Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
159. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tour de
France
í fullum
gangi
HÓPUR keppenda í Tour de France
hjólreiðakeppninni þeysir hér fram-
hjá vínekrum á leiðinni frá Carp-
entras til Mont Ventoux í Frakk-
landi í 12. áfanga keppninnar.
Það var sigurvegari síðasta árs,
Bandarfkjamaðurinn Lance Arm-
strong, sem hafði forystuna í gær,
en í 12. áfanga cr meðal annars
haldið yfir fjallið Mont Ventoux,
sem einnig er þekkt undir nafninu
„Risi Provence-héraðsins".
Mjög vindasamt hafði verið við
Mont Ventoux kvöldið áður en
keppendur komu þangað og hafði
framkvæmdastjóri keppninnar,
Jean-Marie Leblanc, lýst því yfir að
ekki kæmi til greina að fresta 12.
áfanga vegna veðurs.
Stigahæst.j hjólreiðamaður gær-
dagsins var Italinn Marco Pantani.
Reuters
Uppreisnarmenn sleppa forsætisráðherra Fídjí og fleiri gíslum
Grannríkin óttast
stjórnleysi á eyjunum
Suva, Canberra. Reuters, AFP.
UPPREISNARMENN úr röðum
frumbyggja á Fídjí slepptu í gær öll-
um gíslum sínum, þeirra á meðal for-
sætisráðherra eyjanna, eftir að ráð
æðstu höfðingja landsins hafði sam-
þykkt kröfu þeirra um nýjan forseta.
Ráðamenn í grannríkjum Fídjí fögn-
uðu því að gíslamir voru látnir lausir
en vöruðu við því að uppreisnin ætti
eftir að draga dilk á eftir sér. Stjórn
Nýja-Sjálands sagði að hætta væri á
algjöru stjórnleysi á Fídjí.
George Speight, leiðtogi upp-
reisnarmannanna, hafði tilnefnt
frumbyggjahöfðingjann Josefa Iloilo
í forsetaembættið og hann var kjör-
inn forseti til bráðabirgða með öllum
greiddum atkvæðum á fundi höfð-
ingjaráðsins í gærmorgun. Ráðið
kom aftur saman í gærkvöld til að
velja nýjan varaforseta og talið var
að það myndi einnig skipa nýja ríkis-
stjórn. Speight hefur lýst því yfir að
hann vilji verða forsætisráðherra.
Uppreisnarmennirnir tóku Mah-
endra Chaudhry forsætisráðherra,
sem er Indverji, og 26 þingmenn í
gíslingu í þinghúsinu í Suva til að
krefjast þess að Indverjar yi-ðu
sviptir stjórnarskrárbundnum rétti
sínum til að gegna forsætisráðherra-
embættinu. Indverjar em um 44% af
800.000 íbúum eyjanna og mjög
áhrifamiklir í efnahagsiífinu.
„Baráttan rétt að byrja“
Þegar Chaudhry gekk út úr þing-
húsinu eftir tveggja mánaða gíslingu
var hann spurður hvort hann teldi
sig enn forsætisráðherra. „Þjóðin
ræður því,“ sagði Chaudry sem hef-
ur getið sér orð fyrir þrjósku og yrðu
margir Fídjíbúar ekki hissa ef hann
leitaði til dómstólanna til að koma
nýju ríkisstjórninni frá völdum.
Felix Anthony, leiðtogi verkalýðs-
samtaka Fídjíeyja, sagði að baráttan
fyrir lýðræði væri „rétt að byrja“.
Hann spáði því að nýja stjórnin
mætti harðri andstöðu, ekki aðeins
Indverja, heldur einnig þorra ann-
arra landsmanna. „Eg vænti þess að
Chaudhry rísi upp og berjist.“
Grannríki Fídjí, þeirra á meðal
Ástralía og Nýja-Sjáland, hafa hótað
eyjunum refsiaðgerðum verði lýð-
ræðislega kjörinni stjórn landsins
ekki komið aftur til valda. Fídjí var
vikið úr Samveldinu 6. júní vegna
gíslatökunnar.
Alnæmisveiran
Tugir
milljóna
munaðar-
leysingja
Mbabane, Durban. AP, Reuters.
HÁTT í 30 milljónir bama í þróunar-
ríkjum munu verða búnar að missa
annan foreldra sinna eða báða úr al-
næmi árið 2010, að því er bandaríska
hjálparstofnunin USAID greindi frá
á 13. alþjóðlegu alnæmisráðstefnunni
í Durban í Suður-Afríku í gær. Þetta
eru rúmlega helmingi fleiri böm en
misst hafa foreldra sína úr alnæmi sl.
fimmtán ár.
Tölur USAID eru töluvert hæni
en þær 20 milljónir sem gert er ráð
fyrir í skýrslu Bamahjálpar Samein-
uðu þjóðanna, en þeir útreikningar
miðast við þann íjölda bama sem ým-
ist missa móður sína eða báða for-
eldra. í skýrslu USAID eru ekki tek-
in með í reikninginn þau böm sem
fæðast með alnæmisveiruna, þar sem
fæst þeirra ná fimm ára aldri. ,AI-
næmisfaraldrinum fylgir óvéfengjan-
lega stærsti hópur munaðarleysingja
í allri mannkynssögunni," segir í
skýrslunni sem ber heitið „Böm á
ystu nöf‘. „I gegnum tíðina hefur stór
hópui- munaðarlausra bama jafnan
verið skammtímavandamál sem fylgt
hefui- í kjölfar styrjalda, hungurs-
neyðar eða sjúkdóma. Alnæmi hefur
gert þetta að langtímavandamáli sem
mun að minnsta kosti teygja sig inn á
þriðja áratug 21. aldarinnar."
Fimmta hvert barn
misst foreldri
Það era ríkin í suðurhluta Airíku
sem mest mun mæða á, en þar. búa
yfir 70% þeirra 34,3 milljóna manna
sem nú bera alnæmisveirana. í Mal-
aví, Rúanda, Zambíu og Zimbabve
hefur fimmta hvert barn misst annan
foreldra sinna úr alnæmi og er talið
að á næsta áratug verði hlutfallið eitt
af hverjum þremur.
Þá greindi fíeuíers-fréttastofan frá
því í gær að þingheimur í Svazílandi
íhugi nú að láta framkvæma ófijó-
semisaðgerðir á þeim sem greinast
með alnæmisveirana, og er það talið
eiga við a.m.k. fjórðung landsmanna.
Mannskæð aurskriða
Ríkissljórnir Bandaríkjanna og Víetnam
Viðskiptasamning
ur undirritaður
SLÖKKVILIÐSMENN vinna hér
við björgunarstörf eftir að að
minnsta kosti 58 manns létu lífið
er aurskriða féll á fátækrahverfí í
Bombay á Indlandi í fyrradag.
Óttast er að fleiri eigi eftir að
finnast látnir þar sem 50 eru enn
taldir grafnir í rústunum.
Rúmlega 200 hreysi eyðilögðust
í skriðunni og var björgunarstarfi
haldið áfram í gær, sólarhring
eftir að skriðan féll. Ólíklegt var
þó talið að nokkur fyndist enn á
lífi, en áður hafði tekist að bjarga
46 manns úr rústunum.
Bombay er höfuðborg Mahar-
ashtra-ríkis á Indlandi og 74 hafa
látið lífið af völdum mikilia rign-
inga og flóða í ríkinu síðustu
daga, þeirra á meðal tólf drengir
sem drukknuðu. Skriður eru al-
gengar í Bombay á monsúntíman-
um á Indlandi, sem varir í fjóra
mánuði. Atvinnulíf borgarinnar
lamaðist í gær vegna óveðursins.
Götur og járnbrautir voru undir
vatni, vinnustaðir og skólar lok-
aðir og spáð áframhaldandi rign-
ingu og roki.
Wasliinglon. AP.
VIÐSKIPTASAMNINGUR milli
Bandaríkjanna og Víetnam var und-
irritaður í gær og lýsti Bandaríkja-
stjórn samningnum sem sögulegum
sáttum milli ríkjanna.
Samningurinn er sagður veita
Víetnam aðgang að Bandaríkja-
markaði á sömu forsendum og öðr-
um þjóðum. Víetnam hét því á móti
að lækka tolla og draga úr viðskipta-
hömlum á bandarískum varningi, s.s.
landbúnaðarvöram, og á fjármála-
viðskiptum og annarri þjónustu.
„Þetta er í fyrsta skipti sem Víet-
nammarkaður er opnaður fyi-ir
Bandaríkjamönnum og mun það
reynast lyftistöng fyrir efnahag Ví-
etnam,“ sagði í tilkynningu Banda-
ríkjastjórnar. Vu Khoan, viðskipta-
ráðherra Víetnam, og Charelen
Barshefsky, viðskiptafulltrúi Banda-
ríkjanna, undirrituðu samninginn,
en fyrir ári féll samningur sem ríkin
höfðu náð sín á milli er stjóm Víet-
nam gekkst ekki við tillögum samn-
ingsmanna. Ríkin hafa leitast við að
ná viðskiptasamningi sín á milli sl.
fimm ár.
MORGUNBLAÐIÐ 14. JÚLÍ 2000