ég verð í mínum augum
ofurhugi.
B: Stökkið / siglingin heppnast
ekki og ég á á hættu að stórslasast
og/eða jafnvel týna lífi að ekki sé
minnst á hættu sem ég skapa fyrir
aðra viðstadda sem og eignatjón.
Ef ég fer að prufa að aka tor-
færu- keppnisbifreið fæ ég einnig
leiðbeiningar en þar að auki er ég
fullorðinn einstaklingur með bílpróf.
Við nám til almenns bflprófs er sér-
stök áhersla lögð á að menn nýti sér
heilbrigða skynsemi og meti aðstæð-
ur í hvívetna og aki í samræmi við
þær. Þessi gullkom detta aldrei úr
gildi né verða minna áríðandi.
Ef ég hins vegar ákveð að gerast
ofurhugi og hunsa þá gmnnþekk-
ingu sem ég hef varðandi ökutæki
hvers konar, hvort heldur með hrað-
akstri, glæfraskap og eða að nota
ekki lögboðna öryggishluti þá getur
aðeins tvennt gerst:
A: Ökuferðin heppnast og í mín-
um augum verð ég ofurhugi.
B: Okuferðin heppnast ekki og
eftir sit ég jafnvel illa meidd, bif-
reiðin stórskemmd, ef ég hef þá ver-
ið svo heppin.
Eftir situr í öllum tilfellunum sem
merkt em B spuming dagsins! Hver
ber ábyrgðina?
Kjarni málsins er sá að hvaðeina
sem við, fullorðið fólk, tökum okkur
fyrir hendur hvort sem er í leik eða
starfi beram við ábyrgðina á gerð-
um okkar. Okkur ber að meta
reynslu og þekkingu okkar í bland
við heilbrigða skynsemi og haga
okkur í samræmi við það.
Sem keppniskona í torfæraakstri
og áhugamaður um fljótareið, fall-
hlífarstökk og fjölmargt annað er
teljast mega áhættuíþróttir og að
gefnu tilefni forseta LIA þar sem
hann fordæmir heilu félögin fyrir
áður nefnt óhapp við akstur ungu
stúlkunnar þá spyr ég: Er hægt að
gera áhættuíþrótt aulahelda og í
hverju er þá áhættan fólgin?
Era Islendingar kannski svo treg-
ir að banna ætti þess konar uppá-
komur fyrir landann?
Greinilegt er að stjóm LIA telur
það vera raunina því þeir er þar
starfa hafa oft á undanförnum áram
og nú seinast í vor hvatt ökumenn
og jafnvel óskað eftir því við öku-
menn þessara sömu bifreiða að þeir
leyfi erlendum gestum að aka og eða
sitja í bflunum meðan keyrðar era
brautir sem notaðar hafa verið í
keppnum og era hættulegri en jafn-
sléttan.
Þar er oftast um að ræða algjör-
lega óvant fólk sem að vísu talar
flest erlenda tungu. Kannski það sé
það gáfnamerki í augum forsvars-
manna LÍA sem þeir komu ekki
auga á er unga stúlkan hóf upp rödd
sína á því ástkæra ylhýra sem okkur
er flestum tamast.
Ekki hvarflar að mér að gera lítið
úr meiðslum stúlkunnar en óhöpp
verða því miður.
Faglega ættu bæði samtökin sem
standa fyrir keppnum og sýningum
með torfærubílum að skoða þetta at-
vik vel, hætta að munnhöggvast í
leit að sökudólg í fjölmiðlum lands-
ins og eyða orkunni frekar í að læra
af mistökunum.
Það mun gagnast okkur öllum
best er fram liða tímar.
Með kveðju til allra unnenda akst-
ursíþrótta.
SÆUNN LÚÐVÍKSDÓTTIR,
formaður FÍTÖ,
hagsmunafélags
íslenskra torfæraökumanna.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að Iútandi.
Bylting!
Fjölnota byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir!
VIR0C byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf.
VIR0C byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóöeinangrandi.
VIR0C byggingaplatan er umhverfisvæn.
VIR0C byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint.
Staðalstærð: f200x3000xt2 mm.
Aðrar þykktir: 8,10,16,19, 22, 25, 32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm
Vlroc utanhússklæðnlng
PP
&CO
Leltlð upplýslnga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100