Morgunblaðið - 13.07.2000, Side 1
158. TBL. 88. ARG.
FIMMTUDAGUR 13. JULI 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nauðlend-
ing í Vín
AIRBUS 310 þotu með 150 manns
innanborðs var nauðlent á ílugvell-
inum í Vínarborg síðdegis í gær. 26
slösuðust Iítillega, að sögn austur-
rískra fjölmiðla. Þotan var á leið frá
Krít til Harinover í Þýskalandi á
vegum þýska fyrirtækisins Hapag-
Lloyd. Flugmennirnir tilkynntu að
báðir hreyflar vélarinnar hefðu
stöðvast. Ekki var fyllilega ljóst
hver orsökin var en talið var að bil-
un hefði valdið því að hreyflamir
fengu ekki eldsneyti.
Talsmaður Hapag-Lloyd sagði að
eftir flugtak á Krít hefði komið í ljós
að ekki hafi verið hægt að taka upp
Iendingarhjól vélarinnar vegna bil-
unar og hefði flugstjórinn ákveðið
að halda til Miinchen. Skammt frá
Víri drapst á hreyflunum og sveif
vélin inn til lendingar á flugvellin-
um en kom niður skammt frá braut-
arenda. Sagði talsmaðurinn að vélin
hefði einfaldlega orðið eldsneytis-
Iaus „af óskiljanlegum ástæðum".
Þúsundir Óraníumanna tóku þátt í göngrim víða á Norður-frlandi í gær
V opnaðir hermenn á
hverju horni í Belfast
rminhlarliíl.
Belfast. Morgunblaðið.
TUGIR þúsunda mótmælenda í Óraníureglunni
genigu fylkti liði um stræti borga og bæja á Norð-
ur-Irlandi í gær og fóru göngumar víðast hvar vel
fram þó að áfram væri mikil spenna í héraðinu. í
Belfast gat að líta vopnaða liðsmenn öryggissveit-
anna á hverju götuhorni og höfðu þeir það verk-
efni að koma í veg fyrir að í odda skærist með
göngumönnum og kaþólskum íbúum nærliggjandi
hverfa. Eins og undanfarin ár var Óraníumönnum
í Belfast meinað að ganga inn í hverfi kaþólskra
við Ormeau-brúna þar í borg. Lýstu þeir mótmæl-
um sínum en sveigðu síðan af leið enda höfðu ör-
yggissveitirnar mikinn viðbúnað við brúna og
höfðu m.a. komið fyrir víggirtum stálvegg sem
hindraði ferðir göngumanna.
Kaþólikkar héldu sig heima við í gær enda
„göngutíðin" hátíð mótmælenda og voru þeir fyr-
irferðarmiklir á götum Belfast í gær. Þegar leið á
daginn bar mikið á ölvun göngumanna og óttuðust
menn að þegar færi að dimma kæmi til átaka líkt
og undanfarnar nætur. I fyrrinótt hafði víða verið
órólegt um að litast en þá loguðu bálkestir á
hveiju götuhomi í mörgum hverfa Belfast og ann-
arra bæja í héraðinu. Hleyptu skæruliðar mót-
mælenda af byssuskotum skömmu eftir miðnætti
til minningar um sigur Vilhjálms konungs af
Óraníu yfir hinum kaþólska Jakobi Stúart við
Boyne-ána árið 1690.
Var einn maður myrtur í bænum Lame á norð-
austurströnd Norður-írlands og var hann sagður
liðsmaður í UVF, einum af skæmliðasamtökum
mótmælenda. Er talið að annar öfgahópur mót-
mælenda, UFF, hafi staðið að baki morðinu en
innbyrðis erjur skæruliðahópa mótmælenda hafa
sett svip sinn á atburði á Norður-írlandi mörg
undanfarin ár.
í fyrrinótt loguðu áfram óeirðir í bænum Porta-
down og þurfti að beita vatnsdælubílum óeirða-
lögreglunnai- eftir að bensínsprengjum hafði verið
kastað að liðsmönnum öryggissveitanna. Frá því
að Óraníumenn í Portadown hvöttu mótmælendur
á Norður-írlandi til að lýsa óánægju sinni með að
þeir fengju ekki að ganga fylktu liði í gegnum
hverfi kaþólskra í bænum þann 1. júlí hafa alls ver-
ið gerðar 280 árásir á lögregluna í héraðinu. 146
menn hafa verið handteknir vegna þessara óeirða,
57 lögreglumenn og fimm liðsmenn breska hersins
hafa orðið fyrir meiðslum, um eitt þúsund bensín-
sprengjum hefur verið kastað að lögreglunni, 358
bifreiðar hafa orðið fyrir skemmdum af völdum
óeirðaseggjanna og 88 verið brenndar til ösku.
Auglýst í
geimnum
Baikonor. Reuters.
„ÞETTA geimskot er í boði
Pizza Hut.“ Ekki hafa borist
fregnir af því að þessi tilkynn-
ing hafi verið sérstaklega lesin
þegar rússneskri Proton-eld-
flaug var skotið á loft í gær en
engu að síður var auglýsing frá
flatbökuframleiðandanum
bandaríska á eldflauginni.
Gekk geimskotið að óskum og
mun flaugin bera næsta áfanga
Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á
braut um jörðu. Mikill fjár-
skortur hefur hrjáð geim-
flaugaáætlun Rússa og er
auglýsingin því tímanna tákn.
Ekki fylgir sögunni hvort
væntanlegir geimstöðvarliðar
geti fengið heimsendar pítsur.
13. alþjóða alnæmisráðstefnan í Suður-Afríku
Hvatt til samvinnu í
baráttunni gegn
Durban. AP.
ÞJÓÐIR heims, stofnanir þeirra og
fyrirtæki verða að sameinast í bar-
áttunni gegn alnæmi, sem telst ein
mesta ógnin gegn heilsu manna, að
sögn Carol Bellamy, framkvæmda-
stjóra Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna.
„Hér er þörf á einum mestu fjár-
magnstilfærslum í sögu mannkyns,"
sagði Bellamy á fréttamannafundi
sem efnt var til á 13. alþjóða alnæm-
isráðstefnunni í Durban í Suður-
Aíríku í gær. „Okkar eina von til
þess að stöðva útbreiðslu alnæmis-
veirunnar veltur á vilja þjóða til að
leggja baráttunni lið með öllu því
sem til þarf.“
Samkvæmt árlegri þróunar-
skýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem
kynnt var í gær, hefur alnæmisveir-
an nú áhrif á líf fjölda manna sem
ekki eru smitaðir. Milljónir bama
eru til að mynda munaðarlausar eftir
að hafa misst foreldra sína úr al-
næmi. „Þetta kann að vera ein mesta
hindrunin gegn lífsgæðum og heilsu
barna sem við höfum orðið vitni að á
okkar tírnurn," sagði Bellamy.
I Botsvana, þar sem rúmlega
þriðjungur landsmanna hefur
alnæmi
greinst með veiruna, ber einn þriðji
hluti stúlkna og 16% drengja undir
25 ára aldri alnæmisveiruna. I S-Afr-
íku er fjórðungur stúlkna smitaður
en 11% drengja. Fjölgun ungs fólks
sem greinst hefur með alnæmi gefur,
að mati skýrsluhöfunda, skýrt til
kynna skort á forvömum sem og það
að baráttunni gegn alnæmi sé ekki
veittur nægur forgangur. Bellamy
hvatti á fundinum ríkin í suðurhluta
Afríku, þar sem yfir 70% þeirra sem
greinst hafa með alnæmisveh-una
búa, til að leggja aukna áherslu á
baráttuna gegn sjúkdómnum.
Aflýsa
sölu til
Kína
Thurmont í Bandaríkjunum. AP.
EHUD Barak, forsætisráðherra
Israels, tilkynnti Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta í gær að Israelar væm
hættir við að selja Kínverjum
háþróað ratsjárkerfi í flugvélar. Bar-
ak er nú í Bandaríkjunum þar sem
hann ræðir við Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, með milli-
göngu Clintons.
Bandaríkjamenn höfðu lýst sig
andvíga því að ísraelskt AWACS-
ratsjárkerfi yrði sett í rússneskar
flugvélar fyrir Kínverja. AWACS er
hátæknibúnaður sem gerir mönnum
kleift að fylgjast með allri flugum-
ferð á stóm svæði og flugvélar með
slíkan búnað em veigamikill þáttur í
vömum Bandaríkjamanna.
Talsmaður Baraks sagði að for-
sætisráðherrann hefði skrifað Jiang
Zemin, forseta Kína, bréf og aflýst
sölunni og um leið „sagst hryggur“
vegna þess. Ákvörðunin um að aflýsa
sölunni hafi verið tekin í ljósi þess að
Israelum er nú nauðsyn að eiga góð
samskipti við Bandaríkin, sagði tals-
maður Baraks, en sagði þó ekki bein-
línis að hætt hefði verið við söluna
vegna þrýstings frá Bandaríkja-
mönnum. Hann viðurkenndi aftur á
móti að hætt hefði verið við söluna í
því augnamiði að liðka fyrir því að
árangur næðist á fundi Baraks,
Arafats og Clintons.
Talsmaður Bandaríkjaforseta
sagði á fréttamannafundi í gær-
kvöldi að „alvarlegar samræður"
hefðu farið fram milli leiðtoganna, en
forðaðist að tala um að árangur hefði
náðst. Clinton átti fund með Barak
og Ai-afat sitt í hvom lagi í gær, en
ekki hefur verið ákveðið hvort leið-
togarnir hittast allir þrír.
MORGUNBLAÐK) 13. JÚLÍ 2000