Morgunblaðið - 02.07.2000, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 02.07.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 57 FÓLK í FRÉTTUM 4 Sigling með víkingaskipinu isiendingi Vopnaðir víkingar á leið til V esturheims ✓ Víkingaskipið Islendingur leggur senn af stað yfír Atlantshafið áleiðis til Vestur- heims. Egill Egilsson brá sér í siglingu með skipinu frá Stykkishólmi til Búðardals ásamt níu nútímalegum víkingum. Vaktin staðin á meðan víkingaskipið siglir stolt um fjörðinn. ÖLL eigum við okkur draum, sumir rætast, aðrir ekki. Draumar áhafn- arinnar á vfldngaskipinu Islendingi munu senn rætast þegar lagt verður upp í mikla langferð á skipinu. Ferð- in sú verður löng og ströng og tekur siglingin mið af siglingaleið Leifs Eiríkssonar fyrir 1000 árum. Eflaust hefði Leifur orðið grænn af öfund ef hann hefði séð allan þann siglinga- búnað sem notaðaður er í dag um borð í íslendingi. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvemig andinn væri um borð hjá þessum níu sérvöldu nú- tíma vfldngum. Eina leiðin til þess var að bregða sér í siglingu með vík- ingaskipinu íslendingi frá Stykkis- hólmi til Búðardals. Hrafnamir Ólafur og Davíð Með í för eru tveir ófleygir hrafn- ar að fyrimynd hrafnanna Hugins og Munins. „Þessir tveir heita reyndar Ólafúr og Davíð,“ segir Hörður Guð- jónsson, sem annast umsjón þeirra, um leið og hann strýkur hröfnunum þar sem þeir sitja frammi í stefni. Aðspurður um þessa óvenjulegu nafngift kemur í ljós að hún er til- einkuð landsfeðrunum. Festar eru leystar og hjálparvél- amar tvær, hvor um sig 50 hestöfl, em ræstar og eftir að komið er úr Stykkishólmshöfn er stefnan tekin á Búðardal. Fyrst þarf þó að smeygja sér í gegnum Hvammsröstina, sem er stórhættuleg þeim sem ekki þekkja tíl. Með í for er Ólafur Sig- hvatsson, lóðs frá Stykkishólmi, sem þekkir manna best áhrifamátt rastaiinnar. „Röstin getur farið allt upp í 18 mflur þegar mest er í henni og þá líður manni eins og vera stadd- ur á íleka,“ segir Ólafur. Gunnar Marel Eggertsson stendur við stýrið bakborðsmegin og horfír fránum augum á röstina sem virðist sak- leysileg að sjá. Við hlið hans stendur skömlegur og hávaxinn kvenmaður, Ellen Ingvadóttir, löggiltur dóm- túlkur og fyrrverandi blaðamaður, eini fulltrúi kvenþjóðarinnar um borð í skipinu. „Auðvitað er ég fulltrúi kynsystra minna og er hreykin af,“ segir hún. Strákamii- senda henni háðsglósu en hún lætur það ekki á sig fá og sendir þeim tóninn. „Sérðu, þeir hafa ekk- ert í mig, um leið og ég læt í mér heyra verða þeir ljúfir eins og lömb.“ Hvemig stendur á því að hún ákvað að slást í hóp með þessum sægörpum og deila með þeim næstu fjóram mánuðum? „Mér bauðst að fara með þegar ég kynntist Gunnari Marel fyrir tveimur ámm. Til að undirbúa mig fór ég í Stýrimanna- skólann og náði mér í pungapróf.“ Það heyrast hlátrasköll þegar Ell- en sleppir síðasta orðinu. „Eg er svo lánsöm að vera ekki sjóveik," heldur hún áfram. „Annars hef ég fengið mjög sterk viðbrögð frá konum, sem hafa hvatt mig. Sumar halda þó að ég sé ekki í lagi. Svo era hinir sem halda að þessi för sé ekkert annað en feigð- arflan, en það er sko heldur betur að koma á daginn að þetta er vel skipu- lagður leiðangur," segir hún og held- ur áfram að kíkja eftir röstinni. Kaupfélag á hafí úti Það er bh'ðviðri og hægt í sjó. Niðri í í lúkar rekst blaðamaður á kokkinn. Hörður Adolfsson heitir hann og er útlærður matreiðslumað- ur og sjómaður til margra ára. Það fer ekki mikið fyrir eldunaraðstöð- unni um borð, aðeins eitt lítið horn þar sem fyrir er eldunartæki með tveimur hellum. „Nei, við notum þessa ekki yfir úthafið, við eigum von á nýrri eldavél frá Noregi þegar við komum til Búðardals," segir Hörður. Hvergi er neitt búr sjáanlegt og þeg- ar Hörður er inntur eftir hvar allur maturinn sé geymdur leiðir hann blaðamann fram á dekk þar sem tvær trékistur standa. Innan um vígalegan vopnabúnað og hjálma glittir í matarföng. Skammt frá em þrjár kælitöskur sem innihalda fros- in matvæli. Með í för íslendings verður Hríseyin, skip Samherja, en Hríseyin mun þjóna því hlutverki að vera birgðaskip og um leið „kaupfé- lagið“ á sjónum. Þó ótrúlegt megi virðast á víkinga- skipið að geta rúmað 70 manns undir ámm. Víkingaskipið, sem er 23 metra langt og var byggt úr 18 tonn- um af eik og fum, líður léttilega yfir öldumar í Hvammsfirðinum á 7 mflna hraða. Þó verða ekki fleiri en níu manns með í förinni yfir Atlants- hafið. Gunnar hefur hvergi hvikað frá stýrinu og horft fránum augum á ála og öldur. Það er farið að hvessa í Hvammsfirðinum og menn drífa sig inn fyrir í lúkarinn og setjast við eina borðið sem fyrirfinnst um borð í vík- ingaskipinu. Það er þröngt um manninn á bekknum, enda tveir boðsgestir með í för, blaðamaður og kunningi lóðsins. Utandyra standa vaktina Gunnar Marel, Ellen og Jóel stýrimaður. Þegar nær dregur smá- bátahöfninni í Búðardal sjáum við hvar mikill mannfjöldi er saman kominn á bryggjunni og bæði gúmmíbátar og skútur koma sigl- andi á móts við Islending. Svona mun þetta verða í þeim 25 höfnum sem Islendingur mun heimsækja í sinni löngu reisu. „Við verðum orðnir hálfgerðir sýningargripir þegar yfir lýkur,“ segir Hörður og klappar hröfnunum, sem þegar láta heyra í sér, eflaust fegnir því að landtaka sé framundan. Ekki verður það sama sagt um blaðamann, sem hefði ekkert haft á móti því að halda áfram siglingunni með þessum hressum víkingum áleiðis að takmarkinu. Morgunblaðið/Egill Egilsson Hörður grár fyrir vopnum með hraftiinn Ólaf á öxlinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.